Dagur - 10.08.1961, Blaðsíða 4
5
.........................—...--—■>
Bagur
Greiðsluþrot og
gengisfelling
RÍKISSTJÓRNIN gaf út enn ein bráða-
birgðalögin hinn 2. ágúst s. 1. er fólu það
í sér, að hún og Seðlabankinn skuli
ákveða gengi íslenzku krónunnar en
ekki Alþingi íslendinga. i kjölfarið fylgdi
svo 3% gengisfellng.
EJcki var því spáð fyrir rúmu ári, þegar
núverandi ríkisstjórn lögleiddi gengis-
fellingu, meiri en áður hafði þekkzt, að
hún mundi vega í sama knérunn áður
en hálft annað ár væri liðið. Sú varð
þó raunin og gengur mönnum misjafn-
lega vel að glöggva sig á nauðsyn þess.
Ræðan, sem Ólafur Thors flutti er
gengislækkuninni var skellt á, var án
raka fyrir þessum verknaði og nánast
pólitískur þvættingur. Tilefni gengisfell-
ingarinnar var greiðsluþrot ríkissjóðs,
kauphækkanirnar skálkaskjól.
í ambandi við þetta óhappaverk rikis-
stjórnarinnar er rétt að benda á nokkrar
staðreyndir.
Lífskjör almennings höfðu rýrnað
um 15—20% síðan núverandi stjórn tók
við, bæði af völdum hinnar fyrri gengis-
fellingar, dýrtíðarflóðsins sem í kjölfar
hennar fylgdi og nýrra skatta. 11% kaup
hækkunin í sumar eða 400 krónu hækk-
un mánaðarlauna verkamanna varð
launafólki veruleg kjarabót og talin
mjög réttlát lausn.
Ríkisstjómin lét sáttasemjara sinn
bjóða 6% kauphækkun og 4% á næsta
ári og taldi efnahagskerfið þola þá kaup-
hækkun. Gengisfellingin er réttlætt með
mismuninum á því, sem ríkisstjórnin lét
sáttasemjarann bjóða og því, sem end-
anlega var samið um. En sá munur er
svo lítill að ekki nemur meiru en sem
svarar lítilsháttar verðsveiflu á erlend-
um mörkuðum, þar sem íslendingar
selja framleiðslu sína og hefur þó eng-
um til hugar komið að breyta gengi
íslensku krónunnar í hvert sinn og verð-
breyting verður.
Á þessu ári er fyrirsjáanlegur mun
meiri útflutningur íslenzkra sjávaraf-
urða en í fyrra og þær seldar hærra
verði en þá. Ætti þetta að nema nokkr-
um hundruðum milljóna og koma á
móti kauphækkuninni. Þegar þetta er
haft í huga ásamt þeim boðskap ríkis-
stjórnarinnar fyrr á árinu að efnahags-
kerfi þjóðarinnar þyldi 6% kauphækkun
að viðbættum 4% á næsta ári, fer að
verða vandséð þörf gengislækkunar.
Hennar var a. m. k. ekki þörf vegna
kauphækkananna í sumar, það er alveg
útilokað, þótt því sé haldið fram.
Hin raunverulega ástæða fyrir gengis-
fellingu nú, mun vera tvíþætt. Hún er
hefndarráðstöfun við fólkið, vegna ófara
ríkisstjórnarinnar í verkföllunum í sum-
ar. Og hún er þó miklu fremur sprottin
af því, að ríkissjóður er nú kominn í
greiðsluþrot, sem yfir þurfti að breiða.
Allur málflutnngur stjórnarflokkanna
er við það miðaður að fela hina raunveru
legu orsök, greiðsluþrotin hjá ríkissjóði.
Tvær gengisfellingar á 16 mánuðum
og samdráttur á öllum sviðum uppbygg-
ingar og atvinnulífs í landinu er harður
dómur um mishcppnaðar efnahagsað-
gerðir. Nýafstaðin gengisfelling sýnir
sig brátt í hækkuðu verði útfluttra vara.
Sama vörumagn og flutt var til Iandsins
í fyrra þarf almenningur að kaupa 400
milljónum hærra verði en þá. Það er
hin nýja skattheimta. □
V__________________________________
V aldemar V. Snæv arr
—— MINNING ——
í DAG, þann 29. júlí, var fyrrver-
andi skólastjóri, Valdemar Valves-
son Snævarr, Völlum, til grafar
borinn á Dalvik, en hann lézt á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
18. þ. m.
