Dagur - 04.07.1962, Side 8
8
4
Enn uin Jökulsá á Fjöllum
SVIPMYHDIR ÚR SÍLDINNI
HINN 17. apríl sl. komu alþing-
ismenn norðanlands og austan
saman á fund í Alþingishúsinu
í Reykjavík til þess að ræða um
virkjun Jökulsár á Fjöllum. —
Fyrir fundinum lá erindi frá
fundi Bændafélags Austfirðinga
frá 19. febrúar sl., þar sem það
er talin „afgerandi nauðsyn fyr-
ir fólk í öllum byggðum Norð-
ur- og Austurlands, að Jökulsá
á Fjöllum verði valin til næstu
stórvirkjunar þegar til hennar
kemur“, og skorað á alla þing-
mertn kjördæmanna á Norður-
og Austurlandi að vinna að því,
„að skapa órjúfandi sam-
stöðu fólksins á þessu svæði til
að standa vörð um þetta rétt-
lætismál“, m. a. með því að
koma á fulltrúafundi sveitarfé-
laga á Norður- og Austurlandi.
Einnig lá fyrir fundinum álykt-
ún bæjarstjórnar Húsavíkur-
kaupstaðar um sama efni.
. Þingmennirnir urðu sammála
um að boða til fulltrúafundar í
júní eða júlímánuði, þannig, að
til hans yrðu kvaddir allt að 5
fulltrúar frá hverri sýslu- og
bæjarfélagi á Norður- og Aust-
urlandi, en þau eru 16 talsins, 9
sýslur og 7 kaupstaðir. Til fund-
ar þessa hefur nú verið boðað á
Akureyri sunnudaginn 8. júlí.
Verða sýslunefndir og' bæjar-
stjórnir þá búnar að kjósa full-
trúa sína. Sjálfsagt mæta á
fundinum þeir 20 þingmenn,
flestir að minnsta kosti, sem
talið er að hér eigi einkum hlut
að máli, og því útlit fyrir, að
fundurinn geti orðið fjölmenn-
ur. Er þess að vænta, að slík
samkoma veki athygli, ekki að-
eins norðanlands og austan.
Auk þess, sem nefnt hefur
verið, hafa á árunum 1960-1962
verið gerðar margar fundaálykt-
anir um þetta mál, m. a. í sýsl-
KAREL PAUKERT
MÉR verður oft hugsað til hins
stórkostlega orgels Akureyrar-
kirkju, og mig langar oft til að
vera horfinn norður til að leika
á það og njóta gæða þess og
hljómfegurðar. Þess væri ósk-
andi, að sem flestir organleikar-
ar fengju tækifæri til að túlka
vei k meistaranna á slíku hljóð-
færi, borgarbúum Akureyrar til
uppbyggingar og sjálfum sér til
gleði og ánægju.
Nú vill svo vel til, að tékk-
neskur orgelsnillingur, Karel
Paukert, ætlar að halda tónleika
í Akureyrarkirkju á föstudag-
inn 6. þ. m. kl. 9. — Paukert er
einnig óbó-leikari, og leikur í
Sinfóníuhljómsveit íslands, en
orgelið er þó hans aðalhljóð-
færi. Paukert er mikill lista-
maður, gagnmúsikalskur og
mikill kunnáttumaður. Hann
mun leika orgelverk eftir tékk-
neska meistara, Mozart, César
Frank o. fl. Menn ættu ekki að
láta undir höfuð leggjast að
hlusta á slíkan snilling leika á
hið glæsilega orgel Akureyrar-
kirkju. Það verður hátíðleg*
stund og minnisstæð.
Páll ísólfsson.
um, Suður-Þingeyjarsýslu og
Eyjafjarðarsýslu, og nú í vor
birti bæjarráð Akureyrarkaup-
staðar yfirlýsingu um málið. —
Fjórðungsþing Norðlendinga
hefur látið það til sín taka, svo
og fleiri almannasamtök, að ó-
gleymdum hinum stóra fulltrúa-
fundi, sem haldinn var á Húsa-
vík sl. ár. — Á sambandsþingi
Framsóknarfélaganna í Norður-
landskjördæmi eystra hefur
Jökulsárvirkjunin verið meðal
aðalviðfangsefna og gerðar um
ýtarlegar ályktanir.
Hinn 22. maí samþykkti Al-
þingi einróma tillögu frá þing-
mönnum úr Norðurlandskjör-
dæmi eystra um, að skora á rík-
isstjórnina að „láta hraða gerð
fullnaðaráætlunar um virkjun
Jökulsár á Fjöllum og athugun
á hagnýtingu orkunnar til fram-
leiðslu á útflutningsvörum og
úrræðum til fjáröflunar í því
sambandi“.
Og um það leyti, sem þingi
lauk í vor, munu sömu þing-
menn hafa ritað ríkisstjórninni
bréf og gengið eftir framkvæmd
á þeirri ályktun Alþingis frá ‘61.
ÞAÐ er eins og aldrei geti ver-
ið gott veður á sunnudögum,
norðan nepja, svo gð menn urðu
að fara í síðbrók og úlpu til þess
að horfa á leikinn milli Akur-
eyi'inga og ísfirðinga sl. sunnu-
dag.
Akureyringar kjósa að leika
undan vindinum, framlínan er
lífleg'. Á 6. mín. skorar Stein-
grímur úr þröngri stöðu og
tveim mínútum síðar er mark-
spyrna frá Akureyrarmarkinu.
