Dagur - 11.05.1963, Qupperneq 2
2
HINN 24. apríl s.l. lézt í Reykja-
vík Kjartan Sæmundsson kaup-
félagsstjóri Kron. Hann varð
bráðkvaddur á leið til vinnu
sinnar, aðeins 52 ára gamall.
Kjartan Sæmundsson var
fæddur í Ólafsfirði 6. apríl árið
1911. Foreldrar hans voru hjón-
in Sæmundur Steinsson og
Magnea Magnúsdóttir, sem
bjuggu þar þá og allt til 1920,
er fjölskyldan flutti til Akureyr-
ar.
Aðeins 16 ára gamall réðist
Kjartan í þjónustu Kaupfélags
Eyfirðinga og síðar varð hann
deildarstjóri Járn- og glervörud.
og hafði það starf til ársins 1924.
En þá leitaði Sambandið eftir
hæfum manni til vandasamra
starfa á skrifstofu félagsins í
New York. Varð Kjartan fyrir
valinu og starfaði vestra næstu
4 árin. Eftir heimkomuna tók
hann við deildarstjórastarfi hjá
SÍS í Innflutningsdeild, frá 1947
—1957.
Enn urðu tímamót í starfs-
ferli Kjartans Sæmundssonar
því árið 1957 tók hann að sér að
veita KRON forstöðu og hafði
það starf á hendi til dauðadags.
GENGUR MJÖG Á
HEYJAFORÐANN
Lómatjörn 9. maí. Sauðburður
er rétt í byrjun, þó eru 40 ær
bornar á einum bæ í sveitinni.
Alltaf er verið að róa og afl-
inn sæmilega góður. Fiskurinn
er fluttur til Akureyrar á bif-
reiðum.
I vor verður unnið við Fnjósk
órbrúna í Dalsmynni, sem byrj-
að var á í fyrra. En ekki verður
það þó fyrr en Vaðlaheiðarveg-
urinn er orðinn vel fær, svo
ekki verði alger umferðarstöðv-
un.
Það gengur óðum á heyforð-
ann hjá bændum, og þótt mikið
sparaðist í vetur, þola ekki allir
langar innistöður hér eftir.
I gærkvöldi héldu Alþýðu-
bandalagsmenn stjórnmálafund
á Grenivík. Þar mættu tveir
efstu menn listans og liðlega 20
manns. □
- Þjóðvarnar-upp-
reisn í Kópavogi
(Framh. af bls. 1).
taka það fram, að við munum
ekki styðja framboðslista Al-
þýðubandalagsins í þessum kosn
ingum. Við teljum, að þetta sam
starf við Alþýðubandalagið
gangi í berhögg við allar fyrri
yfirlýsingar og stefnu Þjóðvarn-
arflokks íslands.
Jafet Sigurðsson, formaður,
Bjarni Sigurðsson, ritari,
Hannés Alfonsson, gjaldkeri,
Ragna' Kristj ánsdóttir."
Kvæntur var hann Ástu Bjarna
dóttur frá Húsavík og eignuðust
þau 5 myndarleg börn.
Hér hafa nú verið dregnir
stærstu drættirnir að hinni ytri
umgjörð í lífi og starfi hins
látna kaupfélagsstjóra. Þeir
segja söguna ekki alla. En
samstarfsmenn Kjartans hér
á Akureyri og hinum fjölmörgu
(Framhald af blaðsíðu 8).
an ýmsum snúningum í þágu fé-
laga og sveitar.
Þú munt búa á minnsíu jörð
hreppsins?
Það mun vera, ef jörð skyldi
annars kalla. Þeir, sem um land
búnað skrifa, kalla svona lagað
„skæklabúskaþ“, ólífvænlegan
með öllu. Ég hef núna 8—9 ha.
tún til slægna og beitar, 70 hesta
engjaspildu, 1 Vi ha. undir kart-
öflur og venjulega einhvern
skika fýrir grænfóður. Bústofn-
inn er oftast 11—12 kýr, 6 kálf-
ar og kvígur, 8 ær og 1 hestur.
Hve lengi hefur þú veriS odd-
viti?
Ég tók að mestu. við oddvita-
störfum í janúar 1960, sem vara-
maður Garðars heitins Halldórs-
sonar, og hef haft þau á hendi
síðan.
Miklar framkvæmdir á vegum
sv eitarf élagsins?
