Dagur - 08.12.1962, Síða 8
8 ~n
Jafnvel í Aberdeen þykir
ekki fínt að vera í fiski
ABERDEEN er meðal hinna
stærri fiskveiðiborga í Bret-
landi. Fiskveiðar og fiskiðnaður
eru uppistaða atvinnulífs borg-
arinnar. Þar hefur líka verið
stofnaður skóli til að kenna
unglingum rétt handbrögð við
fiskinn. Skólabyggingin kostaði
1.3 millj. króna og er útbúin nýj
ustu tækjum. Starfsemin hófst
í janúar síðastliðnum. Um þetta
er ekkert nema gott að segja
og mun mörgum finnast að
þessa framtakssemi ættu íslend-
ingar að taka sér til fyrírmynd-
ar. Ráðgert var að hafa 3ja mán
aða námskeið með 30 nemend-
um í hvert skipti. En á fyrsta
námskeiðinu voru 6 nemendur
og aðeins 3 sóttu hið næsta.
Samt eru rúmlega 200 ungling-
ar sem lokið hafa unglinganámi
atvinnulausir. Fiskivinnan heill
ar sem sé ekki unglingana í
Aberdeen og einnig munu aber
dínskir foreldrar þess lítt fýs-
andi að láta börn sín í fisk-
vinnu. Starfsemi skólans verð-
ur því færð yfir á það svið að
halda námskeið fyrir fólk sem
þegar er í fiskvinnu og jafn-
framt verða haldin sérstök nám
skeið fyrir verkstjóraefni. Telja
forstöðumenn skólans að þannig
fái skólinn næg verkefni og
starfræksla hans eigi eftir að
verða til mikils gagns fyrir fiski
iðnaðinn í Aberdeen. (Endur-
sagt úr „The Fishing News“
10. ágúst 1962). □
FRA MÆÐRASTYRKSNEFND AKUREYRAR
MÆÐRASTYRKSNEFND Ak-
ureyrar leitar hér með til yðar,
og væntir þess, að þér veitið
bágstöddum samborgurum að-
stoð með því að láta nefndinni
í té peninga eða fatnað, er hún
mun úthluta fyrir jól. Æskilegt
er að fatnaðurinn sé hreinn.
Eins og að undanförnu munu
- ———-------------->
DÝR MAGAKVEISA
Fjörutíu þús. kr.
í skaðabætur
FYRIR um tveimur árum bar
það við, að yfirmatsveinn og
starfsstúlka á matsöluhúsi í
Bandaríkjunum settust til borðs
og ætluðu að gæða sér á soð-
inni Sambandsýsu í mayon-
naise. Ekki fara neinar sögur af
borðhaldinu um kvöldið, en
staðreynd er það, að hjúin fengu
um nóttina illkynjaða maga-
kveisu og varð ekki svefns auð
ið. Þau töluðu við lögfræðinga
sína strax næsta dag, þótt af
þeim væri dregið, og heimtuðu
að framleiðanda ýsunnar væri
stefnt fyrir að selja eitraðan
fisk. Verjandi Iceland Products,
sem var reyndur lögfræðingur
tryggingarfélags þess, sem ann-
aðist áhættutryggingu fyrir fé-
lagið, hélt því fram, að það
hefði verið mayonnaisið, sem
skemmt var. Hafði Iceland Pro-
ducts látið háskólarannsóknar-
stofu athuga málið. Þrátt fyrir
jákvæða niðurstöðu rannsóknar
innar, tapaðist málið, og Iceland
Porducts var dæmt í $ 2D00.00
sekt og $ 400.00 í málskostnað.
Þetta urðu þannig um 100.000.00
krónur, sem tryggingarfélagið
mátti greiða vegna Iceland Pro-
ducts. Þetta litla dæmi sýnir
ljóslega, hve háar upphæðir eru
í húfi, ef minnsti misbrestur
verður á framleiðslu matvæl-
anna. Hins vegar má segja, að
næturlöng magakveisa sé vel
borguð með rúmlega 40.000 kr.,
eða hvað finnst ykkur? Q
skátarnir veita gjöfum yðar
móttöku. Þeir munu heimsækja
yður næstu kvöld. Með fyrir-
fram þökk fyrir góðar undir-
tektir.
Þess er vænzt að þeir, sem
óska eftir aðstoð nefndarinnar
fyrir jólin láti nefndarkonur
vita eða geri aðvart á skrifstof-
unni fyrir 17. desember.
Skrifstofa Mæðrastyrksnefnd-
ar er í Verkalýðshúsinu, Strand
götu 7. Hún er opin á þriðjudög-
um kl. 5—7 og einnig verður
hún opin sunnudaginn 16. des.
kl. 2—6. Sími skrifstofunnar er
2717.
