Dagur - 12.04.1961, Page 1
sVÍÁ!.OA<;\ Framsók.nar ma.nxa
R rsrjÓRi: ! xi !m;i;r Ravíosson
SkKfFSt'OFA i H AFNAR8TR.ÆT! 90
StMI H()ti . SkI'NINOU og pkkniun
AN.NAsT l’UKNTVlíRK Ol)DS
H)ÖKN.SSONAIt II.T. AkI.-RF.VR1
-----------------------------------
Ait.iasim.ani [t'-.Ki: Jón Sam-
ÓEl.ssON . ÁRGANf.LIUNN KOSÍ'AK
kk. i00.00 . O !-u :•!• <.- i ER !. (LLÍ
' BI.ADH) KEM l.’ft ÉT A M HIKOl)ÖC.~
i'\s ot; a i vi (. waiiiT'M
ht.ak Ásr.EíiA i.'.'Kii; riL
s,____________________________
Aflahrofa hjá Eyjafjarðarbáfum
Hauganesi, þriðjudag 11. apríl.
AFLAHROTA sú sem kom hjá
bátum hér um og fyrir páskana
er að réna.
Héðan róa þrír bátar og hafa
aflað mjög vel. Hafa komizt upp
í 23 skippund í róðri. Aflahæst-
ur er Níels Jónsson, með yfir
200 skippund.
Þetta er óvenjulega rnikill afli,
sem allur er veiddur í net. Neta
veiði hefur ekki verið stunduð
mikið héðan. undanfarin ár, en
hefur þó farið vaxandi. Nú eru
bátarnir með fleiri net og hafa
byrjað fyrr en áður. □
Dalvík, 11. apríl: Hér hefur
dregið heldur úr hinni miklu
netaveiði bátanna, sem var mest
um og fyrir páska. Hæstur í
róðri, fram að þessu, var m/b
Máni frá Skagaströnd, fékk 20
tonn, en það var tveggja nátta
fiskur.
Netaveiði hefur aldrei verið
stunduð eins mikið hér og nú,
enda aldrei gefið eins góða raun.
Virðist það sama sagan hvar-
vetna norðanlands.
í vikunni sem leið, lönduðu
hér Björgvin og Björgúlfur um
50 tonnum hvor. □
Firmakeppni Skíðaráðs Akureyrar
HIN ÁRLEGA firmakeppni byggingu hússins sem allra
Skíðaráðs Akureyrar fer fram í fyrst. Væntum við því liðveizlu
Hlíðarfjalli sunnudaginn 16.
apríl næstkomandi.
Að þessu sinni hefur Skíðaráð
ákveðið að ágóði af keppni þess
ari renni til framkvæmda í Hlíð
arfjalli, en undanfarið hefur fé
þessu verið varið til starfsemi
Skíðaráðsins, kennslu, keppnis-
ferða, áhaldakaupa o. s. frv.
Keppni þessi í ár er því aðal-
lega miðuð við að kynna bæjar
búum starfsemina í Hlíðarfjalli
og leitar Skíðaráð því til fyrir-
tækja og starfshópa hér í bæn-
um að verða þátttakendur í
firmakeppninni.
Leitað Iiðveizlu.
Bent skal á, að Skíðaskálinn
í Hlíðarfjalli hefur verið lengi
í by ggir.gu og öllum fram-
kvæmdum hefur til þessa miðað
fyrirtækis yðar í væntanlegri
firmakeppni. Þátttökugjald er
kr. 200.00. Frekari upplýsingar
gefnar í síma 1546.
Skemmtileg keppni.
Skíðaráð Akureyrar mun leit
ast við að gera keppni þessa sem
bezt úr garði, svo hún veki at-
hygli manna á Skíðaskálanum
og því ágæta skíðalandi, sem í
Hlíðarfjalli er. □
Svona lítur Aðalstræti 14 út eftir brunann síðastliðinn fimmtudag. (Ljósmynd J. S.)
ELDSVOÐAR Á AKUREYRI
TVÖ HÚS stórskemmdust af
eldi hér á Akureyri síðastliðinn
fimmtudag. Rétt um hádegið var
brunaliðið kvatt að húsi því við
Geislagötu, sem kennt er við
B. S. A. Var kominn upp eldur
á efri hæð hússins, þar sem Tóm
as Steingrímsson, heildsali,
Karðbakur selur í Hull í dag um 200 lestir
í FYKRAKVOLD rann út í
sandinn verkfall yfirmanna á
togurum í Hull. Hafði það sin
mjög hægt vegna fjárskorts. 2 áhrif á úrslitin, að Þorkell máni
Telur Skíðaráð sér því skylt aðkom þá til borgarinnar með hátt
hvetja alla Akureyringa til sam :.l á annað hundrað smálestir af
eiginlegs átaks um að Ijúka viðgóðum fiski. Er því annað höf-
FERÐAFÉLAG AKUREYRAR minntist 25 ára afmælis síns
með fjölmennu hófi í Alþýðuhúsinu s.l. laugardagskvöíd og
var þessi mj-nd tekin við það tækifæri. — Nánar verður sagt
frá aldarfjórðungs starfsemi Ferðafélagsins í næsta hlaði. □
uðvígið fallið,' en þrjótamir í
Grimsby eru enn hinir „staffír-
ugustu“, þótt ekki sé talið, að
það muni standa lengi. Voru
þeir búnir að fá löndunarmenn
til þess að gera samúðarverk-
fall, þ. e., vinna ekki að löndun
á íslenzkum fiski, en ræðismað-
ur íslands, Þórarinn Olgeirsson,
fékk þá ofan af því, svo að nú
verður einhverju af íslenzkum
fiski landað í Grimsby líka.
