Dagur - 08.12.1962, Blaðsíða 1

Dagur - 08.12.1962, Blaðsíða 1
Málgacn I'ramsóknarmanna RÍtstjóri: Eruncur Davíðsson SKRIFSTOFA í H Al NARSTR.i.TI 90 SÍMI 1166. Sr.TNINGU OC PRENTUN ANNAST PRI.NTVERK OdUS Björnssonar h.f., Akureyri Dagur XLV. árg. — Akureyri, laugardaginn 8. desember 1962 — 64. tbl Auclýsingastjóri Jón Sam- ÚF.LSSON . ARCANCURINN KOSTAR kr. 120.00. Gjalddagt KR 1. JÚLÍ BLADIÐ KEMIJR ÚT Á MIOVIKUDÖG- U.M OG A I.AUCARDÖCUM, ÞKCAR ÁST.LDA ÞVKIR TIL ■ IBW Þessa vetrarmynd tók Kristján Hallgrímsson, ljósmyndari, á fjöllum uppi. - Rjúpnaskytta villtist á Vaðlaheiði Þrjátíu manna flokkur frá Akureyri hóf leit UM KLUKKAN 7 síðdegis á miðuvikudaginn lagði 30 manna leitarflokkur frá Flugbjörgun- arsveit Akureyrar af stað og hélt austur í Vaðlaheiði. Litlu síðar hélt hópur manna frá Sval barðsströnd einnig af stað. Tilefni þessara ferða var það, að þá um morguninn höfðu tveir menn frá Akureyri farið til rjúpna á Vaðlaheiði. Höfðu þeir mælt sér mót á tilteknum stað á heiðinni síðar um dag- inn. En þangað kom aðeins ann ar maðurinn en hinn ekki, og var leitin gerð hans vegna. Blaðið náði sem snöggvast í rj úpnaskytturnar, Örn Ragnars son og Jóhann Gauta Gestsson. Er sá fyrrnefndi bílvirki en hinn kafari. Fyrsta bifreið leitarmanna kom að bíl rjúpnaskyttanna á seinni tímanum í 8. Þar var þá Jóhann Gauti Gestsson heill á húfi, hafði hresst sig á nesti sínu og bjóst við mannaferð á hverri stundu. Rjúpurnar voru mjög stygg- ar, tófur voru ekki sjáanlegar, en slóðirnar eftir þær feikna miklar, eins og eftir fjárhópa. Rétt er að geta þess að Gauti fékk þrjár rjúpur en Örn enga. Leitarflokkarnir sneru heim- leiðis. Vera má, að þetta hafi verið nauðsynleg æfing fyrir þá, og að þessi stutta leitarferð hafi minnt menn bæði á eitt og annað, sem vera þarf til taks í næsta skipti þegar aðstoðar er þörf. Þeir segja svo frá: Við fórum norður háheiðina og sáum eng- ar rjúpur. Þar skildu leiðir, en (Framhald á blaðsíðu 7). STEINGRÍM- UR KÆRIR DUNGAL og fleiri fyrir níð- skrif um Láru ÖLLUM er kunnugt af blöð- um og útvarpi, hvernig nafn frú Láru Ágústsdóttur, mið- ils á Akureyri, hefur verið dregið inn í deilur á smekk- lausan hátt. Nú hefur eigin- maður Láru, Steingrímur Sigursteinsson, ákveðið að verja hendur eiginkonu sinn- (Framhald á blaðsíðu 8) BÆNDAHÖLLIN í REYKJAVÍK 0G HÓTEL SAGA f UMRÆÐUNUM á Alþingi fyr ir skömmu kom það fram, að Bændahöllin kostar nú um 76 milljónir króna, en hún er 42 þús. m°> í stað 25 þús. m3 sem upphaflega var áætlað og 25 milljóna króna byggingakostn- aður var miðaður við. Stéttarsamtök bænda hafa lagt fram 15 milljónir, Búnaðar- málasjóður 10 milljónir og 35 milljónir eru fengnar að láni er lendis og auk þess eru lausa- skuldir innanlands. Byggingin er 8 hæðir og er hver hæð tekin í notkun jafn- skjótt og hún er tilbúin. Gunnar Gíslason, form. land- búnaðarnefndar Alþingis gaf þessar og fleiri upplýsingar, er hann mælti fyrir frumvarpi um framlengingu búnaðarmálaSjóðs gjaldsins til byggingarinnar. Fjórtán ára piltur sfal sex þús. krónum FYRIR skömmu síðan var 6 þús. króna saknað á heimili hér í bæ. Peningar þessir voru í læstri hirzlu, en lykill inn auðfundinn, þótt ekki stæði í skránni. Fjórtán ára piltur hefur nú játað á sig þennan verknað og hefur hann ekki áður kom ist í nein vandræði, að því er lögreglan hermir. Þjófn- aðurinn var framinn á með- an húsráðendur voru fjarver andi, að degi til. Of margir munu fara ó- gætilega nieð peninga, hafa þá næstum á „glámbekk“ og í ólæstum íbúðum. Þetta eyk ur freistinguna til að hnupla eða stela. □ Hæstaréttardómur um slys í sundlaug Piltur, sem brákaðist í hálsliðum, fékk 100 þús. krónur í bætur frá viðkomandi tryggingu ÁRIÐ 1959 varð það slys í inni- sundlauginni á Akureyri, er Guðmundur Steinsson nemandi í MA stakk sér í