Dagur - 25.11.1961, Qupperneq 1
|: M Fra.m.sóknarmax.na
•';'R rsrjtm: Fruní;i:r Davíb.ssun
Skhii-'Sioi'A j HAKNARSTR.rri 90
SÍMI i 166 . Sr.TNlNCO OG 1‘RKNTUN
A.NNA.Sl PHKNIVERK ODDS
B.fÖRN'.SSONAU H.K. AkURKVKI
s----------------------------------
r --------------------------------"
Aof.l.sSINGASTjöui: Jön Sam-
OEI.SSO'- . Arcancurjnn KOSTAR
KR. í 00.00 . G j Al.DDAGl EK V. fl á.i
BlAÐID K.EMOR Á, !' Á MIDVIKUDÖC-
"TM OO A I.AOCARDOCOM
t’EGAR ÁST.KDA I»YKIR TII.
w-------1-----------------úi.----/
Sýslumaður cg félagsheimiiin
Ný reglugerð gefin út um samkomuhaldið
í FRAMHALDI af fundum
sýslumanns, stjórna félags-
hfiimilanna í Freyvangi og
Laugarborg, þar sem einnig
sátu hreppstjórar og yfirlög-
reglumenn í Ongulsstaða- og
Hrafnagilshreppi, gaf settur
sýslumaður, Sigurður M.
Helgason, út reglugerð um sam
komuhald félagsheimilanna í
héraðinu.
Stærsta breytingin er í því
fólgin, að ekki séu seldir fleiri
aðgöngumiðar en sem svarar
borðum og stólum staðanna.
Mun það fækka samkomugest-
um um allt að 100—150 manns
og auðvelda allt eftirlit. í aug-
lýsingum um samkomur sé tek-
ið fram hverju sinni, að ungl-
ingar innan 16 ára aldurs fái
ekki inngöngu og að húsinu
verði lokað kl. 11,30 og því fylgt
eftir, að virt sé í verki.
Þá eru reglur um meðferð
þeirra, sem sökum ölvunar .eða
af öðrum ástæðum þarf að taka
úr umferð. Skulu þeir tafarlaust
fluttir burtu pða vera í vörzl-
um lögreglunnar. Mun þetta
eiga að koma í stað þess að
henda mönnum út á guð og
gaddinn. Þá er þess krafizt að
lýsing sé fullnægjandi á bif-
reiðastæðum. Ennfremur verði
samkomubann sett á menn, sem
brotlegtir hafa gerzt. Það bann
verður auðvitað að gilda fyrir
bæði (eða öll) félagsheimilin
og vera strangt. Þá er ennfrem-
ur lögð áherzla á, að hlíta beri
lögreglusamþykkt sýslunnar,
svo og áfengislögunum, er sér-
staklega snertir samkomuhald.
Lögð er áherzla á, að menn séu
sóttir til saka og kærðir fyrir
afbrot, sérstaklega þau er
áfengislöggjöfina varðar, og var
ekki vanþörf á því.
Aðstandendur félagsheimila
eru mjög áhugasamir um bætt
samkomuhald og mun nú ekk-
ert til sparað að hefja skemmti-
samkomurnar upp úr niðurlæg-
ingunni með sameiginlegu
átaki. Hafa þeir og fengið
nokkurn stuðning frá sýslu-
manni, svo sem vænta mátti.
ENGAR UPPLÝSINGAR
i Mynd úr sjónleiknum Bör Börson. — Bör Börson (Júlíus Júlíusson), Jósefína (Þórey Aðalsteins- I
1 dóttir) og Óli í Fitjakoti (Gunnlaugur Björnsson). (Ljósmynd: Edvard Sigurgeirsson.) E
Stíflur trufluðu rennsli Laxár
Rafmagnsskömmtun tekin upp á Akureyri
MARGAR kvartanir bárust
til blaðsins yfir því í gær, að
ýmist væri ekki svarað á skrif-
stofum Rafveitunnar eða ókunn
Fastir í sköflum
Á NOKKRUM stöðum varð að
hjálpa bílum úr sköflum á Ak-
ureyri í gær, þótt fært væri
víðast hvar.
Nokkrir ökumenn sýndust lítt
hafa búizt við snjó og hálku, ef
marka má keðjurnar. □
FRÁ NÁGRANNALÖNDUN-
UM berast þær fróttir að hvorki
sé sparað fé eða fyrirhöfn til að
veita borgurunum allt það ör-
yggi, sem hægt er að veita
gegn loftárásarhættu og geisla-
virkni í lofti og á jörð.
í síðasta stríði voru loftvarn-
arnefndir starfandi í þéttbýl-
inu. Nú eru nýir tímar runnir
upp í hermálum, og þá um leið í
vörnum borgaranna, ef til
styrjaldar kemur.
Borgarstjóri Reykjavíkur hef-
ur rætt málið og undirbúið að
nokkru. Ekki hefur bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar tekið mál
ið á dagskrá, svo að vitað sé.
Noklcur atriði má nefna í sam
bandi við varnir borgaranna.
