Dagur - 14.11.1962, Blaðsíða 2

Dagur - 14.11.1962, Blaðsíða 2
2 Lös (Framhald af bls. 1) Guðmundsson og Ásgeir Odds- son.' Um kvöldið var guðsþjónusta flutt í Akureyrarkirkju og var þar fjölmenni. Sungnir voru sálmar þjóðskáldsins séra Matt- híasar Jochumssonar, en þenn- an dag var afmælisdagur hans. Biskupinn prédikaði. í þessari ferð flutti biskup ræðu í Menntaskólanum og á mánudagskvöldið fór hann út að Möðruvöllum í Hörgárdal og flutti ræðu á kirkjukvöldi. Koma biskups þótti góð. Þættir úr sögu kirkjunnar í RÆÐU ÞEIRRI, sem séra Sig urður Stefánsson vígslubiskup flutti í Lögmannshlíðarkrkju í messulok 11. nóv., er 100 ára afmælis kirkjunnar var minnzt, rakti hann sögu kirkjunnar. Nokkrar kirkjur í prófasts- .dæminu eru aldnar orðnar. Bakkakirkja var byggð 1843, Munkaþverárkirkja 1844, Möðruvallakirkja í Eyjafirði 1847, Hólakirkja 1853, Bægisár- kirkja 1858, Vallakirkja og Lög- mannshlíðarkirkja um 1960. Glæsibæjarkirkja var byggð um 1865 og Möðruvallakirkja, sú er nú stendur, um sama leyti. Lögmannshlíð hét áður Hlíð. Kirkja hefur sennilega verið þar síðan skömmu eftir kristni- töku. Bændur héldu staðinn og varð hann aldrei eiginlegt prestssetur. Getið er um einn prest, sem bjó í Lögmannshlíð, bróðir Þorgeir, skipaður þang- að eftir bruna Möðruvallaklaust urs 1316 („En reglubræður voru úti í veröldu, sem aðrir veraldarprestar", og risu mála- ferli út af). Staðurinn var oft setinn af bændahöfðingjum, og fylgdu honum þá fleiri jarðir í nágrenninu, og kallaðist þá Lög mannshlíðartorfa. Lögmanns- hlíð fylgdi sú kvöð, að sjá um kirkjuna, byggingu hennar og búnað. Þorsteinn á Skipalóni eignaðist Lögmannshlíðartorfu fyrir rúmlega 100 árum. Henni tilheyrði Kollugerði, Rangár- vellir, Baþjlþgerði, Ilesjuvellir og Hlíðarendi. Þá var torfkirkja í Lögmannshlíð „í laklegu standi“. Þorsteinn var, svo sem kunn- ugt er, hinn mesti framkvæmda maður. Áður hafði hann byggt Bakkakirkju, er hann átti einn- ig, og gerði það stórmannlega. Hann lét byggja Lögmannshlíð- arkirkju. Yfirsmiður var Jó- hann Einarsson í Syðri-Haga á Árskógsströnd, orðlagður skipa- og húsasmiður. Með honum var meðal annarra smiða, Jón Mýr- dal skáld, sem var snikkari. Nýja lcirkjan kostaði 1.157 ríkisdali og 11 skildinga, og var vígð síðla árs 1860 af séra Svein birni Hallgrímssyni í Glæsibæ, en út var hún tekin á höfuðdag 1862. Árið 1888 eignaðist kirkj- an orgel, sem kostaði rd. 250.01. Var með því fagnað nýjum presti, séra Matthíasi. En þá kom fleira til. Skáldið sá ekki á blöðin og varð að setja nýjan glugga, og kirkjan þurfti að fá . ..............................................imminmi iiinif iiiiiiii loft fyrir hljóðfærið og söngfólk ið, og þá þurfti að setja hvelf- ingu. Síðar kom ofn. Mjög var oft og lengi um rætt að flytja kirkjuna eða leggja hana niður. En hún stendur ennþá, fullnægir vel hlutverki sínu enn í dag og yfir henni hvílir nokkur helgi hins aldna. Lögmannshlíðarkirkja var byggð á traustum grunni, og smíðin vönduð. Árið 1886 átti gamall maður leið um Kræklingahlíð, skáldið Bólu-Hjálmar. Hann segir frá þeirri för: „Hafði ég mér til skemmtunar að horfa upp í Hlíðina gomlu, og sýndist mér hún hafá' tekið ærin stakka- skipti síðan fyrrum, að ég við kinntist. Sá ég alls staðar blanka á tvö þrjú þil, sem fyrr um voru ei utan lágar og ljótar kofadyr". Þá var tímaskeið timbúrhúsanna hafið hér á landi og kirkjurnar voru þau húsin, sem mest þótti um vert, að byggð væru úr timbri í stað torfs^ Skömmu áður var þó svo mikið timburhungur hér um slóðir, að Iík voru grafin án kistú, einmltt í þessu byggðar- lagi. Eins og fyrr segir vígði séra Sveinbjörn Hallgrímsson Lög- mannshlíðarkirkju 1860. Hann var stofnandi Þjóðólfs, fyrsta blaðs á íslandi. Séra Guðjón Hálfdánarson, bróðir