Fjölmennari og virðulegri út-
för fullyrði ég að aldrei hafi fram
farið í Svarfaðardal. Sótti hana
'Tjölmenni langt að og í jjeim hópi
8 prestar. Þetta eitt útaf fyrir sig
sýnir hversu víðtækrar virðingar
og vináttu hinn látni naut, og
vissulega að verðleikum.
Valdemar V. Snævarr var fædd-
ur að Þórisstöðum, Svalbarðs-
strönd, S.-Þingeyjarsýslu, jjann 22.
ág. 1883. Foreldrar hans voru
hjónin Valves Finnbogason og
Rósa Sigurðardóttir. Valdemar
lauk gagnfræðaprófi frá Möðru-
vallaskóla 1901. Arið 1905 kvænt-
ist hann eftirlifandi konu sinni,
Steíaníu Erlendsdóttur. — Þeint
hjónunt varð 6 barna auðið. Syn-
ir 5, dóttir 1. Tvo sonu sína misstu
þau hjónin á unga aldri, en jrrír
synir lifa enn: Arni Þorveldur,
verkfr., Reykjavík, Stefán Erlend-
ur, prestur að Völlum í Svarfaðar-
dal og Armann, liáskólarektor,
Reykjavík. Dóttirin, Laufey Guð-
rún, gift kona, búsett í Egilsstaða-
þorpi, Fljótsdalshéraði. Auk þess
ólu þau hjónin upp Guðrúnu
Guðmundsdóttur, sem nú er gift
kona búsett í Reykjavík.
Hér skal ekki gjörð tilraun til
að rekja ævisögu Valdentars Snæ-
varrs eða lýsa fjölbrotnu ævistarfi
hans. Til jjess brestur hvort
tveggja, geta mfn til að gera því
efni þau skil sem skyldi, og verk-
efnið meira en rúmast í stuttri
minningargrein. Auk þessa er mér
Ijóst að aðrir mcr færari skrifa um
Valdemar. Menn sem kunna þá
sögu vel að segja.
Þessi orð ruín eru eingöngu
bundin við mín persónulegu
kynni, eftir að leiðir okkar Valde-
mars komu saman, er hann flutt-
ist í Svarfaðardal 1944.
Ég hafði að sjálfsögðu löngu
fyrr þekkt hann að orðspori.
Hann varð snemma jjjóðkunnur
og jafnframt hafði ég notið hans
sem barnakennari í gegnum náms
bækur lians, en ég leit hann fyrst
augum 1930 á hátíð Möðruvell-
inga það ár. Vakti hann þegar at-
hygli mína, enda niun naumast
hafa yfir hann sézt í margmenni,
persónuleiki hans var slíkur og
framkoma öll.
Eigi grunaði mig þá að leiðir
okkar ættu eftir að liggja saman,
sem sveitunga, og með okkur tak
ast náin vinátta. En svona er lífið
skemmtilega tilviljanasamt og ó-
útreiknanlegt, og þó ef til vill allt
föstum reglum sett og lögmáls-
bundið.
Valdemar V. Snævarr var einn
Jreirra manna sem í senn er
skemmtilegt og uppbyggilegt að
kynnast. Gáfaður og fjölfróður,
léttur í lund, glaðsinna og mál-
reifur, en þó djúpur alvörumaður.
Hugur hans mun jafnan á næðis-
stundum hafa sýslað um lífsins
torráðnu rök og leitað svara. Og
hann leitaði ekki án árangurs,
honum öðlaðist að finna það, sem
liann leitaði að, guð sinn og herra,
og hann boðaði jiann guð öðrum
í sölum sínum, eins og hann hafði
meðtekið hann í hjarta sitt og sál.
Og bjarminn frá jjeirri birtu lýsti
upp allt líf hans, og bar ávöxt í
öllu starfi hans, sem lieimilisföð-
ur og æskulýðsleiðtoga og rnanns,
sem hverju góðu málefni vildi
veita brautargengi.
