Dagur - 05.06.1963, Blaðsíða 7
f
Óþarff neyðarkall Magnúsar
(Framhald af blaðsíðu 8)
að lögum. Landkjörnir þingmenn
hafa á Alþingi allan sama rétt og
kjördæmakjörnir þingmenn. —
Menn úr þeirra hópi hafa orðið
alþingisforsetar og ráðherrar,
sbr. Þorstein Þorsteinsson, Guð-
mund I. Guðmundsson, Hanni-
bal Valdimarsson, Friðjón Skarp-
héðinsson o. m. fl.
Það kemur vissulega úr hörð-
ustu átt frá fulltrúum þeirra
flokka, sem á sínum tíma stóðu
að því, að lögfesta uppbótarsæt-
in í stjórnarskránni og töldu það
þjóðarnauðsyn, ef þeir ætla nú
að fara að halda því fram, að
það sé persónulegt vantraust á
einn eða annan að tryggja hon-
um slík-t þingsæti.
Ef Magnús Jónsson hlýtur
ekki það þingsæti, sem hann nú
hefur, sem kjördæmiskosinn
þingmaður hér, er það ekki aðal-
ástæðan, að kjósendum hér sé
sérstaklega áfram um að láta í
ljós vantraust á honum persónu-
lega, heldur hitt, að hann hefur
skipað sér í stjórnmálaflokk,
sem mörgum þykir hafa reynzt
þannig, að þeir vilja draga úr á-
hrifum þess flokks á Alþingi. Ef
Magnús fellur í kjördæminu,
fellur hann á verkum Sjálfstæð-
isflokksins og núverandi ríkis-
stjórnar, fyrst og fremst og af því
að hann verður að bera ábyrgð
á þeim að sínum hluta. Sjálfur
er M. J. af mörgum vel metinn
vegna starfhæfni og lipur-
mennsku, og.sjálfsagt vilja marg-
ir fremur fá hann, sem uppbótar-
mann inn á Alþingi en einhvern
annan úr hans flokki. Trúlega
færi það nú einmitt þannig, ef
M. J. félli hér, að þá tæki hann
uppbótarsæti, sem ella félli í
hlut Sjólfstæðismanns, sem gæti
reynst Norðurlandi óþarfur á Al-
þingi.
Hitt verður samt að segja
hreinskilnislega, þótt ýmislegt sé
vel um M. J. persónulega, að
sumt af því, sem hann lét fram
koma í útvarpinu, sem sína
skoðun, hlýtur að hafa fallið
mörgum illa í geð hér um slóðir.
Var það og auðheyrt á ræðum
hans, að hann er orðinn mjög
nátengdur forystuliði Sjálfstæð-
isflokksins x Reykjavík, svo og
málflutningi þess og hinna stóru
flokksblaða þar, Morgunblaðsins
og Visis.
Mál það, sem hér er um að
ræða, skýrist nú betur og betur
með degi hverjum. Það er ótví-
ræður ávinningur fyrir þetta
kjördæmi, að fá mann eins og
Hjört E. Þórarinsson kosinn á
þing, ungan, vaskan og áhuga-
saman, búsettan í kjördæminu,
háskólamenntaðan mann, sem
jafnframt er ötull og farsæll
bóndi á föðurleifð sinni, mann,
sem hefur unnið hörðum hönd-
um fyrir sér og sínum og að um-
bótum á jörð sinni og er því
raunverulega eini „verkamaður-
inn“, sem hér hefur líkur fyrir
þingsæti. Hins vegar mundi fall
Magnúsar Jónssonar, ef til kæmi,
ekki hafa í för með sér brottför
hans af Alþingi, en hann kæmi
þar sennilega sem uppbótarmað-
ur í stað annars Sjálfstæðis-
manns úr öðrum landshluta. Það
út af fyrir sig gætu verið góð
skipti fyrir Norðurland, og hér
gæti þá verið um tvöfaldan á-
vinning að ræða.
