Dagur - 14.11.1962, Page 8
8
Nýjar bækur frá Bókaforlaginu
Frystiliúsbyggingin á Dalvík.
(Ljósmynd: P. J.) I
NtTT FRYSTIHÚS Á DALVIK|
Vimislugeta 3-4 tn. fiskjar á klst. Geymslurými fyrir 350 tn. fiskflaka j
Dalvík, 8. nóv. Um síðustu mán
aðamót tók til starfa nýtt frysti
hús hjá Útibúi KEA á Dalvík.
Húsið er af meðalstærð og af-
köst eiga að geta verið 3—4
tonn af hráefni á klukkustund,
miðað við að 60—70 manns
vinni í húsinu. Að búnaði má
telja eina flökunarvél og tvær
roðdráttarvélar. Frystitæki eru
öll innilokuð í einangruðum
skápum. Færibönd og vinnu-
borð eru úr aluminíum. Frysti-
geymsla er fyrir 300—350 tonn.
Þá er ísvél í húsinu og framleið
ir hún ca. 7 tonn af skelís á
sólarhring. Sjálfvirkur útbúnað
ur er á ísvél og frystigeymslu.
Byggingameistari var Jón
Sigurðsson, Dalvík. VélsmiðjarP
Oddi á Akureyri annaðist nið-
ursetningu á frystikerfi og öll-
um vinnsluútbúnaði. Raflagnir
annaðist Helgi Indriðason, múr
húðun Ari Guðlaugsson og
málningu Friðsteinn Bergsson,
allt Dalvíkingar.
í frystihúsinu vinna núna 40
manns. Fjórir þilfarsbátar og
nokkrar trillur leggja þar upp :
afla sinn allan og tveir þilfars- \
bátar að auki hluta af afla sín- \
um. j
Frystihússtjóri er Tryggvi ;
Jónsson. j
Hið nýja frystihús á Dalvík j
er sambyggt eldra frystihúsi á j
staðnum. í eldri hlutanum er :
sláturhús, kjötfrystigeymsla, :
matvælageymslur og þar verður j
einnig einhver fiskgeymsla. En j
allt er við kemur fiskverkun og ;
fiskmóttöku er í hinu nýja hús- j
næði.
Áður þurfti að stöðva fisk- j
móttöku í sláturtíð og kom það j
sér mjög illa,. ekki sízt vegna j
vaxandi útgerðar.
Nýja frystihúsið mun hafa a. j
m. k. helmingi meiri afkasta- j
getu en hið eldra, og með til- j
komu þess lítur út fyrir ört j
vaxandi útgerð og verður vikið
að því síðar í fréttum. □
Myndirnar úr nýja frystihús-
inu tók Pálmi Jóhannsson á Dal
vík við opnun þess.
BLAÐINU hafa borist 5 bækur
frá Bókaforlagi Odds Björnsson
ar á Akureyri.
Strákar og heljarmenni er
fjórða bókin eftir Gest Hann-
son og mun verða vel þegin af
drengjum, eins og fyrri „stráka“
-bækurnar. Teikningar eru í
bókinni. Hún kostar 85 krónur
í lausasölu, og hefur að geyma
8 frásagnir af þeim Gesti og
Gáka.
Hugsað heim er ljóðabók eft-
ir Ingibjörgu Sigurðardóttur,
sem áður hefur skrifað nokkrar
skáldsögur. í þessari fyrstu
ljóðabók Ingibjargar eru 58
ljóð. Verð bókarinnar er 85
krónur.
Heimasætan á Stóra-Felli er
enn ein skáldsaga Ingibjargar
Sigurðardóttur, en hún er t. d.
lesendum „Heima er bezt“
mjög kunn. Bókin kostar kr.
95.00.
Örlagastundin er ný, löng
skáldsaga eftir Hafstein Sigur-
bjarnarson. Aðalvettvangur
sögunnar er höfuðstaður Norð-
urlands. Hafsteinn hefur áður
skrifað bækurnar „Kjördóttir-
in á Bjarnarlæk“ og „Draumur-
inn“, sem mörgum þótti góð
dægradvöl að lesa.
Enginn ræður sínum nætur-
stað. Svo heita endurminningar
Péturs Sigfússonar frá Halldórs
stöðum í Reykjadal, sem út eru
komnar í 250 blaðsíðna bók.
Pétur var ritfær í bezta lagi,
stundaði mjög fjölbreytt störf
um dagana og kann frá mörgu
að segja. í lausasölu kostar bók-
in 175 krónur. Höfundurinn er
nýlátinn.
Eflaust verður tækifæri til
að geta einstakra bóka nánar
síðar hér í blaðinu. □
Ný bsrnabók
MARGT af beztu barnabókum
lýsa sambandi barnanna við
dýrin. f samvistum við þau
glæðast beztu eiginleikar barns
sálarinnar. Þjónustulundin öi'f-
ast og samúð bai-nsins með dýr
unum eykst.
Garðar og Glóblesi nefnist ný
unglingabók eftir Hjört Gísla-
son, en hann er kunnur fyrir
(Framhald á blaðsíðu 2).
Kjörbúðin Kjörver við Glerárg.
Á LAUGARDAGINN var opn-
uð ný og myndarleg kjöx-búð í
húsi Sjálfstæðismanna í Glerár
götu 7 á Akui-eyi-i. Var fi-étta-
mönnum og ýmsurn öðrum borg
urum bæjai-ins boðið í kjörbúð-
ina síðdegis á laugardaginn til
kynningar.
Kjöi-búðin, sem heitir Kjör-
ver, er eign hlutafélagsins Norð
urvers. Gólfflötur er 200 fei-m,
frystiklefar 3, kæliklefar 3,séi--
stakur kælir fyrir grænmeti og
ávexti auk kæliborða í búðinni
sjálfi-i. í kjallai-a fer kjötvinnsla
fram.
Kjöx-ver hefur á boðstólum
allar venjulegar matvörur,- kjöt,
fisk, mjólk og brauð. Ennfrem-
ur hi-einlætix-vörui-.
Fx-amkvæmdastjóri Nox-ðui’-
vei-s, sem einnig rekur Kjöt og
fisk, hér í bæ, er Baldur Ágústs
son og er hann einnig verzlunar
stjóri Kjöi-vei-s.
Akureyringar eru lang lengst
komnir hér á landi í notkun
kjöi-búða og mun Kjöi-ver
níunda kjöi-búðin á Akui-eyi-i.
Kjöx-ver er myndai-leg, björt,
i'úm og vel búin verzlun, sem
ætti að geta veitt góða þjónustu,
svo sem forsvarsmenn ætla
henni að gex-a.
Akureyringar geta yfii-leitt
fagnað góðum verzlunum og
heiðarlegri vei-zlunarstétt, og
er slíkt mjög mikils virði.
Akureyringar geta í flestum
greinum verzlunar valið á
milli samvinnuverzlana og kaup
mannaverzlana, en án frjáls
vals í þessu efni er ekki um
fullt verzlunarfrelsi að ræða.
Hverri nýrri og góðri verzlun
ber að fagna, sem annarri
bættri þjónustu, sem boi-gai--
arnir verða aðnjótandi. □
Séð yfir hluta nýju verzlunarinnar Kjörvers (Ljósxn.: G.P.K.)
Baldur Ágústsson verzlunarstjóri og Sigurður Sigurðsson,
sem síðar tekur að sér veitingareksturinn. (Ljósm.: G. P. K.)