Dagur - 28.10.1961, Blaðsíða 5

Dagur - 28.10.1961, Blaðsíða 5
.. ... ' . n T.r,-,r,--r--rrn---.,^ Vantraustið á ríkisstjórnina TILLAGA FRAMSÓKNARMANNA um vantraust á ríkisstjórnina var til umræðu á miðvikudag og fimmtudag og var út- varpað. Samkvæmt viðteknum lýðræðis venjum ber hverjum þingmanni, hverj- um stjórnmálaflokki og hverri ríkisstjóm að vinna samkvæmt yfirlýstri stefnu siimi og loforðum. Þegar flokkar og ríkis stjórnin vinna þveröfugt við yfirlýst lof- orð sín, sem kjósendur kusu þá til að framkvæma, hafa þeir glatað siðferði- legu og þingræðislegu umboði sínu til að stjórna. Þetta hefur nú gerzt með þjóð okkar og skulu nefnd um það dæmi er allir þekkja af biturri reynslu. í haustkosningunum 1959 lofuðu allir þingmenn allra stjórnmálaflokka að hvika í engu frá margyfirlýstum vilja þjóðarinnar og Alþingis í Iandhelgismál- um, enda mátti hcita að fullur sigur væri unninn. í þessu máli sviku stjórnarflokk arnir og sömdu við Breta um réttinda- afsal og hleyptu þeim einnig í landhelg- ina. Þeir neituðu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, en sviku í trausti þingfylgis. í sömu haustkosningum lofuðu stjórn- arfiokkarnir að bæta lífskjörin. „Leiðin til bættra lífskjara er að kjósa Sjálf- stæðisflokkinn“ sagði Sjálfstæðisflokkur inn. I staðinn fyrir þetta loforð fengu kjósendur meiri Iífskjaraskerðingu en áð ur hefur þekkzt, síðustu áratugi. Lífs- kjör almennings hröpuðu úr þeim beztu á Norðurlöndum 1958, og niður í þau lökustu, eins og þau eru nú. Árslami verkamanna eru um 53.000.00 krónur. Hagstofan telur, að meðalfjölskyldan þurfi 72.700.00 kr. árstekjur. Bændum eru ætlaðar svipaðar tekjur og öðrum vinnandi stéttmn, samkvæmt lögum, en gerðardómur hefur rýrt þær tekjur veru lega. Þannig er unnið gersamlega and- stætt því, sem lofað var í þessu efni. Háleitasta og mest áberandi loforð Al- þýðuflokksins fyrir haustkosningarnar 1958 var það, að Alþýðuflokkurinn yrði ekki einum degi Iengur í stjórn, hvorki með einum flokki eða öðrum, ef leyfðar yrðu nokkrar verðhækkanir. Þetta var hraustlega mælt og þctta var það, scm fólkið vildi, ekki síður en að fast yrði staðið á réttinum í landhelgismálinu og að lífskjörn yrðu bætt. Þetta loforð efndi Alþýðuflokkurinn fyrir sitt Ieyti á þann hátt, að hann beinlínis stóð að þeirri mestu verðbólgu, sem á síðari árum hef- ur átt sér stað og hlaut nafnið óðaverð- bólga, sem er réttnefni. Stjórnarflokkarnir lofuðu að hætta skuldasöfnun. En hennar fyrsta verk var að fá heimild til 800 milljón króna lán- töku erlendis. Lofað var að þurrka út uppbóta- og niðurgreiðslufarganið. í fjárlagafrumvarpinu nú, cru 300 milljón krónur áætlaðar til niðurgreiðslna. Þessi fáu dæmi af mörgum sýna eins glöggt og verða má hvemig stjórnar flokkamir hafa unnið þveröfugt við það sem þeir lofuðu þjóðinni og þjóðin kaus þá til að framkvæma. Þeir, sem þannig fara að, hafa fyrirgert siðferðilegum rétti sínum til að fara mcð umboð fólks- ins og eiga að standa upp. Það er rétt- lætiskrafa að kosningar fari fram' og þcssum málum verði skotið undir dóm þjóðariimar í frjálsum kosningum. V______________________________________> millllllllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIMIHIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIII 111111111 GISLI