Um Bjartmar Guðmundsson
þarf ekki að ræða í þessu sam-
bandi. Áhugi fyrir þingsetu hans
er varla mikill hér um slóðir,
eins og sakir standa. Sæti hans á
D-listanum hefur fengið og fær
það lága atkvæðatölu, að það er
í raun og veru hreint happdrætti,
hvort hann getur komið til greina
sem uppbótarmaður, þótt Magn-
ús yrði kjörinn hér og raunar
fremur ólíklegt, þótt tilviljun
réði því, að svo fór haustið 1959.
Bílsjórabeltin eru góð
ÞA-Ð er stutt síðan farið var að
tala um svokölluð bílstjórabelti
og nú fást þau hér í bænum. Þau
eru úr sterku leðri, mjög bi-eið
og þykja, að því er blaðið hefur
fregnað, draga úr þreytu þeirri í
baki, sem þjakar marga bifreiða-
og jarðýtustjóra.
Belti þessi framleiðir ungur
maður í Ljósavatnsskarði, Bald-
ur Bragason í Birkihlíð, og fást
þau í Véla- og búsáhaldadeild
KEA á Akureyri og einnig í búð-
um nágrannakaupfélaga. □
- Andorra út á land
(Framhald af blaðsíðu 4).
þá verður farið til Ólafsfjarðar.
Þaðan er haldið til Akureyrar
og sýnt þar 20,. og 21. júní. Síð-
an verður fáfiþ, áfram til norð-
urs og svo ti'l Austfjarðanna og
sýnt í hinum nýju og glæsilegu
félagsheimilum á Austfjörðum.
Aðalleikarar, auk Gunnars,
eru: Valur Gíslason, Kristbjörg
Kjeld, Lárus Pálsson, Ævar
Kvaran og Róbert Arnfinnsson.
Leikstjóri er Walter Firner frá
Vínarborg, en fararstjóri er Kle
menz Jónsson. Leikurinn hefur
verið sýndur 20 sinnum í
Reykjavík við ágæta aðsókn.
Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndíu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
KRISTJÁNS ÁSMHNÐSSONAR frá Stöng.
Sérstakar þakkir til Iækna og hjúkrunarliðs Lyf-
Iæknisdeíldar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyr-
ir ágæta lijúkrun í veikindum hans.
Lára Sigurðardóttir, börn, tengdabörn
barnabörn.
MALFLUTNINGI
FRAMSÖKNAR-
MANNA BEZT TEKIÐ
Blönduósi 4. júní. Blanda byltist
fram, kolmórauð og tryllt. Fyrir
þessa vatnavexti var byrjað að
renna fyrir lax. Veiðileyfið er
ekki nema 100 krónur á dag fyr-
ir stöngina og þykir ódýrt, mið-
að við aðrar laxár í nágrenninu.
Sauðburðurinn gekk vel þrátt
fyrir óhagstæða veðráttu framan
af.
Framboðsfundum er lokið.
Þeir voru sameiginlegir og all-
vel sóttir. Stærstu fundirnir
vöru á Blönduósi, Skagaströnd
og Hvammstanga. Máli Fram-
sóknarmanna var greinilega
bezt tekið á þessum fundum og
Virðist árangur kosningabarátt-
unnar verða hagstæður fyrir
Framsóknarmenn. Q
FRÁ U.M.S.E. Skógræktarkvöld
sambandsins er n.k. föstudag,
7. júní kl. 8.30 e. h. Skorað er
á sem flesta félaga að mæta.
Gróðursett verður að Miðhóls
stöðum í Öxnadal. — Stjórnin.
ÞINGEYINGAFÉLAGÍÐ á Ak-
ureyri fer skemmtiferð í
Vatnsdal sunnud. 16. þ. m. —
Þátttaka tilkynnist ferðanefnd
eða formanni félagsins fyrir
12. þ. m. í ferðanefnd eru:
Ármann Þorgrímsson sími
1190, Þoi-björg Fnnbogadóttir
sími 1199, Sigurveig Einars-
dóttir sími 2145, Skarphéðinn
Guðnason sími 2078, Jón G.