Miðvörður ísfirðinga missir
knöttinn yfir sig og Steingrím-
ur er fljótur að nota tækifærið
að bruna inn úr og skora. —
Skömmu síðar er sókn að Ak-
ureyrarmarkinu. Markvörður-
inn, Halldór Kristjánsson, fær
kné mótherjans á munninn og
liggur óvígur á vellinum, en úr
verður horn. Jón Friðriksson,
er lék bakvörð, fer í markið, en
inn kemur Siguróli. Á 37. mín.
fær Steingrímur góða sendingu
frá Kára og skallar í mark, 3:0
fyr.ir Akureyri. En Adam var
ekki lengi í Paradís. ísfirðingar
hefja sókn, fá horn, þvaga
myndast við mark Akureyringa,
knötturinn hrekkur út að víta-
teigi, þar sem miðherji Isfirð-
inga er vel staðsettur og spyrn-
ir í mark.
Strax eftir leikhlé sækja Ak-
ureyringar fast og Kári fær
sending'u frá Skúla og skorar
viðstöðulaust, mjög fallegt
mark, og er 10 mín. eru eftir af
leik, er Steingrímur enn að
verki, veður í gegn og skorar.
ísfirðingarriir eru margir
mjög fljótir að hlaupa og liprir,
þeir réðu meira yfir miðju vall-
arins, einkum Björn Helgason,
sem varcj til þess að aðeins léku
4 í framlínu. Ég held, að Björn
ætti að leika framvörð, en ekki
innherja, en skotmenn skortir
Enn hefur ekkert komið fram
opinberlega frá stjórnarvöldun-
um um, að framkvæmd álykt-
unar Alþingis sé lokið. Hins
vegar hefur verkfræðingur einn
í þjónustu raforkumálaskrif-
stofunnar birt á ráðstefnu ein-
hverra útlendra verkfræðinga
ýmsar niðurstöður áætlana,
gerðar á þessu sviði. Nú segja
sunnanblöð, að í Þjórsárdal sé
100 manna tjaldborg, skipuð
rannsóknarliði, er þar vinni, en
ekkert heyrist um Jökulsá. Sér-
fræðingar syðra keppast við að
gera áætlanir um mjög vaxandi
almenna raforkuþörf á Suður-
landi og þá gert ráð fyrir, að
fólksstraumur til Stór-Reykja-
víkur haldi áfram eins og verið
hefur. Mikill hluti Þjórsárvirkj-
unar er þá sagður vera til þess
að fullnægja almennri orkuþörf
syðra. — Um hugsanlegan raf-
magnsskort á Norður- og Aust-
urlandi tala þeir lítið sem ekki.
En fundur sá, sem 20 alþing-
ismenn og 16 sýslur og kaup-
staðir standa að, talar væntart-
lega svo skýrt, að þeir höfuð-
borgarmenn heyri. □
þá alveg. Markvörður þeirra
gerði margt laglega þegar á
leikinn leið, en virtist vera tölu-
vert taugaóstyrkur fyrst. Úthald
hafa þeir ekki og gáfust hrein-
lega upp síðustu 15 mín. eftir
að vinstri framvörður þeirra
varð að yfirgefa völlinn, haltur.
Akureyrarliðið lék að mörgu
leyti vel, einkum framlínan,
notuðu þó kantana of lítið. Hlið-
arframverðir fylgdu þó sókn-
inni ekki nóg eftir. Magnús er
ekki á sínum stað sem miðvörð-
ur. Sigurður er í framför, er
eldfljótur. Það er varla hægt að
segja að hann sé dottinn þegar
hann er sprottinn á fætur aftur.
Ævar lék sinn fyrsta leik með
meisturunum. Hann hélt sig of
innarlega á vellinum og krækti
of mikið fyrir knöttinn þegar
hann spyrnti fyrir og lenti
knötturinn því oftast fyrir aft-
an sóknina.
Mér er sagt, að Steingrímur
hafi verið reiður út af því, er ég
sagði um hann eftir Valsleik-
inn (hann hefði verið daufur).
En af hverju sem það var, sýndi
hann í þessum leik mun meiri
snerpu og dugnað en oft áður
og ef þessi leikur ætti að fá ein-
hver einkunnarorð, mundi ég
kalla hánn Steingrímsleik.
Mér er sagt, að dómarinn hafi
heitið Einar Hjartarson, en
hvorki hann né liðin var kynnt
í hátalara vallarins, þó að sí-
fellt væri verið að grenja ásölu-
börn að „koma hérna niður“.
En hvert niður? Kannske niður
í jörðina!!
Er markvörðurinn slasaðist,
þurfti að sækja sjúkrabörur í
lögreglubílinn, sem stóð uppi í
Brekkugötu. Ekkért teppi fyrir-
fannst til að breiða yfir hinn
slasaða og enginn læknir sást.
Er þetta löglegt? Essbé.
Akureyringar unnu ísfirðinga 5:1
Frá löndun í Krossanesi
Ólafur Magnússon landar fyrsta afla sínum í sumar í Krossanesi,
nær fulll'ermi. (Ljósm., E. D.)
Hreiðar Valtýsson og Hörður Bjömsson, skipstjóri á Ólafi Magnús-
syni, ræðast við um aflahorfur. (Ljósm. E. D.)
Súlan kom nær samtímis í Krossanes með 1200. mál. (Ljósm. E. D.)