GUÐMUNDSSON ALÞINGISMAÐUR • IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIHIHIIIIIIIIIIIItHllllllltllHIIIIIIIIK NORÐUR-NOREGS ÁÆTLUNIN Ráðstafanir Norðmanna til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins ÞESS HEFUR einstaka sinnuin verið getið hér á landi, að gerð hafi verið sérstök áætlun um fram kvaemdir í Norður-Noregi, án þess að nánar hafi verið um það mál rætt. Framkvæmd þessarar áætl- unar er nú lokið, og liggja fyrir urn hana opinberar skýrslur, scm telja verður athyglisverðar fyrir íslendinga með tilliti til þeirra umræðna, sem hér eiga sér stað um jalnvægi í byggð landsins. Þar sem Norður-Noregi svipar til ls- lands að því er varðar landsstærð, fólksfjölda og ýmis náttúruskil- yrði, er sérstök ástæða til að gefa því gaum, sem þar gerist í þessunt efnum. Á sínum tíma varð á ýmsum stöðuni í Norður-Noregi verulegt tjón af völdum styrjaldarinnar, t. d. í Narvik og Kirkenes á Finn- mörk. Norður-Noregs-áætunin og sér stakar ráðstafanir í sambandi við hana, var samþykkt í Stórþinginti á öndverðu ári 1952. Áætlunar- tímabilið var átta ár, 1952—60. Þær fjárliagsráðstafanir, sem gerð- ar voru í þessu sambaiuli, voru aðallega sem hér segir: Framlciðslu og atvinnu- aukningarsjóður. Stofnaður var framleiðslu- og atvinnuaukningarsjóður (utbyg- ningsfond) lyrir Norður-Noreg. Hlutverk hans skyldi vera að vcila lán, aðallega stofnlán, til eflingar atvinnulífi, aðilum sem telja mátti að hefðu notað að fullu lánsmöguleika sína annars staðar. Lánstími skyldi vera allt að 20 árum, og vextir hafa að jafnaði verið 2i/2—3]/2%- í lögun- um var heimild til að veita lán af- borgana- og vaxtalaust tiltekinn tíma, og 1 einstaka tilfelli mátti ákveða að lán skyldi því aðeins afturkræft, að tiltekin skilyrði væru fyrir hendi. Sjóðnum var og lieimilt að láta framkvæma rann- sóknir og áætlanir á sinn kostnað. Þá skyldi og sjóðnum heimilt að leggja fram hlutafé í atvinnufyrir tæki. Sjóðstjórnin skyldi skipuð sjö mönnum. í henni hafa m. a. átt sæti tveir menn, sem nokkuð eru kunnir hér á landi, Frik Bro- foss og Gunnar Jahn. Formaður, a. m. k. í seinni tíð, hcfur verið Ulrik Olsen stórkaupmaður. Fjármagn það, sem sjóðnum var í öndverðu ætlað til starfsemi sinnar, var 100 millj. n. kr. ríkis- framlag og 100 millj. n. kr. lán mcð ríkisábyrgð frá opinberum sjóðum. Svarar þetta til ca. 1200 millj. ísl. kr. með núverandi gengi. Aukaframlög af ríkisfé. Jafnframt þessu var ákveðið að veita sérstök aukaframlög af ríkis- íé til framkvæmda í Norður-Nor- egi, jrar al' nokkurn hluta af mót- virðisfé Marshall-framlags, sem Bandaríkin veittu Noregi á sín- um tíma. Var þetta til viðbótar við það fé, sem veitt var á venju- legan hátt til framkvæmda í þenn an landshluta, t. d. til vega, liafna og járnbrauta. Skattafríðindi. í þriðja lagi voru sett lög þess efnis, að fé, sem lagt væri í fjár- ílestingu í Norður-Noregi skyldi, á sérstakan liátt, frádráttarhæft við álagningu beinna skatta. Lög þessi liafa borið mikinn árangur. Mikið fjármagn hefur vegna þeirra flutzt frá Suður-Noregi til Norður-Noregs á áætlunartíma- bilinu. Fjármagnsflutningur til Norður-Noregs. Alls cr talið, að sá fjármagns- flutningur til Norður-Noregs, er beinlínis stafar af áætlunarlöggjöf inni, hafi verið sem hér segir eða því sem næst á árunum 1952—60 í millj. n. kr.: Lán o. 11. úr framleiðslu- og atvinnuaukningarsjóði ... 