Dagur - 08.06.1963, Blaðsíða 4

Dagur - 08.06.1963, Blaðsíða 4
4 « Dagur m Kjördags- hugleiðiiig Á MORGUN, sunnudag, 9. júní, fara al- þingiskosningamar fram um land allt. Útlit er fyrir gott veður á kjördaginn og getur það þó enn rætzt, sem máltækið segir, að á skammri stund skipist veður í lofti. Ef góða veðrið helzt, hefur for- sjónin þar með komið í veg fyrir, að stjómarákvörðunin um kjördag hindri kjörsókn. Kosningabaráttunni er að ljúka. Það hefur komið betur og betur í ljós, eftir því sem á hana leið, að í þessum kosning- um er um að ræða, fyrst og fremst, átök og einvígi milli stærstu flokkanna, Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Verkamenn og annað launafólk í landinu er orðið dauðleitt á togstreitunni milli kommúnista og Alþýðuflokksmanna og sundrungunni, sem sú togstreita hefur haft í för með sér„íhaldinu“ til framdrátt ar. Þetta fólk fylkir sér því í vaxandi mæli um Framsóknarflokkinn. Alþýðu- flokkurinn, eða það, senr eftir er af hon- um, leitar nú skjóls hjá sínum foma „fjanda“ og felur honum allt sitt ráð, en Alþýðubandalagið, undir stjóm komm únista reynir enn að telja sér og öðrum trú um, að það geti það, sem það getur ekki: Að vera forystuflokkur verkalýðs- sinna og vinstri manna í landinu. Hér í kjördæminu vinnur það nú það óþurftar- verk, að reyna — með aðstoð roskins manns, sem á langri lífsleið er að ýmsu góðu kunnur, en oft hefur haft undarlega tilhneigingu til fylgis við sundrungaröíl í stjórnmálum, — að reyta frá Framsókn- arflokknum nokkuð af því fylgi, sem til þess þarf að einn stjómarandstæðingur í viðbót, Hjörtur á Tjörn, nái kosningu hér. Aðal málgagn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem út kom í gær, virðist nú helzt byggja von sína á því, að hægt sé að koma landsmönnum, og þá einkum Reyk- víkingum, til að trúa því, að núverandi stjórnarflokkar hafi verið andvígir höft- um þeim og viðskiptahömlum, sem í gildi voru hér í landi á þrengingartímum í utanríkisviðskiptum, og að Framsóknar- flokkurinn hafi verið einhver sérstakur málsvari þessara ráðstafana, eða sé lík- | legur til að verða það, án þess að nauð- syn beri til. í þessum tilgangi birtir Morg unblaðið gömul bréf og myndir úr skjala- safni fjárhagsráðs, sem starfaði hér á ár- unum 1947—1953, eins og Framsóknar- flokkurinn beri einhverja sérstaka á- byrgð á þeim skjölum. í raun og veru er það Sjálfstæðisflokknum til mikillar minnkunnar og íullkomlega óviðeigandi, að haga þannig málflutningi sínum, þar sem Sjálfstæðismenn vita, eins vel og aðrir, að formaður fjárhagsráðs allan þennan tima var einn af þjóðkunnum leið togum Sjálfstæðisflokksins frá fyrri tíð, Magnús heitinn Jónsson prófessor. Hann á annað betra skilið af þeim fyrir að vinna af trúmennsku hið miður vinsæla trúnaðarstarf, sem honum og öðrum var falið. Af öðrum Sjálfstæðismönnum, sem þarna voru mikils ráðandi, voru dr. Odd- ur Guðjónsson og Sigurður Sigurz, sem var árum saman formaður viðskiptanefnd ar, en hún var undirdeild í fjárhagsráði. En viðskiptamálaráðherra var þá um ára- bil Emil Jónsson, formaður Alþýðufl. □ Iðnaðar- og raforkumálasfefna Fram- sóknarflokksins STEFNA Framsóknarflokksins í efnahags- og atvinnumálum er byggð á þeirri staðföstu trú á landi og þjóð, að takast megi á komandi árum að skapa hér lífs- kjör, sem séu sambærileg við það, sem bezt gerist í nágrannalönd- um okkar. Til þess að markinu verði náð, er nauðsvnlegt að móta framsýna stefnu um uppbyggingu atvinnu- veganna og allra undirstöðuatriða þeirra. Jafnframt er nauðsynlegt að skapa sem víðtækasta samstöðu landsmanna um þá stefnu, sem þannig er mörkuð. Efla þarf trú þióðarinnar á kosti landsins, sem auðveldlega geta orðið grundvöll- ur viðunandi lífskjara, og sanna verður, að við íslendingar getum staðið sjálfstæðir, en þurfum ekki að leita á náðir stórvelda eða stór- veldasamsteypu. Flokkurinn mun beita sér fyrir skipulagðri uppbyggingu iðnaðar- ins m. a. með raunhæfri fram- kvæmdaáætlun, þar sem leitast er við að hafa áhrif til örvunar á vöxt