Dagur - 12.05.1962, Qupperneq 8
8
ÁMundur elzfa kaupfélagsins
Fundarsalur fánum prýddur er Iíaupfélag
Þingeyinga minntist 80 ára starfs nýlega
Þetta er kvíguhópurinn, sem mestum þroska hefur náð við frumstæð skilyrði.
(Ljósm.: E. D.)
Uppeldi naufgripa á Rangárvöllum
Nokkur atriði frá aðalfundi S. N. E.
AÐALFUNDUR Sambands
nautgriparæktarfélaga í Eyja-
firði var haldinn að Hótel KEA
30. apríl sl. Sátu hann fulltrúar
frá 9 af 11 félögum sambands-
ins.
Jónas Kristjánsson, samlags-
stjóri, formaður SNE, flutti
skýrslu stjórnarinnar, Sigurjón
Steinsson, bústj., flutti skýrslu
um búreksturinn á Lundi og Ól-
afur Jónsson, ráðunautur, sagði
frá eftirlits- og tilraunastarfinu,
sem hann hefur eftirlit með. —
Fundarstj. var Björn Jóhanns-
son, bóndi á Laugalandi.
Ólafur Jónsson sagði m. a. í
ræðu sinni á fundinum, að af
þeim skýrslum frá nautgripa-
ræktarfélögunum, sem borizt
hefðu, mætti sjá, að afurðir
kúnna hefðu enn aukizt. En
fóðurbætisgjöf hefði einnig auk-
izt frá fyrra ári. Mun óhagstætt
veðurfar sl. sumar og hrakin
hey í vetur eiga sinn þátt í hinni
auknu kjarnfóðurgjöf.
Um afkvæmarannsóknir sagði
Ólafur, að lokið væri rannsókn
dætra nautanna Galta og
Mýra. Reyndust dætur Mýra
allvel, en hinar til muna lakari.
Nú er verið að rannsaka dætur
Flekks og Surts, og virðast
Surtsdætpr gefa betri raun, en
báðir eru þessir flokkar heldur
lélegir, það er séð verður.
Næsta haust vei'ður kynbóta-
gijdi rraptanna- Gerpis og Glæs-
is rannsakað á sama hátt og
fyrirfarandi . rannsóknir hafa
fram fariðj « J \
Frá sæðiHgarstöð SNE voru
síðasta ár sæddar tæplega 4000
kýr, en þar af rösk 93% með
árangri og rúmlega 73% fengu
kálf við fyrstu sæðingu. Sæðing
á kelfda kú varð 1.45.
Sigurjón Steinsson, bústjóri
SNE á Lundi, hefur m.a. á hendi
uppeldi á 16 kvígum við óvenju-
leg og frumstæð skilyrði. Er það
gert í tilraunaskyni og þó ekki
í sambandi við afkvæmarann-
Ný slefna er nauðsynleg
Forystuhlutverkið í höndum Framsóknarmanna
HVERS KONAR framþróun á
Akureyri og á Norðurlandi öllu
byggist meðal annars á því í ná-
inni framtíð, að brotin verði á
bak aftur núverandi kjaraskerð-
ingar- og samdráttarstefna, sem
núverandi stjórnarflokkar hafa
komið á. Sú stefna lamar allt
einstaklingsframtak í landinu,
og hefur þegar stöðvað að
miklu leyti hina hröðu sókn í
uppbyggingu atvinnuveganna
og skert lífskjör almennings
verulega.
Norðurlandskjöi'dæmi eystra
þarf að gegna forystuhlutverki
í þessu efni, en jafnframt að
hefja stórfellda framsókn á öll-
um sviðum atvinnulífs og menn-
ingarmála, til þess að auka hag-
sæld hinna almennu borgara og
búa í haginn fyrir framtíðina.