241 Sérstök aukaframlög af ríkis- lé (þar af 58 ntillj. til vega) 213 Fjármagn frá Suður-Noregi vegna frádráttarákvæða skattalaga ................. 341 Samtals millj. n. kr. 798 Þessi upphæð í norskum krón- um svarar til nál. 4800 millj. ís- lenzkra króna samkvæmt núver- andi gengisskráningu. Þess er þá jafnframt að geta, að áætlunin hefur haft það í för með sér, enda að þvf stuðlað á Gísli Guðmundsson alþingism. ýmsan hátt, að fjármagn það, er lagt liefur verið í atvinnuupp- byggingu Norður-Noregs á þess- um tíma, er í rauninni mun meira en hér að framan er talið. Ríkissjóður hefur og á þessum tíma, eins og að er vikið, lagt miklu rneira lé af mörkum til framkvæmda og atvinnuvega í Norður-Noregi en hin sérstöku aukaframlög, sem greidd hafa ver ið samkvæmt áætluniiini. Fólksfjöldi og landshættir. Norður-Noregur, sem svo er nefndur í áætluninui, er rúmlega þriðjungur alls Noregs og nokkru stærri en ísland. Hér er um að ræða Ilálogaland hið forna, scm nú skiptist í tvö fylki (Nordland og Troms) og Finnmörk, sem er nyrzti hluti Noregs. Hálogaland nær suður að 65. breiddarbaug og er syðsti hluti þess því á svipuðu breiddarstigi og Norðurland. Þar fyrir sunnan eru Þrændalög. Finn mörk nær norður um 71. breiddar baug. Strandlengja Norður-Nor- egs er um 1400 kin, ströndin nijög vogskorin, víða stutt austur að landamærum. íbúatala Norður- Noregs var árið 1950 ekki nerna 12.3% af íbúatölu landsins alls, og er nú hlutfallslega hin sama. Norður-Noregur hefur þó ekki haldið eðlilegri fólksfjölgun sinni að fullu. Tala fæðinga er þar hlut fallslega hærri en í landinu í heild, I ársbyrjun 1959 var íbúa- tala Norður-Noregs rúmlega 434 þús., þar af rúml. 237 þús. í Nord- land, nál. 126 þús. í Troms og rúml. 71 þús. á Finnmörk, sem er stærst þessara þriggja fylkja. Árið 1950 voru í Norður-Nor- egi alls 102 bæir og þorp mcð 200 íbúa og fleiri. Stórbæir eru þar ekki á erlendan niælikvarða. Ibúatala var sem hér segir: íbúafjöldi Fjöldi staða 10000-20000 ............. 3 5000- 9999 ............. 2 2000- 4999 ............. 9 1000- 1999 ............ 13 500- 999 ............ 26 200- 499 ............ 49 Alls 102 Stærstu bæirnir eru Bodö, Nar- vik, Tromsö, Harstad óg Mo. íbúatala bæja og þorpa cr talin hala hækkað allverulega á síðasta áratug. Virkjun fallvatna. Síðan framkvæmd Norður-Nor- egsáætlunarinnar hófst, hefur virkjun fallvatna til ratorkufram leiðslu aukizt hröðum skrefum í Norður-Noregi. I ársbyrjun 1952 voru í Norður-Noregi orkuver með samtals 227 þús. kvv orku. í árslok 1959 var framleiðslugeta orkuvera komin upp í 657 þús. kw, eða hafði aukizt um 430 þús. kw á sjö árum. Fr hér um að ræða rúmlega 30 nýbyggingar og við- bætur við eldri orkuver, en stærsta orkuverið er 244 þús. kw (Rössága). Þegar lokið er þeiin orkuverum, sem nú er unnið að, en það verðnr í lok næsta árs (1962), verður raforkan kontin upp 967 þús. kw, og cr aukningin þá orðin 740 þús. kw eða 5—7 föld sú orka, scnr fást myndi úr orkuveri við Dettifoss. Þar af eru um 500 þús. kw í orkuverum, se'm aðallega munu framleiða orku til stóriðju. I landinu í heild er raf- orkuaukningin mun minni á þess um tírna. Landliúnaður, skógrækt o. fl. Talið er, að fólki, sem stundar landbúnað, hafi lækkað í Norður- Noregi á áætlunartímabilinu, og bústofn hefur ekki aukizt. Árið 1959 voru í Norður-Noregi kýr taldar rúinl. 