Lokun sölubúða
VERZLANIR bæjarins verða
opnar sem hér segir, til jóla:
Laugardaginn 8. des. til kl. 18
Laugardaginn 15 des. til kl. 22
Laugardaginn 22. des. til kl. 24
Þetta mun vera sama fyrir-
komulag og gildir í Reykjavík.
Þessi vill helzt ekki drekka
nema beint úr krananum.
Hún lærði líka að opna
kranann — en því miður
ekki að loka honum aftur.
(Ljósmynd: K. S.)
HÆSTA MEÐALVIGT
DILKA Á SELFOSSI
VAR 17.9 KÍLÓ
HÆSTA meðalvigt einstaks
bónda hjá Sláturfélagi Suður-
lands á Selfossi var 17,9 kg. Það
var Brynjólfur Guðmundsson á
Galtarstöðum í Gaulverjabæjar
hreppi, sem náði þessum frá-
bæra árangri. Lagði hann 50
lömb inn í sláturhúsið, þar af
aðeins 7 einlembinga.
Brynjólfur á Galtarstöðum
hafði síðastliðið vor lömb eftir
35 ær. Urðu 28 þeirra tví-
lemdar, en 7 voru einlembar.
Slátraði hann heima 5 lömbum,
en 8 voru sett á vetur. Alls
komu 65 lömb til nytja hjá
Brynjólfi, og má gera ráð fyrir
að ásetningsgimbrarnar og
hrútsefnin séu ekki síðri en
sláturlömbin.
Eftir hverja ær fær því Brynj
ólfur á Galtarstöðum 29 kg. af
kjöti. Hefði innlegg hans í slát-
urhúsið orðið um 1125 kr. ef
öllum lömbum á Galtarstöðum
hefði verið slátrað í haust.
(Þjóðólfur 17. nóv. 1962)
Sprunginn botnlangi
reyndist vera dóttir
ÞAÐ þykir ekki sæta tíðindum
nú frékar en endranær, þegar
ung hjón eignast sitt fyrsta af-
kvæmi. Nýlega þótti slíkt þó í
frásögur færandi úti á landi. í
ónefndum dal hóf ungt par bú-
skap nú í vor. Bólaði lengi vel
ekki á erfingjanum, en unga
konan mátti ekki vera að því
að velta vöngum yfir slíku. Hún
var trú manni sínum og dugleg
við að hjálpa honum, enda
myndarleg og vel á sig komin.
Þegar kom að sláturtíð lét kon-
an ekki sitt eftir liggja, en hjálp
aði bónda sínum að reka í kaup
staðinn. Þar dró hún í sundur
og framvísaði og hélt síðan
heim á dráttarvél.
Daginn eftir tók konan sótt,
og bóndinn, sem hélt að það
væri botnlanginn, dreif konu
sína í sjúkrahús í kaupstaðnum.
Voru verkirnir orðnir svo mikl-
ir, er þangað var komið, að botn
langinn var talinn sprunginn.
Bjó læknirinn sig þegar undir
uppskurð, en ekki þarf að lýsa
undrun viðstaddra, er hann
breytti skyndilega ákvörðun
sinni, kíminn á svip — og lét
sækja ljósmóðurina. Fæddi kon
an þarna í hvellinum 15 marka
dóttur, fríska og fullburða.
Það þarf víst ekki að lýsa
undrun starfsfólks sláturhúss-
ins, er það frétti að unga konan
hefði orðið léttari daginn eftir
að hún dró í sundur í sláturhús-
inu. En konan er sáröfunduð af
kynsystrum sínum. Það þykir
ekki fært að ganga með barn og
ala það með minni fyrirhöfn.
(Þjóðólfur 20 okt 1962).
STEINGRIMUR
KÆRIR DUNGAL
(Framhald af blaðsíðu 1)
ar með því að höfða mál á
hendur prófessor Níels Dung
al og fleirum.
Aðspurður um þetta sagði
Steingríniur orðrétt:
„Ég mun höfða mál gegn
prófessor Níels Dungal og
öðrum fyrir níðskrif og meið
yrði um Láru, fyrir hennar
hönd og hama hennar, og
mun engum líðast það bóta-
laust liér eftir, því að nú er
mælirinn fullur.
