Dagur - 11.05.1963, Síða 7

Dagur - 11.05.1963, Síða 7
- Tvennir tímar ... - Dalvíkingar kaupa tvo mótorbáta (Framhald af blaðsíðu 5). það kostar þolinmæði og ýmsa fyrirhöfn. Annars var ég fyrst og fremst við féð, því að ég var hneigður fyrir það, en aðrir sáu þá um varpið. Svo kom vinnan við dúninn. Þrjár manneskjur afköstuðu ekki meiru en 5 kg á dag. Nú taka vélarnar þetta erfiði af fólkinu. í Núpskötlu og Rifi er ekkert varp. Og svo er bæði silungur og selur? Selurinn féll mjög mikið 1918 og hefur aldrei náð sér síðan. Kópaveiði er þó til ennþá, þótt ekki sé það mikið. Hinsvegar er silungur mjög víða í vötnum og sumstaðar gengur hann úr sjó. Jú, það er mörg matarholan, en það þarf dugnað til að nýta þetta og vinnuafl þarf að vera fyrir hendi. Ég hef heyrt talað um „strand jarðir“ á Sléttu? Rif er fræg strandjörð. Þar hafa mörg skip endað hinztu för. Og hvað segirðu svo um fram- tíð Sléttunnar? Um hana spái ég engu. Þessi norðlægi landshluti býr yfir ýmsum náttúrugæðum, þótt þéttbýlið hafi dregið til sín fólkið að undanförnu. Nýir möguleikar hafa opnazt til rækt unar, vegna nýrra tækja og má sjá það á mörgum stöðum. Og efnalega séð standa bændur í „Komtnakló” MAÐUR einn hér nærlendis heyrðist raula milli bæja þulu þessa: „Þeir fóru á sjó og Krússi hló og kóðin dró er Þjóðvörn dó í Kommakló og korriró.“ Þessa þulu má einnig rita svo: „Þeir fóru á sjó, og Krússi hló, og kóðin dró, er Þjóðvörn dó, í Kommakló, og korriró.“ traustari fótum en margir há- tekjumenn í þéttbýlinu, enda gengur hver eyrir, sem framyf- ir er hinar brýnu lífsnauðsynj- um, til húsabygginga eða rækt- unar meðal b'ænda, annarsstað- ar vilja peningarnir oft fara fyr ir lítið. Síðustu 3 árin hefur ver- ið alger kyrrstaða í framkvæmd um í sveitum austur þar. Þú varst einu-sinni verksmiðju- stjóri á Raufarhöfn? Ein þrjú ár eða svo, var það kallað, en ég er búinn að vera skrifstofustjóri hátt á þriðja ára tug hjá Síldarverksmiðjum rík- isins á Raufarhöfn. Sl. sumar fóru 15 milljónir gegnum mínar hendur, vinnulaun og ýmislegt fleira. Það hefur verið mikill peningastraumur á Raufarhöfn síðustu árin. Hvað segir þú um kosning- araar? Ég þekki unga menn, sem hrif ust af loforðum stjórnarflokk- anna í síðustu kosningum, en hafa nú snúið við þeim baki. Þessir menn eru alls staðar að reka sig á. Það er fyrst nú, sem dýrtíðin er farin að leggjast með fullum þunga á al- menning og allir finna til þess, hve erfitt er um allar fram- kvæmdir og jafnvel að hafa til hnífs og skeiðar, ef ekki er unn- ið miklu lengur en talinn var fyrir nokkrum árum hæfilegur vinnudagur. Við það var miðað, að 8 stunda vinna á dag nægði fyrir brýnustu lífsnauðsynjum. Lánatregðan og háu vextirnir glotta kuldalega framan í unga fólkið, auk dýrtíðarinnar. Og langi vinnudagurinn nú torveld- ar heimilisfeðrum að gera hvort tveggja: Vinna fyrir daglegu brauði og aðstoða við byggingu nýs heimilis. Annars ætla ég engu að spá um kosningarnar í vor, nema að mér finnst margt benda til þess að fleiri en áður trúi