77 þús., fullorðið fé rúml. 160 þús., geitur 16 þús. og svfn um 6 þús. Fn vélanotkun í landbúnaði hefur aukizt mjög á þessum tíma. Heimilisdráttarvél- ar voru t. d. um 450 árið 1949, en um 3600 árið 1959. Mjaltavél- um fjölgaði á sama tíma úr 78 upp í rúmlcga 2300. Reist hafa verið liátt á sjötta hundrað ný- býla. Afurðir hafa aukizt, einkum mjólkurmagnið. Víða liefur verið komið upp sláturhúsum og mjólk- urbúum. Fjöldi loðdýra sexlald- aðist 1949—59. Fr þar nú nær ein- göngu um minkarækt að ræða. Hrcindýrum liefur fjölgað úr 87 þús. í 134 þús., og komið liefur verið upp sex híeindýrasláturhús- iim á Finnmörk svo og hreindýra- girðingum. Gróðursettar voru 50 millj. trjáplantna á árunum 1955 -59. Kaupskipaflotinn. Kaupskipafloti N orður-N oregs jókst úr 65 þús. br.rúml. upp í 151 þús. br.rúml. á árunum 1952 —60. Fjöldi norður-norskra sjó- manna á norska kaupskipaflotan- iiin jókst á þessum tíma um 116% en ljöldi norskra kaupskipasjó- manna í Iieild um 47%. Fiskveiðar og fiskvinnsla. Fiskveiðar liafa lengi verið tald ar aðal atvinnuvegur Norður- Noregs. Þar er m. a. hin víðl'ræga verstöð, Lofoten. Skráðum fiski- skipum fjölgaði f Norður-Noregi um 4730 á árununi 1952—1960 eða nokkru meira en þriðjung. Rúmlestatalan hefur þó ekki auk izt að sama skapi. Af þesum 4730 viðbótarskipum voru sem sé 4246 opnir vélbátar. Þilfarsbátum minni en 30 fet fjölgaði um 673. 60—99 feta skipum fjölgaði um 56, sem er ca. 20% ljölgun og 100 leta skipum og stærri um 40, sem er ca. 200% fjölgun. En á sama tíma fækkaði 30—59 feta skipum um ca. 7% (úr 3911 í 3616). Fkki verður séð, að afla- magn liafi aukizt á árunum 1952 til 1958, en til þcirra taka skýrsl- ur þær, er ég hefi séð. Varð minnstur 409 þús. tonn árið 1955, mestur 546 þús. tonn árið 1958. Af þessu aflmagni er 30—40% síld og ler svo að ségja (411 í bræðslu. Síldveiðar við ísland eru lítið stundaðar úr Norður-Noregi. Fiskimönnum liefur fækkað til muna og afli því rneiri pr. mann, sem stafar af því, eins og liér, að skip og veiðitækni cru fullkomn- ari en áður. Skýrslur um fjárfest ingu í frystihúsum og öðrum fiskvinnslustöðvum hefi ég ekki séð, en hún er sögð allmikil á þessum tíma. Byggð hafa verið bæði stór og lítil frystihús. í ráði er nú að smíða 3 skut- togara í tilraunaskyni. I því m- bandi er rætt um nauðsyn þess, að sjá fiskvinnslustþðvunum fyrir hráefni á þeim tíma árs, þegar minnst er um liskveiðar á grunn miðum. Allmikið er rætt um nauð syn þess að fullvinna meira af fiskaflanum en nú er gert. Selveiði virðist fara lieldur minnkandú Hafa í seinni tíð um 40 skip frá Norður-Noregi stund að þessar veiðar og ársaflinn ver ið 200—300 þús. selir (4—6 þús. tonn af spiki). Hraðvaxandi iðnaður. . Iðnaður og námugröftur- í sam bandi við iðnað er sá þáttur fram Jeiðslu, þar sem mest uppbygging hefir átt sér stað á áætlunartíma bilinu, og stendur það að sjálf- sögðu í beinu sambandi við hinar stórauknu vatnsvirkjanir til raf- orkuframleiðslu, sem fyrr var get- ið. Brutto-íramleiðslan á þessu sviði óx á árunum 1952—1958 um 219% (á sama tíma óx l'ramleiðsla alls Noregs á sama sviði um 40%). Fjárfestingin er á þessum