Dagur - 23.06.1962, Qupperneq 4
4
5
VIRKJUN DETTIFOSS
A KJÖRDÆMISÞINGINU á Laugum
ræddi Gísli Guðmundsson, alþingismað-
ur, um Jökulsárvirkjunina o. £1., og sagði
þá meðal annars:
Við Framsóknarmenn í þessu kjör-
dæmi höfum tekið upp þá kröfu, að
næsta stórvirkjun yrði gerð við Jökulsá
á Fjöllum, og nú er svo að sjá, að allir
þingmenn kjördæmisins vilji, a. m. k. í
bili, taka undir þá kröfu með okkur. —
Virkjun og bygging iðjuvers myndi taka
nokkur ár. En undir eins og hún væri
ákveðin, myndi hún hafa sín áhrif. Við
vitum ekki, hvort þetta tekst. En við vit-
um, að ef það tekst ekki og byrjað verð-
ur á stórvirkjun syðra, eykst enn fólks-
straumurinn suður. Krafa okkar er rétti-
lega fram borin fyrir þessa ástæðu eina.
En ef við vinnum mál þetta, myndu á-
reiðanlega margir Norðlendingar syðra,
sem ekki eru búnir að festa rætur þar,
flytja hingað norður aftur.
En við megum ekki blína á það eitt í
norðlenzkum atvinnumálum, að hér komi
stórvirkjun. Virkjunin sjálf, ef til kemur,
mun veita orku og vaxtarmætti inn í
fleiri atvinnugreinar en stóriðnað. Sú
orka ætti að geta orðið meiri og ódýrari
en hægt er að fá á annan hátt, og það
skiptir máli. Við þurfum að auka land-
búnað, sjávarútveg, ýmiss konar iðnað
hér í kjördæminu og megum ekki van-
rækja þetta, þótt stórvirkjun yrði raun-
veruleiki.
Við megum ekki við því, framsækin
þjóð í lítt numdu landi, að óttast já-
kvæða stefnu á neinu sviði í atvinnu-
lífi okkar og munum heldur ekki gera
það. En við eigum ekki að lúta blindu
lögmáli hinnar frjálsu samkeppni, hvort
sem það er um vinnuafl eða annað, sem
þarf til þeirra hluta, sem gera skal, og
ekki ganga upp í oftrú á allsherjarmál
kína-lífs-elexírs eins og gengisskráningar
og bankapólitíkur til lausnar öllum
vanda í efnahagsmálum. Við eigum að
hafa samtryggingu milli atvinnuvega
vorra, þeirra, sem lífvænlegir eru og
okkur henta — samtryggingu, sem m. a.
skipuleggur nauðsynlega dreifingu
starfskrafta á hverjum tíma. Sú sam-
trygging er eitt af skilyrðunum til þess,
að hægt sé að vernda og efla jafnvægið
í byggð landsins.
Fyrstu stóru árgangarnir af unga fólk-
inu, sem fæddist um það leyti, sem fjölg-
un þjóðarinnar komst í núverandi horf,
eða 2%, eru að koma á vinnumarkaðinn,
og þessir stóru árgangar fara sífellt
stækkandi. Ný atvinnulífsmiðstöð myndi
ekki aðeins kalla eftir öllum vinnandi
höndum hér um slóðir, heldur líka draga
til sín fólk úr öðrum landshlutum. Þetta
gerist hvort sem fyrsta stórvirkjunin
verður fyrir norðan eða sunnan. Stór-
virkjun kynni að draga til sín fólk, einn-
ig frá atvinnuvegkunum um of. En betra
er það en að missa fólkið og starfskrafta
þess suður, vegna stórvirkjunar við
Þjórsá. Hér kemur það á móti, að aukin
orka skapar skilyrði til vinnslu sjávar-
afurða, iðnaðar og hvers kyns framfara,
og þéttbýlismiðstöðvar kalla á auknar
landbúnaðarafurðir og skapar því land-
búnaðinum vaxtarskilyrði. Við vitum
hvar á landinu bændur fá hæst verð fyr-
ir landbúnaðarafurðir. Það er í nágrenni
Reykjavíkur, Akureyrar og fleiri kaup-
staða. Baráttan fyrir vexti Iandbúnaðar-
ins mun aldrei byggjast á því, að standa
gegn framför og vexti annarra nytsam-
legra og gjaldeyrisaukandi atvinnuvega.
