Dagur - 23.03.1963, Síða 7
Tweedjakkar
nýkomnir
Buxur, terylene
Skyrtur,
Ff fjölbreytt úrval
*. L
HERRADEIL
NÁTTKJÓLAR, verð frá kr. 111.00
UNDIRKJÓLAR
MITTISPILS í úrvali
VEFNAÐARVÖRUDEILD
NÝKOMIN:
Amerísk MclNTOSH EPL!
Verð kr. 26.00 pr. kg.
NÝLENDUVÖRUDEILD
Lögreglumannsstarf laust
Lögreglumannsstarf hjá Akureyrarbæ er laust til um-
sóknar. Laun samkvæmt faunasamþykkt Akureyrar-
bæjar. Umsóknir um starfið skulu sendar til undirrit-
aðs fyrir 11. apríl n.k, og skal taka þar fram um aldur
umsækjanda, nám og fyrri störf og annað, er máli
skiptir. •
BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI.
DAGBLAÐIÐ TIMINN
flytur ávallt nýjustu fréttir. — Tvær framhaldssögur.
Iþróttasíðu. — Skákþátt.
SUNNUDAGSBLAÐ með alls konar efni til skemmt-
unar og fróðleiks, sögur, frásagnaþættir og krossgátur.
1200 blaðsíður á ári.
Blaðið fæst í: Bókabúð Rikku, Bókabúðinni Ráðhús-
torgi 1, Þórshamri, Veganesti og Turninum Norður-
götu 8. - Afgr. HAFNASTRÆTI 95, sími 1443.
1 ?
v Huglieilar þakkir sendi ég öllum vimim minum og -*•
i vandamönnum, sem glöddu mig með heillaskeytum, f
X blúmum, gjöfum og heimsóknum d 60 ára afmceli f
i minu. Sérstaklega vel þakka ég húsbœndum mínum f
fyrir rausnarlega gjöf og hlýja kveðju. — Lifið heil. t
t JÓN GUÐJÓNSSON, bakari. |-
y ©
7
KAUPHÆKKUN
SVEINAFÉLAG járniðnaðar-
manna og járnsmíðaverkstæðin
hér í bæ hafa samið um nýjan
kauptaxta, sem gildir frá 1.
marz.
Hér er um 10—18% kaup-
hækkun að ræða frá fyrri taxta.
Samkvæmt þessu er lágmarks-
vikukaup sveina kr. 1699.50. □
Geysihraður akstur
EINS OG áður hefur verið um
rætt, í sambandi við umferðar-
mál, er of hraður akstur hér í
bæ nokkuð áberandi. Takmark-
ar það umferðaröryggi og eykur
slysahættu.
Nú hefur lögreglan gert á
þessu nokkra athugun, og leiðir
hún í Ijós, að á þessu sviði er
umbóta þörf.
Hættulegir ökumenn verða
nú látnir sæta ábyrgð. Þeir eru
ekki mjög margir, en engu að
síður hættulegir og þurfa að
læra löghlýðni og tillitssemi. □
FISKUR í BÚRI. Nú er mjög
í tízku meðal unglinga, að
eiga fiska í búri, litlar vatna-
skjaldbökur og jafnvel snigla.
Ein verzlun hér í bæ a. m. k,
hefur skepnur þessar á boð-
stólum, ásamt viðeigandi
fóðri og búrum, og er það
Tómstundabúðin, sem Gísli
og Gunnar Lorenssynir hafa
keypt.
FRÁ Rauða Krossinum; Frá
öskudagsflokki Hallgríms Ól-
afssonar kr, 83.00.
HJÓNAEFNI. Nýlega hafa opin
berað trúlofun sína Sólveig
Björnsdóttir, Felli, Sléttuhlíð
og Baldur Björnsson frá Mó-
skógum, Haganeshreppi.
BLAÐIÐ hefur frétt, að í prent-
un sé á Akureyri handbók eða
bæklingur fyrir ferðamenn,
með mörgum nauðsynlegum
upplýsingum. Ef vel tekst
með bæklinginn, er þar bætt
úr brýnni þörf.
FRAMLÖG til Kristrúnar Guð-
mundsdóttur, Melum, Fnjóska
dal. — Söfnun á aðalfundi
Sjálfsbjargar: Karl Frlðriks-
son og frú kr. 1.000.00, Jó-
hanna Sigfúsd. 100.00, Þor-
gerður Helgad. 100.00, Hann-
es Guðmundsson 100.00, Sigr.
Jónsdóttir 100.00, Pálína Jóns-
dóttir 100.00, Halli 100.00,
Anna Sigfúsdóttir 100.00, Sigr.
Marteinsdóttir 200.00, Indiana
Einarsd. 30.00, Oddný Hjartar
dóttir 100.00, Eggert Þorkels-
son og frú 200.00, Ragnh.