árum talin liafa numið um 1000 millj. n. kr. eða 6000 millj. fsl. kr. Stærstu atvinnufyrirtækin á þessu sviði eru járn- og stálverk- ismiðjur í Mo, aluminiumverk- smiðja í Mosjöen (hvort tveggja á Hálogalandi) og málmvinnsla við Varangursfjiirð á Fimimörk. Til viðbótar má nefna stækkun á áburðarverksmiðju Norsk Hydra í Glomfjord (framleiðslu- aukning úr 65 þús. upp í 86 þús. tonn at köfnunarefni), ullarverk smiðju í Mosjöen, verkstæðisiðn- að margs konar, skipasmíði o. fl. Aluminiumverksmiðjan í Mosjij- en tók til starfa 1958, framleiddi þá 20 þús. tonn, en vinnslugeta liennar liefir nú verið aukin upp í 32 þús. tonn og stendur til að aukan liana á næstunni upp í 48 þús. tonn. Sú aukning er áætluð á 115 millj. n. kr. eða 690 millj. ísl. kr .Byggður hefir verið upp eða áætlað að byggja upp iðnað á ýmsum sviðum og auka námu- vinnslu. Fr liér einkum um að ræða efnaiðnað, málmiðnað og trjávöruiðnað, og að sjálfsögðu matvælaiðnað, sem áður liefir ver ið vikið að. Á árunum 1952—1959 er talið, að tekin liafi verið í notkun 516 verksmiðju- og verkstæðishús með (Framhald á bls. 7) 5 ATTRÆÐISAFMÆLI Jón Melsfað á Hallgilssföðum Hvergi verði hvikaS frá „viSreisninni" segir í stjórnmálaályktun frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins SJÁLFSTÆÐISFL. hélt nýlega Á MORGUN, 29. þ. m. verður Jón Melstað bóndi á Hallgils- stöðum í Arnarneshreppi átt- ræður. Því miður dvelur hann nú á sjúkrahúsi og getur því ekki orðið um mikinn afmælis- fagnað að ræða. Jón var fæddur í Litluhlíð í Víðidal í Vestur-Húnavatns- sýslu, en þar bjuggu þá foreldr ar hans, Stefán Jónasson, síðar vegaverkstjóri á Akureyri og kona hans, Margrét Eggertsdótt ir. Mjög ungur fluttist Jón til móðurömmu sinnar, Ragnheið- ar Jónsdóttur á Fossi. Innan við fermingu dvaldist hann á Klömbrum hjá Júlíusi Halldórs syni lækni. Þar var tekinn kenn ari á vetrum og fékk Jón að vera þar nokkuð við nám, en varð þó að sinna ýmsum verk- um samtímis. Síðar varð hann vinnumaður hjá Hermanni Jón assyni bónda á Þingeyrum. Tvítugur að aldri, árið 1901, sigldi Jón til Noregs og dvald- ist þar í þrjú ár, til 1904, þar af einn vetur-við nám. Að öðru leyti vann hann þar við land- búnaðarstörf og lærði á því ný vinnubrögð, sem þá voru lítt eða ekki þekkt í sveitum á ís- landi. Þegar hann kom frá Nor egi, settist hann að á Akureyri hjá foreldrum sínum, sem þá bjuggu þar. Stundaði hann þá á sumrum jarðyrkjustörf hjá bændum héraðsins. Sumarið 1908 vann hann við byggingu Fnjóskárbrúarinnar og var þar túlkur, því danskir menn stóðu fyrir verkinu. Árið sem hann kom frá Noregi, sá ég hann í fyrsta skipti, því hann gisti þá heima hjá foreldrum mínum, og LANDSAMBANDIÐ GEGN áfengisbölinu efnir til bindind- isdags um land allt, sunnudag- isn 29 okt. n.k. Hér á Akureyri verður fundurinn í Borgarbíó og hefst kl. 5 e. h. Aðalræðu dagsins flytur séra Sigurður Haukur Guðjónsson, stutt ávörp flytja Jóna E. Burg- ess og Kristján Kristjánsson, bæði nemendur í M. A., og Jón- as Jónsson kennari. Björg Bald- vinsdóttir og Jóhann Ogmunds- son syngja einsöngva og tví- söngva við undirleik Guð- mundar Jóhannssonar og að lokum verður sýnd stutt kvik- mynd. leizt mér maðurinn sérstaklega rösklegur og gerðarlegur. Síðar urðu kynni okkar mikil og góð. ,Þann 9. apríl 1909 