Mál þetta höfða ég með
fullu samþykki eiginkonu
minnar. Q
Hundar og ketfir á Akureyri
Á AKUREYRI þurfa hundaeig-
endur að uppfylla nokkur skil-
yrði til að mega hafa „óþarfa-
hunda“, þ. e. hunda, sem ekki
eru notaðir í þágu búskapar og
fylgja þessum skilyrðum nokk-
ur útgjöld. Hefur þetta orðið til
þess, að menn hugsa sig um
tvisvar, áður en óvitum er leyft
að koma með hvolp inn á heim-
ili. Öðru máli gegnir um ketti,
Um þá gilda engar reglur. Áður
voru mjög margir villi- eða úti-
legukettir á Akureyri, en mun
nú um það bil útrýmt. En það
þurfa bæði börn og fullorðnir
að hafa hugfast, ef einhver í
fjölskyldunni hefur áhuga fyrir
hvolpi eða kettling, að slíku hús
dýrahaldi fylgir viss ábyrgð,
sem enginn má skjóta sér und-
an.
Annars endar sagan oftast á
þann hátt, að kötturinn leggst
út, en meindýraeyðir styttir hon
um aldur við tækifæri, og hvolp
urinn verður óþolandi af því að
hann er ekki „taminn“ og rúm-
lega hálfvaxinn hefur hann fyr-
irgert lífi sínu. Q
•:u
HlllllÍÍllBl
Mest af síldinni farið
Raufarhöfn, 6. des. í haust var
farið til rjúpna í Kelduhverfi
og víðar, en veiðin var lítil og
hjá sumum engin.
Af allri sumarsíldinni, sem
var rúmlega 75 þús. tunnur, er
aðeins eftir að taka 4 þúsund
tunnur. En þær fara til Finn-
lands og verða teknar í janúar.
Hinsvegar er meiri hlutinn af
lýsi og mjöli eftir. En í þessum
mánuði verður þó tekið mikið
af lýsinu.
Jörð er auð og bílfært um all-
ar jai'ðir, sem um sumardag. Q
Nýr bæjarstjórnar-
salur á Sauðárkróki
Sauðárkróki, 7. des. í gamla
barnaskólanum, sem er 54 ára
gamalt hús, hefur verið innrétt-
aður bæjarstjórnarsalur og bú-
inn nýjum húsgögnum. Þar var
fyrsti bæjarstjórnarfundurinn
haldinn 6. nóvembei' sl. og er
þetta hjnn vistlegasti staður.
Skákmenn úr ungmennafélag
inu Gretti og Tindastól hófu
keppni á vegum U.M.S. Skaga-
fjarðar. Tindastóll vann með
2y2 gegn iy2.
Annan dag desembermánaðar
var 70 ára afmæli Sauðárkróks-
kirkju minnzt með hátíðarguðs-
þjónustu, þar sem prófasturinn,
séra Björn Björnsson á Hólum,
prédikaði, en sóknarpresturinn,
séra Þórir Stephensen, þjónaði
fyrir altari. Um kvöldið var
kirkjukvöld. Þar flutti m. a.
séra Sigurður Haukur Guðjóns-
son ræðu. Form. sóknarnefndar
er Friðrik Margeirsson.
Fiskur er fremur tregur og
í'júpnaveiðar eru engar teljandi.
Á morgun minnist kirkjukór-
inn 20 ára afmælis síns með
hófi.
Leikfélagið mun hafa í
byggju að halda hátíðlegt 70 ára
starfsafmæli sitt síðar í vetur. Q
Allir komnir út og
suður - flestir suður
Haganesvík, 7. des. Héðan er
margt fólk farið. Menn fara út
og suður og þó einkum suðui'.
Margir Fljótamenn vinna nú við
hitaveituframkvæmdir í höfuð-
borginni.
Víða liggur féð úti eða er haft
við opið. Ofurlítið hefur verið
farið til rjúpna, en talið er, að
vegna þess hve snjólítið er, séu
rjúpurnar uppi á háfjöllum.
Nýlega er látinn, í Reykjavík
Jón Sigmundsson, aldraður
bóndi frá Illugastöðum. Hann
var heilsulítill orðinn og flutti
suður í haust. Q
Fimm bátar róa
Siglufirði, 7. des. Skarðið er op-
ið, sæmilegt til umferðar.
Við tunnuverksmiðjuna vinna
40 manns og yfir 20 við niður-
lagningu síldar.
Fimm 20—70 tonna bátar róa
og afla 5—10 tonn í róðri. Þeir
sækja bæði á Skagagrunn og
Fljótamið.'Bátarnir leggja upp
í •frystihúsinu ísafold og frysti-
húsi S. R.
í kvöld er aðalfundur Fram-
sóknarfélagsins og mun form.
kjördæmissambandsins, Guð-
mundur Jónasson, bóndi í Ási,
flytja erindi um stjómmálavið-
horfið. Q