vatnið af bakk- anum, að hann kenndi botns og brákaðist í hálsliðum. Hann krafðist nú bóta út hendi bæj- arsjóðs Akureyrarkaupstaðar, sem varð talinn bótaskyldur að þremur fimmtu hlutum, eða um 80 þúsund krónur. Mál þetta var prófmál og tók langan tíma, en fór síðan fyrir Hæstarétt, sem staðfesti dóm- inn úr héraði fyrir fáum dögum. Upphæðin, sem pilturinn fær, er með vöxtum orðinn um 100 þúsund krónur. Tillögur Framsóknarmanna um aðsfoð við íbúðarhúsabyggingar Skipsmenn á Heklu seldu „sprengjurw ÞEGAR Hekla var hér á mið- vikudaginn játuðu skipsmenn að hafa selt unglingum á Akur- eyri nokkurt magn af „kínverj- um“, eða sprengjum þeim, sem síðan hafa valdið ónæði í bæn- um, jafnvel innan veggja skól- anna. Þessi sala er með öllu óleyfileg. Nokkrir unglingar, sem voru kaupendur þessa varnings, hafa einnig játað á sig viðskiptin af sinni hálfu, að því er lögreglan tjáði blaðinu í gær. □ ALÞINGI ályktar að kjósa fimm manna milliþinganefnd, hlutbundinni kosningu, til þess að endurskoða öll gildandi lög um lánveitingar til íbúðabygg- inga í landinu. Nefndin skal gera tillögur að nýrri löggjöf í þessum efnum, er m. a. hafi það markmið: að auka lánveitingar til bygg- ingar nýrra íbúða, svo að unnt verði að lána til hverr- ar íbúðar af hóflegri stærð, hvar sem er á landinu, % hluta af byggingarkostnaði. að jafna aðstöðu manna til láns fjár þannig, að heildarlán geti orðið svipuð til hvers manns, miðað við sömu stærð íbúðar, hver sem hann er og hvar sem hann býr; að greiða fyrir mönnum með lánveitingum til að endur- bæta íbúðir svo og að kaupa íbúðir til eigin nota. Nefndin leggi tillögur sínar fyrir næsta reglulegt Alþingi. Kostnaður af störfum nefndar- innar greiðist úr ríkissjóði. Nokkur rökstuðningur fyrir tillögunum í greinargerð tillögunnar seg- ir svo m. a.: „Allir þurfa á húsnæði að halda, engu síður en fæði og klæði. Siðferðileg skylda rikis- valdsins til að gera mönnum mögulegt að eignast þak yfir höfuðið er engu minni en að stuðla að nægilegri atvinnu og viðunandi lífskjörum að öðru leyti. Það verður jafnan eitt af fyrstu viðfangsefnum þeirra, er stofna heimili, að reyna að eign- ast íbúð. Flestir eru ungir að árum, þegar þeir mynda eigið heimili, og fæstir þeirra eru miklum efnum búnir. Hins veg- ar kostar íbúð fyrir fjölskyldu mikið fé, eins og nú er komið. ,Samkv. skýrslum Hagstofu ís- lands kostar nú 300 rúmmetra íbúð um 440—490 þús. kr. og hefur hækkað í verði á síðustu fjórum árum um 130—145 þús. kr. Skortir því mjög á, að lán úr byggingarsjóði ríkisins eða stofnlánadeild Búnaðarbankans hafi dugað til að greiða verð- hækkun íbúðarinnar. Jafnvel þótt lán þessi hækki jiú úr 100 þús. kr. á íbúð í 150 þús kr., eru þau samt ekki nema rúmlega fyrir verðhækkuninni. Þótt lán úr lífeyrissjóðum séu nokkru hærri, njóta þeirra ekki aðrir en þeir, sem greiða til lífeyris- sjóðanna. Af þessu leiðir, að eig ið framlag hvers manns, sem byggir sér íbúð af fyrmefndri stærð, þarf að vera 290—340 þús. kr., og er þá miðað við 150 þús. kr. lán. Nærri má geta, hversu auðvelt þetta reynist ungu og efnalitlu fólki. Ohjá- kvæmilegt er því að hækka lán til hverrar íbúðar frá því, sem nú er. Þá er hagkvætnt að veita mönnum nokkurt lánsfé til end- urbóta á gömlum húsum eða til að kaupa slík hús. Með því má hagnýta betur húsnæði, sem fyrír er, spara lánsfé, sem ann- ars þyrfti í nýjar íbúðir, og koma í veg fyrir, að menn búi í óviðunandi íbúðum.“ í greinargerðinni eru enn- fremur birtar tölur úr skýrslu Efnahagsstofnunar ríkisins varð andi fjölda íbúða í smíðum ann arsvegar á árunum 1956—’58, hinsvegar á árunum 1959—’61. Samkvæmt þeirri skýrslu hefur verið byrjað að byggja -4847 í- búðir alls í landinu á árunum 1956—’58, en 3399 á árunum 1959—’'61. Fækkun 29.9%. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.