kvæntist Jón konu sinni, Albínu Pétursdótt- ir á Svertingsstöðum og reistu þau hjón bú þar sama vor. En árið 1912 fluttust þau í Hall- gilsstaði í Arnarneshreppi og hafa búið þar síðan. Jón hóf fljótlega miklar umbætur á jörð sinni, svo að Hallgilsstaðir, sem voru kot, fleyta nú stóru búi. Hann varð þó fyrir miklu eigna tjóni, því árið 1928 brann bær- inn, sem hann hafði byggt. Þau hjón hafa eignazt 7 börn og eru synir hans, sumir, kunnir hér um byggðir. Jón hefur alla tíð verið félags hyggjumaður, eindreginn sam- vinnumaður, og mun hafa átt sæti á flestum eða öllum aðal- fundum Kaupfélags Eyfirðinga siðan 1910, oftast sem fulltrúi, en stundum sem gestur. Þá átti hann um áraraðir sæti í félags- ráði Kaupfélags Eyfirðinga, enn fremur hefur hann oft verið full trúi kaupfélagsins á aðalfund- um SÍS. Jón Melstað hefur jafnan ver ið eindregin Framsóknarmaður, allt frá stofnun flokksins og unn ið honum það gagn, sem hann hefur mátt. Hann hefur oft sótt flokksþing Framsóknarflokks- ins og tekið þátt í umræðum og öðrum störfum. Fulltrúi fram- bjóðenda Framsóknarflokksins í hreppnum hefur hann oft ver ið og stutt flokkinn í hvívetna. ,Nú getur þessi aldni bændaöld ungur ekki setið heima á óðali sínu sökum sjúkleika, en von- andi gefst honum tækifæri til að vera þar heima á 50 ára bú- skaparafmæli sínu á Hallgils- stöðum næsta vor. Að lokum þakka ég Jóni Mel stað langa og góða samfylgd, bæði á sviði félagsmála og stjórnmála. Og ég þakka hon- um einnig mikilsverðan stuðn- ing á meðan ég var þingmaður Eyfirðinga. Árna ég honum allra heilla og blessunar og bið þess, að ævikvöld hans verði honum léttbært og ánægjulegt. Bernharð Stefánsson. Aðgangur er ókeypis og öll- um frjáls eldri en 14 ára. Landssambandið hvetur öll félög innan samtakanna, til að veita málefninu stuðning og sækja samkomur Bindindis- dagsins 1961. •HlinHHHIIHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHIIHHIII* | SÍLDVEIÐIN[ Krossanesvcrksmiðjan hefur nú tekið á móti rúmum 22 þús. málum smásíldar í bræðslu. Ellefu skip stunda veiðarnar á Akureyrarpolli, en hafa lítinn sem engan afla fcngið síðustu þrjá daga. landsfund og samdi stjórnmála- ályktun, sem lesin var í útvarp. Mörg atriði ályktunarinnar voru almenns eðlis, sem hver stjórnmálaflokkur samþykkir gjarnan og fela í sér frómar óskir sjálfum sér og öðrum til handa. Onnur atriði mörkuðu stefnu flokksins í einstökum atriðum og skal vikið að nokkr- um þeirra. 1. Landsfundurinn fagnar kjördæmabreytingunni. Sá fögn uður á rót sína að rekja til þess, að kjördæmabreytingin kom núverandi stjórn til valda, jók höfuðstaðarvaldið, einnig flokks valdið í landinu, en dró veru- lega úr áhrifamætti hinna dreifðu byggða. Kommúnistar áttu sinn þátt í kjördæmabreyt- ingunni og bera ábyrgð á núver andi ástandi að sínum hluta. Kjördæmabreytingin var póli- tískt herbragð en ekki fram- kvæmt sem réttlætismál. 