þjóðarframleiðslunnar og bætt lífskjör. Flokkurinn fordæm- ir það fálm og ráðaleysi, sem lýsir sér í nýútkominni „framkvæmda- áætlun" ríkisstjórnarinnar, . þar sem hvergi er-bent á neinar nýjar atvijinugreinar, sem valdið gætu straumhvörfum og ekki virðist vera gert ráð fyrir byggingu neinna stærri iðnfyrirtækja á næstu 5 árum, eða vottar íyrir minnstu tilraun til þess að efla framleiðni og aðra grundvallar- þætti uppbyggingar atvinnuveg- anna, enda er gert ráð íyrir lægsta vexti þjóðartekna, sem þekkist í nokkru menningarlandi. Sérstak- lega harmar flokkurinn og varar við þeirri vantrú, sem fram- kvæmdaáætlunin ber vott um, á hæfileikum þjóðarinnar til þess að skapa hér mannsæmandi lífs- kjör. Framleiðni, íæknimenntun og raunvísindi. Það er undirstöðuatriði við uppbyggingu atvinnuveganna, að okkur íslendingum takist að fylgjast með á sviði framleiðni, tækni og vísinda, sem segja má að sé að verða mestu ráðandi um hagþróun þjóðanna. Því leggur flokkurinn sérstaka áherzlu á þau atriði, sem hér á eftir verða talin til uppbyggingar atvinnuveganna. Flafizt verði nú þegar handa um að endurskoða allt skólakerfi landsins. Gefa verður unglingum þegar á barnaskólaaldri kost á að kynnast undirstöðuatriðum at- vinnulifsins og raunvísindamennt- unar undir handleiðslu sérfróðra manna. Gjörbreyta verður iðn- námskerfinu í samræmi við stöð- ugt vaxandi þörf þjóðfélagsins fyrir tækni- og verkmenntun, og gæta verður þess, að væntanlegir tækniskólar fullnægi ávallt kröf- um tímans. Leggja ber áherzlu á skipulagn- ingú vinnunnar með það fyrir augum að stuðla að vaxandi fram- leiðni, til kjarabóta fyrir hinar vinnandi stéttir og bættrar af- komu atvinnuveganna. í þeim til- gangi ber að kanna til hlítar vinnuhagræðingu, þar á meðal á- kvæðisvinnu og hlutdeildarfyrir- komulag. Það hefur grundvallarþýðingu fyrir efnahagsþróun landsins, að stefnan á sviði vísinda og tækni sé rétt mörkuð. Nauðsynlegt er að setja á stofn ráðgjafanefnd, sem marki vísindastefnu þjóðar- innar, samræmi vísinda- og tækni- starfsemina og aðstoði við tengsl vísinda og hinnar almennu efna- hagsstefnu. Slík nefnd á að vera skipuð vísindamönnum og full- trúum ríkisvaldsins og atvinnu- lífsins. Leggja ber á það áherzlu, að vísindin séu tekin í þjónustu atvinnuveganna i vaxandi mæli og samband vísindastarfseminnar og atvinnuveganna styrkt, þann- ig að niðurstöður nýtist sem skjótast í atvinnulífi landsins. Kanna þarf fjárþörf vísindastarf- seminnar og hvernig fénu beri að veTja, á hvaða greinar vísinda ber að leggja höfuðáherzlu, skipu- lagningu þeirra og þörf landsins fyrir tæknimenntað fólk. Jafn- framt ber að taka hagvísindin i vaxandi mæli og á skipulagðan hátt í þjónustu uppbyggingarinn- ar. 1 tf Unnið verði að því að sam- ræma verðlag á raforku og fasta- gjöldum um land allt. Leggja ber áherzlu á stærri og hagkvæmari virkjanir til þess að trvggja ódýra raforku til upp- byggingar iðnaðar og fyrir sam- tengt raforkukerfi landsins. Áætlun um rafvæðingu. Tímabili þeirrar tíu ára áætl- unar um rafvæðingu dreifbýlis- ins, sem gerð var fyrir tilstilli Framsóknarflokksins, er að verða lokið. Nauðsynlegt er, að hraða undirbúningi að nýrri áætlun, þar sem áherzla er lögð á að Ijúka rafvæðingu dreifbýlisins á næstu 5 árum (sbr. þingsályktun Fram- sóknarmanna um það efni) og á aukið öryggi raforkukerfisins í heild. Auka þarf öryggi i rekstri rafveitnanna með því að tengja þær saman og ber að stefna að því að tengja landið allt i eitt net sem allra fyrst. Það mun auka stórlega nýtingu vatnsaflsins og bæta úr rafinagnsleysi vegna tímabundins vatnsskorts í hinuni ýmsu héruðum landsins. Raforkan er orðin slík undir- staða nútíma lífsskilyrða, að það getur ráðið úrslitum um byggð á- litlegra sveita, hvort örugg raf- orka er þar fyrir hendi eða ekki. Því ber að leggja áherzlu á að veita raforku frá samveitum um byggðir landsins, og verði í næsta áfanga meðaltals fjarlægðartak- mörk á milli býla stórliækkuð frá því, sem nú er. Sérstök nauðsyn er á, að bú- endur fái sem