Dagur - 10.05.1961, Qupperneq 8
8
NOREGSKONUNGUR TIL ÍSLANDS
Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi mun flytja konungi kvæði
•lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllimillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllia
HINN 31. þ. m. kemur Ólafur
Noregskonungur í opinbera
heimsókn til íslands á skipi
sínu, Norge. En stærsta herskip
Norðmanna, Bergen, verður
með í förinni. Halvard Lange
og Odd Grönvold, stallari, verða
m. a. í fylgdarliði konungs.
Fyrsta opinbera heimsóknin.
Viðdvölin verður þrír dagar.
Þetta er fyrsta opinbera heim-
sókn Noregskonungs til íslands.
Meðal þeirra atriða, sem sagt
hefur verið frá í sambandi við
konungskomuna, er heimsókn
hans í Háskólann hinn 1. júní.
l?ar flytur rektor ávarp, en
Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi flytur konungi frumort
kvæði. Síðasta daginn, 3. júní,
fer konungur með föruneyti
sinu upp í Reykholt í Borgar-
firði, en heldur heimleiðis á
skipi sínu um kvöldið. □
Bændaskólanum á Hólum slitið nýlega
Sjötugasti og sjöundi nemendaliópurinn
Skólastjóraskipti á Hólurn í Hjaltadal í vor
SUNNUDAGINN 30. apríl var
Bændaskólanum á Hólum slit-
ið. Nemendur skólans voru 34
í vetur og þar af útskrifuðust
13. Hæstu einkunn hlaut Baldur
Vagnsson frá Hriflu. Nokkrir
fengu verðlaun fyrir góðan
námsárangur.
Við skólaslitin að Hólum af-
henti Kristján Karlsson braut-
skráðum nemendum skírteini
sín, sagði frá skólastarfinu og
flutti skólasveinum síðan ávarp.
Kristján Karlsson skólastjóri
lætur af skólastjórn nú í vor og
flytur til Reykjavíkur, en tekur
við erindrekastörfum hjá Stétt-
arsambandi bænda. Hann hefur
gegnt skólastjórastarfi í 26 ár,
og er virtur maður í skóla og í
héraði. Hinn nýi skólastjóri,
Gunnar Bjarnason, mun flytja
norður innan skamms og hyggja
til mikilla breytinga á skólan-
I Björgunarafrek }
í SÍÐUSTU veiðiferð togarans
Harðbaks frá Akureyri, féll
maður fyrir borð. Skipstjórinn
Vilhelm Þorsteinsson, sem er
sundmaður góður, kastaði sér
þegar til sunds. Hann bjargaði
lífi skipverja síns með þessu
karlmannlega snarræði, en ekki
mátti tæpara standa. Togarimi
var úti á rúmsjó er þetta bar
til og á fullri ferð. □
um, m. a. gera skólann að eins
árs skóla, en um það hefur blað
ið ekki nánari fregnir að sinni.
Þessir búfræðngar voru braut-
skráðr:
Baldur Vagnsson, Hriflu,
Birgir Þórðarson, Rvík., Broddi
Björnsson, Garðakoti, Hjalta-
dal, Guðrún Sveinbjörnsd.,
Ofeigsfirði, Ströndum, Helgi
Jónsson, Selalæk, Rangárvöll-
um, Jóhann Hólmgrímsson,
Vogi, Raufarhöfn, Jón Sigvalda
son, Stafni, Svartárdal, Olafur
Guðmundsson, Sámsstöðum,
Hvítársíðu, Sigurður Sigurðs-
son, Hvítárholti, Hrunamanna-
hr., Símon Gestsson, Siglufirði,
Sverrir Magnússon, Reykjahóli,
Hrunamannahr., Tryggvi Hösk-
uldsson, Bólstað, Bárðardal.
| A HANDFÆRI |
STARFSMENN Akureyrarbæj
ar fóru á handfæraveiðar með
Drang síðastliðinn sunnudag.
Þátttakendur voru 37. Farið
var út undir Hrísey. Heildarafli
var 60 fiskar. Fengsælastur var
Ingólfur Kristinsson, en stærsta
þorkinn, um 9 kg., dró frú Anita
Björnsson. □
1 Nýjasti mjólkurbíllinn sem flytur mjólk til samlagsins og i
i vörur til bænda. Benedikt, bílstjóri á Vatnsedjia, sítur |
1 hér undir stýri í þessum glæsilega farkosti. (Ljósm.: E. D.) f
íiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini iii 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111';
Gekk úti í vetur
Lómatjörn 8. maí. Nýlega
kom útigengin, veturgömul ær
saman við fé á Melum. Hún var
vel fram gengin. Eigandi henn-
ar er Skírnir Jónsson bóndi á
Skarði.
Vegurinn er bannaður vegna
aurbleytu, og verðum við að
flytja alla mjólk með Drang frá
Grenivík. Fnjóskdælir flytja
einnig sína mjólk til Grenivíkur
og tekur báturinn hana líka.
Það er einkum vegurinn á Sval-
barðsströnd, sem er mjög illa
farinn, en hér í sveit eru vegir
sæmilegir.