Nei, enda voru útsvörin lækk
uð um 67% frá hinum almenna
útsvarsstiga sl. ár. Verið er að
endurbyggja sundlaug á Lauga-
landi, á vegum barnaskóla, hús-
mæðraskóla og ungmennafé-
laga. Framlag hreppsins til
þeirrar byggingar vegna barna-
skóláns og 'sefn bráðabifgðaláti
er orðið 280 þús.'krónur. '*
Til Freyvangs hefur verið
greitt meira og minna á hverju
ári síðustu 9 árin, upp í stofn-
kostnað, alls kr. 735.000.00. Þá
hefur dálítið verið Iagt fram til
þess að endurbyggja verstu kafl
ana á Laugalandsvegi, á móti
framlagi frá ríkinu, sem ekki
hefur fengizt á annan hátt.
Elztu akvegirnir hafa orðið
mjög útundan. Þótt reynt sé að
halda þeim við með ofaníburði,
eru þeir blátt áfram að síga í
jörð undan vaxandi þunga um-
ferðarinnar. Það segir lítið þó
ætlaðar hafi verið 800 þús. kr.
á fjárlögum til endurbygginga
þjóðvega á öllu landinu.
Hvemig er afkoman almennt í
lireppnum?
Skattskrá hefur ekki verið
lögð fram ennþá, en mér virðist
góð afkoma hjá þeim, sem búnir
eru að koma sér vel fyrir og
skulda ekki mikið. En sumir
viðskiptavinum við deild hans
fyrr á árum, mun þó annað ofar
í huga en ártöl og starfsframi.
Þeir minnast ungs atorkumanns,
sem leysti hvert starf á þann
veg, að trauðla varð á betra
kosið. Ekki lagði Kjartan þó
stund á þá mýkt í máli, sem nú
er talið fyrsta boðorðið í skóla
nútíma verzlunarþjónustu.
En hann vakti traust við
fyrstu kynni — og hann brást
aldrei því trausti.
Þetta var gæfa hans, og dreng
skapurinn var hans aðalsmerki.
Norðlenzkir samvinnumenn
þakka mikil störf og góð og
senda ástvinum hins látna inni-
legar samúðarkveðjur. □
vinna meira en Kklegt er að þeir
þoli til lengdar. Þeir, sem mest
skulda, virðast hins vegar berj-
ast vonlausri baráttu, að óbreytt
um aðstæðum. Miðað við netto-
tekjur, held ég að bilið fari vax-
andi milli þeirra, sem bezta að-
stöðu hafa skapað sér og hinna,
sem erfiðara eiga af einhverjum
ástæðum. Enda hlýtur svo að
fara þegar hlutur fjármagnsins
er aukinn en vinnunnar minnk-
aður. ' '
Flytur fólk mikið burtu?
Allmikil brögð eru að því, en
það eru áraskipti að því og
stundum kemur eitthvað í stáð-
inn. íbúatalan hefur haldizt lít-
ið breytt og íbúar hreppsins eru
nú 380 talsins. Síðastliðið ár
fluttu 30 manns brott og 2 komu
í staðinn, en þó fækkaði ekki
nema um 10. Svo er frjóseminni
fyrir að þakka, þótt afköst á því
sviði séu misjöfn, eins og á öðr-
um sviðum.
Er mikið um byggingafram-
kvæmdir?
Árið 1954 var byrjað að skrá
allar byggingaframkvæmdir í á-
framhaldandi töluröð. Frá þeim
tíma hafa verið tilkynntar rúm-
léga 100 byggingar, smáar og
stórar, þar af 11 íbúðarhús og
af. þeim ,7..nýbýJL ......
En enginn he.fur lag( ,í að
byggja ibúðafhús síðástliðin 2
ár, en alltaf er eitthvað um
smærri byggingar.
Má taka mynd af þér snöggv-
ast?
Ætli það svari fyrirhöfn. Það
eru nærri 30 ár síðan ég lét
mynda mig. Þá mynd hef ég í
ökuskírteini mínu. Það hefur
raunar komið fyrir, að vegalög-
reglan hefur lýst vandlega og
ekki grimlaus framan í mig og
gert samanburð á mér og mynd-
inni. Þetta hefur samt dugað,
segir Kristinn að lokum og þakk
ar blaðið svörin. Og myndavél-
in hefur þegar komið í veg fyr-
ir, að viðtalinu fylgi hin aldna
mynd, sem hrellir yfirvöldin á
vegum úti. — Blaðið þakkar
greinargóð svör. □
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
Bóndinn á Arnarhóli
HELGA GUNNLAUGSDOTTIR
frá Hjalteyri
Mér finnst ég vera fátækari í dag,
er fortjald hnígur milli lífs og dauða.
Nú klukkur óma síðsta sorgarlag,
með sama hljómi yfir ríka og snanða.
Þú leiddir með þér birtu í bæinn minn
og batzt mér krans úr minninganna sjóði.
Það er sem finni’ ég ennþá ylinn þinn,
er omaði frá sögnum bæði og ljóði.
Þín trú var mikil alla æfistund,
þú áttir hjarta er sló í sorg og gleði.
