Dagur - 23.08.1961, Qupperneq 2
2
DAGANA 12. og 13. ágúst fór
fram Norðurlandsmeisíaramót
að Laugum í Reykjadal. Mótið
var sett kl. 4 síðdegis á laugar-
dag af form. HSÞ, Óskari
Kringlukast:
1. Guðm. Hallgrímsson HSÞ
38.77 m.
2. Þóroddur Jóhannsson UMSE
35.30 m.
Ágústssyni kennara á Laugum,
og var hann einnig mótsstjóri.
íþróttirnar hófust svo í góðu
veðri strax að setningu lokinni.
Áhorfendur voru fremur fáir,
enda þurrkdagur. Dansinn á
laugardags- og sunnudagskvöld
var heldur ekki mjög vel sótt-
ur, en dansleikirnir fóru mjög
vel fram.
Arangur varð góður í mörg-
um greinum mótsins.
100 m hlaup karla:
1. Þóroddur Jóhannsson UMSE
11.4 sek.
2. Vald. Steingrímsson USAH
11.G sek.
3. Ragnar Guðmundsson UMSS
11.7 sek.
110 m grindahlaup:
1. Þóroddur Jóhannsson UMSE
18.3 sek.
2. Stefán Magnússon UMSE
18.8 sek.
3. HaJaldur Árnason UMSE
20.7 sek.
200 m:
1. Vald. Steingrímsson USAIl
24.4 sek.
2. Ragnar Guðmundsson UMSS
24.4 sek.
3. Þóroddur Jóhannsson UMSE
25.2 sek.
400 m:
1. Vald. Steingrímsson USAH
55.1 sek.
2. Brynjar Halldórsson UNÞ
5G.6 sek.
3. Þorsteinn Marinósson UMSE
59.3 sek.
800 m:
1. Edvard Sigurgeirsson KA
2.12.2 mín.
2. Jón Gíslason UMSE 2.12.2
mín.
3. Þorsteinn Marinósson UMSE
2.14.5 mín.
1500 m:
1. Halldór Jóhannesson HSÞ
4.21.1 mín.
2. Jón Gíslason UMSE 4.23.5
mín.
3. Edvard Sigurgeirsson KA
4.25.1 mín.
3000 m:
1. Halldór Jóhannesson HSÞ
9.31.4 mín.
2. Tryggvi Óskarsson HSÞ
9.32.8 mín.
3. Páll Friðriksson UMSE 9.50.0
mín.
4x100 m boðhlaup karía
1. Sveit UMSE 57.7 sck.
.2. Sveit HSÞ 58. 2 sek.
1000 m boðhlaup:
1. Svcit KA 2.15.0 mín.
2. Sveit HSÞ 2.17.G mín.
Kúluvarp:
1. Þóroddur Jóhannsson UMSE
13.64 m.
2. Guðm. Hallgrímsson HSÞ
12.48 m.
3. Vilhelm Guðmundss. UMSE
12.06 m.
3. Vilhelm Guðmundss. UMSE
33.57 m.
Spjótkast:
1. Birgir Hermannsson KA
44.66 m.
2. Skjöldur Jónsson KA 42.44
m.
3. Vilhelm Guðmundss. UMSE
37.00 m.
Hástökk:
1. Sveinn Kristdórss KA 1.65 m.
2. Hörður Jóhannsson UMSE
1.60 m.
3. Sigurður Sigmundss. UMSE
l. 60 m.
Laiigstökk:
l'. Ragnar Guðmundsson UMSS
6.29 m.
2. Sigurður Friðriksson HSÞ
6.27 m.
3. Magnús Ólafsson KA 6.18 m.
Þrístökk:
1. Sigurður Friðriksson HSÞ
13.71 m.
2. Sigurður Sigmundss. UMSE
13.38 m.
3. Ragnar Guðmundsson UMSS
13.26 m.
Stangarstökk:
1. Sigurður Friðriksson HSÞ
3.44 m.
2. Örn Sigurðsson HSÞ 3.25 m.
3. Valgarður Stefánsson KA
3.25 m.
KVENNAGPvEINAR.
100 m.
1. Cuðlaug Steingrímsd. USAH
13.4 sek.
2. Gréta Arngrímsdóttir UMSE
13.9 sek.
Kúluvarp:
1. Oddrún Guðmundsd. UMSS
10.33 m.
2. Erla Óskarsdóttir HSÞ 9.39
m.
Kringlukast:
1. Oddrún Guðmundsd. UMSS
26.53 m.
2. Súsanna Möller KA 26.08 m.
Hástökk:
1. Sigrún Sæmundsdóttir HSÞ
1.42 m.
2. Guðrún Jóhannsdóttir HSÞ
1.35 m.
ATVINNA!
Rösk og ábyggileg
STÚLKA ÓSKAST
til aígreiðslustarfa um
næstu mánaðamót.