Pálsson 2583 og 2258, Páll Ól-
afsson og Hermann Vilhjálms-
son sími 1821, Marteinn Sig-
urðsson sími 1747, sem gefa
allar nánari upplýsingar um
ferðina.
ÞEIR MÓTUÐU STEFNUNA
LANDBÚNAÐARNEFNDIN,
sem á flokksþinginu í vor gerði
tillögur til þingsins um stefnu
flokksins í landbúnaðarmálum,
var eins og áður var sagt hér í
blaðinu skipuð 40 mönnum, og
fara nöfn þeirra hér á eftir:
Ásgeir Bjarnason, alþm., Ás-
garði (formaður), Gunnar Guð-
bjartsson, bóndi á Hjarðarfelli
(framsögumaður), Ágúst Þor-
valdsson, alþm., Brúnastöðum,
Aðalsteinn Guðmundsson Lauga
bóli, Ágúst Jónsson Sigluvík,
Arnaldur Þór Blómvangi, Egg-
ert Ólafsson Laxárdal, Elías Þór
arinsson Starmýri, Guðbrandur
Magnússon Álftá, Engilbert
Hannesson Bakka, Guðbrandur
Guðbrandss. Dalsmynni, Gunn-
ar Eiríksson Karlsstöðum, Gunn
ar Jónatansson Stykkishólmi,
Gunnar Þórðarson frá Grænu-
mýrartungu, Halldór Pálsson
búnaðarmálastjóri, Haraldur
Kristjánsson Sauðafelli, Haukur
Jörundarson fv. búnaðarskóla-
kennari, Hinrik ívarsson Merki-
nesi, Ingimundur Ásgeirsson
Hæli, Ingimundur Ingimundar-
son Svanshóli, Jóhannes Davíðs-
san.-Hjarðai'dal, Jóhannes Stef-
'•ánsson'Kleifum, Jónas Jónsson
Hvanneyri, Jón Gíslason (fv. al-
Fríður hópur í Hrísey
Hrísey 4. júní. Hríseyingar eru
um 300 talsins. En í dag er næst
um helmingi fleira fólk í eynni.
Hingað eru komin fermingai'-
börn frá mörgum stöðum hér í
nágrenni á fermingarmót, sem
að þessu sinni er haldið í Hrís-
ey. Leiðsögumenn þessa mikla
og fi'íða hóps eru þeir séra Birg
ir Snæbjörnssort og Hermann
Sigtryggsson. Bátar og skip
fluttu ungmenni þessi hingað úr
Öllum áttum.
Sjómannadagurinn var hinn
skemmtilegasti og að því leyti
sérstæður, að mikill hluti íbú-
anna fór í sjóferð á heimabát-
unum kring um eyjuna í hinu
mesta blíðskaparveðri. Þótti
þetta hin ágætasta skemmtun.
Síðar um daginn voru íþróttir
og dansleikur um kvöldið. Q
þingism.) Norðurhjáleigu, Jón
Ólafsson Laugardælum, Jón
Jónsson Hofi, Kristján Karlsson
erindreki Stéttarsamb. bænda,
Lárus Sigui'ðss. Tindum, Magn-
ús Kristjánsson Norðtungu, Páll
Metúsalemsson Refstað, Sigfús
Þorsteinsson Blönduósi, Sigur-
jón Pálsson Galtalæk, Sighvatur
Davíðsson Brekku, Sigurbjörn
Snjólfsson Gilsárteigi, Sverrir
Gíslason Hvammi, Tobías Sigur-
jónsson Geldingaholti, Tómas
Sigurgeirsson Reykhólum, Þór-
arinn Eldjárn Tjörn, Þrándur
Indriðason Aðalbóli og Þórarinn
Sigurjónsson Laugardaelum.