Harðhakur mun selja í Hull
í dag, um 200 lestir, og vonandi
fæst gott verð fyrir fiskinn. □
hafði geymslu og eyðilagðist eða
stórskemmdist nær allt, er hann
átti þar inni.
í risinu átti Hannes Halldórs-
son, reiðhjólaviðgerðarmaður,
allmörg ný reiðhjól geymd, en
þau náðust út lítt skemmd.
Húsið brann nokkuð mikið á
efri hæð og í risi, en á neðri hæð
inni, þar sem B. S. A. stöðin og
verkstæði Hannesar voru til
húsa, skemmdist eingöngu af
vatni og reyk. Húsið mun talið
viðgerðarhæft.
B. S. A.-húsið er gamalt stein
hús. Þar var rekið fyrsta kvik-
myndahúsið á Akureyri í mörg
ár, undir nafninu Akureyrar-
bíó. Árið 1930 keypti húsið Krist
ján Kristjánsson, sem rak B. S.
A.-bifreiðastöðina í mörg ár við
mikinn og góðan orðstír. Krist-
ján hafði viðgerðarverkstæði á
neðri hæðinni en yfirbygginga-
verkstæði á þeirri efri.
Réttum tveim stundum eftir
þessa útkvaðningu brunaliðsins,
um það bil er liðið var að koma
frá B. S. A. húsinu, var það
kvatt út aftur. Að þessu sinni
Töldu Hlíðarf jallið bezta skíðaland liérlendis
UM TUTTUGU manna hópur af
Keflavíkurflugvelli kom hingað
til bæjarins síðastliðið föstudags
kvöld og dvaldist hér, þay til
seinnipartinn á sunnudag. Er
ekki ólíklegt að fleiri komi á
eftir.
land, og töldu ferðina vel heppn
aða í alla staði.
Hópurinn bjó á Hótel KEA. □
að húsinu Aðalstræti 14. Þar
var eldur laus í risi í norður-
hluta hússins. Eldurinn var það
magnaður, að ekki tókst að
kæfa hann, fyrr en þakið var
nær allt fallið og er húsið talið
ónýtt að mestu.
Mikið lán var, hversu kyrrt
var í veðri. Þess vegna tókst að
verja suðurhluta hússins, sem
er öllu meiri bygging.
Norðurhluti hússins Aðalstr.
14 var allsöguleg bygging. Það
var byggt af Jóni Finsen, héraðs
lækni, árið 1857, en árið 1873
keypti Gudmann, kaupmaður,
húsið og gaf bænum það til
sjúkrahúss, búið átta rúmum.
Var það vígt 7. júlí árið eftir, að
viðstöddum landshöfðingja og
fleira stórmenni. Húsið var
lengi vel þekktast undir nafn-
inu Gamli spítalinn.
Leó Guðmundsson, starfsmað
ur hjá B. P., átti húsið og bjó
þar með stórri fjölskyldu. Missti
hann nær aleigu sína. Innbús-
trygging mun hafa verið lág,
eins og því miður allt of oft á
sér stað hjá mönnum yfirleitt.
Þriðji eldsvoðinn var á föstu-
dagsmorguninn kl. að ganga 9.
Þá var eldur laus í Hressingar-
skálanum í Strandgötu 13 B.
Brunaliðinu tókst fljótt að
ráða niðurlögum eldsins, en
skemmdir urðu samt töluverðar
af vatni og reyk.
Eldsupptök munu ekki kunn
enn, í neinum þessara eldsvoða.
Skeirmiun Geysis endurtekin
Húsfyllir a Bingóskemmtun F.U.F.
ÞRIÐJA Bingóskemmtun hjá
Félagi ungra Framsóknarmanna
á Akureyri var á sunnudaginn
var að Hótel KEA.
Þátttakendur í Bingóinu voru
eins margir og gátu komizt og
var spilað af kappi. Stjórnandi
var Jón Kristinsson, rakara-
meistari. Dansað var af miklu
fjöri á eftir. □
IVIjög ánægðir.
Þeir komu eingöngu til að not
færa sér hið góða skíðaland í
Hlíðarfjalli. Ameríkumenn þess
ir, sem margir eru vanir skíða-
menn, töldu sig hvergi, hér á
landi, hafa komizt í jafn
skemmtilegt og fjölbreytt skíða-
KARLAKÓRINN GEYSIR ætl-
ar að endurtaka kvöldskemmtun
sína, er hann hélt hér fyrr í
vetur við mikla aðsókn, nk.
laugardags- og sunnudagskvöld
í Samkomuhúsi bæjarins.
Aðgöngumiðar verða seldir
sem fyrr í Bókabúð Jóhanns
Valdemarssonar á föstudag og
laugardag.
Þá áformar Geysir að fara
einnig með skemmtunina í Sól-
garð síðasta vetrardag og sýna
hana þar og dansa á eftir.
Eitthvað mun verða aukið við
skemmtiatriði. □