Dagur - 05.06.1963, Side 4
4
Baguk
Úlvarpsumræðurnar
á Akureyri
ÞAÐ mun mega <elja aðaleinkenni út-
varpsumræðnanna, sem íram íóru á Ak-
ureyri í vikunni sem leið, að ræðumenn
stjórnarflokkanna, sem þama töluðu sem
einn flokkur væri, virtust helzt engan
andstæðing sjá nema Framsóknarflokk-
inn. Um hann einan virtust áhyggjur
þeirra snúast, en um Alþýðubandalagið
voru þeir furðu fáorðir. Þetta sannar
enn það, sem margir segja um þessar
mundir, að kosningabaráltan sé meira og
meira að færast í það horf, að verða ein-
vígi milli Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæðisfl. Hitt vekur ekki almennan
áhuga í landinu, eins og á stendur, hvað
af atkvæðum stjórnarliðsins fellur á Sjálf-
stæðisflokkinn og hvað á Alþýðuflokkinn,
sem er aukapersóna í stjómarsamstarf-
inu. Samtimis reyndu Bjöm Jónsson og
hans menn, að gera frambjóðendur Fram-
sóknarflokksins hér tortryggilega í aug-
um stjómarandstæðinga. Þetta er illt
verk og óþörf taugaveiklun hjá þeim, því
að Björn nær kosningu, en hinsvegar
dettur víst engum lengur í hug, að Amór
verði kosinn. Vel færi á því, að Alþýðu-
bandalagsmenn hefðu sig hæga gagnvart
Framsóknarflokknum, því að Framsókn-
armenn eru nú að reyna að sameina það,
sem kommúnistar og Alþýðuflokksmenn
hafa verið að bítast um og sundra und-
anfarna áratugi.
Jónas Rafnar er maður löglærður.
Ræða hans á fimmtudagskvöldið var að
miklu leyti hófsöm vamarræða mála-
færslumanns, sem er að reyna að færa
fram málsbætur til að fá sektardóm mild-
aðan. Aðferð málafærslumanna í slikum
tilfellum, þegar þeir Vita að skjólstæð-
ingar þeirra verða sekir fundnir fyrir
dómstólum, er oft að sýna fram á, að
þessum skjólstæðingum hafi, þrátt fyrir
allt, ekki verið alls varnað og hafi látið
eitthvað gott af sér leiða, sem eigi að
verða til þess að draga úr refsingunni,
þótt hún verði ekki umflúin. Ýms þarfleg
Iög hafa verið sett á þessu kjörtimabili,
og flestir verið því sammála, og J. R.
taldi þau fram af mikilli samvizkusemi.
Mörg fjárframlög hafa að sjálfsögðu verið
hækkuð vegna „viðreisnar“-dýrtíðarinn-
ar, og hann taldi þau líka fram. En saman
burðimi, mælikvarðann, vantaði. Fjárlög-
in í heild hafa hækkað um a. m. k. 150%.
Fjárframlög til einstakra framkvæmda
ber að meta með hliðsjón af því. Þús-
undir verkamanna hafa fengið ca. 20%
hækkun á timakaupi. Ætli það sanni mik-
ið, þó að Jónas Rafnar eða einhver annar
læsi nöfn þeirra í útvarpi! Aðalatriðið
er, að „viðreisnar“-dýrtíðin hefur hækk-
að útgjöld allra þessara verkamanna
miklu meira.
Margt annað kom líka fram í þessum
umræðum, sem ástæða væri til að minn-
ast á og vekja athygli á, ef rúm leyfði.
Bragi Sigurjónsson las t. d. upp nokkrar
tölur, sem hann sagði vera úr áætlun
„Emils Jónssonar“ um fjármagn til
hafnargerða í Norðurlandskjördæmi
eystra, á þessu sumri. Ekki gat hann þess,
hver hefði afhent honum þessar tölur,
en þær hafa ekki áður verið birtar opin-
berlega, svo að Dagur hafi orðið þess var.
Þessar hafnir eiga auðvitað að fá sinn
hlut af enska láninu, sem ríkisstjórnin
tók, og kallað hefur verið kosningalán. □
Húsnæðismálastefna
Framsóknarf 1.
Steinunn Sigurðardóftir
i.
