Dagur - 22.11.1961, Side 1
r M Vl.<.A(..\ I'ra\fsúknarmaxna
í R rsrjÓRi: Eruncur Davíhssón
Skru-sioi a i Hai NAKSUUVI! 90
Shn f -1(56 . Sf.tnincu og i'rkntun
ANNAST Pltl.NlVERK Ol)I)S
B ) (ÍRNfjSQNAR UI'. AkUIU'.VRI
Dagur
XLIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 22. nóvember 1961 — 55. tbl.
Al GI.WM.AVI lúltl: JÓN Sam- ■
ÚELSSON . ArGANOURINN KOSI.VU
KR. 't 00.00 . ( i J AI.DDAGl KK 1. Ji.'i.i
BI.AÐIS Kl-.V'K Á MIDVlKliDÖG-
Ot; A l.AUGAKDOÓVM
1>Í-GAR Ásr.«)A lo'KIR 111. ,
iflÍMfcr;;',
Beint talsímasantand við útlönd
Síminn lagður frá Skotlandi til Færeyja
r
og þaðan til Islands - Firnm til sex línur opnar
HINN 11. NOVEMBER lögðu
tvö skip úr höfn í Englandi með
sæsímastreng þann, sem leggja
Bör Börson,
SÁ SEM frægastur er allra
söguhetja útvarpsins, verður, í
samnefndu leikriti, frumsýndur
í Samkomuhúsinu á Akureyri á
morgun, fimmtudag, í meðferð
L. A. og undir leikstjórn Ragnh.
Steingrímsdóttur.
Leikendur eru 14, er nafn-
greind hlutverk hafa.
Hver leiksýning mun taka um
3 klst., en iþær eru í tveim
þáttum og 10 sýningum. Leikið
verður fjögur kvöld í röð, því að
hraða þarf sýningunum.
Aðalhlutverkið leikur Júlíus
Júlíusson frá Siglufirði.
átti milli Skotlands og íslands.
Ameríska skipið W. Maskay
hefur nú lagt strenginn frá
Skotlandi til Færeyja. Brezka
skipið Albert lagði svo síma-
strenginn frá Færeyjum til
Vestmannaeyja og var því verki
lokið um síðustu helgi. Tal-
símasamband íslendinga við um
heiminn hefur verið um út-
varp. Verða því umskiptin
mikil.
Fyrst um sinn verða opnar 5
—6 línur héðan til London, Eær
eyja og Danmerkur, ennfremur
ritsíaaalínur alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar, ICAO. Á næsta
ári verður sæsímastrengur lagð
ur frá íslandi til Kanada. Eftir
það verður beint talsímasam-
band til Evrópu og Kanada. —
England, Kanada, Danmörk og
ísland standa að þessum fram-
kvæmdum, í félagi við Stór-
norræna ritsímafélagið og
ICAO. □
Þrjózkur togaraskipstjóri tekinn
Skipstjorinri játaði á sig ásigíingartilraimir
VARÐSKIPIÐ ALBERT tók
brezka togarann Grimsby Town
1,5 sjómílur út af Stokkanesi 14.
nóv. vegna ólöglegra veiða.
Skipstjórinn var dæmdur í
200 þús. kr. s&kt og fékk auk
þess tveggja mán. fangelsi, skil-
orðsbundið, vegna endurtekinna
tilrauna til að sigla niður varð-
skipið í náttmyrkri og vondu.
veðri.
Albert varð að skjóta 12 skot-
um að togaranum, þar af 3
föstum, áður en hann gaf sig.
Mál togarans var tekið fyrir á
ísafirði og í stað Jóhanns
UM 20. júlí kom þetta fríða skip, Kambaröst, til Neskaupstaðar. Það er 100 smálesta stálskip, sem
Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar lét smíða. Karl Kristjánsson skipstjóri var svo vinsamlegur að leysa
frá bryggju til að auðvelda myndatökuna. (Ljósmynd: E. D.)
KIMmUIIIMMIHIIUHHIUIHIIItlllllWltlllUMIIIIMIIMtllllHIIIHIHIIIIMimmHIIIIIIIIMINinimilillllllll
IIttélt14411Iftltll14IItttltItIII
Pípuorgelið vígt á sunnudaginn
Kirkjan máluð og klædd harðviðarþiljum
Gunnars Ólafssonar sýslu-
manns, sem var ekki heima,
kvað Bárður Jakobsson fulltrúi
hans upp dóminn. □
r
Utvegsmenn neituðu
Á FUNDI LÍÚ 16. nóv. kom
fram tillaga, sem fól í sér beina
viðurkenningu á réttmæti síðari
gengislækkunarinnar í sumar.
En þegar til atkvæðagreiðsl-
unnar kom samþykktu fundar-
menn með yfirgnæfandi meiri
hluti að fella þetta niður úr til-
lögunni. □
EINS OG Akureyringum er
kunnugt, hafa undanfarna fjóra
mánuði staðið yfir miklar end-
urbætur á kirkjunni, og helgi-
athafnir af þeim sökum farið
fram í kapellunni.
Aðalbreytingin er sú, að
pípuorgel er komið í kirkjuna,
og verður það tekið í notkun
um leið og guðsþjónustur hefj-
ast aftur í kirkjunni næstk.
sunnudag, 26. nóvember.
Aðrar helztu endurbætur eru
þær, að gagnger aðgerð hefur
farið fram á þaki kirkjunnar, en
því verki verður þó ekki að
fullu lokið fyrr en á næsta vori.
Kirkjan hefur verið máluð að
innan og veggir klæddir með
harðviðarþiljum, eins og ætlað
var í fyrstu. Lýsing hefur verið
endurnýjuð og hitalögn breytt.