Framsóknarmenn á Akureyri
mótmæla harðlega hinum óeðli-
lega háu vöxtum. Þeir mótmæla
verðhækkunarstefnu ríkis-
stjórnarinnar, lánasamdrættin-
um og frystingu sparifjár lands-
manna. Og þeir mótmæla einn-
ig hinni miklu misskiptingar-
stefnu þjóðarteknanna, sem nú
sóknirnar. Kvígukálfar þessir
voru keyptir í maí í fyrra, flest-
ir fárra daga gamlir. Síðan hafa
þeir verið hafðir í bragga á
Rangárvöllum. Bragginn er ein-
angraður, en hurð aldrei lokað.
Garði er í miðju og krær beggja
megin, eins og í fjárhúsi. Grind-
ur ei'u engar en heyúrgangur
notaður til undirburðar. Legu-
plássið er 1.75 m2 fyrir hvern
kálf. Verða þeir því að liggja'
mjög þétt. En inni vilja þeir
liggja um nætur, gagnstætt því
sem sums staðar reynist í
grindahúsum, þar sem naut-
gripirnir eru í opnum húsum.
Tilraun þessi var m. a. gerð
vegna umtals á aðalfundi í fyrra
um uppeldi kálfa og kostnað við
það. Það er eftirtektarvert, að
kvígum þessum er aldrei gefið
(Framhald á bls. 2)
AÐALFUNDUR Kaupfél. Þing-
eyinga var haldinn 3. og 4. þ.m.
í samkomuhúsi bæjafins. í til-
efni þess, að félagið varð 80 ára
á þessu ári var fundarsalux-inn
fánum prýddur og skreyttur
myndum og minjagripUm úr
sögu félagsins.
Mættir voru á fundinum 102
fulltrúar frá deildum félagsins,
félagsstjórnin, endurskoðendur
og allmargir gestir.
Formaður félagsins, Karl
Kristjánsson, setti fundinn með
afmælisávarpi og stýrði honum.
Ritarar voru kjörnir: Atli Bald-
vinsson, Ingi Tryggvason og Jó-
hann Hermannsson.
TIU DRATTARVELAR
Húsavík, 7. maí. í dag voru ó-
venjulegar manna- og vélaferð-
ir á flötinni við Kaupfélag Þing-
eyinga, Húsavík. — Forvitnir
flykktust að og í þeirra hópi
voru ljósmyndarar og fréttarn-
arar blaða. í ljós kom, að Kaup-
félagið var að selja tíu Massey-
Ferguson-dráttarvélar af ár-
gerðinni 1959. Innfluttar notað-
ar. — Kaupendurnir voru allir
samankomnir til kaupanna og
drógu um vélarnar. Lögðu síð-
an af stað hver með sína. vél í
sveitiná.
Þormóður.
á sér stað og færir eðlilegar
skattabyrðar hinna ríku yfir á
herðar þeirra fátæku.
Hinir almennu kjósendur í
síðustu alþingiskosningum
studdu núverandi stjórnmála-
flokka, samkvæmt yfirlýstri
stefnu þeirra og í góðri trú á
það, að efnd yrðu loforðin um
bætt lífskjör og alhliða framfar-
ir. Kjósendurnir hafa verið
sviknir hi-aklega í þeim efnum,
og í flestum atriðum öðrum.
Þeir eru því algerlega óbundnir
af flokkum sínum nú. H'jóta
þeir því í þessum bæjarsqórn-
arkosningum, sem eru háflokks-
pólitískar, að fella sinn réttláta
dóm yfir núverandi stjórnar-
stefnu, um leið og þeir velja sér
fulltrúa í bæjarstjórn.
Færi vel á því, að úrslit bæj-
arstjórnarkosninganna, sem
fram eiga að fara hinn 27. maí
n.k., yrðu eftirminnileg aðvörun
til þeirra manna, sem þessari ó-
heillastefnu ráða.
Þetta verður bezt gert með
því að styðja sterkasta stjórnar-
andstæðinginn og kjósa Fram-
sóknarflokkinn. □
JAKOB TRYGGVASON hefur
æft lúðrasveit drengja á Akur-
eyri. Lúðrasveitin hefur oft
komið fram og vakið eftirtekt
og ánægju. Hinir ungu hljóð-
færaleikarar hafa verið skóla
sinum og bæ til sóma.