Umsóknir leggist inn á af-
greiðslu blaðsins f. 26. |>.
m., merkt Atvinna.
ELDRI-DANSA
KLÚIJllURINN
Félagar! Dansleikur 26.
þ. m. í Landsbankasaln-
uin kl. 9 e. h.
S t j ó r n i n .
róflura
Langstökk:
1. Guðrún Jóhannsdóttir HSÞ
4.47 m.
2. Þorgerður Guðmundsdóttir
UMSE 4.44 m.
4x100 m boðhlaup:
1. Sveit UMSE 57.7 sek.
2. Sveit HSÞ 58.2 sek.
Heildarúrslit.
Sigurvegari varð UMSE og
hlaut það 78 stig, næst varð
HSÞ með 72 stig og þriðja KA
með 31 stig.
Stigahæsti einstaklingur móts
Hættulegt augnablik við mark Akureyringa. (Ljósmynd: G. P. K.)
Valur sigrar ÍBA 1:0
ins varð Þóroddur Jóhannsson
UMSE og hlaut 21x/4 stig.
1 fyfannfjöidi á íslandi |
SAMKVÆMT upplýsingum
Hagstofunnar var mannfjöldi
hér á landi 1. des. sl. 177.292 og
hafði fjölgað um ca. hálft fjórða
þúsund á árinu. Karlmenn
eru 1864 fleiri en konur. í sveit-
um eru karlmenn 30.841, en
konur 27.461, en konur fleiri í
kaupstöðum. — í sveitum lands
ins búa 58.230.
Kaupstaðir: 1960 1959
Reykjavík 72.407 71.037
Akureyri 8.835 8.586
Hafnarfjörður 7.160 6.881
Kópavogur 6.231 5.611
Keflavík 4.700 4.492
V estmannaey jar 4.646 4.609
Akranes 3.822 3.747
ísafjörður 2.725 2.701
Siglufjörður 2.680 2.703
Ilúsavík 1.514 1.431
Neskaupstaður 1.436 1.456
Sauðárkrókur 1.205 1.175
Ólafsfjörður 905 888
Seyðisfjörður 745 723
JAMM OG JÆJA. Síðasti leik-
ur ÍBA í I. deild, á þessu ári, fór
fram hér á Akureyri sl. sunnu-
dag í heldur leiðinlegu knatt-
spyrnuveðri, sur.nan strekking-
ur en sólarlaust.
Valur kaus að leika undan
vindi en Ak. byrjaði leik með
snarpri sókn er lauk með góðu
markskoti, en Björgvin hirti
knöttinn og þrúmaði langt út
fyrir miðju.
Mikill hluti leiksins fór svo
fram á vallarhelmingi Ak. utan
nokkurra upphlaupa er voru
sum nokkuð hættuleg fyrir Val.
En fumið og patið í framlín-
unni ásamt góðri vörn Vals, sáu
um að knötturinn lenti aldrei í
netinu. Eina markið sem gert
var í leikum kom á 10. mín. og
má skrifa það á reikning Árna
Sigurbjörnssonar er passaði
stöðu sína, í þessum leik, afar
illa. Jón varð að hlaupa út á
móti Hilmari, en við það skap-
aðist eyða fyrir miðju marki,
þar var kominn Bergsteinn
Magnússon cg afgreiddi knött-
inn í netið frá vítateig.
Á síðustu mínútu fyrri hálf-
leiks skall hurð nærri 'nælum.
Árni Njálsson spyrnir frá
marki Vals, langspyrna yfir á
miðjan vallarhelming Ak. Björg
vin hleypur inn fyrir Jón og
æðir að marki, Eínar út á móti
og gómar knöttinn á óskiljan-
legan hátt.
í síðari hálfleik snerist blaðið
við og fór mikill hluti leiksins
fram á vallarhelmngi Vals. Upp
hlaup Vals voru þó oft hættu-
leg, einkum vegna þess, að oáð
ir bakverðir Ak. lágu of fram-
arlega og misstu svo kantmenn
ina inn fyrir sig. En þrátt fyrir
það að knötturinn lægi mest-
megnis Valsmegin kom markið
aldrei, þótt skotið væri í stöng,
hliðarnet og svo uuðvitað beint
á markmanninn eftir að inn úr
vörn var komið.
Ekki er hægt að segja að ann.
að liðið hafi verið öð.-u betra í
þessum leik. Eftir gangi hans
gat hann vel endað sem jafn-
tefli eða 1:0 fyrir \k., en það
fór nú sem fór, Valur vann 1:0.
Valur verður því í 3. sæti í I.
deild en ÍBA í 4. en var í 5. í
fyrra.