N,______________________________________
MORGUNROÐI NÝS DAGS
OpiS bréf til
vinar mins
ÓLAFSTRYGGVASONAR
dulspekings aé Hamraborg.
T^RUNGNIR manndóms grósku-gróðri
geislar kærleiks bjartir streyma,
blíðir eins og blær á vori
bera kveðju æðri heima.
Vormorguns vinur,
vitur og merkur,
drengur að íþróttum,
dulrænn og sterkur.
Eins og ylgeislum sólar
umvefst jörðin græn,
löngum læknar þú þjáða
með lífskrafti og bæn.
Nótt sem nýtan dag
eflir dug og dáð
með tállausri trú.
Finnur falin ráð.
þerrar trega-tár,
græðir sálræn sár.
Fram að náttlausri strönd
stefnir ævisúð sterk,
meðan hugur og hönd
drýgja drengskapar verk.
Hjarta þíns lieimur
er hreinn og tær
eins og háfjallalindin
og himins blær.
En lindirnar safnast
í líðandi straum
og mynda loks elfunnar
ægi-flaum.
Þannig er lífi þrungið og sál
þitt kærleiks göfgaða guðheims-mál.
/^ÆFU þína og giftu áttu að þakka verk-
v um þínum. Eins og mennirnir sá,
munu þeir upp skera. í kærleika hefur þú
sáð og upp skorið blessun og þökk.
Ungur varstu að árum, er þú sóttir rétt
til handa smælingjum og réttir hlut þeirra.
Enda lagðir þú þér ríkt á hjarta hugsun
Meistarans mikla frá Nazaret: Það, sem
þér gjörið einum af mínum minnstu
bræðrum, það hafið þér mér gjört. Vart
munu fegurri orð töluð hafa verið á þess-
ari jörð.
Eg hefi oft hugsað um það, hvort þrjú
löngu liðin íslenzk listaskáld, þeir snill-
ingarnir Jónas, Kristján og Þorsteinn,
hefðu getað orðað það fagurlegar á ljóð-
listarmálinu, íslenzkunni.
Það er enginn vegsauki í augum heims-
ins, að rétta hlut smælingjanna. Enda
Prentun og lestur bókar hans,
Huglækninga, er tilefni þess.
Ólaíur Tryggvason
fórstu eigi varhluta af lítilsvirðingu — og
jafnvel hatri.
Blessaður Meistarinn mikli fór eigi held-
ur varhluta af lítilsvirðingu, er hann stóð
einn uppi og yfirgefinn og enginn þorði
að kannast við hann.
En þú bliknaðir eigi, þú hræddist eigi
almenningsálitið, og þú lézt eigi lieldur
hræða þig frá takmarki þínu. Þú stendur
enn sem hetja, óbugaður á sál og líkama.
Sjálfur hlauztu þá náð frá almáttugum
og blessuðum höndum Meistarans mikla,
að öðlast fullkomna lækningu af einum
allra váveiflegasta og illvígasta sjúkdómi,
er þá hrjáði mannkynið, Hvíta dauða. Og
sjálfur gekk Hann á undan þér sem leið-
arljós, er þú fórst ramvilltur um víðáttu-
auðnir og vegleysur þingeyskra öræfa, í
blindbyl og svartasta náttmyrkri.
Og enn þá var þér veitt sú náð að fá að
líta Meistarann sjálfan og að sjá geislana
af sporum hans. Vissulega stöfuðu geislar
af sporum lians og verkum, þótt óskyggn
augu samtíðar hans sæju þá eigi. Hann
gekk á vatninu. Hann liastaði á vind og
sjó. Hann læknaði sjúka, og líkþráa hreins-
aði liann. Frá guðdómlegum krafti hans
og almættisorði fengu blindir sýn, og
dauðinn sjálfur varð að hörfa, er dánir
upp risu.
Síðan korna þessir svonefndu „vísinda“-
og „fræði“-menn, er segja, að hann hafi að-
eins verið maður, svona ósköp venjulegur
meistari og mannkynsfræðari. Honum er
skipað á sama bekk og venjulegum „vitr-
ingum“ og „Vígðum meisturum"! Hon-
um, sem er einkasonur Guðs, íklæddur
mannlegu holdi.
ALAFUR minn!