Lúðrasveit þessi hefur starf-
að í 4 ár, en verður nú leyst
upp. Síðasta tækifærið að hlusta
á hana hér á Akureyri er á
sunnudaginn. Þá leikur hún í
Samkomuhúsinu.
Eftir helgina fer hún suður
og leikur á ýmsum stöðum
sunnan fjalla, m. a. í höfuðborg-
inni. — í lúðrasveitinni eru 22
drengir.
Drengirnir á meðfylgjandi
mynd eru: Fi'á vinstx'i: Grímur
Sigui'ðsson, Gunnar Skarphéð-
insson og Jónas Fi'anklín.
Möi-g félagsmálefni voru rædd
á fundínum og skýrslur fluttar
um starfsemi félagsins á árinu
1961. Aðalskýrsluna flutti kaup-
félagsstjórinp, Finnur Ki'istjáns-
son.
Félagsmenn voru í árslok
1553. Vörusala í búðum félags-
ins var á árjnu rúmlega 38 millj.
kr. Hækkun frá ái'inu áður því
um 5% milljón kr. Innlagðar
fi'amleiðslUvöi'ur voru um 40
millj. kr.
Alls var velta félagsins rúmar
92 millj. kr. eða í krónum talið
rúmlega 13 millj. hærri en árið
áður.
Helzta fjárfestingai'fi'amkv.
félagsins 1961 hafði verið byrj-
un á byggingu nýs frysti- og
sláturhúss. Kostnaður sá orðið
tæpar 2 millj. kr. á árinu.
Tekjuafgangi félagsins var
ráðstafað í stofnsjóð félags-
manna. Lagðar voru aukalega í
Menningarsj óð K. Þ. vegna af-
mælisins eitt hundrað þúsund
krónur. Hæstu fjárveitingar,
sem ákveðnar voru úr Menning-
arsjóði, voru að þessu sinni:
1. Til Sjúkrahúss Húsavíkur
til kaupa á lækningatækjum 50
þús. kr.
2. Til eflingar héraðsskjala-
safni Þingeyinga 50 þús. kr.
Lokið höfðu kjörtíma sínum
í félagsstjórninni: Karl Kristj-
ánsson, alþingismaður, Húsa-
vík, Teitur Bjöi-nsson, bóndi,
Brún, Þráinn Maríusson, sjó-
maður, Húsavík. — Voru þeir
allir endurkjörnir.
Varamenn í félagsstjórn voru
einnig endurkjörnir, þeir: Þrá-
inn Þórisson, skólastjóri, frá
Baldursheimi, Óskar Sigtryggs-
son, bóndi, Reykjarhóli.
Endurskoðandi var endurkjör-
inn: Hlöðver Hlöðversson,
bóndi, Björgum.
Til að mæta á næsta aðalfundi
SÍS voru kjörnir: Karl Kristj-
ánsson, alþingismaður, Teitur
Björnsson, bóndi, Brún, Baldur
Baldvinsson, bóndi, Ófeigsstöð-
(Framhald á bls. 2)
AÐ4LFUNDUR
Mjolkursamlags K.Þ;
Húsavík, 7. maí. Mjólkursamlag
K.Þ. hélt aðalfund sinn 2. maí í
fundarsal K.Þ. í Húsavík.
Mættir voru fulltrúar úr öll-
um deildum félagsins, auk
þeirra stjórn, endurskoðendur,
svo og mjólkurbússtjórinn.
Mjólkurbússtjórinn, Haraldur
Gíslason, flutti ýtarlega skýrslu
um rekstur samlagsins 1961.
Innvegin mjólk hafði orðið
4.189.879 kg. Aukning frá árinu
áður nálega 9%. Meðalfita á ár-
inu 3.75%. — Seld mjólk var
1414% af heildarmagni. — Til
osta- og skyrgerðar fór 35.5%,
til kasein- og smjörgerðar 50%.
Endanlegt verð til framleið-
enda varð kr. 4.26 á lítra.
Þormóður.