Valdeinar sagði mér ýmislegt úr
Iífi sínu, og framan af ævi var það
engin ganga á rósum. í frum-
bernsku sinni missir hann föður
sinn í sjóinn, og móðir hans verð-
ur að vinna hörðum höndum fyrir
þeim báðum. Þannig liða æskuár-
in, þá taka unglingsárin við. Jú,
Jjá er hann orðinn fær um að
vinna fyrir líkamsjjörfum sínum,
en honum er þetta ekki nóg. Sál
hans hungrar og Jjyrstir í andlega
fræðslu, sá Jjorsti er óslökkvandi,
en fjármunir engir til að full-
nægja þeirri þörf. Þó er á tæpum
vonum ráðist í að fá inngöngu í
Möðruvallaskóla. En peningarnir
lirökkva ekki til. A miðjum vetri
verður hann að tilkynna skóla-
stjóra að hann verði að segja sig
úr skóla. En Jón Hjaltalín skóla-
stjóri, mun hafa séð hvað í pilt-
inum bjó og orsökina til þessarar
ákvörðunar. Hann vildi hvorugu
una. Hann bauðst til að lána hon-
um peninga svo að hann gæti hald
ið áfram. „Það er lán“ sagði
Hjaltalín, en Jjú átt að greiða
þessa skuld síðast af þeim skuld-
um, er þú kannt að hafa stofnað
til.
Þannig leysti Drottinn þennan
vanda, sagði Valdemar. Þegar svo
skuldina skyldi greiða, var svar
Hjaltalíns: Greiddu þá einhverj-
um þeim, er þú telur peninganna
verðugan, og Ííkt stendur á fyrir
og þér, er Jjú stofnaðir til hennar.
Ég dreg þetta fram hér vegna
Jjess að minningin um þessi
drengilegu viðskipti skólastjórans,
var Valdemar helgur dómur, er
ég ætla að hafi síðan jafnan vak-
að í sál hans, og orkað djúpstætt á
sálarlíf hans.
Skuldina mun Valdemar hafa
greitt af höndum svo sem tilskilið
var og Jjað með vöxtum og vaxta-
vöxtum. Mundu ekki einhverjir
geta vottað það? Mig grunar að
svo muni vera, en ekki sagði
Valdemar mér Jjað.
Þó Valdemar hefði lokið gagn-
fræðaprófi nægði það ekki til að
svala menntajjorsta hans, og jafn-
framt brann í sál hans löngun til
ákveðins starfs. Hann þráði að
verða prestur og sú þrá slokknaði
aldrei. Ævina á enda bar hann
söknuð yfir að hafa ekki náð Jjví
marki.
Valdemar hefur áreiðanlega
háð sína Jakobs-glímu við Jjessa
þrá sína. Honum var nú kleilt
að ganga menntabrautina áfrani,
ef hann sleppti hendi af móður
sinni, en hún var Jjá hnigin á efri
ár og starískraftar hennar Jjverr-
andi. En hann var nægilegur
drengskaparmaður til að sigra
sjálfan sig í þessari glímu. Ástin
til móðurinnar og skyldunnar við
hana réðu úrslitum. En þráður-
inn slitnaði ekki. Prestshempu og
prestskragann hlaut hann ekki, en
hann gerðist engu að síður sáð-
maður í akri Kristskirkju. Kenni-
mannsstarfið varð lífsstarf hans
í heimahúsum og í barna- og ung-
lingaskólum Jjeim, er hann
kenndi við og stýrði.
Sú sterka guðstrú er hann átti
frjálsa og hindurvitnalausa, ásamt
heilbrigðu lífsviðhorfi hans, virð-
ingu fyrir starfi og hófsemi í lifn-
aðarháttum, er lijá honum féllu
í einn farveg, gerðu hann tilval-
inn æskulýðsleiðtoga og kennara.
Það var köllun hans í lífinu og
hann var þeirri köllun trúr allt
til hinztu stundar. Og lífið gaf
honum líka mikið. Hann var
hamingjumaður, eignaðist indæla
konu er bjó honum friðsælt heim
ili og börn Jjeirra með afburðum
vel gefin. Betri gjafir getur lífið
ekki gefið.
Valdemar var sextugur er hann
lét af skólastjóra og kennarastarfi.
Þá fluttist hann til Svarfaðardals
að Völlum, en þá var Jjar sonur
hans orðinn þjónandi prestur.
Þó Valdemar væri liættur
kennslustörfum var hann sístarf-
andi og afkastamikill og fullur
áhuga. Mér fannst hann allajafna
Benedikl Hólm Júlíusson,
bóndi, Hvassafelli
—— MINNINGARORÐ —
vera ungur maður og ég hefi
naumast áttað mig á Jjví enn að
lrann sé horfinn yfir móðuna
miklu. Hann var ætíð æskunnar
maður og undi sér næsta vel í
hópi barna og unglinga. Og þessa
naut svarfdælsk æska þann tíma
er hann dvaldi í Svarfaðardal.