2. Landsfundurinn hælir sér af landhelgismálinu. Það er mjög að vonum að sá stjórn- málaflokkur sem mest spillti fyrir landhelgismálinu er land- helgin var færð í 12 mílur, hæíi sér af því að hafa síðar selt rétt íslands til einhliða útfærslu í hendur Breta. Það voru smán- arsamningar, sem enginn heið- arlegur íslendingur getur kinn- roðalaust hugsað um. 3. Landsfundurinn fagnar þeim mikla árangri, sem náðst hefur í því að minnka verðbólg- una. Hvað ætli landsmönnum finnist um svona yfirlýsingu. Sjálfur nefndi Sjálfstæðisflokk- urinn dýrtíðina, sem hann hefur aukið meira en nokkur annar flokkur hefur nokkurn tíma gert, óðaverðbólgu, og var það réttnefni. Tvær gengisfellingar, nýir tollar og skattar hafa hækk að vöruverð um 50—80%, nema fáar niðurgreiddar vörur. Ætti það ekki fremur við í „Speglin- um“ en í samþykkt frá Sjálf- stæðisflokknnum, að lands- fundur flokksins fagni þeim mikla árangri, sem náðst hafi í því að halda verðbólgunni niðri? 4. Landsfundurinn þakkar ráðherrum sínum fyrir síðustu gengisfelling'u. Það er skiljan- legt að ráðherrum flokksins hafi ekki veitt af handaupprétting- um landsfundarmanna til að friða samvizku sína í einhverju því mesta glapræðis- og hermdarverki, sem ríkisstjórnin hefur gert. Síðasta gengisfelling var með öllu óþörf og hrein pólitísk og efnahagsleg mistök, sem stjórnin hefur ekki varið með rökum. Þau mistök hljóta að hafa þau áhrif að verkalýðs- félögin telji sig til knúin að rétta hluta sinn á ný. Allt bendir til þess að síðasta geng- isfellingin, sem gerði 400 króna hækkun mánaðarlauna í sumar að engu, verði til þess pð leiða þjóðina út í harðvítuga verk- fallsbaráttu í vetur. í sömu þakkargjörð landsfundarins til ráðherra sinna segir að stjórn- arandstaðan hafi misnotað al- mannasamtökin. Þétta fær alls ekki staðist. Eða eru menn búnir að gleyma Vestmanna- eyjadeilunni? Voru það stjórn- arandstæðingar, sem þar voru að verki? Og var stjórnarand- staðan að verki í þeim verka- lýðsfélögum, sem lúta stjórn eindreginna stjórnarsinna? — Hvað segja menn um flugmenn, verkfræðinga og lækna, eru þetta allt skemmdarverka- menn í stjórnarandstöðu? Og dettur nokkrum það í hug í al- vöru, eftir að það liggur ljóst fyrir um land allt, að enginn ágreiningur var innan verka- lýðsfélaga um kaupkröfur, að það hafi bara verið stjórnar- andstaðan, sem vildi hækka kaup verkamanna? 5. Þá segir í landsfundarsam- þykktinni, að almenn hagsæld byggist á því, að hvergi verði hvikað frá „viðreisnarstefn- unni“. Ef bændur og verka- menn á landsfundinum hafa rétt upp hendi með glöðu geði þegar þetta var samþykkt, er þeim mönnum ekki fisjað saman. Hin almenna hagsæld, sem þegar er fengin af viðreisnarstefnunni, leynir sér svo sem ekki. En hvort menn hafa á þeirri stundu haft í huga, að útgerðin þurfti sérstaka kreppulánaað- stoð fljótlega eftir að „viðreisn arstefnan“ fór að bera árangur, og að einmitt sömu dagana og landsfundurinn stóð yfir, var til umræðu á hinu háa Alþingi að hliðstæð kreppulánaaðstoð til bænda væri óhjákvæmileg, eins og nú er komið. Svona grátt er „viðreisnin“ strax búin að leika aðalatvinnuvegi landsmanna, og þó rétta menn upp hendurnar og þakka. 6. Enn segir í ályktuninni, að umbætur í skattamálum séu á næsta leyti, til þess m. a. „að skapa heilbrigt andrúmsloft". Hið góða andrúmsloft er í því fólgið að velta enn meira en orðið er, skattabyrðum þeirra ríku yfir á herðar ahnennings, t. d. með auknum neyzluskött- um. Það á líka að færa niður tollana, segir landsfundurinn. Það er nú fallegt á pappirnum að ætla að færa niður tolla og skatta. En það er einkar óheppi legt fyrir Sjálfstæðisflokkiim og næsta broslegt að auki, að láta saniþykkja þetta á sama tíma og þessi sami flokkur leggur fyrir Alþingi að framlengja alla tolla og skatta, hverju nafni sem nefnast, sem áður voru álagðir og áttu að vera til bráðabirgða, samanber fjárlagafrumvarpið og þingfréttirnar. 