Fram- sóknax-flokknum betur en öðr- um stj órnmálaflokkum fyrir málefnum lands og þjóðar, seg- ir Pétur Siggeirsson frá Odds- stöðum að lokum. Blaðið þakkar viðtalið. Þökkum innilega auðsýnda samúð við hið sviplega fráfall OTTÓS HARÐAR ÓSVALDSSONAR. Sérstaklega jxökkum við Leó Sigurðssyni, útgerðar- manni, og séra Pétri Sigurgeirssyni. Sóley Halldórsdóttir. Margrét Harðardóttir, Jón Vilborg Harðarson, Rannveig Harðardóttir. (Framhald af blaðsíðu 1.) vert af bi-yggjuefni. En fram- kvæmdir við höfnina verða gerð ar í sumar. Á laugardaginn verða „Væng- stýfðir englar“ frumsýndir hjá leikfélagi Dalvíkur. Leikstjóri er Ki-istján Jónsson, Reykjavík. Hinn 5. maí sl. var barna- og unglingaskóla Dalvíkur slitið í Dalvíkurkii-kju, við hátíðlega athöfn. Nemendur voru 177, þar af 122 í barnaskóla, í 6 deildum, og 55 í unglingaskóla í 3 deild- um. 19 nemendur voru í lands- prófsdeild. Bai-naprófi luku 22 og 14 unglingaprófi. Hæstu einkunn á barnaprófi hlaut Þói-dís Hjálmai-sdóttir, 9,17. Á unglingaprófi hlutu Björn Stefánsson og Jón Bald- vin Bagguley 9,11 og voru hæst- ir. Skólinn veitti ýms vei’ðlaun, svo og Ijónaklúbbur staðarins. Sex fastir kennarar voru við skólann og 2 stundakennarar. Skólastjórinn, Helgi Þorsteins- son, afhenti prófskírteini og ósk- aði börnunum gæfu og gengis um leið og hann sleit skóla. □ AUGLÝSH) f DEGI Getraun í Vikimni Bifreið í verðlaun. LANDROVER eða FÓLKSVAGN. BARNAVAGN TIL SÖLU í Helga-magra-stræti 6, niðri. ÓDÝRT! Kápa til sölu (gerfileður) stærð 40—42. Uppl. í síma 1116. TIL SÖLU er af sérstökum ástæðum mjög vel með farið hjónarúm og tvö náttborð Uppl. í síma 2461. GÓÐ SKÝLISKERRA TIL SÖLU í Hamai-stíg 39. HÖSNÆei SIGURÐUR ÞORSTEINSSON, bókbindari, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 6. maí, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 14. maí kl. 1.30. Fyrir hönd vandamamia. Ingólfur Þorvaldsson. HERBERGI 1—2 herbergi óskast sem fyrst (helzt með inn- byggðum skáp). Uppl. í síma 1441. HERBERGI ÓSKAST STRAX. Uppl. í síma 1800. r 7 LÖGM ANN SHLÍÐ ARSÓKN. Bílferð verður til fei-mingar- messunnar á sunnud. úr Gler árhverfi yztu leið til kirkjunn ai-. Lagt af stað ,kL 10 f. h. B.S. HJALPRÆÐISHERINN. Sunnu dagaskólabörn takið eftir: Far ið verður í skemmtiferðina á sunnudaginn kl. 1.30 fx-á Hjálp ræðishernum. Gjaldið 10 kr. Hafið með ykkur nesti og klæðið ykkur vel. Aðeins fyr- ir sunnudagaskólabörn. Happ- drættið: Enn eru tveir vinn- ingar ósóttir í happdrætti Hjálpræðishersins, nr. 86, inn- skotsborð, og nr. 69, kaffidúk- ur. - Við eigum að fá það, sem okkur ber (Framhald af blaðsíðu 4). koma sér upp hagfræðistofnun, sem látið getur í té raunhæfar tölur um það, hve stóran hluta launþegum ber að fá af afrakstri þjóðarbúsins á hverjum tíma. Því að lengra en það megum við ekki ganga, þá er vá fyrir dyr- um, því allt líf okkar og fram- tíð sem fullvalda þjóðar er und- ir því komið að þeir sem þetta land byggja geti unnið saman, haft samvinnu við að byggja upp þjóðarbúið. Þess vegna er það að ef við fáum meira