Enn þann dag í dag eimir eftir af þeirri
ómenningu og kjarkleysi, — þeim draug,
sem þú glímdir við í æsku og felldir með
frækinni, íslenzkri glímu. Fólk er til enn,
sem hrætt er við sinn minnsta bróður,
skammast sín fyrir hann, þorir eigi að
kannast við hann. Lítilsvirðingin, náköld
og bitur, kemur svo ofan á allt hitt og
smýgur inn að innstu hjartarótum.
Hafir þú mætt slíkri reynslu, hefur þú
umborið hana með þolinmæði, samboð-
inni sannkristnu fólki, sem kærleikurinn
gefur að fyrirgefa allt, umbera allt.
Svo langt hefi< ég eigi náð enn, þó að
kristinn vilji ég vera. Vísvitandi lítilsvirð-
ing, sem mér er sýnd, vekur mína víkings-
lund að vörmu spori. Gríp ég þá hjör
minn, gerðan úr stáli íslenzkrar ferskeytlu.
En eigi máttu ætla, að sverði mínu bregði
ég að óhugsuðu máli. Því fer víðs fjarri.
Ég talaði í einrúmi við Alföðurinn
milda og spurði hann í hreinskilni, hvort
það væru í raun og veru engin takmörk
fyrir því, hvað mætti sýna minnstu bræðr-
um sonar hans mikla lítilsvirðingu, án
þess að þeir mættu bera hönd fyrir höfuð
sér. Þá var sem mér gæfi sýn, og ég sæi
hann í anda mikilúðlegan, mildan og
bjartan. En áður en hann svaraði um-
kvörtun minni, datt vísa í huga mér. Og
þegar hún var fullgerð, þótti mér hann,
Alfaðirinn góði, brosa til mín og hverfa.
Vísan var þannig:
Mig ei skreytir glæsiglysið,
gull né dýru kveðjurnar,
enda fer ég æ á mis við
„æðri“-manna kveðjurnar.
Eigi veit ég, hvað Sæmundur vinur
minn, hinn fróði að Sjónarhæð, segir um
þessa siðfræði mína. Víst er um það, að
hún stingur mjög í stiif við andann í sálm-
unum hans, sem eru vægast sagt innblásn-
ir krafti guðdómlegs Anda.
Ég veit það, vinur minn, að þú triiir
mér. En ég ætla nú sanlt að sanna mál
mitt.
í „Hlín“, Halldóru Bjarnadóttur, 24. ár-
gangi 1961, blaðsíðu 140, er sálmurinn:
„Drottinn, hjálpræði mitt“, eftir Sæmund.
„Hlín“ prentaði ég nákvæmlega á sama
hátt og bókina þína. Hvernig þá? munt
þú spyrja. Þannig, að hlýjar, mjúkar hend-
ur ungrar rneyjar veittu þar aðstoð, er þær
léku um hverja örk eins og í bókinni
þinni. Ef svo væri eigi, gætu manni fatast
listatökin.
Ég hefði talið, að Sálmabók íslenzkrar
þjóðkirkju auðgaðist, ef sálmar eftir Sæ-
mund stæðu þar hlið við hlið sálmum
nafnanna, Valdimars Briem og Valdimars
V. Snævars. Ég gat þess áður, að ég mundi
sanna mál mitt. Vil ég því tilfæra hér tvö
fyrstu versin og hið síðasta úr Nýárskveðju
Sæmundar 1962:
Hann kom í heiminn og kom að líkna,
hann kom að reisa hinn fallna mann.
Hann kom að bjarga, hinn seka að sýkna,
að sækja týnda, sem enginn fann.
Að lyfta kom hann, ei lægja og troða
liið lága niður, sem enginn sér.
Hann kom að fræða og kærleik boða,
hann kom að sýna, hvað náðin er.
Að höndla Jesúm er hnossið mesta,
sem hugur mannsins um eilífð nær.
Að eiga Jesúm sem ástvin bezta
er æðsta sæla, er hjartað fær.
Mun eigi þjóðin öll eiga Sæmundi skuld
að gjalda, er hann með bæn og kristilegu
starfi hefur unnið að andlegri heill henn-
ar? Og enginn veit það beíur en þú, hve
bænin er áhrifarík og máttug, svo oft hef-
ur þú verið bænheyrður.