Hann hafði tíðlega samkomur
með æskuíólki rædeli við Jjað og
fræddi, og að ég hygg, án endur-
gjalds. Hann var hinn trúi þjónn,
sem ekki mat hvert sitt starf til
peninga. Við Islendingar eigum
of fáa slíka nú á tímum.
Með Valdemar er merkur og að
ýmsu leyti sérstæður maður til
grafar genginn. Maður, sem liélt
reisn sinni þó kjör væru stundum
kröpp, og á brekku væri að sækja.
Hann lét aldrei ytri lífskjör
smækka sig andlega, heldur þvert
á móti. Rúm hans verður vand-
skipað, og minning hans lengi
lifa.
Við Svarfdælingar þökkum
Jjeim hjónum komuna hingað.
Hún var okkur í senn einkar kær
og mikill ávinningur.
Valdemar sendum við nú á öld-
um liugans yíir dauðadjúpin okk
ar vinakveðju með þökk fyrir
ljúfa og elskulega samfylgd og
störf.
Konu hans og fjölskyldu færum
við innilegustu samúðarkveðju.
Tjörn, 29. júlí 1961.
Þór. Kr. Eldjárn.
AÐ KVELDI fvrra mánaðar barst
mér sú frétt, að Bencdikt í Hvassa
felli væri látinn. Mig setti liljóð-
an, og ég var gripinn sárum sökn-
uði. Minningarnar um tryggan
vin komu fram ein af annarri.
Þær minningar eru mér alltaf kær
ar og munu geymast meðan lílið
varir. Benedikt var fæddur að
Hvassafelli 3. jan. 1903. Foreldrar
hans voru hjónin Bjarni Júlíus
Gunnlaugsson frá Þormóðsstöðum
í Sölvadal, hinn mesti dugnaðar-
og athafnamaður og Hólmfríður
Árnadóttir frá Skuggabjörgum,
mikilhæf og góð kona. Þau hjón
hófu búskap í Hvassafelli um síð-
ustu aldamót og bjuggu Jjar við
rausn og myndarskap, sem kunn-
ugt er. Benedikt ólst upp hjá for-
eldrum sínum og tók snemma virk
an þátt í búrekstri föður síns með
lifandi áhuga og harðfylgi. Hann
stundaði nám í Gagnfræðaskólan-
um á Akureyri, brautskráðist það-
an gagnfræðingur, er hann stóð á
tvítugu. Fékkst hann síðan við
kennslu nokkra vetur, en vann að
búi foreldra sinna á sumrum.
Árið 1930 keypti hann jörð og
bú foreldra sinna ásamt Pálma
bróður sínum, og kvæntist stuttu
síðar Rósu Jónsdóttur Thorlacius
frá Oxnafelli. Þegar Pálmi brá
búi nokkrum árum síðar. keypti
Benedikt alla jörðina og hefur
búið Jjar síðan. Fyrstu árin urðu
erfið, Jjví að Jjá skall á hin mesta
kreppa, sem mörgum varð Jjung
í skauti. En Benedikt mætti henni
með manndómi og karlmennsku,
sem lionum var í blóð borin.
Hann stóð alltaf í stórfram-
kvæmdum, hafði hýst jiirð sína
með ágætum og ræktað í svo stór-
um mæli, að Hvassafell mun nú
bera meiri áhöfn en flestar jarðir
aðrar í Eyjaíirði.
Með Benedikt Júlíussyni er
genginn hinn mætasti maður, og
Jjó sagt sé, að maður komi í manns
stað, má þó tullyrða, að vandfyllt
er í það skarð, sem nú er höggvið.
Hann var hinn mesti rausnar-
maður, góður vinur og bróðir,
vildi hvers manns vanda leysa og
var allra manna glaðastur bæði í
vinahópi og heim að sækja. Bene-
SÉÐ OG HEYRT.
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi til birtingar:
ÞEIR ERU margir skemmti-
flokkarnir, sem hafa verið á
ferðinni undanfarið og eru æði
misjafnir og sumir léttvægir
hvað menninguna snertir. Þó er
leikflokkur Þjóðleikhússins
un'dantekning og Kiljanskvöld-
ið var gott.
Hér var m. a. á ferðinni hinn
þekkti Svavar Gests með hljóm
sveit sína. Hér á Akureyri
„skemmti“ hann, en hriíningin
var lítil. Því næst lá leiðin í
Freyvang og hélt hann og fylgd
arlið hans ball þar. Aðsóknin
var mikil og selt miklu meira
en húsið tók. svo allt varð ein
iðandi kös. Skemmtiflokkurinn
vildi þó selja inn enn fleira
fólki, en fékk ekki ráðið. Þarna
var mjög mikið af börnum og
unglingum. Inngangseyrir var
65 krónur fyrir mann. Hvergi
var barnaverndarnefndin sjáan
leg og hefði hún þó átt erindi til
að líta eftir fermingarbörnunum
frá í vor og fleira fólki á því
reki, sem ótæpt notaði hinn
sterka drykk.