í hverjum kaupstað þarf að
hafa til taks nægilegan fjölda
ugir yrðu fyrir svörum, er
spurzt væri fyrir um rafmagns-
skortinn og skömmtunina.
Blaðið kemur þessum kvört-
unum hér með á framfæri og
vill benda á, að þótt vitað sé að
Rafveitan gerir það, sem á henn
ar valdi er, kostar það lítið að
gefa borgurunum fullar upp-
lýsingar, er þeir hringja til að
fá fregnir af máli þessum. í
þessu efni er full þjónusta alveg
nauðsynleg og sjálfsögð. □
sjúkrarúma með tilheyrandi
hjúkrunargögnum, svo og starfs
lið til hjúkrunarstarfa. Eitt
hundrað sjúkrarúm og stað fyr-
ir þau, væri lágmark ef til loft-
árása kæmi
Símaþjónustan þarf að hafa
hringingartæki, til að gera öll-
um símanotendum aðvart sam-
tímis. Þá kæmi öflugt talstöðv-
arkerfi lögreglu og slökkviliðs
að góðum notum.
Eldvarnir þarf að efla, með
fleiri slökkvibílum og varaliði,
sem ætíð sé reiðubúið. Þá þarf
að vera aðgangur að miklu
meira vatnsmagni en vatnsveita
bæjarins flytur nú.
Með tilliti til geislavirkra
efna í matvælum, þarf bærinn
að eiga forða af matvælum, sem
grípa megi til í neyðarástandi.
Á SJÖTTA tímanum síðdegis á
fimmtudaginn tók að minnka
rafmagnið frá Laxó. En stórhríð
hafði skollið á um morguninn.
Voru hinir gömlu stíflustaðir
árinnar við Mývatn athugaðir,
en þar var fullt rennsli.
Um kl. 7 sama dag varð að
i styrjold
Prenta þarf bækling með leið
beiningum um margs konar
ráðstafanir, sem einstakling-
arnir geta af höndum leyst,
hver fyrir sig og sameiginlega
og hversu ber að snúast við
hinum ýmsu vandamálum er
borið geta að höndum.
Bærinn þarf að hlutast til um,
að nægilegar birgðir séu til af
þeim íblöndunarefnum, sem
nauðsynleg kynnu að verða
vegna geislavirkni í sambandi
við matvæli.
Þá þyrfti að athuga hversu
hagkvæmast væri að gera stór
loftvarnarbyrgi fyrir fjölda
fólks og hefja framkvæmdir á
því sviði. Efalaust þarf að leita
aðstoðar í þessum efnum er-
lendis frá. En það er of seint að
rumska í stríðsbyrjun. □
taka upp rafmagnsskömmtun á
Akureyri.
Um Kl. 10 í g ærmorgun, er
blaðið átti tal við rafveitustjór-
ann, var framleiðsla Laxár-
virkjana aðeins 3000 kw. í stað
10—11000 og stíflan í Laxá var
þá ófundin.
Vararafstöðin var gangsett
strax og rafmagnið tók að dvína
að austan og framleiðir hún
2000 kw. og kemur sér vel.
Rafmagnsskömmtun var fjór-
skipt, en verður þrískipt, ef
þessu heldur áfram, sagði raf-
veitustjórinn, og e. t. v. verður
að takmarka rafmagn til upphit
unar í bænum.
Samkvæmt því er hér hefur
verið sagt hefði verið hægt að
koma tilkynningu til fólks um
skömmtunina, en var ekki gert.
Það er mjög nauðsynlegt að
auglýsa í útvarpi hversu
skömmtun á rafmagni er hagað
hverju sinni, og gera það áður
en skömmtun hefst. □
Báfurinn Skíði er ófundinn enn
Blönduósi 24. nóv. — Hávaða-
veður og haugabrim. Enn er
ófundinn báturinn Skíði frá
Skagaströnd. Óðinn og Húni
hafa án árangurs leitað hans í
gær og nótt. Skíði er lítill dekk-
bátur og á honum fóru tveir
eða þrír bræður í þennan róður.
í gær voru landleiðir opnaðar,
en veðuræsingur svo mikill í
morgun, að ekki þótti fært á
mjólkurbílum á sumum leiðum.
Hvorki rútan að norðan eða
sunan komu hér í gær. Bíllinn
að sunnan fór út af veginum í
Miðfirði. Fólkið sakaði þó ekki
og komst heilu og höldnu til
Húsabakka.
Á laugard. efnir búnaðarsamb.
til bændakvöldvöku. □
SJÖR STÖÐVAÐI
BÍLAUMFERÐINA
Sauðárkróki 24. nóv. — í haust
hafa 5 og 6 dekkbátar róið, enn-
fremur 10—12 trillur, og aflað
ágætlega.
Nú er stórhríð og mikill sjó-
gangur. Einnig er hásjávað. —
Sjórinn gekk yfir veginn austur
frá flugvellinum og varð þar
ófært í gær um tíma.
Engir mjólkurbílar lögðu af
stað í morgun.
Varnii* borgaranna