en okk ur ber af tekjum þjóðarbúsins, ei-um við farin að taka af öði-- um þegnum þessa þjóðfélags það, sem þeirra er. Landsþing verzlunarmanna. Á föstudagsmox-guninn mun hefjast á Sauðárkróki þing Landssambands ísl. verzlunarm. sem haldið er á tveggja ára fresti. Fyrir þessu þingi munu liggja mörg mikil og örlagarík mál fyrir allt verzlunarfólk í landinu. Lagabreytingar og skipulagsmál munu verða þar ofarlega á baugi, og getur það varðað alla framtíð Landssam- bandsins að samkomulag takist í þeim efnum. Fræðslumál verzl unarfólks munu einnig koma þar til umræðu, og er það mál sem F. V. S. A. hefur mikinn á- huga á að vel fari úr hendi, en lang veigamest ei-u þó kjai-a- málin. Að undanföx-nu hefur verið unnið að frumdrögum að heildarsamningum fyrir verzlun arfólk í landinu, og munu þeir að sjálfsögðu verða ræddir og undirbúnir þarna á þinginu. En launakröfurnar sjálfar mxmu ekki liggja fyrir, fyrr en gengið hefur verið frá samningum við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, því að tillit mun vei-ða tekið til þeirra samninga við uppsetningu á kjarakröfum verzlunarfólks. Það eru því mikil og alvarleg verkefni framxmdan fyrir okk- ar stétt. í von um að bjartari tímar séu framundan fyrir verzl xmarfólk, allar aðrar stéttir launþegasamtakanna og þjóðina í heild, og það er ég viss um að verður ef vel er að unnið, lýk ég þessum orðum mínum. VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Ein- ing heldur félagsfund í Al- þýðuhúsinu á sunnudaginn kl. 2 e. h. Fundarefni er kaup- gjaldsmálin. Fyrir fundinum liggur tillaga frá stjórn fé- lagsins og trúnaðarmannaráði um að hefja viðræður við vinnuveitendur innan skamms MINNINGASPJÖLD Sjálfs- bjai-gar fást í Véla- og raf- tækjasölunni, Járn- og gler- vörudeild K. E. A. og Bóka- búð Jónasar Jóhannssonar Brekkugötu 3. AÐALFUNDUR. Róðrarklúbb- urinn heldur aðalfund sinn mánudaginn 13. maí kl. 20.30 e. h. í íþróttahúsinu. Venjuleg aðalfundastörf. Rætt um sum- arstarfið. — Stjórnin. - Smált og stórt (Framhald af blaðsíðu 5). ÞAÐ MUNAR UM MAGNÚS! Þingmaður úr Sjálfstæðis- flokknum fór um það fögrum orðum í útvarpi frá Alþingi í fyrra, að nú mættu bændur una glaðir við sitt, því að þeir hefðu fengið Magnús Jónsson í Bún- aðarbankann. Margt er vel um Magnús þann, og ekki hefur annað heyrzt, en að hann sé lipur- menni í stöðu sinni svo sem vænta mátti. En böggull fylgir skammrifi. Áætlað er, að lán úr Stofn- lánadeild landbúnaðarins verði 85 millj. kr. á þessu ári. Vaxta- hækkun ríkisstjómarinnar á þeirri uppliæð nemur 2,1 millj. kr. Áætlað er að bændur greiði auk þess á því ári 8,2 millj. kr. í lánsfjárskatt. Samtals eru þetta 10,3 millj. kr. auk vaxtahækkun ar á öðrum lánum bankans. Er Magnús okkar svona mik- ils virði fyrir búskapinn á einu ári — eða kannske meira en það? r I simmidagsmatinn: NAUTAKJÖT KÁLFAKJÖT HROSSAKJÖT nýtt og saltað MEDISTERPYLSUR KJÖRBÚÐ K.E.A. við Ráðhiistorg FERMINGARKÁPUR NÝ SENDING! MARKAÐURINN Sími 1261

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.