Um síðustu helgi, verzlunar-
mannahelgina, héldu skógrækt-
arfélögin mikla skemmtun í
Vaglaskógi. Annað eins fyllirí
hefur þar aldrei sézt og er þá
langt jafnað á þeim ágæta stað.
Mest bar á unglingunum. Marg
ir þeirra voru dauðadrukknir,
aðrir aðeins rólfærir. Það var
hörmuleg sjón.
Skógræktarfélögib. vinna þarf
legt verk og gott með því að
raektp skóg,. hjálpa fræjum til
að skjóta rótum, vaxa upp og
verða að stórum trjám, öllum
til yndis. En skógræktarfélogin
fara öfugt að er þau stefna
UM SAMA leyti í sumar og
síldaraflinn varð meiri en
nokkru sinni áður í sögu síld-
veiðanna hér á landi rak Mbl.
upp skelfingarkvein og sagði,
að aflast þyrftu 2 milljónir mála
og tunna síldar til að síldarút-
gerðin bæri sig, þ. e. að hvert
skip þyrfti að afla langt til 10
þús. mál og tunnur.
Þetta eru mjög athyglisverðar
skoðanir hjá aðal stjórnarblað-
inu, þegar þess er gætt að fyrir
„viðreisnina“ var afkoman á
meðal síldarbát sæmileg með
4—5 þús. mála og tunnu afla.
Verð á síld er þó verulega
hærra en áður. Morgunbl. ber
mannfjölda í Vaglaskóg. Þar er
nýgræðingurinn, æskan í sveit-
um og bæjum við Eyjafjörð og
Þingeyjarsýslu, 'rótslitinn og
skemmdur.
Foreldrar og aðrir forráða-
menn barna og unglinga ættu
ekki að leyfa börnunum að
hálda til í Vaglaskógi þegar
svona er ástatt, án eftirlits. □
Landssamband íslenzkra útvegs
manna fyrir þessum upplýsing-
um.
Hér er spurt: Hefur „við-
reisnin“, sem átti að tryggja at-
vinnuvegunum traustan grund-
völl, leikið þessa grein útgerðar
á íslandi svo grátt, að aflinn
þurfi að vera meira en helmingi
meiri en áður þurfti til að út-
gerðin beri sig?
Hefur ríksstjórnin og mál-
gögn hennar gert sér ljóst, að
yfirlýsing Morgunblaðsins, sem
það ber LÍÚ fyrir, felur í sér
fulla viðurkenningu á því hve
hörmulegar afleiðingar mis-
heppnuð stjórnarstefna er að
leiða þjóðina út í?
í sömu yfirlýsingu og hér er
vitnað til er hlutaskiptingunni
um kennt. Því er til að svara,
að hún er óbreytt frá því sem
verið hefur og á því ekki þátt
í þessum hraklega vitnisburði
um einstæð afglöp.
Vonandi er að málgögn
ríkisstjórnarinnar verði fús til
að skýra það nánar hversu það
má vera að útgerðarkostnaður
síldarbáta hafi hækkað svo, að
aflast þurfi helmingi meira en
áður til að útgerðin standist
kostnaðinn, eða lýsi því yfir
ella að þau hafi farið með fleip-
Börnin fóru í biðröðina 3 tímum áður en sala aðgöngumiða hófst. ur eitt.
□
dikt hélt snjallar ræður við ýmis
tækifæri og var meira leitað til
lians en annarra, ef á ræðumönn-
um Jjuriti að halda í byggðarlag-
inu. Hann var gó'ður hagyrðingur
og kær að kveðskap öllum.
Benedikt var glæsimenni í sjón
góðum íþróttum búinn, harðdug-
legur og afkastamikill að liverju
sem bann gekk.
Benedikt unni gróðurmoldinni,
sveitinni sinni og landinu öllu.