FLOKKSÞINGIÐ telur, að
Framsóknarflokkurinn eigi hér
eftir sem hingað til að vinna að
því eftir ítrasta megni, að sem
flestir eignist gott húsnæði yfir
sig og fjölskyldu sína. En þar
sem erfitt mun reynast að koma
því til leiðar að allir þeir, sem
íbúðar þarfnast, eignist eigið hús
næði, þá telur flokksþingið að
vinna beri að því, þar sem skort-
ur er á húsnæði, að sveitarfélög
in með tilstyrk ríkisins, byggi
leiguhúsnæði. Verði það hús-
næði leigt út með góðum kjör-
um. Sérstök áherzla sé lögð á
byggingu leiguhúsnæðis fyrir
barnafjölskyldur.
II.
Flokksþingið vekur athygli
þjóðarinnar á því, að á valda-
tíma núverandi stjórnarflokka
hefur verð á meðal íbúð (það er
ca. 120 m2) hækkað um 150—180
þús. kr.; auk þessa hafa vextir
verið hækkaðir af byggingalán-
um. Hins vegar hafa lán frá
Byggingarsjóði ríkisins aðeins
hækkað um 50 þúsund krónur
á sama tíma, og heildarlán því
lægri en verðhækkuninni nem-
ur.
Ennfremur vekur flokksþing-
ið athygli á þeim samdrætti, sem
orðið hefur á íbúðarhúsabygg-
jngum á þessu tímabili, þar sem
á árunum 1956—1958 var byrjað
á 1616 íbúðum að meðaltali á
ári, en 1961 var aðeins hafin
bygging á 789 íbúðum. Þessi
samdráttur hefur leitt til mik-
illa húsnæðisvandræða.
ra.
Eins og að framan er lýst mun
Framsóknarflokkurinn beita sér
fyrir því af alefli, að auka mögu
leika fólksins til að eignast eig-
in íbúðir. Að þessu vill flokkur-
inn vinna á eftirfarandi hátt:
1. Að auka lánveitingar til
bygginga nýrra íbúða, svo unnt
verði að lána til hverrar íbúðar
af hóflegri stærð, hvar sem er á
landinu %hluta af byggingár-
kostnaði. Til þess að svo megi
verða, bendir flokksþingið á eft-
irfarandi leiðir:
a. Að efla Byggingarsjóð rík-
isins svo, að árlegar tekjur hans
verði a. m. k. 150 millj. kr. á ári.
b. Að vinna að því, að ákveðn
um hluta af sparifjáraukningu
hvers árs verði varið til kaupa
á verðbréfum Byggingarsjóðs
ríkisins.
2. Að lögð sé áherzla á það,
að starfsemi byggingasamvinnu-
félaga og byggingarfélaga verka
manna verði efld með því, að
ráðstafanir verði gerðar til þess
að opinberir sjóðir og trygging-
arfélög kaupi hin ríkistryggðu
skuldabréf byggingasamvinnufé
laga fyrir vissan hluta af sjóðs-
aukningu sinni.
3. Flokksþingið telur nauðsyn
legt, að lánstími fasteignaveð-
lána sé lengdur og vextir lækk-
aðir af þeim frá því, sem nú er.
4. Flokksþingið telur ennfrem
ur rétt að ívílna þeim, sem í
fyrsta sinn byggja sér íbúð eða
kaupa íbúð með því, að þeir
þurfi ekki að greiða þinglestur
né stimpilgjöld af skuldabréf-
um vegna íbúðarinnar, svo og
vinna að því, að húsbyggjendur
fái ívilnanir í útsvari og skatti
það ár, sem þeir í fyrsta sinn
flytja í eigin íbúð.
IV.
Flokksþingið leggur áherzlu á
það, að unnið verði markvisst
að því að lækka byggingarkostn
að í landinu, m. a. með þvi að
vanda til teikninga og skipulags
bygginganna, svb að grunnflöt-
ur hússins verði hagnýttur sem
bezt. Ennfremur með stóraukn-
um rannsóknum á nýjum bygg-
ingaraðferðum, tæknilegum nýj
ungum og byggingariðnaði og til
raunum með byggingu húsa og
húsahluta í fjöldaframleiðslu. □
húsfreyja í Skógum
ÞANN 27. max sl. andaðist í
Fjórðungssjúkrahúsinu hér á Ak-
ureyri Steinunn Sigurðardóttir
húsfreyja á Skógum í Fnjóska-
dal. Hún var ein af fyrstu nem-
endum mínum, er ég gerðist
kennari tæplega tvítugur, sveit-
ungi minn í æsku og kær vin-
kona konu minnar allt frá æsku-
árum þeirra.