T?N nú skal ég, vinur minn, lofa þér að
^ heyra, hvernig vísurnar verða, er mað-
ur á að mæta blíðu, mildi og kærleiksríku,
kristilegu hugarþeli:
Ljómi sólar ljúfur skín,
laðar jarðlíf allt til sín.
Þannig hugsa ég heitt til þín,
hjartans kæra vina mín.
Nú segir Helgi, vinur minn Valtýsson,
skáld og rithöfundur, að til séu bæði góð-
ir og vondir andar. En um það get ég full-
vissað þig, að vísurnar eru af einum og
sama Anda, góðum Anda, sem eigi þolir
neitt misrétti í garð hins minnsta bróður.
Ef mannkynið allt væri sannkristið, liði
engum illa vegna fátæktar, af því að þá
mundu hinir auðugu miðla hinurn fátæku
af gnóttum sínum og gæðum öllum. Kúg-
un og þrældómur og fangabúðir þekktust
þá eigi. Styrjaldir, stærsta böl mannkyns-
ins, væru þá aldrei háðar. Réttlæti og kær-
leikur mundu þá ríkja og ráða í samskipt-
um manna um jörðina alla.
1/TNUR minn, senn er nú mínu máli
lokið. Ég bið engrar afsökunar á bréf-
inu. Það er nákvæmlega eins og mér var
því í brjóst blásið. Og mun eigi sá innblást-
vir hafa átt sín upptök hjá þeim Anda, er
vakir yfir öllu lífi og réttlæti hér á jörð?
Allar þínar lieimsóknir þakka ég þér,
hlýjuna alla, sem þú hefur sýnt öllum á
heimili mínu. Þar ertu sannur aufúsu-
gestur og kærkominn.
Þá er það önnur lieimsókn, sem ég fæ.
Gizkar þú á, hver hún er?
Þegar ég er einn og yfirgefinn, kemur
Meistarinn mikli oft til mín. Ég heyri
hann nálgast, og ég finn til nærveru hans:
Létt, sem blærinn laufi blaki,
ljúf, sem raddir svana kvaki
fögur gefst mér friðar stund;
Frelsarinn græðir hjartans und.
Segðu mér nú, vinur minn. Hvað er
þetta? Hugarburður einn eða trú? Eða
raunveruleiki?
Ung mey gerði að sárum mínum, sem
ég hafði hlotið við annir og eril daganna.
Þá mælti ég á meðan til hennar eitthvað
á þessa leið:
Ljós og yl og fögnuð flytur
friði þrungin nálægð þín.
Höndin blessuð hlýja, mjúka,
hún mun græða sárin mín.
„Trúin getur líka verið skrýtin eins og
sumt annað“, mælti unga stúlkan þá.
ÚG bið þess, að þér berist með sólvermd-
um vorblænum hjartfólgið þakklæti
mitt, — þakklæti fyrir vináttu auðsýndá
systur minni. Hún bjó í sömu sveit og þú,
þjáðist af sama sjúkdómi, sem hrjáði þig
forðum. Þú taldir eigi eftir þér sporin, er
þú vitjaðir hennar, til að líkna henni,
hugga hana og hughreysta með krafti anda
þíns og orða. Þú komst henni meira að
segja á fætur um skeið, með lífskrafti þín-
um og bæn, sem Meistarinn frá Nazaret
hefur trúað þér fyrir. Þú hefir reynzt hinn
trúi og dyggi þjónn, sem aldrei hefur
brugðizt.
Ég leyfi mér að flytja þér kveðju vina
þinna nær og fjær.
ALAFUR minn, blessaður mundu eftir
að senda vinkonu okkar, frú Gunnþór-
unni Jónasdóttur, Reykjavík, eitt eintak
af bókinni þinni, áritað með eigin hendi.
Hún kom, blessunin, í Iieimsókn til mín
á síðastliðnu hausti. Hún var þá á suður-
leið. Þú veizt, að Gunnþórunn er bæði
dulræn og skyggn, hefur miklurn krafti
yfir að ráða, og er vitur kona. Guð blessi
hana.
Þú veizt og kennir, að allir menn eru
bræður. Því kveð ég þig svo:
Guð blessi þig, ástvini þína, heimili og
ævistarf.