Hann gerði bændastöðuna að líts
staríi sínu og var góður bóndi í
þess orðs fyllstu merkingu, átti
góðan búpening og hafði yndi af
að ala hann sem bezt. Hestamaður
var hann og átti góðhesta allt frá
bernskudögum til æviloka. Síðasta
daginn, sem hann jilði, sté hann
á bak hestum sínum, sér til hvíld-
ar og ánægju og til að treysta leyni
Jjráðinn milli manns og hests. Bíll
inn liafði aldrei náð að deyfa ást
hans og áhuga á þarfasta þjónin-
um, eins og títt er um bændur nú
á dögum. Benedikt voru falin
ýmis trúnaðarstörf í bvggðarlagi
sínu og reyndist hann alls staðar
liinn nýtasti liðsmaður. Hann tók
mikinn þátt í félags- og menning-
armálum sveitar sinnar og lagði
lið öllu Jjví, er mátti verða kom-
andi kynslóðum til Jjroska og
menningár. Hvatti hann börn sín
og öhnur urigménni til að afla
sér irienfitunar og þekkingar.
Hann var örgerður, viðkvæmur
og skapheitur, en sanngjarn og
sáttfús, hélt vel á Jjví riiáli, ér
hann fylgdi og vildi ávallt hafa
það, er sannara reyndist.
Börn Benedikts eru: Halla,
húsfreyja að Dvergasteini í Glæsi-
bæjarhrepjji, Haukur, ókvæntur
lieima, Þuríður, verzlunarmær í
Reykjavík, Einar, ókvæntur heima
og Atli, nemandi við Menntaskól-
ann á Akureyri. Einnig ólu þau
hjónin upp tvö börn Pálma heit-
ins bróður Benedikts og reyndust
Jjeim sem sínum eigin börnum,
þau eru: Benedikt Bragi, iðnaðar
maður á Akureyri og Hólmfríður,
verzlunarmær, einnig á Akureyri.
Ég sendi frú Rósu konu Bene-
dikts, börnum hans og ástvinum
öllum innilegar samúðarkveðjur
okkar hjóna, en vita skulum við
Jjað og liafa hugfast, að huggun
er það harmi gegn að eiga minn-
ingarnar og vitneskjuná um Jjað,
að hann var „drengur góður.“
Sn. S.
Akureyringar sigur-
sælir í Golfm.mótinu
Um miðjan júlí var Golf-
meistaramót íslandshaldið á
Akureyri. Keppendur voru frá
Akureyri, Vestmannaeyjum og
Reykjavík. Akureyringar sigr-
uðu glæsilega í öllum flokkum
og áttu t. d. fjóra fyrstu menn
í meistaraflokki.
Golfmeistari íslands varð
Gunnar Sólnes. Sigurvegarar í
fyrsta og öðrum flokki urðu
Bragi . Hjartarson og Sævar
Gunnarsson.
Þorleifur Þorleif sson
NÝ BRÚ Á HORNA
FJARÐARFLJÓTI
KVEÐJ
Á S. L. VORI hneig í valinn
einn af merkustu búhöldum úr
hópi svarfdælskra bænda á
þessari öld nær sjötugur að
aldri. Verður hans minnzt hér
lítillega.
Þorleifur Þorleifsson var
fæddur á Hóli á Upsaströnd 11.
júlí 1891. Voru foreldrar hans
Kristjana Jónsdóttir og seinni
maður hennar Þorleifur Jó-
hannsson. Þau hjón voru dug-
mikil og ráku umsvifamikinn
myndarbúskap á Hóli. Land-
nytjar og sjávargagn var stund-
að jöfnum höndum og hvort
tveggja sótt af harðfengi og
kappi. Heimilið var mannmargt,
svo sem víða var á þeirri tíð, og
heimilisbragur í fremstu röð,
enda efnahagur allgóður. Þor-
leifur ólst upp hjá foreldrum
sínum. Vandist hann snemma
fjölþættum störfum og var ekki
hlíft við vinnu. Ekki naut hann
annarrar fræðslu en venja var
að veita til fermingar. Hvorki
skorti þó greind né efni. En
mér þykir trúlegt, að athafna-
þráin hafi tekið hug hans allan,
svo að ekki hafi orðið af frekara
námi. En á sviði starfs og fram-
kvæmda gerðist hann ungur
bezti liðsmaður og hélt þeirri
reisn ætíð.
Árið 1913 verða þáttaskil í
ævi Þorelifs. Þá kvænist hann
Svanhildi Björnsdóttur frá Sela
klöpp í Hrísey, mikilhæfri og
merkri konu. Ungu hjónin hófu
búskap á Hóli og sýndi sig brátt
að þeim lék hugur á að vegur
heimilisins héldist. Jörðin var
erjuð og sótt til fanga í sjóinn.