Þegar ég man fyrst eftir mér,
bjuggu foreldrar Steinunnar, Sig-
urður Jónasson og María Arna-
dóttir, á Steinsstöðum í Oxnadal,
næsta bæ við heimili mitt, en
fluttú að Bakka í sörriu sveit ár-
ið 1896 og bjuggu þar til dauða-
dags. Þau hjónin eignuðust 6
böm, 5 stúlkur og einn dreng,
sem dó um fermingu. Sigurður á
Bakka var hinn merkasti maður.
Hann hafði ekki gengið í neinn
opinberan skóla, en var þó mjög
vel að sér. Hann var framámað-
Gunnar Eyjólfsson leikur aðalhlutverkið í Andorra.
Andorra út á land
ÞAÐ HEFUR VERIÐ venja hjá
Þjóðleikhúsinu allt frá stofnun
þess að senda einhverja af beztu
sýningum hvers leikárs í leik-
för út á land. Margir leikhús-
gestir úti á landi munu minnast
með mikilli ánægju sýninga eins
og t. d. Tópaz, Horft af brúnni
og Horfðu reiður um öxl, svo
eitthvað sé nefnt.
Þjóðleikhúsið sendir að þessu
sinni leikritið Andorra í leikför
út á land. Þessi leiksýning hlaut
beztu leikdómana af öllum leik-
sýningum Þjóðleikhússins á
þessu leikári og er talin ein sú
bezt heppnaða og vandaðasta,
sem leikhúsið hefur sýnt frá
upphafi. Gunnar Eyjólfsson leik
ur aðalhlutverkið og hlaut hann
silfurlampann fyrir frábæra
túlkun á þessu vandasama hlut-
verki og einnig fyrir, Pétur
Gaut.
Andorra er nútímaleikrit og
fjallar um vandamál, sem öllum
hugsandi mönnum liggur mjög
á hjarta.
Lagt verður af stað til Norð-
urlands þann 18. júní n.k. og
sýnt þann dag á Sauðárkróki,
(Framh. á bls. 7)
ur í sveitinni, hreppsnefndarodd-
viti um skeið og sýslunefndar-
maður. Hann hafði og afskipti af
stjórnmálum, skrifaði greinar
um þau í blöð og eitt sinn bauð
hann sig fram á þing, en náði
ekki kosningu. Góður og dug-
mikill bóndi var hann og varð
vel efnaður, eftir þeirra tíma
mælikvarða. María móðir Stein-
unnar var dótturdóttir Stefáns
Jónssonar alþingismanns á
Steinsstöðum og erfingi hans að
einum þriðja hluta. Hún var á-
gæt kona, góðum hæfileikum bú-
in og hafði fengið meiri mennt-
un heldur en þá var títt um kon-
ur, skörungur bæði í framgöngu
og bústjórn og hin mesta rausn-
arkona. Steinunn sál. var mjög
lík henni í sjón og einnig að
mannkostum.
Steinunn í Skógum var fædd
3. júlí 1895 að Steinsstöðum í
Oxnadal, en fluttist með fcreldr-
um sínum að Bakka tæplega árs-
gömul. Þar ólst hún síðan upp
þar til hún missti foreldra sína,
en það varð fyrr en nokkurn
varði. Bakkaheimilið stóð í mikl-
um blóma á meðan foreldra
Steinunnar naut við. En ung var
hún þegar að syrti. Sigurður fað-
ir hennar sat sýslufund Eyja-
fjarðarsýslu á útmánuðum 1905.
Hann kom veikur heim af þeim
fundi og lá lengst af eftir það.
Kom fljótlega í ljós, að hann
' hafði lungnaberkla. Sú veiki var
þá að breiðast út í sveitinni og
lagði marga í gröfina. Svo var
það þetta sama vor, að María
móðir Steinunnar lagðist í
lungnabólgu og andaðist eftir
fáa daga. Menn geta hugsað sér
ástæður þessa heimilis, þegar
húsfreyjan var horfin og hús-
bóndinn beið dauðans helsjúkur.
