Dagur - 24.05.1962, Page 1
IfflteACN FRAMSÓKNÁR.MANNA
Ir.'istjók): Eri incur Davíusnun
SkUII-sI Ol-A í Hai NAUSTK.r.H í)()
SÍMI i 16() . Sv.TNINGU OC, 1‘IUCNTUN
ANNAST J’RKNTVERK OjBMS
B.Iórn.snonar ii.r. Aki.iu.vri
N...........................-
XLV. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 24. maí 1962 — 29. tbl.
„I. ..t ■ y. .
' A^GLÝMNGASTJÓRír JÓN SAM-
OEl nnon .: ÁrCa.nguKINN JCOni AR
KR. 100.00 . GjAÍ.DDACt ER 1. ) ÚíJ
Bl.AI)H) Ki-MI R ÚT Á MIUVIKUDÖr.-
t'M ÖC Á I.AUC.AUUÚGUM
PKUAK ÁSr.f'.DA ÞYKIR I II.
Þaiinig eru efndir
st j órnar flokkaiuia:
1. Þeir lofuðu þjóðinni bættum lífskjörum. „Leiðin til
bættra lífskjara er að kjósa Sjálfstæðisflokkinn,“ var kjör-
orð þess flokks.
— En — þeir framkvæmdu meiri kjaraskerðingu en
dæmi eru til á síðari árum.
2. Þeir lofuðu að stöðva verðbólguna.
— En — þeir hækkuðu allar lífsnauðsynjar í verði, t. d.
kornvöru um 77—121 %, bifreiðavarahluti um 80—84%,
þóst og síma um 47%, landbúnaðarvélar og verkfæri úin
76—111%, búsáhöld um 40—125% og vefnaðarvöru utn
48—113%, samanber útreikninga, sem birtir hafa verið
í Dcgi.
3. Þeir lofuðu að bæta ekki nvjum álögum á þjóðina.
— En — þeir innheimta nál. 100% meira fé í ríkissjóð,
með hvers konar tollum og sköttum en árið 1958, samkv.
fjárlögum.
4. Þeir lofuðu að hafa engin afskipti af vinnudeilum.
— En þeir liafa gefið út a. m. k. þrenn bráðabirgðalög
til að ákveða kaup og kjör.
Og — þeir breyttu gengisskráningunni sl. sumar og
gerðu á þann liátt að litlu þær kjarabætur, sem um var
samið í fyrra.
5. Þeir lofuðu að standa trúan vörð um hina dýrmætu land-
helgi íslands.
— En — þeir hleyptu bæði brezkum og þýzkum togur-
um inn í landhelgina og afsöluðu rétti fslendinga til ein-
hliða útfærslu framvegis.
6. Þeir lofuðu að lækka skuldir þjóðarinnar erlendis.
— En — skuldir þjóðarinnar erlendis voru í árslok 1961
600 milljónum kr. hærri en í árslok 1958.
7. Þeir lofuðu víðtækum sparnaði ríkisfjár.
— En — útgjöld fjárlaga hafa hækkað um helming síð-
an 1958, alþingismönnum, ráðherrum, bankastjómm og
bankaráðsmönnum hefur stórfjölgað, stofnað hefur ver-
ið nýtt ráðuneyti, nýtt embættisbákn sakadómara, 10—20
launaðar nefndir settar á laggirnar o. s. frv.
8. Þeir lofuðu að auðvelda hverri fjölskyldu að eignast þak
yfir höfuðið.
— En — timbur og sernent hefur liækkað um 87—94%,
vextir af byggingalánum hafa stórhækkað og byggingar-
kostnaður meðal íbúðar hækkað um meira en tvenn árs-
laun verkamanns. (Hækkunin 29%- samkv. skýrslum
Hagstofu íslands.)
9. Þeir lofuðu einstaklingum athafnafrelsi.
— En — búið er að frysta á fjórða hundrað milljónir af
innlánsfé sparisjóða og innlánsdeilda. Og margs konar
ráðstafanir voru gerðar til að draga úr fjárfestingarmögu-
leikurn og þar með athafnafrelsi og framförum.
Almenningur fagnar kjördegi, sem gefur hon-
um fyrsta tækifærið til að kveða upp sinn dóm
yfir stjórnarstefnunni, um leið og valdir eru full-
trúar í bæjarstjórn.
I X - B X - B I
I ALLT STUÐMNGSFÖLK B-LISTANS, j
\ ungir og gamlir, konur og karlar, sem lagt \
I geta fram vinnu á kjördegi, vinsamlegast I
| komi til viðtals í Gildaskála KEA, föstud. |
| 25. mai kl. 8.30. - MJÖG ÁRÍÐANDI er, að j
| sem allra flestir sæki þennan fund. |
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN.
Togararnir liggja í höfn, en vonandi halda þeir á miðin innan skamms.
(Ljósm.: E. D.)