Hjalta 100.00, Magnús Krist-
insson 100.00, Ragnh. Stefáns-
dóttir 100.00, Guðbjörg Stef-
ánsdóttir 100.00, Lilja Skarp-
héðinsd. 100.00, Stefanía Jó-
hannsd. 100.00, Kristinn Jóns-
son 100.00, Snæfríður Ingólfs-
dóttir 100.00, Aðalsteinn Tóm-
asson 500.00, Herdís Tryggva-
dóttir 200.00, Ástþrúður
Sveinsdóttir 100.00, Þorbjörg
Brynj ólfsdóttir 100.00, Skarp-
héðinn Karlsson 100.00, Líney
Helgadóttir 100.00, Sigvaldi
Sigurðsson 100.00, Heiðrún
Steingrímsdóttir 100.00, Krist-
ín Konráðs. 50.00, N. N. 25.00,
N. N. 100.00, Lilja Sigurðard.
200.00. — Til forráðamanna
Sjálfsbjargar hafa borizt: Sig-
ríður Magnúsdóttir 75.00, Mar
grét Valdemarsdóttir 100.00,
Helga Jónsdóttir 100.00, Elín
Hallsdóttir 100.00, Þorsteinn
Hallsson kr. 100.00, ó-
nefnd 100.00, Ólafur Jónsson
200.00, Sigrún Elíasd. 150.00,
Þorgerður Helgad. 375.00, Jón
ína Björgvinsd. 100.00, Árni
Björgvinsson 100.00, N. N.
100.00, Björn Magnúss. 100.00,
N. N. Eyjafirði 100.00, G. P.
100.00, Sigríður Friðfinnsd.
Dalvík 250.00.
Gljáfaxi búinn skíðum
EINS OG sagt var frá í fréttum
fyrir nokkru, tókust um það
samningar milli Flugfélags ís-
lands annars vegar og Konung-
legu Grænlandsverzlunarinnar
hins vegar, að Flugfélagið tæki
að sér flutninga til einangraðra
staða á austurströnd Grænlands
með flugvél búinni skíðum.
í dag hefur verið unnið að
því að setja skíðin undir flug-
vélina TF-ISH „Gljáfaxa“, en
vökvaleiðslur og ýmsan annan
nauðsynlegan útbúnað var búið
minium. Þau vega með öllum
útbúnaði 522 kg. og draga að
sjálfsögðu nokkuð úr flughraða
flugvélarinnar, eða h. u. b. 10
hnúta á klst.
Svo sem fyrr segir, mun flug-
vélin væntanlega leggja af stað
til Grænlands nú um helgina
og verður áhöfnin þannig skip-
uð: Flugstjóri Jóhannes R.
Snorrason, flugmaður Jón R.
Steindórsson, vélamaður Oddur
A. Pálsson. □
að setja í flugvélina áður.
Véladeild Flugfélags íslands
hefur annazt þessa framkvæmd,
Sem hefur gengið mjög vel
Skíðin, sem nú er lokið við
að setja undir „Gljáfaxa“, voru
pöntuð sérstaklega frá Federal
Ski and Engineering Co. í Min-
neapolis í Bandaríkjunum og
eni af vönduðustu fáanlegri
gerð.
Eitt þeirra vandamála, sem
samfara eru skíðaflugi, er að
skíðin frjósi föst þar sem flug-
vélin stendur á snjó eða ís. Til
þess að fyrirbyggja þetta, eru
þessi skíði húðuð að neðan með
plasti, en sjálf eru skíðin úr alu-
OPIÐ TIL KL. 10
VÖRUHÚS eitt í París gerði ný
lega tilraun með að ha{a opið
til kl. 10 að kvöldi. Viðskipta-
menn, eftir venjulegan lokunar-
tíma, reyndust 30 þús. En fyrir
tækið mætti breytingunni með
400 auka-afgreiðslustúlkum, og
þótti tilraunin takast vel, □
GAMALL NEMANDI
Á STAÐ einum í ítalíu, í skóla
fyrir það fólk, sem ekki fékk
tækifæri til náms á venjulegu
aldursskeiði, hefur nemandi
einn vakið sérstaka athygli,
bæði fyrir dugnað og iðni, og
hefur oftar en einu sinni hlotið
verðlaun. Nemandi þessi er í
öðrum bekk og 97 ára gamall. □
Hálf önnur milljón skógarplanfna
SKÓGARVERÐIRNIR, 7 tals-
ins, og 3 skógfræðingar komu
saman til skrafs og ráðagerða í
Reykjavík, ásamt skógræktar-
stjóra. Fréttatilkynning um
skógræktina var send útvarpi
og blöðum, og ágóði af skóg-
rækt reiknaður í krónum.
Gróðursettar eru árlega 1,5
milljónir trjáplantna. Skógrækt
ríkisins gróðursetur 60% plantn
anna, skógræktarfélögin 30% og
einstaklingar 5—10%.
Til Skógræktar ríkisins veitir
ríkissjóður 3,9 millj. króna og
tekjur af seldum sígarettum 2,1
milljón.
í fréttatilkynningunni segir
frá hagnaði af skógrækt. En slík
um útreikningum, en þeir hafa
oft verið birtir í áróðursskyni,
trúa sennilega ekki margir.
Hinsvegar hefur skógræktin
margt annað sér til ágætis, sem
gefur henni gildi. □
Húsmæður athugið!
Við sjáum um
viðgerðir á
HEIMILISTÆKJUM
yðar.
Sækjum. — Sendum.
LITLA-RAFTÆKJA-
VINNUSTOFAN
Brekkugötu 7 B
Sími 2874
Iðunnarskór
fyrir ferminguna
DRENGJA- og KARLMANNASKÓR, nýtt úrval.
BARNASKÓR, margar nýjar tegundir.
BARNASKÓR með innleggi, öklaháir
o. m. fl. nýrra tegunda af alls konar
SKÓFATNAÐI.
SKÓBÚÐ K.E.A.