Sú barátta stóð nærri 2 ár. Sig-
urður andaðist vorið 1907. Arni,
eini bróðir Steinunnar, andaðist
svo þetta haust, einnig úr berkl-
um. Búinu var haldið saman eitt
ár eftir lát Sigurðar. En vorið
1908 fóru þær systur allar til
móðurbróður síns, Stefáns Árna-
sonar á Steinsstöðum. Þar voru
þær þó aðeins eitt ár og fóru þá
sín í hverja áttina. Steinunn fór
að Skriðu í Hörgárdal.
Ég efast ekki um að hin mikla
sorg og sára reynsla, sem þær
Bakkasystur urðu fyrir svo að
segja á barnsaldri, hefur mótað
þær á ýmsan veg til frambúðar.
Sjálfsagt líka eflt þroska þeirra.
Eftir að Steinunn fór burt úr
heimasveit minni, vissi ég lítið
um hana í allmörg ár. Hún mun
hafa átt heima hér á Akureyri
um tíma. Gengið síðan í Ljós-
mæðraskólann í Reykjavík og
gerst að námi loknu ljósmóðir í
Hálshreppi í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Þar giftist hún 16. júlí
1917 Indriða Þorsteinssyni frá
Lundi, hinum mætasta manni.
Þau hjónin bjuggu allmörg ár á
Birningsstöðum í Ljósavatns-
skarði og eitthvað á öðrum bæj-
um í grenndinni. En árið 1933
fluttu þau að Skógum í Fnjóska-
Steinunn Sigurðardóttir.
dal og áttu þar heima til ævi-
loka. Þau hjónin eignuðust 6
börn, 3 syni og 3 dætur. Ein
dóttirin er látin, en hin lifa og er
Þorsteinn sonur þeirra nú bóndi
í Skógum. Indriði andaðist árið
1961.
Það var fyrst eftir að Stein-
unn kom að Skógum að ég fór
aftur að kynnast henni að ráði.
Sem kunnugt er eru Skógar í
þjóðbraut, enda var þar gesta-
gangur mikill cg er sjálfsagt enn.
Við hjónin komum þar á hverju
ári og jafnvel oft á ári. Stundum
dvöldum við þar yfir helgar á
sumrin. Hvernig sem á stóð og
hvað oft sem við komum tók
Steinunn okkur ágæta vel, svo
að betra varð ekki á kosið. Sama
er og að segja um mann hennar.
Ég var að vísu gamall kennari
Steinunnar og kona mín æsku-
vinkona hennar. Okunnugir gætu
því ef til vill haldið, að hinar
góðu viðtökur og öll sú gestrisni
sem við mættum í Skógum hafi
verið af þeim sökum. En oft
þegar ég var staddur þar, sá ég
að þar var stöðugur straumur
gesta og ég sá að allir sem að
garði bar fengu hinar beztu við-
tökur. Gestrisni var þeim Skóga-
hjónunum áreiðanlega í blóð
borin.
Fyrir skömmu var ég spurður,
hvað ég áliti að hefði einkennt
Steinunni í Skógum mest. Ég
svaraði íórnailund og ég get bætt
við skyldurækni. Mér finnst hún
hafa verið ein hin bezta kona,
sem ég hef þekkt. Hún hugsaði
lítið um sjálfa sig, sjálfsagt of
lítið, en því meira um annarra
velferð.
Steinunn gekk ekki heil til
skógar mörg hin síðari ár. Hún
þjáðist af' erfiðum sjúkdómi og
gat lítið sem ekki hreyft sig síð-
ustu árin. En hún kvartaði ekki
og gekk að verkum sínum á með-
an mögulegt var. T. d. hafði hún
símavörzluna við Landssímastöð-
ina í Skógum á hendi til hins
síðasta og var það oft mikið
starf og þreytandi. Að lokum var
hún flutt svo að segja beint frá
símaborðinu á sjúkrahúsið, þar
sem hún svo andaðist daginn
eftir.
Steinunn í Skógum verður lögð
til hinztu hvíldar á morgun, mið-
vikudag 5. þ. m. — Við hjónin
kveðjum hana með þökk fyrir
öll kynni okkar af henni, sem
voru með ágætum. Börnum henn-
ar, systrum og öðrum ástvinum
sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðju.
Akureyri, 4. júní 1963.
BernharS Stefánsson.