séra Iielga lektors og sálmaskálds, þjónaði 1863—1868. Séra Jóri Jakobsson þjónaði 1868—1873. Árni Jóhannesson, sem jafnframt var síðasti Glæsi bæjarprestur dó 1880. Lengst þjónuðu þeir, séra Geir og séra Friðrik Rafnar, eða 27 ár hvor þeirra. Séra Birgir Snæbjörnsson og séra Pétur Sigurgeirsson annast nú prestsþjónustu í Lögmanns- Frá Bindindisféiagi ökumanna hiíð. □ Á FUNDUM B. F. Ö. hér í bæ liafa umferðarmálin verið á dagskrá, meðal annarra. Hér virðast árekstrar og slys í umferð tíðari en fyrr, þ. e. á þessu ári en þeim næstliðnu, og er meira en leitt til að vita. Bíl- stjórar Akureyrar fá þó gott orð, fyrir tillitssemi í umfetð, svona flestir. En orsakir slysa og árekstra eru margs konar, og full ástæða til að gera sér grein fyrir þeim, og leitast við að ráða bót á því, - NY BARNABOK (Framhald af bls. 8.) bækur sínar um Salómon svarta. í þessari bók er sagt frá drengnum Garðari, sem eignast folaldið Glóblesa og baráttu drengsins fyrir því. Drengurinn vildi öllu fórna fyrir folaldið sitt og einn af vinum hans studdi hann drengilega. Hann hætti að kaupa sælgæti fyrir aurana sína til þess að geta var- ið þeim handa Glóblesa. Hann eignast folaldið á ævintýralegan liátt og margið erfiðleikar urðu á leið hans. Hér verður ekki rakið efni bókarinnar, svo að hver og einn geti notið hennar við fyrsta lestur. En þetta er skemmtieg bók og hún flytur hollan boðskap. Sambandið við dýrin er tungumál, sem börn skylja, hvort sem þau eru alin upp í sveit eða kaupstað. Þetta mun vera fyrsta bókin í nýjum flokki um þetta efni, og er byrj unin góð. Bókin er smekklega útgefin og prýdd myndum eftir Halldór Pétursson. Útgefandi er Bóka- forlag Odds Björnssonar. Eiríkuf Sigurðsson. in 79 aí stcðinni (Framhald af 1. síðu.) slær það öll fyrri met í aðsókn kvikmynda hér á landi. Guðlaugur Rosenkranz gerði kvikmyndahandritið. Hann og Friðfinnur Ólafsson skýrðu fréttamönnum frá ýmsum þátt- um í gerð hinnar nýju kvik- myndar, áður en hún var frum- sýnd hér á Akureyri. I þeim upplýsingum kom m. a. fram, að þótt ýmsum þætti nokkuð djarflega siglt í þessu efni, er sýnt að rnyndin borgar sig og opnast þar með möguleiki til framhalds á gerð íslenzkra kvik mynda. ' En í því efni er af miklu að taka í bókmenntum okkar, bæði eldri og yngri. Til gamans má geta þess um bók- ina, 79 af stöðinni, að hún er nú metsölubók í Ungverjalandi. Höfundurinn samdi hana hér.á Akureyri og varð þá hvað eftir annað dægravilltur í hinum erf- iðu fæðingarhríðum sögunnar. Það er gaman að sjá hina íslenzku leikara á tjaldinu og góð nýbreytni, hvort sem mönn um líkar kvikmyndin að öllu leyti vel eða ekki, og þeir skila sínum hlut með ágætum, Nokk- uð hefur verið fundið að gróf- um atriðum í þessari kvik- mynd. Um þau gildir hið sama í kvikmyndum og sögum, að flest ir munu vera gæddir nægilegu ímyndunarafli til að geta sér til um hið nánasta sambands karls og konu þegar atvikin hafa til þess leitt. Fólki er ýTnislegt ann að þverara um geð en að beita nokkrum skáldskaparhæfileika þegar komið er að innsta tjaldi feimnismálanna. Það er hinn mesti misskilningur, að sögur eða kvikmyndir eigi að svipta því tjaldi frá að 'fullu, þegar ekki er um beina „starfs- fræðslu11 að ræða. sem að er, eftir föngum. Umferðamálanefnd félagsins hefur tekið saman og sent Um- ferðanefnd Akureyrar meðfylgj andi tillögur: 1. Sett verði upp stöðvunar- skyldumerki við eftirtaldar göt- ur: Á horni Brekkugötu og Oddeyrargötu, beggja megin. Á öllum götum sem liggja að að- albrautinni frá Glerárbrú norð- ur úr bænum og götum þeim, sem liggja að Glerárgötu frá Glerárbrú að Geislagötu, svo og að götum þeim, sem liggja að Geislagötu og Skipagötu. Einn- ig á horni Kaupvangsstrætis og Hafnarstrætis, beggja megin. Sett verði upp stöðvunarskyldu- merki hjá Búnaðarbankanum að Geislagotu. (En þar er ekk- ert merki). 