Um allar þessar endurbætur á
kirkjunni hefur sóknarnefnd
haft samráð við skrifstofu húsa-
meistara ríkisins.
Fyrir nokkru vaknaði áhugi í
söfnuðinum fyrir því, að kirkj-
an eignaðist pípuorgel, eins og
margar aðrar kirkjur á íslandi.
Synjun á gjaldeyris- og inn-
flutningsleyfi tafði mjög fyrir
framkvæmdum, en þegar leyfi
fékkst, var hljóðfærið valið frá
Steinmeyer-vej'ksmiðjunum í
Vestur-Þýzkalandi. Var leitað
tilboða í vandað pípuorgel í
þremur löndum og reyndist
hagstæðasta tilboðið frá þessari
verksmiðju. Eftir upplýsingum
frá verksmiðjunni, skiptir hún
milliliðalaust við öll Evrópu-
lönd, og var hið upphaflega til-
boð miðað við milliliðalaus við-
skipti, og að frádregnum út-
flutningsuppbótum, sem þýzka
ríkið greiðir á framleiðslu til
útflutnings.
Allt frá þeim tíma, er leyfi
var fengið fyrir pípuorgelinu,
hafa bæði opinberir aðilar, fyrir
tæki, einstaklingar og stofnanir,
sem um málið hafa fjallað,
greitt götu þess með sérstakri
góðvild og skilningi. Er upp-
setningu hljóðfærisins fyrir all-
löngu lokið og er það vandað.
Andvii'ði Hammond-orgels-
ins, sem áður var í kirkjunni,
hefur runnið til pípuorgelsins,
og hefur verið útbúinn silfur-
skjöldur með áletrun, sem varð
veitir minningargjöfina og
(Fi-amhald á bls. 2)
Bífveltð a Glerárgötu á Akureyri
Rækjuveiðar gefa góðar tekjur
Konur hafa upp í 300 kr. á dag við að „pilla“ athuganir hið allra fyrsta og
Tl». \ i • ri ^ i . e •* nýta rækíumið ef fil eru á
Moðurskip tlytur rækjurnar at miðunum meðan markaður leyfir.
í FRÉTTUM frá ísafirði segir
að rækjuveiði sé treg í Djúp-
inu, en afli góður á Ingólfsfirði.
En þá þarf að sigla fyrir Horn,
og er það oft ógreiðfær leið litl-
um bátum og 10 klst. ferð.
Við rækjuveiðarnar eru oft 2
menn á bát og aflinn allt að 3
tonn í í'óðri, og er þá aflahlutur
góður, og í landi „pilla“ kon-
urnar fyrir allt að 300 kr.
á dag.
Frá Álftafirði og ísafirði hafa
25 bátar stundað rækjuveið-
arnar.
Nú hafa rækjuveiðimenn feng
ið sér eins konar móðurskip til
að sigla heim með aflann, sem
veiðist á Ingólfsfirði.
Rækjuveiðarnar eru vest-
firzkur atvinnuvegur. Að sjálf-
sögðu byggjast þær á því, hvar
rækjur eru. Á Eyjafirði, Skjálf-
andaflóa og Axarfirði eru talin
rækjumið, en lítt rannsökuð þó.
Nauðsyn ber til að gera á þessu
Mllltlltllltll III111111111111111111111111II Mlllt II IIIUItlllll>«>
[ NÝTT SÍS-SKIP |
SAMBANDIÐ er nú áð láta
smíða 1100 tonna olíuflutninga-
skip í skipasmíðastöð Kremer
& Sohn nálægt Hamborg. Það
mun verða tilbúið til afhend-
ingar eftii' um það bil eitt ár,
eða í október næsta haust.
Skipið á að annast olíuflutn-
inga á milli hafna innanlands og
flutninga frá útlöndum. □
EFTIR HÁDEGI á sunnudag
bar það við á Glerárgötu á Ak-
ureyri, að 6 manna fólksbifreið
hvolfdi. Bíllinn skemmdist mjög
mikið, en bílstjórinn, sem var
einn, fékk höfuðhögg, en líður
eftir atvikum vel.
Aðdragandi slyssins var sá, að
nefndur bíll kom á mikilli ferð
norðan Glerárgötu og ók fram
úr öðrum bíl norðan við Bygg-
ingavöruverzl. Tómasar Björns
sonar, en bílstjórinn mun þá
hafa misst vald á bílnum, því að
hann lenti á kantsteini, vestan
við götuna, ók síðan á ská aust-
ur yfir götuna og velti. í fallinu
rakst bíllinn á ljósastaur og
braut hann.
Bíllinn var á hvolfi er að var
komið og auk þess í eldglæring-
um vegna raflínunnar, sem nið-
ur féll. Bilstjórinn var fyrst
meðvitundarlaus en hresstist
brátt. Hann var fluttur á spít-
ala og líður honum eftir atvik-
um vel, en yfirbygging farar-
tækisins er öll beygluð. Bíll
þessi var skrásettur í Stranda-
sýslu. □
IMMMMIMIMIIIIMIMMIMMMMMMMtM*
I Nýjung í húgagna- [
{iðnaðinum á íslandi j
FYRIRTÆKIÐ Plastmöbler í
Kristiansand í Noregi hefur
veitt Trésmiðjunni Víði í Rvík
einkaleyfi á framleiðslu plast-
húsgagna, og hefur látið af
hendi mót, teikningar og leið-
beiningar til að framleiðsla geti
hafizt hér á landi.
í hinum nýju húsgögnum
kemur plastið í stað trés og er
það langtum léttara og einnig á
það að vera mun sterkara.
Hinii’ nýju framleiðendur
hafa skýrt frá því, að húsgögnin
úr plasti verði 25% ódýrari —
og minna má nú gagn gera. □