Og áður langt leið tekið að
rækta og auka túnið á Hóli og
bæta húsakost. Vélbátur kemur
og er sú útgerð stunduð um
margra ára skeið. Aflinn er
færður á land við Hólsnaust og
nýttur þar. Þarf þá oft að leggja
nótt við dag til að ljúka nauð-
synlegum störfum í tæka tíð.
En hjónin ganga gunnreif til
vinnunnar og stjórna af festu og
hyggindum hvort á sínu sviði.
Útgerðin reyndist stundum á-
fallasöm t. d. vegna bryggju-
tjóns af völdum sjávarhamfara.
En ekki voru lagðar árar í bát,
heldur hafizt handa um úrbæt-
ur. Er líklegt að stundum hafi
verið nokkur fjárhagsraun að
halda í horfinu bæði til sjávar
og lands. En með fyrirhyggju og
dugnaði blessaðist þetta svo, að
efnahagúrinn rýmkaðist eftir
því sem tímar liðu. Eftir að Þor
leifur hætti útgerð sneri hann
sér óskiptur og af alhug að bú-'
skapnum. Stóð hann áfram í
miklum framkvæmdum. Er
Hóll nú glæsileg jörð, vel hýst
og víðlent tún þar sem áður
voru forarmýrar eða nytjarýrt
land. Allt ber þetta vitni um
stórhug, atorku og ráðdeild.
Þorleifur hætti biískap fyrir
skömmu og fékk jörðina í hend
ur yngsta syni sínum.
Þorleifur á Hóli var fríður
sýnum, vart meðalmaður á hæð
en svaraði sér nokkuð. Hann
var skerpulegur og gneistaði af
áhuga og kappi, ef hann vildi
koma einhverju áleiðis í skyndi.
Hann var verkmaður ágætur,
og svo ósérhlífinn, að hann ætl
aði sér naumast af, tók svo rösk
lega til hendi í fyrstu skorpu
að fáir gerðu betur. En vegna
vanheilinda þoldi hann slík
vinnubrögð ekki til lengdar.
Hann var hirðusamur og þrifn-
aðarmaður. Nokkuð var hann
ör í lund, en ekki varð honum
það að fótakefli, enda var hann
fús til yfirbótar og sátta, ef
hann taldi sig hafa gert öðrum
UQRÐ —
órétt í orðaskiptum. Hann var
hreinskilinn og heiðarlegur í
skiptum við aðra. Loforð hans
brugðust ekki og hann gerði
líka kröfu til að aðrir stæðu við
orð sín.
Þorleifur var mikill dýravin-
ur og athugaði háttu þeirra um
fram marga aðra. Búfénað sinn
fóðraði hann með ágætum og
fékk af honum góðar afurðir.
Ég ætla að sauðkindin hafi ver
ið eftirlæti Þorleifs. Hann hafði
gaman af að ræða um hana og
kom þá greinlega í ljós hversu
gott skyn hann bar á vel gert
og frítt fé. Átti hann fallegt og
vænt fé sjálfur, svo að orð var
á gert um nokkurt skeið.
Þorleifur var gefinn fyrir
söng og hljófæraslátt, lék á org
el fram eftir ævi. Hafði hann
fengið lítilsháttar tilsögn í þeirri
mennt á sínum æskuárum. Gott
var að sækja Þorleif heim og
eiga við hann viðræður. Hann
hafði næmt auga fyrir því bros-
lega og henti að því gaman með
góðlátri glettni. En allt var það
af hófsemd, laust við alla ill-
kvittni. Það var fjarri hjartalagi
hans, að valda öðrum miska,
hvorki í orðum né gjörðum.
Hitt var nær skaphöfn hans að
greiða götu samferðamanna,
einkum þeirra, sem minni mátt
ar voru.
Þorleifur á Hóli var enginn
veifiskati. Hann tók ákveðna af
stöðu til mála og varð ekki hnik
að vegna annarlegra sjónar-
miða. Enginn var han áburðar-
maður eða leitaði eftir mann-
virðingum. En þau störf, sem
honum voru falin, leysti hann
af hendi með sóma.
Þau Svanhildur og Þorleifur
eignuðust átta börn. Eru sjö
þeirra á lífi, myndarlegt fólk og
bráðduglegt. Þá ólu þau hjón
upp að mestu bróðurson Svan-
hildar.