GÍSLI GUÐMUNDSSON,
alþingismaður:
1 EKIÐ í ÓKUHNA
■ ■
; \ IQND j
Áð berjast við
ÞEIR, sem lesa blöðin, er flokk-
ar núverandi ríkisstjórnar hafa
á sínum snærum, hljóta að hafa
veitt því athygli að engu er lík-
ara en að Framsóknarflokkur-
inn sé eini andstöðuflokkur nú-
verandi stjórnarstefnu, viðreisn
arstefnunnar svonefndu, sem sé
þess verðugur að um hann sé
ritað og rætt. Vissulega er það
rétt, að blöð og fulltrúar Fram-
sóknarflokksins hafa sorfið fast-
ast að núverandi stjómarstefnu
eða svo fast, að nú er aðalmál-
gagn stefnunnar, Morgunblaðið,
í hverju málinu eftir annað á
undanhaldi.
Alþýðubandalagsblöndungur-
inn er „stikkfrí“ í þessum um-
ræðum, eða svo lítið er að hon-
um vegið; að það vekur athygli
um land allt.
Þeir, sem fylgzt hafa með
stjórnmálum um áratuga skeið,
gera sér fulla grein fyrir upp-
gjöf og undanhaldi stjórnarblað
anna. Þeir skilja, að stjórnar-
stefnan, sem nefnd hefur verið
viðreisnarstefna, hefur engu á-
orkað til viðreisnar íslenzku
þjóðlífi, heldur hið gagnstæða.
Góðærin, sem gengið hafa yfir
íslenzkt þjóðlíf í tíð núverandi
stjórnarflokka, hafa bjargað við
reisnarstefnunni frá algjöru
hruni.
Stjórnarblöðin hafa lagt við
það mikla rækt að lofa viðreisn-
arstefnuna og birt með feitasta
letri ýmsar háar tölur, sem lands
lýðnum er sagt að hafi myndazt
vegna hinnar gjörhugsuðu við-
reisnarstefnu. Hinsvegar hefur
oftast verið sagt frá góðærinu
með liílu letri, og venjulega
bætt við þær frásagnir, að fyrst
og fremst sé það viðreisnarstefn
unni að þakka, að þetta hafi nú
gengið svona. Þessar frásagnir
hafa verið marg birtar í því
trausti, að því oftar sem ósann-
indin væru sögð, því meiri líkur
væri fyrir að þeim yrði trúað.
Hvað ætli sé til dæmis oft búið
að segja sparifjáreigendum, að
hinir háu vextir viðreisnarstefn-
unnar, hafi verið lögboðnir til
að bæta hag þeirra, en minna
skýrt frá hinu, hversu sama
stefna var búin að verðrýra
gildi krónunnar með tveimur
gengisfellingum. Má í því sam-
bandi benda á, að hús, sem voru
byggð hér á Akureyri síðasta ár-
ið sem vinstri stjómin fór með
völd í landinu og kostuðu rúml.
300 þús. krónur, ganga nú kaup-
um og sölum fyrir rxíml. 600
þúsund krónur. Hvort skyldi
hafa verið heppilegra fyrir spari
fjáreigandann að leggja peninga
sína í fasteignakaup, eða féla
viðreisnarstefnunni forsjá
þeirra. Það þarf ekki að vera
glöggur reikningsmaður til að
geta reiknað þetta dæmi.
Þessi iðja blaða stjómarflokk
anna hefur algjörlega verið unn
in fyrir gýg. Viðreisnarstefnan
hefur í framkvæmdinni orðið
hrein skrípamynd af mörgu því
sem lofað var fyrir kosningar
1959. Nægir í því sambandi að
benda á loforðin um stöðugt og
óbreytt verðlag lífsnauðsynja
fólksins, 12 mílna óbreytta land-
skuggann sinn
helgi, hlutleysi ríkisvaldsins um
samninga afvinnustéttanna um
launamál sín, og' margt fleira,
sem of langt yrði hér upp að
telja. Það er skugginn sem á
stjórnina fellur í sambandi við
svik þessara og margra fleiri
mála, sem stjórnarblöðin og full
trúar hennar eru að berjast við.
Það hefur ávallt þótt erfitt
verk að berjast við skuggann
sinn. Svo mun einnig reynast
baráttumönnum viðreisnarstefn-
unnar.