Um einstaka leikmenn er lít-
ið að segja. Beztu menn Vals
voru Ormar og Matthías en hjá
Ak. Einar og Haukur, sem lék
EYFIRÐINGAR stofnuðu hesta
mannafélagið Funa fyrir rúmu
ári síðan og héldu á sunnudag-
inn kappreiðar og góðhestasýn-
ingu á Melgerðismelum. Alls
voru 42 hestar reyndir og sýnd-
ir og skiptist sú tala jafnt milli
góðhesta og kappreiðahesta.
Vallarstjóri var IngólfUr Ás-
bjarnarson. Dómnefnd skipuðu:
Björn Jónsson, Steingrímur
Oskarsson og Steingrímur Ara-
son.
í upphafi mótsins riðu hesta-
menn í skrúðfylkingu undir
fána inn á kappreiðasvæðið.
Margir fyrstu knaparnir sátu á
hvítum gæðingum, en hvítum
hestum hefur fækkað mjög í
seinni tíð hér um slóðir. IIóp-
reiðin var því bæði falleg og ný
stárleg og vakti mesta athygli.
Góðhestasýningin.
Af alhliða gæðingum hlaut
Sleipnir Sigríðar Pálmadóttur
Æsustöðum fyrstu verðlaun.
Sleipnir er brúnskjóttur, 6
vetra, skagfirskur að ætt. Önn-
ur verðlaun hlaut Ljótur Gests
Jónssonar á Akureyri. Funi
Sigtryggs Sveinbjörnssonar á
Sandhólum hlaut fyrstu verð-
laun klárhesta með tölti. Hestur
þessi er rauðstjörnóttur, 6
vetra, eyfirzkur. Annar varð
Gráskjóni Valdimars Bjarnason
ar, Garði.
Bezta hryssan var Stjarna
Gests Jónssonar.
Kappreiðarnar.
Fyrst var keppt í 250 m fola-
hlaupi, Það vann Stjarni Gísla
Jónssonar Hvammi Arn, á 20,6
sek. Annar varð Jarpur Jóns
Matthíassonar Akureyri á 20,8
sek. og þriðji Stjarna Guðlaug-
ar Stefánsdóttur - Akureyri á
21.1 sek.
Á 300 m sprettinum vann
Perla Magnúsar Stefánssonar
Árgerði. Tími hennar var 24,9
sek. Annar Þorri Bergs Hjalta-
sonar Hrafnagili á 25,2 sek. og
þriðji Jarpur Steingríms Níels-
sonar Æsustöðum á 26,0 sek.
350 m stökksprettinn vann
Ljóska Iiuga Kristinssonar og
Vilhelms Jensen, Akureyri á
28.2 sek. Næstur varð Lýsingur
Sveins Kristjánssonar Fjósakoti
á 29,2 sek. Þriðji varð Logi Al-
freðs Arnljótssonar, Akureyri á
30,0 sek.
Alls mættu fjórir með skeið-
hesta. Skeiðbrautin var 250 m
löng.
Hlaupabrautirnar voru of lin-
ar og mikill mótvindur liamlaði
því að nokkur hestanna gæti
sýnt sitt bezta. □
nú góðan leik, sívinnandi og á
sínum stað.
Þetta Akureyrarlið hefur leik
ið þrjá leiki hér á heimavelli í
röð, tapað öllum, og það sem
meira er, ekkert mark gert.
Þrátt fyrir það er alltaf sömu
kandidötunum teflt fram.
Að vísu lék Jakob ekki me5
þennan leik, en það er sá úr
framlínunni er sízt mátti missa.
Birgir Hermannsson er látinn
sífellt sitja sem varamaður og
Bjarni Bjarnason útskúfaði r.
Mér finnst Akureyrarliðið í
sumar, þá fáu leiki, sem ég hef
þó séð, ekki bera þjálfara sínum
gott vitni. Hvort sem um er a5
kenna lélegri ástundun við æf-
ingar eða getuleysi þjálfarans,
ætti held ég að óska honum
góðrar heimferðar og þakka
honum fyrir heimsóknina.
Akureyringar eru nú búnir
að leika sína 10 leiki í I. deild í
sumar. Þeir hafa unnið 4 gert
1 jafntefli og tapað 5. Þeir hafa
skorað 23 mörk og fcngið á sig
23 mörk eða jafnmörg.
En hvernig væri nú að bjóða
ísfirðingum í heimsókn una
næstu helgi, leika við þá á
laugardag og sunnudag og bæði
liðin skiptu um 4—5 menn í
seinni leik. ísfirðingar unnu sig
upp í I. deild í sumar og hafa
engum leik tapað á keppnistíma
bilinu. Ef að líkum lætur koma
þeir hingað næsta sumar til að
keppa við Akureyrina í I. deild.
Væri þá ekki upplagt að bjóða
þeim hingað nú í kurteisis- og
kynningarheimsókr.. Báðir gætu
haft gott af.
Essbé.