Dagur - 24.04.1963, Page 1
h ■ ■ '
Málgagn Framsóknarmanna
Ritstjóri: Erlingur Davíosson
Skrifstofa í Mafnarstræti 90
Sími 1166. Sftningu oc prentun
annast Prentverk Odos
Björnssonar h.f.. Akureyri
V____________________________-
. ...—------—--------rw?
AuGI.ÝSINGAJTJÓRJ JÓN SAM-
ÚF.LSSON . ÁrgÁNGURINN KOSTAR
KR. 1110.00. G jAI.DDACI F.R 1. JÚLÍ
Bladio KF.MI K ÚT Á MIDViKUDÖG-
UM OC Á LAUGARDÖGUM, ,
ÞKGAR ÁSTÆÐA ÞYKIR TIl.
Þessi mynd er tekin í Súlnasal Bændaliallarinnar í Reykjavík við setningu 13.
þings Framsóknarflokksins. Eysteinn Jónsson, formaður flokksins, flytur setningarræðima.
í fréttatilkynningu af ráðstefnu
um kaupgjaldsmál, sem Alþýðu
samband Norðurlands hélt um
helgina, er m. a. bent á: I. Að
raunveruleg kauplækkun miðáð
við vísitölu framfærslukostnað-
ar frá jan. 1959 og þar til nú,
nemi 18%. II. Að verkamenn
skorti r.úmlega 23 þús. kr. á ári
til að geta veitt sér lífsnauð-
synjar, miðað við 8 klst. vinnu
á dag. III. Að verkafólk hafi í
engu notið vaxandi þjóðarfram-
leiðslu eða bættra verzlunar-
kjara. Þess vegna sé óumflýjan-
legt að hefja stórsókn í kaup-
gjaldsmáhun.
Síðar segir orðrétt: „Sem
fyrsta áfanga að þessu marki
telur ráðstefnan að verkalýðs-
félögin verði, hvert á sínum
stað, að hefja nú þegar samn-
ingaviðræður við atvinnurek-
(Framhald á bls. 5.)
Afmælistónleikar
TÓNLISTARFÉLAG AKUR-
EYRAR verður 20 ára hinn 4.
maí n. k. Þann dag syngur Sig-
urveig Hjaltested óperusöng-
kona í Nýja Bíó á Akureyri á
vegxun hins tvítuga félags.
Nánari fréttir síðar. □
• •
Olvunarslys á Ak.i
NÝLEGA sögðu sunnanblöðin
þá harmsögu, að ölvaður maður
varð úti á Arnarhóli í Reykja-
vík. Hér á Akureyri lauk kvöld-
heimsókn ölvaðs manns til ná-
granna á þann veg, að húsráð-
andi og kona hans hröpuðu nið-
ur stiga og meiddust bæði —
húsbóndinn hættulega — og
voru bæði flutt í sjúkrahús, en
gesturinn í Steininn vegna
töku í þessum slysum.
óhappaverk eða afsaka það með
ölvun, ætti atvik þetta að verða
mörgum mönnum umhugsunar-
efni, sérstaklega þeim, sem af
kæruleysi eða af áhrifum
drykkjutízkunnar eru í tíma og
ótíma að dekra við áfengisneyzl-
una — og eiga sinn þátt í hinum
mörgu áfengisslysum hér á
landi.
Síðdegis í gær tjáði settur'
bæjarfógeti blaðinu, að Kristdór
Vigfússon Aðalstræti 7 hér í bæ,‘
sem fyrir framangreindri árás
varð aðfararnótt sl. laugardags,
væri enn ekki kominn til fullr-:
ar meðvitundar. En kona hans,
Kristín Stefánsdóttir, sem ekki
var eins hart leikin, var á leið
til yfirheyrslu og hafði ekki fyrr
treyst sér til þess. Málið er því£
enn í rannsókn og árásarmaður-
inn situr í varðhaldi, sagði sett-
ur bæjarfógeti að lokum.
Án þess að draga fjöður yfirjl menn og heilsutæpir.