Félagsheimilið fær
stórgjöf
Þórshöfn 4. júní. í gær var sjó-
mannadagsins minnzt á Þórs-
höfn. Hópsigling hófst kl. 1,
guðsþjónusta kl. 2, síðan reiptog
og knattspyrna, þá ávarp,
skemmtiþáttur og kvikmynda-
sýning. Dansað var á eftir. All-
ur ágóði rann í Sjóslysasöfnun-
ina.
Kaupfélag Langnesinga gaf,
árið 1962, -eða menningarsjóður
þess, sjúkrahúsinu hérna súr-
efnistæki og nú gaf sami aðili
félagsheimilinu breiðtjald og
Cinema Cope-linsu. Eru þetta
hinar beztu gjafir. — Aðalbjöm.
VATNAVEXTIR
HITABYLGJA gekk yfir á hvíta
sunnu og komst hitinn upp í 25
stig á annan hvítasunnudag. Þá
var snarpur sunnanvindur, asa-
hláka til fjallar, ár og lækir í for-
áttuvexti og framburður þeirra
litaði sjóinn langt út frá ósum.
Þennaw heita dag horfði fólk á
grasið Vaxa — tré og runna
laufgast. Q
STÚLKA óskast með hjónaband
fyrir augum. Húsnæði og öll
þægindi. Uppl. í Aðalstræti
74, Akureyri.
DREGIÐ var í innanfélagshapp-
dx-ætti Kristniboðsfél. kvenna,
Akureyri, 3. júní. Upp komu
þessi númer. Veggmynd no.
180. Baðvog no. 239. Peysa no.
116, Púði no. 214.
Skjálfandafljót í ofsa-
legum vexti
Ófeigsstöðum 4. júní. Skjálfanda
fljót er óskaplega mikið í dag
og rennur víða yfir bakka sína.
Er farið að óttast um fé, þar sem
flóðið gengur lengst upp á lág-
lendið.
Hér hefur tvílembum verið
gefið allt til þessa, bæði matur
og hey. En nú mun því vei'ða
hætt og treyst á úthagann. í gær
sást mikil framför á gi'óðri og
t. d. sprakk viðurinn út vegna
hitans.
Fermingar eru nú hér um slóð
ir. Mikið annríki er á bæjuffi.
Byi-jað er að bera tilbúna áburð-
inn á tún. Atkvæði berast nú ut
an af landi. Framboðsfundum
öllum er lokið og bíða menn eft-
ir úrslitunum, jafnframt því að
leggja þeim málstað lið, sem þeir
telja réttastan. Q
Eldur laus við Gef juu
FYRIR HELGINA kviknaði í
rusli milli ketilshúss Gefjunar á
Gleráreyrum á Akureyri og
skúrbyggingar. Skúrbyggingin
brann og tjón varð á varahlut-
um og efnisvörum af vatni og
reyk. Slökkviliðið réði niðurlög
um eldsins áður en verri tíðindi
leggja þeim málstað lið, sem
þeir telja réttastan. Q
Stuðningsmenn
Framsóknarfl.
eru góðfúslega minntir á söfn
unina í kosningasjóð. Skrif-
stofan er í Hafnarstræti 95
(Goðafoss). Símar 1443 og
2962. Q
NÝORPIN EGG
daglega til söhi í símaaf-
greiðslu Hótel Akureyrar.
Verð kr. 45.00 pr. kg.
Fastir kaupendur fá egg-
in send heim einu sinni
í viku.
Hringið í síma 2525 og
gerist fastir kaupendur.
ALIFIJGLABÚIÐ
ÖVERGBÓLL
TVÆR STULKUR
vanar matreiðslu og eldhússtörfum vantað að Hótel
Hveragerði í sumar. Hátt kaup. Upplýsingar í síma
28S6, Akureyri, eða hjá hóta’.lstjóranum sjáifum, sími
31, Hveragerði.