Á akri Drottins ávaxtaðir pund
þín innri birta gerðum þínum réði.
Þú breiddir arma um barnahópinn þinn
og bænir last, er á þau vildu hlýða,
og vermdir hönd og straukst um kalda kinn.
Sú kærleiksfórn mun góða móður prýða.
Og móðurástin margan sigur vann
á myrkum stundum, ótal vökunætur.
Þú sefur vina, sátt við guð og mann
og sérð á himnum eiginmann og dætur.
Þú berð í faðmi barnið, sem að dó,
þitt blys var ætíð móðurelskan sanna.
Vor drottinn gefi dánum frið og ró
og dreifi smyrsli á sárin ástvinanna.
Þig kveður mildur drottins blíði blær
og bjartir geislar legstað þínum yfir.
Og ástvinirnir allir fjær og nær
þeir ávallt geyma minningu, sem lifir.
Mér er skylt að þakka allt og allt.
Árin liðnu koma ei til baka.
Hið góða ei bugar grafarhúmið svalt,
því guð er sá, er yfir þér mun vaka.
Halldór Jónssbn.
- SjONLEIKURÍNN „MYS OG MENN“
(Framhald af blaðsíðu 8)
grímur skilur hlutverk sitt til
hlítar og skilar því af mestu
prýði.
Stefán Þórarinsson, Borg, leik
ur bústjórann, fremur lítið hlut-
verk, enda vel borgið í höndum
Stefáns.
Ásmundur Kristjánsson frá
Stöng leikur Curley, son bústjór
ans, uppskafning og slagsmála-
hund. Framsögn Ásmundar var
tæpast nógu skír á köflum, en
að öðru leyti var leikur hans í
fullu samræmi við persónuna.
Björg Dagbjartsdóttir frá
■ Álftagerði fór með hlutverk
■ konu C.urleys. Það má deilg um
það hvort rétt er að sýna þessa
stúlku á þann hátt sem Björg
gerði. Candy gamli segir að vísu
að hún sé flenna, en mér finnst
ýmislegt benda til þess, að hún
sé aðeins einmana sál, sem þrá-
ir mannlegan félagsskap. En
hvað um það, Björg sýndi þarna
prýðisgóðan leik og í fullu sam-
ræmi við það, hvernig hún skil-
ur þessa persónu.
Þráinn Þórisson, skólastjóri
að Skjólbrékku, lék ökuþórinn
Slim af miklu öryggi og festu
eins og hæfir þessari persónu,
og Karlson var vel borgið í
höndum Baldurs Þórissonar frá
Baldursheimi.
ívar Stefánsson frá Haganesi
fór með hlutverk Whit. Hlut-
verkið er lítið og gefur leikaran-
um ekki mikil tækifæri, en ég
hygg að ívar hafi skilað því eins
og efni stóðu tiL
ÓIi Kristjánsson, Skútustöð-
um, lék svertingjann Crooks.
Þetta er undirokaður vesaling-
ur, sem aldrei hefur séð glaðan
dag frá því að hann fór úr föðúr-
húsum. í samtalinu við Lenna
á ekki að koma fram nein
grimmd, heldur sársauki yfir
ömurlegum kjörum og einmana
leik. Hann gleðst í hjarta sínu
yfir heimsókninni, sem hann fær
í kompuna sína og á bak við
setninguna „hér er að verða
bölvuð örtröð‘‘, er geislandi
fögnuður.
Ég hef hér að framan einkum
reynt að benda á þá vankanta,
sem mér þóttu á þessari sýn-
ingu, ef þáð gieti o'rðið leikurun-
um til leiðbeiningar, því þeir
munu eiga eftir að sýna þennan
ágæta leik nokkrum sinnum
enn. Hitt er ótalið og er miklu
þyngra á metunum sem vel er
gert. Leiksviðsútbúnað hefur
Árni Gíslason frá Laxárbakka
annazt, en leiktjöld eru máluð
af Jóhannesi Gíslasyni á Gríms-
stöðum og hefur hann unnið
verk sitt af alúð og smekkvísi.
Kynnir á sýningunni var Arn-
þór Björnsson frá Reynihlíð. —
Leikstjóri var fröken Ragnhild-
ur Steingx-ímsdóttir.
Formaður Ungmennafélags
Mývetninga er Jón Illugason frá
Reykjahlíð. Hefur félagið haft
3 sýningar í Skjólbrekku, 1 í
Skúlagarði og eina í Freyvangi,
og mun nú fella niður sýningar
um sinn, en síðar í vor er fyrir-
hugað að leikurinn verði sýndur
nokkrum sinnum til viðbótar.
Að lokum óska ég leikflokknum
til hamingju með unninn sigur
og þakka góða skemmtun. G. G.