Rekstursfap togaranna á Ákureyri var
1,6 millj. króna á sl. ári
AÐALFUNDUR Útgerðarfélags
Akureyringa h.f. var haldinn að
kvöldi 21. þ. m. í kaffistofu
Hraðfrystihúss Ú. A. Formaður
félagsstjórnar setti fundinn.
Fundarstjóri var kjörinn Sverrir
Ragnars og fundarritari Pétur
Hallgrímsson. Form., Helgi Páls-
son, gaf skýrslu um rekstur fél. á
árinu 1961. Gísli Konráðsson
framkvæmdastjóri las reikninga
félagsins og skýrði þá, en Andrés
Pétursson framkvæmdastjóri
skýrði frá rekstrinum, það sem
af er árinu 1962. Reikningarnir
voru samþykktir án umræðna.
I stjórn félagsins voru endur-
kjörnir: Albert Sölvason, Helgi
Pálsson, Jakob Frímannsson,
Jónas G. Rafnar og Tryggvi
Helgason, en varamenn, Jón M.
Arnason, Gunnar H. Kristjáns-
son, Gísli Konráðsson, Eyþór H.
Tómasson og Jóhannes Jósefs-
son. Endurskoðendur: Ragnar
Steinbergsson og Þórir Daníels-
son, en til vara Kristján Jónsson
og Sigurður Kristjánsson.
Tap á rekstri félagsins, fyrir
utan afskriftir, reyndist á árinu
1961, 1.6 milljónir króna, og eru
þá með í þeirri tölu 400 þús. kr.,
sem lagðar voru til hliðar vegna
væntanlegrar klössunar.
Til samanburðar má geta þess,
að rekstrartap félagsins árið
1960, fyrir utan afskriftir, var
9.8 milljónir króna.
Gera verður ráð fyrir, að upp
í þessi töp komi, áður en langt
líður, eitthvert aðstoðarfé, sam-
kv. hinum nýju lögum um afla-
t.ryggingarsj. sjávarútvegsins.
Afli togaranna var á árinu
1961 sem hér segir:
Kaldbakur 2135 tonn
Svalbakur 2394 tonn
Harðbakur 3138 tonn
Sléttbakur 2812 tonn
Hrímbakur (Norð-
lendingur 1637 tonn
Samtals 12116 tonn og meðal-
tal 2423 tonn. Veiðidagar voru
flestir hjá Harðbak, 245, en
fæstir hjá Hrímbak, 168.
Skipin fóru 24 söluferðir til
útlanda með samtals 3177 tonn
af afla.
Hraðfrystihúsið og fiskverk-
unarstöðin framleiddu á árinu
Á BÆJARRÁÐSFUNDI á Ak-
ureyri í fyrrakvöld gerðist það
m. a., að Magnús E. Guðjónsson,
bæjarstjóri, spurðist fyrir um
það, hvort ekki bæri að auglýsa
bæjarstjórastarfið laust til um-
sóknar.
Allir bæjarráðsmenn, fimm
að tölu, urðu sammála um, að
ekki væri ástæða til að auglýsa
starfið og samþykktu að gera
það ekki.
Dagur telur víst, að þessi af-
staða bæjarráðsmanna mælist
vel fyrir, því að bæjarstjórinn
er mjög vel látinn maður í bæn-
um.
Framsóknarmenn áttu á sín-
um tíma þátt í því að fá hann
hingað, og hefur ekki annað
1673 tonn af fiskflökum, 329
tonn af skreið, 398 tonn af óverk
uðum saltfiski og 84 tonn af
verkuðum saltfiski, auk minna
magns ýmsra tegunda, sem ekki
er hér talið, en úrgangur til
vinnslu, sem seldur var Krossa-
nesverksmiðjunni nam 3859
tonnum. Framleidd voru nálega
8 þúsund tonn af ís.
Allir togarar félagsins, 5 að
tölu, liggja nú bundnir við
bryggju sakir sjómannaverk-
falls, sem staðið hefur rúmlega
tvo mánuði. En Sjómannafélag-
ið hér hefur — veena samstarfs
við sjómannasamtökin syðra —
ekki léð máls á því að taka upp
viðræður um sérsamninga við
Ú.A., sbr. bréf þau um það mál,
er birt voru í Degi 4. april sl.
komið til tals innan flokksins,
en að styðja hann áfram.
í íslendingi hefur nú birzt yf-
irlýsing frá Sjálfstæðisflokkn-
um hér í bæ um, að væntanlegir
(Framhald á bls. 6)
•IHIIIIIIHIIIIIIIIIillllinillllllllllllllllllllMIIIIHIIIIIIII*
Z r -
i Utvarpsumræður |
í KVÖLD verður útvarpað frá
Skjaldarvík umræðum stjórn-
málaflokkanna fjögurra, sem
boðið hafa fram til bæjarstjórn-
arkjörs á Akureyri. Ræðumenn
Framsóknarflokksins í þessum
umræðum verða: Jakob Frí-
mannsson, Stefán Reykjalín, Sig
urður Oli Bi-ynjólfsson og Arn-
þór Þorsteinsson.
Bæjarsfjórastarfið ekki auglýsf