2. Aðalgöturétturinn verði framlengdur frá horn'i Brekku- götu og Helga-magra-strætis niður hjá Þórshamri að GlðT- árgötu á mótum Tryggvagötu. (En þar verði stöðvunarskyldu- merki sem fyrr segir). 3. Bannaðar verði bifreiða- stöður í Brekkugötu frá Ráð- hústorgi að Oddeyrargötu. 4. Sett verði biðskylda á syðra horni Aðalstrætis og Hafn arstrætis, þannig, að Hafnar- stræti hafi aðalgöturétt fyrir Að alstræti. 5. Komið verði upp aðalgötu- merkjum á aðalgötum, þannig, að ökumenn viti ávallt hvort þeir séu staddir á aðalbraut, einnig að komið verði upp merkjum sem gefa til kynna er aðalbraut endar. (Hvorugt þess (Framhald á bls. 5.) - Rafmagn á 20 bæi (Framhalr af blaðsíðu 1). um verið tregir til að baða og komu þeir svo máli sínu á Bún- aðarþingi, að það samþykkti að veita undanþágu frá böðun sauð fjár annað hvert ár. Á þetta féllst dr. Idalldór Pálsson, illu heilli. . Börn- eru.fleiri i skóla hér en áður. Fólki fækkaði nokkuð í hreppnum 1960, en ekki á þessu ári. Byggð var brú á Hofsá í Vest- urdal, mikið mannvirki og nauð synlegt. Verið er að leggja rafmagn á 20 bæi í Fremri-byggð og Tungu sveit. Standa vonir til að það verði komið til heimilisnota fyr- ir jól. Rætt hefur verið um nauð syn þess heimafyrir að virkja Reykjafoss í Svartá. Þar er rennsli tryggt. Hrossamarkaður var í sumar. Seld voru um 20 tamin hross og flutt út. Verð var 5.000—8.000 kn, hvert. Allt voru þetta hross á bezta aldri. Vaxtaokrið liggur þungt á framleiðslunni og er ein af mörg um misheppnuðum aðgerðum núverandi stjórnar — ein sú allra versta. Þótt bent sé á, að með þessu fái sparifjáreigendur bættan skaða „óðaverðbólgunn- ar“, er það hrein fjarstæða, og er eins og að pissa í skó sinn. □ Samkomuhús endur- byggt í Svarfaðardal Svarfaðardal, 11. nóv. Síðastl. viku hefur verið bezta veður hér, frostlaust dag hvern og oft- ast logn. í gær og fyrradag fór hitinn upp í 10 stig. Snjóinn, sem kom hér fyrir og eftir vet- urnætur hefur tekið allmikið og jörð er enn marþýð að kalla. Heyskapur á liðnu sumri náði vart meðallagi og mun búpen- ingi eitthvað hafa fækkað, eink- um sauðfé. Kartöfluuppskera var víðast mjög lítil, enda gjörféll kart- öflugras á mörgum bæjum fyrir miðjan ágúst. í sumar var þinghúsið að Grund, sem er aðal samkomu- staður sveitarinnar, og orðið 50 ára, endurbyggt að nokkru. Að- al samkomusalurinn stækkaður um fullan þriðjung. Gerðir nýir snyrtiklefar, húsið málað innan og sett í það borð og stólar. Hefur batnað þar að stórum mun aðstaða til sameiginlegs fé- lagslífs. í gærkvöldi hélt Framsóknar- félagið hina venjulegu árshátíð sína að Höfða. Formaður félags- ins, Björn Jónsson, setti hófið með ræðu. Eðvarð Sigurgeirs- son ljósmyndari á Akureyri sýndi kvikmyndir, m. a. frá Oskjugosinu í fyrra. Þórir Jóns- son skólastjóri flutti erindi og að lokum var stiginn dans. Þótti fagnaður þessi takast mjög vel. Sást þar ekki vín á nokkrum manni. □ LAUGARBORG Dansleikur laugardaginn 17. þ. m. kl. 9.30 e. h. Hljómsveit Pálma Stefánssonar. Sætaferðir. U.M.F. Framtíð og kvenfélagið Iðunn. SPILAKLÚBRUR Skógrækarfélags Tjarnar- gerðis og bílstjórafélag- anna í bænum. ’Naísta spilakvöld okkar verður- í Alþvðuhúsinu • sunnudaginn 18. nóvem- ber kl. 8.30 e. h. Mætið stundvíslega. Stjórnin. SPILAKLÚBBUR LÉTTIS: Næsta spilakvöld verður n. k. föstudag, 16. þ. m., kl. 8.30 e. lt. í Alþýðu- húsinu. Mætíð stundvíslega. Skemmtinefndin. ALLIR-EITT KLÚBBURINN Munið skemmtikvöldið laugardaginn 17. þ. m. kl. 9 e. h. í Alþýðuhús- inu. — Þeir klúbbfélagar, sem ekki ætla að sækja skemmtunina láti stjórn- ina vita í tíma. Mætið stundvíslega. Stjómin.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.