Ég held að Þorleifur á Hóli
hafi verið hamingjumaður. Hon
um auðnaðist að skila miklu og
góðu ævistarfi. Hann eignaðist
ágæta konu, sem var honum
styrk stoð í umfangsmiklum bú
rekstri. Börnin hafa reynzt nýt
ir þegnar. Og hinir mörgu af-
komendur Þorleifs virtu hann
og unnu honum, enda var um-
hyggja hans og ástríki til hans
nánustu í ríkum mæli.
Þorleifur var skjótur í heim-
anbúnaði, þegar kallið kom
þann 21. maí síðastliðinn. Hann
hneig örendur við sín daglegu
störf. Þar var mjög við hæfi,
því að hann hafði aldrei hikað
í lífinu.
Vertu sæll, Þorleifur. Þú
varst húsbóndi minn sumar-
langt, en síðan hef ég haft á
þér mætur. Hafðu þökk fyrir
okkar kynni. Og þökk sé þér
fyrir, hve góðan hlut þú áttir í
því að prýða dalinn okkar og
lagðir skerf tif að lyfta svarf-
dælskri bændastétt um set.
Helgi Símonarson.
HART KONUHÖFUÐ
Sagt er frá því í sunnanblöð-
um, að 80 punda steinn hafi
dottið í höfuð konu einnar á
fimmtugsaldri, er Aðalbjörg
heitir, þar sem hún var, ásamt
öðru ferðafólki, að ganga á
Kerlingu, vestan Vatnajökuls.
Konunni blæddi nokkuð á
höfði, en sakaði ekki meira en
svo, að hún kleif fjöll sem aðr-
ir eftir steinshöggið.
Sunnudaginn 30. júlí fór fram
hátíðleg vígsla hinnar nýju
brúar á Hornafjarðarfljóti. Yf
irsmiður var Eyfirðingurinn
Þorvaldur Guðjónsson.
Nýja brúin er 255 m. á lengd,
kostaði um 10 milljónir, eða
hálfri annarri milljón minna en
áætlað var, og verkið tók
skemmri tíma en búizt var við.
Hún er 3 m. á breidd og hvílir
á 18 stöplum.
Samtímis var vígð brú á
Hoffellsá og er hún 60 metra
löng.
Þessar nýju brýr eru ómet-
anleg samgöngubót, tengja m.
a. Mýrar og Suðursveit akvega-
sambandi. □
LAXARÆKT
Á V E G U M
RÍKISINS
RÍKIÐ hefur fest kaup á jörð-
inni Kollafirði í Kjósarsýslu í
því skyni að hefja þar laxa-
rækt. Alþingi veitti heimild í
vetur til jarðakaupa og lántöku
í þessu augnamiði.
Laxaeldisstöðinni er ætlað að
vera tilraunastöð fyrir laxaeldi.
Þar verða einnig gerðar tilraun
ir með fóðurblöndur og kyn-
bætur. Þá mun stöðin framleiða
seiði, sem seld verða til að
sleppa í veiðivötn og til annarra
eldisstöðva.
Mælingar og teikningar hafa
þegar verið gerðar að stöðinni.
Eldistjarnir eru fyrirhúgað&r
1.7 hektarar að flatarmáli.
Unnt á að vera að' ala upp
300—350 þúsund gönguseiði ár-
lega og selja 2,5 milljónir ung-
seiða á ári, þegar stöðiri er
komin í fullan rekstur.
Fyrstu laxaseiðunum á að
sleppa úr stöðinni vorið 1962 og
fullur rekstur á henni á að geta
orðið að fjórum árum liðn-
um. □
| DÁNARDÆGUR |
JÓN STEINGRÍNISSON, sýslu-
maður í Borgarnesi, andaðist
22. júlí. Hann var jarðsettur 29.
júlí í Fossvogskirkjugarði.
Jón Steingrímsson var fædd-
ur á Húsavaík 14. marz alda-
mótaárið, sonur Steingríms
heitins Jónssonar, sýslumanns
þar, og síðar bæjarfógeta á Ak-
ureyri, og konu hans, Guðnýjar
Jónsdóttur.
Jón varð fulltrúi hjá föður
sínum hér á Akureyri að námi
loknu, en settur sýslumaður í
Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu 1930 og gegndi því emb-
ætti til 1937, er hann tók við
embætti sýslumanns í Mýra-
og Borgatfjarðarsýslu, en því
gegndi hann til æviloka. Ekkja
Jóns Steingrímssonar er Karí-
tas Guðmundsdóttir. — Börn
þeirra fjögur eru öll uppkomin.
Jón Steingrímsson var mik-
ilsvirtur emhættismaaður og
vann mjög að framförum á
sviði félagsmála.