Þjóðin þekkir þessa menn af
verkum þeirra, og hún veit einn
ig um tilburði þeirra og þjóð-
■hættulegt flan í málum er varða
sjálfstæði okkar litlu þjóðar um
ókomna tíma.
Þessvegna mun þjóðin í þess-
um kosningum lofa baráttu-
mönnum viðreisnarstefnunnar
að berjast súrum svita við sína
eigin skugga. Slík barátta hefur
aldrei þótt sigurstrangleg, og
svo mun enn reynast, er alþing-
iskosningum þeim, er nú standa
fyrir dyrum, lýkur að kvöldi 9.
júní n. k.
Þá verður fáni viðreisnarinn-
ar dreginn niður og ber að vona,
að hann sjáist aldrei framar. Þ.
Barnaskólaiiura slitið
Árskógshreppi 14. maí.
Barnaskólanum hér var slitið
um síðustu mánaðamót og vor-
skóla fyrir yngstu deild er nú
að ljúka. Skólaskyld börn eru
um 50. Fullnaðarprófi luku 7 en
13 koma ný, svo heldur er um
fjölgun að ræða. Unglingaskóli
starfaði hér í 12 vikur og voru
nemendur 12.
Frá áramótum var auk bók-
legra greina kennd handavinna
og leikfimi og einnig dans.
Fylgdi þessu aukið líf og starf.
Sýning var haldin á handavinnu
skólabarna, sem var fjölbreytt
og myndarleg.
Opinbera skemmtun héldu
börnin til ágóða fyrir ferðasjóð,
með góðum árangri. Þar sýndu
þau leikþætti, íþróttir og dans.
Lásu upp bundið og óbundið
mál og sungu með gítar-undir-
leik. Mikið undirbúningsstarf lá
hér að baki, sem er þroskandi
og eykur öryggi barnanna.
Kennarar síðastliðinn vetur
voru frú Helga Eiðsdóttir frá
Þóroddsstað í Kinn, sem var
einnig skólastjóri, og Höskuld-
ur Stefánsson bóndi í S.-Haga.
Stundakennari var Matthías
Gestsson sem fyrst og fremst
kenndi íþróttir og handavinnu.
Auk kennslunnar við barna-
skólann hér héldu þau hjónin,
Helga og Matthías, námskeið í
föndri fyrir fullorðið fólk hér í
sveit og í Svarfaðardal og Arn-
arneshreppi. Ennfremur kenndu
þau hér dans, bæði börnum og
fullorðnum. Þessari nýbreytni
var vel tekið, enda fylgdi henni
líf og starf. K.
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
Niðurlag.
Ég hef minnzt á Framsóknar-
flokkinn í sambandi við þetta
mál og fleiri hér að framan. Það
er ekki af því, að fyrir mér
hafi vakað að hefja hér uppgjör
milli landsmálaflokka eða deila
á stjórnmálaandstæðinga vegna
kosningabaráttunnar, sem nú
stendur yfir, heldur vegna þess,
að naumast er hægt að ræða
þessi mál án þess að Framsókn-
arflokkurinn komi þar við sögu.
Ég veit ekki, hvort vinur minn
„Austri“ hefur fylgt Sjálfstæðis-
flokknum eins og blaðið, sem
Ijær honum rúm. Vera má, að
hann sé einn þeirra sem fengið
hafa ótrú á flokkabaráttunni
eins og sumu jafnvægistalinu, af
því að honum hafi stundum
fundizt meira lagt í orðaskak
en athafnir. En ég vil gjarnan
segja við hann nokkur orð um
Framsóknarflokkinn.
Félög þau og félagasamtök,
er stcfnuð hafa verið hér á landi
síðan íslendingar byrjuðu að
verða frjáls þjóð á öldinni sem
leið, eru mörg og margvísleg,
þar á meðal stjórnmálaflokkar.
Flest stefna þau að emhverju
markmiði og með einliverjum
árangri, en dómar einstaklinga
eða almennings um þau eru eins
og gerisí og gengur og skal ekki
um það nánar rætt.
Það er mín skoðun, og þess-
vegna hefi ég verið í Framsókn-
arflokknum fram á þennan dag,
að flokkur sá sé áhrifamesía
menningar- og framfarafélag,
sem um þessar mundir er starf-
andi að almenningsheill hér á
landi á þjóðlegum grundvelli.