Minkar hafa sézt hér í vetur,
en enginn náðst ennþá. Síðar
verður sennilega eitthvað meira
skrafað við þá.
Margir afla grásleppu og
gengur vel. Þorskafli hefur ver-
ið sæmilegur. Sauðburður er í
byrjun. □
Lágheiði opnuð
Haganesvík 8. maí. Snjórinn
er óðum að minnka. Verið er að
opna veginn á Lágheiði og geng
LEIKFÉLAG AKUREYRAR frumsýnir Bláu kápuna á laugardaginn kemur. Æfingar hafa
staðið í tvo mánuði. Leikstjóri er Ragnhildur Steingrímr-dóttir. Meðal leiltenda eru flestir
beztu söng-menn og -konur bæjarins. Leikendur eru 15 talsins, meðal þeirra: Björg Bald-
vinsdóttir, Ragnhildur og Brynhildur Steingrímsdætur, Jóliann Konráðsson, Jóhann Og-
mundsson, Júlíus Oddsson og Aðalsteinn Jónsson. — Búninga fékk leikfélagið m. a. bjá
Þjóðleikhúsinu. — Leikhúsunncndur hafa beðið Bláu kápunnar með óþreyju. Sýningum
verður hraðað og því vissara að tryggja sér aðgöngumiða í túna. Sýningar liefjast kl. 8.30.
Fastir frumsýningargcstir eru beðnir að vitja aðgöngumiða sinna í leikhúsið miðvikudag og
fimmtudag kl. 3—5 e. li. — Myndin er af leikurum á æfingu. — Ljósm. E. Sigurgeirsson. □
ur vei'kið vel. Strax á eftir verð
ur Siglufjarðarskarð opnað, en
þar er lítill snjór Fljótamegin
og vegakantarnir víða upp úr,
en meiri snjór að austan.
Vertíðarfólkið er nú sem óð-
ast að koma heim. □
Slys hjá Páfastöðum
Sauðárkróki 8. maí. Harður
árekstur varð á veginum hjá
Páfastöðum á sunnudaginn. Þar
mættust jeppi og fólksbifreið
og rákust svo harkalega saman,
að báðar bifreiðimar eru nær
ónýtar.
í jeppanum meiddust 4 og er
einn farþegi á sjúki-ahúsi.
Daufleg eru aflabrögðin. Veg
ir eru sæmilega góðir í héraðinu
og betri, en oft áður. □
Aðalfundur Kaupfél.
Austur-Húnvetninga
Blönduósi 8. maí. Aðalfundur
Kaupfélags Austur-Húnvetn-
ing var haldinn á Blönduósi
dagana 5. og 6. mai sl. Umsetn-
ing félagsins varð á síðastn ári
24,5 milljónir króna. Ákveðið
var að byggja útibú itinan
(sunnan) Blöndu, énda aðkall-
andi. Mættir voru 39 fulltrúar,
auk stjórnar og gesta.
Tveir stjórnarnefndramenn
áttu að ganga úr stjórninni, þeir
Hilmar Frímannsson bóndi á
Fremstagili og Páll Geirmunds-
son ,BIönduósi. í stað Páls, sem
baðst unlan endurkosningu, var
Halldór Jón'sson, bóndi á Leys-
ingjastöðum kosinn og Hilmar
endurkosinn.
Á morgun og miðvikudaginn
verður aðalfundur Sölusam-
bands Kaupfélags A.-Húnvetn-
inga. Heildarvelta þess er um
29 milljónir króna. Innvegin
mjólk var 2,8 millj. lítra og
verðið, sem bændur fá fyrir
hana, er kr. 3.94.5 pr. 1. Slátur-
fé var 34200 og sláturhross 1029.
□
Skólaslit í Ólafsfirði
Ólafsfirði, 9. maí. Hér var lítið
sem ekki róið síðustu viku
vegna ógæfta.
Barna- og unglingaskólanum
var slitið á sunnudaginn. Björn
Stefánsson, skólastjóri, minnt-
ist við skólauppsögn Sigursceins
Magnússonar, skólastjóra, ' em
lézt 21. nóvember sl.
Unglingaprófi luku 16 börn.
Hæsta einkunn hlaut Birgitta
Pálsdóttir, 8,29. Barnaprófi
luku 22 börn, hæst varð Guð-
ríður Brynjólfsdóttir, 8,86.
Skólastjórinn ávarpaði nemend
ur með hvatningarorðum um að
verða góðir menn og nýtir
þegnar þjóðfélagsins. □
Grásleppuhrognin
verðlítil
Húsavík, 9. maí.
Grásleppuveiði hefur verið
ágæt, en henni er nú lokið
vegna verðfalls á hrognunun',
Lifrarsamlag Húsavíkur
hætti störfum og ákvað að gefa
eignir sínar, 250 þúsund króna
virði, til viðbyggingar sjúkra-
hússins. Það eru sjómenn og sjó
mannsekkjur, sem þarna áttu
hlut að máli og þykir öllum nnk
il rausn.