7. Lögð verði sérstök áherzla á að bæta lífskjör þjóðarinnar, samþykkir landsfundurinn. Það hefur, á íhaldsvísu, gengið nokkuð vel að bæta lífskjörin, enda gekk Sjálfstæðisflokkur- inn fram á orrustuvöll siðustu kosninga undir kjörorðinu: Leiðin til bættra lífskjara er að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. — Efndirnar eru í stuttu máli þær, að í tíð vinstri stjórnarinnar voru lífskjör á íslandi þau beztu, miðað við nálæg lönd. Nú eru þau lökust. „Viðreisnin“ skerti lífskjör allra manna, nema fárra ríkra, um 15—20%. Kauphækkanirnar frá í sumar hefur ríkisstjórnin þurrkað út með gengisfellingunni síðustu. Lífskjör verkamanna á íslandi eru svo léleg nú, að enginn efnahagssérfræðingur, né held- ur stjórnmálaritstjóri eða yfir- leitt nokkur annar ábyrgur maður hefur fengist til að gera tilraun til að setja upp það dæmi, hvernig hægt sé að lifa af núverandi kaupi. Tekjur bændanna eru svo miðaðar við þetta kaupgjald, og þó dregin frá, samkvæmt gerðardómi, veruleg upphæð. Hin „sérstaka áherzla á bættum lífskjörum“ og að „hvergi sltuli hvikað frá viðreisninni“ er boðskapur um svívirðilega samdráttar- og kjaraskerðingarstefnu, sem verður að hrinda. 8. Stefnt sé að því, að sem flestar fjölskyldur geti eignast húsnæði, segir í ályktun lands- fundarins. Með hliðsjón af því, að í heilum sýslum er svo kreppt að mönnum, að engin ný hús, og í öðrum sýslum aðins örfá, hafa risið af grunni síðan núverandi stjórn tók við völd- um, eru óskir um að sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið, ekki of snemma á ferðinni. En þegar byggingareefni hefur hækkað um 70—80%, erfiðara að fá lán en áður, engin leið fyrir venjulegt launafólk eða bændur að leggja til hliðar af tekjum sínum til bygginga og ekki á að breyta um efnahags- stefnu, er örðugt að líta á þessa landsfundarsamþykkt öðruvísi en sem naprasta háð. 9. Stefnt skal að því, að sem ílestir verði efnalega sjálfstæð- ir, segir ennnfremur í hinni frægu stjórnmálaályktun lands- fundar Sjálfstæðisflokksins. — Þessi samþykkt brýtur alger- lega í bág við staðreyndir um stefnu allra íhaldsflokka, hvar sem er í heiminum, og er því orðaleikur einn. Samkeppnis- og fjáraflamenn, sem stjórna Sjálfstæðisflokknum, vinna sleitulaust að því að auðvelda hinum riku að verða ríkari á kostnað hinna, eins og bezt er hægt að sjá í verkum núverandi ríkisstjórnar. Ört versnandi lífs kjör almennings segja þarna sína sögu og eru ólýgnustu vitnin í þessu máli. Eða hvernig geta gifurlegar kjaraskerðingar og beinar árásir á lífskjör al- mennings og hins vegar „að flestir verði efnalega sjálfstæð- ir“, farið saman? 10. Margt fleira væri ástæða til að gera að umtalsefni úr hinu merkilega plaggi frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Sjómenn, bændur og verkamenn, ef ein- (Framhald á bls. 2) IIIHIHIIIIHIIHIIIIHIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIHIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍIIIIIIHIIHIIIIHIIIIIIIIIIIIIIHI Bindindisdagurinn 1961

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.