En við ykkur, lesendur mínir, vil ég
segja þetta:
Kynnizt Ólafi Tryggvasyni af verkum
hans. Sjáið með eigin augum heiðríkj-
una í kringum hann, birtuna, sem ílæðir
um hann. Finnið kraftinn, sem streymir
frá honum. Skoðið mannkærleika og sam-
úð hans með smælingjum, er fagurspeglar
drenglyndi hans og djörfung, kjark hans
og karlmennsku. Þetta er aðalsmerki
mannsandans, gæfa og gengi.
Ólafur Tryggvason er einn af merkustti
og sterkustu mönnum, sem ég liefi kynnzt
á vegferð minni hér í heimi.
Eins og allir vita, þá er það Kvöldvöku-
úígáfan, sem annazt hefur útgáfu „Hug-
lækninga“, og á hún allan heiður að vönd-
uðum frágangi bókarinnar, ásamt Prent-
verki Odds Björnssonar hf., Akureyri.
IFIÐ svo öll heil og blessuð, sein línur
þessar lesið.
JÓN BENEDIKTSSON, prentari.
Eimskipafélag
r
Islands h.f.
(Framhald af bls. 8)
kvæmdalegs eðlis í starfsemi
sinni.
Við, sem úti á landsbyggð-
inni búum verðum t. d. í vax-
andi mæli varir við það að vör-
ur, er Eimskip flytur fyrir oss
með skipum sínum til Reykja-
víkur, liggja þar stundum 1—2
mánuði áður en Eimskip hefur
farkost til að senda þessar vör-
ur frá sér á áfangastað. Verða
menn ýmist að flytja þessarvör-
ur með bifreiðum eða jafnvel
flugvélum og baka sér mikinn
aukakostnað þess vegna.
Fljótt á litið mundu þeir, sem
aðeins vilja skrifa i óvildartón
um Eimskip, slá því föstu, að
þetta stafi fyrst og fremst af ó-
vild ráðamanna félagsins til
landsbyggðarinnar. Hins vegar
mun mega fullyrða, að hér er
engu slíku til að dreifa. Marg-
þættir erfiðleikar við afgreiðslu
skipa félagsins í Reykjavíkur-
höfn, skortur á vinnuafli við
höfnina, takmarkaður húsakost-
ur til geymslu innfluttra vara í
Reykjavík, og síðast en ekki sízt
mun skipakostur félagsins nú of
lítill til að mæta þeirri vaxandi
flutningaþörf, er félagið þarf að
annast.
Nú nýlega hefur tekið við
stjórn félagsins ungur maður,
Óttar Möller, sem lengi hefur
starfað í þjónustu þess og er að
sjálfsögðu manna færastur um
að gera sér grein fyrir erfið-
leikum félagsins og vinna að
lausn þeirra.
Einn þáttur í þessum erfið-
leikum er að sjálfsögðu sá, að
greiða úr þeirri flækju, sem
sending vara til landsbyggðar-
innar veldur, eftir að vörur
hafa hafnað í Reykjavík. í því
sambandi þarf að sjálfsögðu
eigi að geta þess að öll slík töf
veldur bæði iðnaði og verzlun
miklum og tilfinnanlegum ó-
þægindum og aukakostnaði.
Það hefur verið minnst á það
í blaðagrein hér nýlega, hvort
eigi gæti komið til mála að gera
Akureyri að umskipunarhöfn
fyrir Norðurland. Væri óskandi
að hinn ungi framkvæmdastjóri
Eimskips vildi veita því máli
nánari athugun. Að sjálfsögðu
er léttara að slá slíkri hugmynd
fram en framkvæma hana í ein-
stökum atriðum. En orðin eru
til allra hluta fyrst og ef hug-
myndin er góð, þá ber vissulega
að athuga hana.
Sá er þetta ritar telur lausn
vandamála yfirleitt betur leys-
ast á þann hátt, að rætt sé um
vandamálin af raunsæi og skiln-
ingi fremur en með einhliða
hnútukasti og óvildarhug.
Við, sem landsbyggðina byggj-
um, trúum því og vonum, að
framkvæmdastjóri og stjórn
Eimskipafélags íslands h.f. hafi
fullan hug á að rétta hlut lands-
byggðarinnar í því máli, er hér
hefur verið bent á, og að öll
starfsemi félagsins verði ávallt
rekin þann veg að þjóðin öll
geti með stolti nefnt Eimskipa-
félag íslands h.f. „Óskabarn
þjóðarinnar". A. Þ.