Dagur - 14.07.1962, Side 8
8 H
\
Ræktunin dregst mjög saman í S.-Þing.
Þessi glæsilega 38 farþega bifreið kemur tvisvar í viku frá Raufar-
höfn til Akureyrar og hefui afgreiðslu a Ferðaskrifstofunni og ann-
ars staðar hjá kaupfélögunum. Eigandi er Kaupfélag Norður-Þing-
eyinga, ökumaður Gunnlaugur Indriðason. Hinn nýi bíll er, auk
ferðanna til Akureyrar, í förum milli Kópaskers og Raufarhafnar
í sambandi við flugferðirnar. (Ljósm. E. D.)
Skafti Benediktsson, ráðun.
gaf ennfremuv athyglisverðar
upplýsingar um kvikfjárrækt-
ina.
Blaðið talaði við ráðunautinn
um stund, er hann var hér á
ferðinni í sl. viku og fékk hjá
honum veigamestu upplýsing-
arnar, sem fram komu í skýrslu
hans frá Búnaðarsambands-
fundinum. En þær bera með sér
miklu minni framkvæmdir en
áður.
Hve miklar nýræktir gjörðu
bændur árið sem leið?
Nýræktir voru 173.5 hektarar
árið 1961, en voru árið áður 240
ha. Hey- og áburðargeymslur
voru samtals 10.298 m:!, en voru
13.487 m:i árið 1960. Súgþurrk-
unarkerfi voru sett í hlöður,
sem voru með 1675 m2 gólfflöt,
en árið áður var sambærileg tala
2548 m'-'. Girðingar voru 24 km.,
en 42 km. árið áður.
Vélgrafnir skurðir voru 60.301
m3, en voru 161.115 m3 árið
1960. Láta mun nærri, miðað við
sama stofnkostnað, að þessar
framkvæmdir séu einum þriðja
minni en árið áður. Lögbýli í S.-
Þingeyjarsýslu eru 353 talsins.
I Héraðssamkoma j
BÚNAÐARSAMBAND Eyja-
fjarðar, Bændafélag Eyfirðinga
og Ungmennasamband Eyja-
fjarðar efna til héraðssamkomu
eins og undanfarin ár. Verður
samkoman að Laugaborg í
Hrafnagilshreppi sunnudaginn
29. þ. m. og hefst kl. 2 e. h. með
guðsþjónustu. Að henni lokinni
fara fram ræðuhöld, söngur,
keppni í knattspyrnu, starfs-
íþróttum og fleiru.
Að lokum verður dansað.
Nánari tilkynning um dagskrá
verður birt síðar.
□
Höfðingjar í lieimsókn
UTANRÍKISRÁÐHERRA Nor-
egs, Halvard Lange, sem nú er
í opinberri heimsókn hér á
landi í boði ríkisstjórnarinnar,
mun koma hingað í dag ásamt
forseta íslands, herra Ásgeir
Ásgeirssyni. Munu þeir ferðast
eitthvað um hér norðanlands,
en halda suður á bóginn á
mánudag, flugleiðis, og verður
þeirri ferð hagað á þann veg,
að ráðherrann fái sem gleggsta
yfirsýn yfir miðhálendi lands-
ins og fleiri landshluta, ef veð-
ur leyfir.
Nautgriparæktin.
Helztu niðurstöður í naut-
griparæktinni voru þessar, að
því er Skapti Benediktsson,
ráðunautur, upplýsti: Meðalnyt
fullmjólka kúa var á síðasta ári
3485 kg. með 3.96% fitu, eða um
13801 fitueining á kú, sem verð-
ur að teljast gott. Kúm fjölgaði
um 20% og eru 1220 kýr á sam-
bandssvæðinu, sem skýrslur ná
yfir.
Aðspurður um sérstaklega góð
kúakyn, sagði ráðunauturinn,
að samkvæmt skýrslunum væru
afurðahæstu hóparnir undan
(Framhald á bls. 5.)
Sauðfjárræktarfélögin.
Um sauðfjárræktarfél. sagði
Skapti ráðunautur m. a. þetta:
Þeir bændur, sem skiluðu
skýrslum í sauðfjárl-æktarfélög-
unum, voru samtals 122, en
skýrslurnar voru yfir nær 3500
ær.
Hæsta kjötprósentu hafa:
Austri í Mývatnssveit, 41.68%,
Vestur-Bárðdælir, 40.68%, Háls-
hreppur, 40.25%.
Mest er frjósemin í Austra
eða 85.3%, næst hjá Mývetning-
um (annað sauðfjárræktarfélag)
81.7%, en Bárðdælir vestan ár
voru þriðju í röðinni með78.3%.
í Austra gáfu tvílemburnar
34.79 kg. af kjöti, en ærnar til
jafnaðar 31,56 kg. — í sauðfjár-
ræktarfélögunum gáfu tvílemb-
urnar frá 9—-13—14 kg. meira
kjöt en einlembur. Austri hefur
sennilega orðið afurðahæsta
sauðfjárræktarfélag landsins í
fyrra. Fjögur lægstu félögin hjá
okkur höfðu um 9 kg. minna
kjöt eftir ána en Austri.