Húsbruni á Stóra-
Vatnsskarði
HINN 19. apríl brann íbúðar-
húsið á Stóra-Vatnsskarði til
kaldra kola og var engu af bú-
sióð bjargað, en fólk komst
naumlega út, og á nærklæðum
einum. Benedikt yngri Bene-
diktsson skarst illa á hendi, er
hann braut glugga til að kom-
ast út. Var hann fluttur í sjúkra
hús, einnig Benedikt eldri og
Árni Árnason, báðir rosknir
□
Fjölmennasla llokksþing Framsóknar-
manna hófsl í Bændahöllinni 21. apríl
Á SUNNUDAGINN hófst 13.
flokksþing Framsóknarmanna
og er fjölmennara en nokkru
sinni fyrr í sögu floksins. Þing-
inu mun ljúka annað kvöld.
Eysteinn Jónsson formaður
flokksins bauð fulltrúa og gesti
velkomna og flutti síðar snjalla
og yfirgripsmikla ræðu um
stjórnmálin og kosningabarátt-
una, sem nú fer í hönd.
Fundarritarar voru Halldór
Kristjánsson, Friðbjörn Trausta
son, Þórarinn Haraldsson og
Oskar Jónsson, en Jörundur
Brynjólfsson stjórnaði fundi
hinn fyrsta dag þingsins og rit-
ari flokksins, Sigurjón Guð-
mundsson gjaldkeri flokksins
flutti yfirlitsskýrslur, Jóhannes
Elíasson formaður laganefndar
gerði grein fyrir tillögu til nýrra
flokkslaga og Guðbrandur Magn
ússon flutti ávarp. Hermann
Jónasson var í upphafi þingsins
hylltur sérstaklega, er formaður
flokksins fagnaði komu hans á
flokksþingið.
Síðar verða, eftir því sem rúm
leyfir, birtir kaflar úr ræðu Ey-
steins Jónssonar. En niðurlag
ræðu hans var á þessa leið:
„Það er hlutverk þessa 13.
flokksþings Framsóknarmanna,
sem nú er að hefja störf sín, að
móta stefnuna. Síðan er það hlut
verk okkar allra, sem hér erurn
saman komin og allra þeirra
mörgu þúsunda víðs vegar um
landið, sem vilja leggja hönd á
plóginn, að fylgja þeirri stefnu,
sem hér verður mótuð, fram til
sigurs. Hefur sjaldan meira í
húfi verið, enda vona ég, að
framganga okkar allra í þeirri
baráttu, sem framundan er,
verði í fullu samræmi við það.
Mun þá sigur vinnast. Megi það
verða landi og þjóð til blessun-
ar“.
Fullyrða má, enda oftlega
staðfest í blöðum andstæðing-
anna, að Framsóknarflokkurinn
hafi nú aðstöðu til stórra sigra.
Og við hann eru stjórnar-
flokkarnir verulega hræddir um
þessar mundir. Andstæðingar
núverandi ríkisstjórnar sjá það
betur nú en oftast áður, að með
eflingu Framsóknarflokksins er
auðveldast að breyta um stjórn-
arstefnu og víkja af þeim hel-
vegi í efnahagsmálum, sem nú
er farinn og orðið hefur hin
mesta ógæfa fyrir þorra lands-
manna. □
MIKIÐ FJÖLMENNI
í HLÍÐARFJALLI
í GÆR voru 500 nemendur úr
skólum bæjarins í Hlíðarfjalli.
Veður var eins og bezt verður
á kosið.
Um síðustu helgi dvöldu
nokkrar fjölskyldur úr bænum
í Skíðahótelinu og létu hið bezta
af. □
Þeir krefjast 20% kauphækkana
á ráðstefnu Alþýðusambands Norðurlands
Oddgeir Þ H 222, nýtt 190 smálesta stálskip, kom til Akureyrar 18. b. m. Það er smíðað í Monikkand-
an í Hollandi fyrir Gjögur h.f. á Grenvík, sem einnig á Áskel og Vörð. — Aðolf Oddgeirsson sigldi
skipinu heim og gekk ferðin vel, þrátt fyrir brælu, og skipið reyndist ágætlega. Hraði í reynsluferð
var 11.8 sjómílur, en á heimsiglingu 10.1 mílu til jafnaðar. I skipinu er 660 ha. Listervél og 64 ha.
Lister-Ijósavél, ennfremur öryggis- og siglingatæki af nýjustu og beztu gerð — og síldarleitartækL
Oddgeir mun á förum til síldveiða. (Ljósmynd: E. D.)