Hann er á sínum tínia upp-
runninn hér á Norðurlandi og
mótaður af viðhorfum norð-
lenzkra brautryðjenda félags- og
landnámshyggju. Hér á Akur-
eyri, á námsárúm mínum fyrir
rúml. 40 árum, kýnntíst ég
stefnu hans eins og hún var þá
boðuð hér, og ég tel, að sú stefna
hafi aldrei átt meira erindi til
þjóðarinnar en cinmitt nú, þegar
tilvera landsbyggðarinnar er í
nýrri og yfirvofandi hættu á ör-
lagatimum. Ef landsbyggðinni
blæðir út, er sjálfstæði og þjóð-
emi hætt. Ég lít svo á að gifta
landsbyggðarinnar og ekki sízt
Norðurlands, sem bezt hefir skil
yrði til að hafa þar forystu, sé
að líkindum að miklu leyti und-
ir því komið, að henni takist að
efla Framsóknarflokkinn til
nýrra átaka, gera hann að þeirri
brjóstvöm og því sóknarvopni,
sem dugir. Til þess þurfa marg-
ir, sem fyrir örlaganna rás hafa
tekið sér stöðu annarsstaðar um
stund, og aðrir, sem álengdar
standa, að ganga í þá sveit, veita
henni kraft á hverjum tíma og
vera með í að móta stefnu henn-
ar.
Hér nærlendis starfa þau sam-
tök í anda þessarar stefnu er
nefnast „Félagasamband Fram-
sóknarmanna í Norðurlandskjör
dæmi eystra“ og voru stofnuð á
sambandsþingi Framsóknarfé-
laga á Laugum árið 1960, en
sambandsþing er haldið ár
hvert. í sambandinu eru nú
þessi félög:
Framsóknarfélög Norður-Þing-
eyinga (2).
Framsóknarfélag Húsvíkinga.
Framsóknaríélag Suður-Þingey-
inga.
Framsóknarfélag Akureyringa.
Framsóknarfélag Eyfirðinga.
Framsóknaríélag Ólafsfirðinga.
Félag ungra Framsóknarmanna
á Akureyri.
I fyrstu grein sambandslaga
okkar segir svo:
„Hlutverk sambandsins er að
styðja stefnu Framsóknarflokks-
ins í landsmálum og vinna að
því að efla byggð, atvinnulíf og
menningu í kjördæminu.“
Félög og félagasamband okkar
Framsóknarmanna hér eru öll-
um opin, sem fallast á megin-
stefnu flokksins og sambands-
ins og ekki vinna gegn Iienni
með þátttöku í öðrum stjóm-
málaflokkum eða á annan hátt.
Þáttíöku í félagsskapnum fylgir
að sjálfsögðu réttur og aðstaða
til að hafa áhrif á stefnu sam-
bandsins og vmnubrögð, en þá
einnig tilsvarandi skyldur svo
sem gerist um félagsskap í þessu
landi. En um þátttöku eða inn-
ritun í þessi samtök eru að sjálf
sögðu engar kröfur gerðar. Slíkt
á að vera frjálst og af fúsum
vilja gert. Síuðningur þeirra, er
fremur vilja verða stefnunni að
liði, á annan hátt, gerir sitt gagn
og er að verðleikum jnetinn.
Og þannig vonum við líka að
þeir, sem utan við stjórnmála-
ílokkana standa, reyni að meta
það, sem sagt er og gert, hyaðan
sem það kemur — og leyfi því
mati að ráða gerðum sínum. f
hverja þá hönd, sem okkur
Framsóknarmönnum er rétt af
heilum hug til stuðnings áhuga-
málum okkar, viljum við taka.
KAPPSIGLING Á DAL-
VÍK Á SJÓMANNA-
DAGINN
Dalvík 4. júní. Hér var 22 stiga
hiti á sjómannadaginn og stilli-
logn. Farið var í kappsiglingu
á bátaflotanum að aflokinni
guðsþjónustu í kirkjunni. Síðar
um daginn var samkoma í sam-
komxihúsi staðarins. Þar flutti
ræðu Ágúst Sigurðsson cand.
theol. Uti fóru fram íþróttir,
bæði knattspyrna, þar sem land-
menn og sjómenn kepptu og
söngur Karlakórs Dalvíkur var
einn liður dagskrárinnar og ekki
sá lakasti. , Q