Oft berst mikill afli á land í Hrísey og er þá nóg að gera fyrir unga og gamla.
Bilið milli stærri og minni búa stækkar mikið
Rætl við tvo skagfirzka bændur
BLAÐIÐ ræddi um stund við
Jón bónda Jónsson á Hofi á
Höfðaströnd og spurði frétta úr
Jón á Hofi.
nágrenni hans. Hann sagði m.a.:
Heyskapur byrjaði almennt
um viku síðar en í meðalári. og
stafaði það af því, hve seint
sprettur. Og þurl'kar hafa verið
heldur lélegir. Lítið hey er því
komið í hlöður ennþá, enda ekki
langt síðan byrjað var að slá.
Spretta er nú loksins að verða
sæmileg, þar sem jörð er ó-
skemmd, en víða hefur kalið,
sérstaklega út með firðingum
beggja vegna. Eins og áður þeg-
ar tún skemmast af kali, er það
hallalitla landið, sem harðast
verður úti, en töluvert af nýrri
túnum er á flatlendi, sem þurrk-
að hefur verið til ræktunar.
Fast að 20 trillum sækja sjó-
inn frá Hofsósi. Aflinn hefur
verið fremur tregur í vor og
sumar.
Byggingaframkvæmdir í sveit-
unum eru sáralitlar, og er ekki
um nýbyggingar að ræða, svo
að ég muni. Margt er þó ógert í
þessu efni, en bíður þess tíma,
að hagur bænda verði betri en
hann er nú.
Um ræktunarframkvæmdir er
það að segja, að þær munu litl-
ar í ár, en hafa þó ekki lagzt
Gísli í Eyhildarholti.
niður. Ræktunarsambandið læt-
ur vinna að skurðgreftri á þann
hátt, að annað sumarið er skurð-
grafan að verki austan Vatna,
en hitt árið vestan þeirra. Nú er
unnið vestan Vatna.
Rúningur er með seinna móti
vegna kuldaskemmdanna. Þó
var víða búið að taka upp af fé,
sem heima við var. Annars er
smalað til rúnings um þessa
helgi á vissum svæðum, en ann-
ars staðar verður það gert um
næstu helgi.
Gísli Magnússon, bóndi í Ey-
hildarholti, sem blaðið hitti
líka um helgina, segir, að
einnig í sínu nágrenni hafi hey-
skapur byrjað venju fremur
seint að þessu sinni. Á Sauðár-
króki hefur verið reitingsafli í
sumar og tvö hraðfrystihúsin
hafa verið starfrækt látlaust.
(Framhald á bls. 7.)
keypt flatningsvél, sem vinnur
fljótt og vel.
íbúatala eyjarinnar í desem-
ber sl. var 282, en nú er fólki að
fjölga þar, og eru a. m. k. tvær
fjölskyldur að flytja til eyjar-
innar.
í fyrra var saltað 6 þús. tunn-
ur af síld í Hrísey. Þar er fiski-
mjölsverksmiðja, sem getur
unnið úr feitum fiski ca. 200
mál á sólarhring.
AÐALFUNDUR Búnaðarsam-
bands Suður-Þingeyinga varný-
lega haldinn og flutti Skapti
Benediktsson, ráðunautur í
Garði, greinargott erindi um
ræktunarframkvæmdir í sýsl-
unni, byggingaframkvæmdir, og
Meðalstærð túna á lögbýlum
sambandssvæðisins var 10.76 ha.
Helmingur býlanna var með
minni túnastærð en 10 ha. Með
sömu þróun í túnauka og varð
sl. ár, tekur það 13 ár að rækta
þá 558 ha., sem minni túnin
vantar til að ná 10 ha. túnstærð-
inni. Af þessum tölum er ljóst,
að það er fullkomið áhyggju-
efni, hve hægt miðar í þessu
efni. Bilið milli þeirra býla, sem
hafa yfir 10 ha. tún og hinna,
sem hafa minni túnstærð, eykst
ört.
í HRÍSEY fer bátaútgerð mjög
vaxandi. Nú alveg nýlega hafa
verið keyptir þangað tveir þil-
farsbátar frá Skagaströnd, 10
og 11 rúmlestir á stærð, og má
vera að einn bátur enn verði
keyptur á þessu ári. Auk þess
leigja Hríseyingar 10 tonna bát
frá Flatey. í Slippstöðinni á Ak-
ureyri er verið að byrja á 20
rúmlesta bát fyrir Hríseyinga.
Netaveiði var fremur rýr í
vor, eins og víðar, og hefur
mest aflazt á handfæri, en tveir
bátar reru með línu. Seint í maí
var búið að leggja þar á land
nálega 820 tonn af fiski, þar af
ca. 300 tonn af Snæfelli, en
Hríseyjarbátar lögðu í vor
nokkuð af fiski í land á Húsa-
vík og Ólafsfirði.
í fyrra var frystihúsið stækk-
að þannig, að bætt var við fisk-
móttöku plássi, og í vor var