fyrst úr því skorið, hvort þeir mega vænta raforku frá slíkum samveitum eða verða að afla sér hennar með öðrum hætti. Þeim bæjum, sem ekki þyk- ir kleift að fái raforku frá sam- veitum, verði gert vel viðráðan- legt að koma upp einkarafstöðv- um og reka þær. Bæta þarf úr lánsfjárþörf hinna smærri rafveitna og gera verður viðkomandi sveitarfélögum kleift að eiga þær og reka. Uppbygging iðnaðar. Eíla verður uppbyggingu iðn- aðar eins og rakið verður hér á eftir, m. a. til þess að auka öryggi í þjóðarbúskapnum. Slík upp- bygging þarf að grundvallast á undirstöðuathugunum vísinda og tækni og fræðilegri könnun á þjóðhagslegri arðsemi atvinnu- greina, og á raunhæfri fram- kvæmdaáætlun, sem einnig felur í sér athugun á staðsetningu iðn- fyrirtækja víðs vegar um landið með uppbyggingu iðnaðarmið- stöðva í huga, þar sem slíkt er hagkvæmt og þjóðhagslega æski- legt. Auka verður stórlega fjármagn til uppbyggingar iðnaðarins og er þá meðál annars athugandi, hvort ekki megi gera sérstakar ráðstaf- anir til þess að beina fjármagni almennings í vaxandi mæli í stofnun atvinnufyrirtækja, sér- staklega, þegar lífskjör fara batn- andi með nýjum og raunhæfunv aðgerðum í efnahagsmálum. í þvi sambandi getur einnig komið til greina að leita samstarfs við er- lent fjármagn um uppbyggingu sérstakra iðnfyrirtækja, samkvæmt sérstökum lögum og samningi hverju sinni, enda sé áður lokið endurskoðun laga um takmörkun á réttindum erlends fjármagns á íslandi (sbr. þingsályktunartil- lögu Framsóknarmanna). 1. Fiskiðnaður. Það ætti að vera kappsmál ís- lcndinga að flytja sem mest út af fullunnum sjávarafurðum. Vafa- Jaust er, að stórauka má verðmæti þeirra og ber að fela sérfræðing- um að gera um slíkt heildaráætl- un sem allra fyrst. Þarf að taka til ítarlegrar athugunar mjög mikla eflingu fiskiðnaðarins með hlið- sjón af þeim afla, sem sérfræðing- ar telja að gera megi ráð fyiir flest ár. Athuga ber vandlega nýj- ar iðngreinar, sem auka verðmæti sjávaraflans. 2. Landbúnaðariðnaður. Ýmsar framleiðsluvörur land- búnaðarins eru vel fallnar til iðn- aðar, eins og t. d. ullin, gærurnar o. fl. Nauðsynlegt er að leggja einnig hér áherzlu á fullnýtingu slíkra afurða, m. a. með því að kanna til liins ýtrasta íramleiðslu- aðferðir þær, sem bezt henta. Jafnframt ber að leggja aukna á- herzlu á rannsóknir í þágu land- búnaðarins, m. a. með það fyrir augum að auka gæði afurðanna. Nú er ekki nýttur nema tæpur helmingur af ullarframleiðslunni innanlands og lítið af gærum. Úr þessu hvoru tveggja þarf að bæta. 3. Annar iðnaður. Véla- og verksmiðjuiðnaður er nú orðin ein stærsta atvinnugTein okkar íslendinga. Leggja ber kapp á áframhaldandi uppbygg- ingu slíks iðnaðar og þá sérstak- lega á iðngreinar, sem samkeppn- isfærar gcta orðið við erlenda framleiðslu á innlendum og er- lendum markaði. Kanna þarf hverja þá aðstöðu sem betri kann að vera hér á landi en á meðal nágrannaþjóða okkar og gæti þannig orðið undirstaða að sanr- keppnisfærum iðnaði. Leggja ber áherzlu á nýtingu náttúruauðæfa landsins, vatnsaílsins, jarðhitans og jarðefna. Leggja bcr sérstaka áherzlu á aukna tækni og bætta framleiðni í byggingaiðnaði og rannsóknir til lækkunar á byggingarkostnaði. Halda verður áfram uppbygg- ingu stærri iðnaðar, sem hafinn var með byggingu Aburðar- og Sementsverksmiðjanna. Efla verður stofnlánasjóð iðn- aðarins verulega og einnig er sjálfsagt að iðnaðurinn sitji við sama borð og aðrir atvinnuvegir með tilliti til rekstursfjár, og tel- ur ílokksþingið eðlilegt, að Seðla- bankinn endurka.upi framleiðslu- víxla iðnaðarins. i i '-PÍ Tollamál. Flokksþingið telur, að nú þeg- ar beri að lækka tolla á vélum til iðnaðar og stefna beri að inn- flutnings- og tollfrelsi á slíkum vélum með liliðsjón af þeirri staðreynd, að islenzki iðnaðurinn verður í vaxandi mæli að keppa við erlendan iðnað á mörkuðum bæði innanlands og utan. Enn- fremur telur flokksjringið að stefna beri að lagfæringu á hrá- efnatollum til iðnaðar, þannig að tryggt sé að innflutt hrá'efiii Sé á- vallt x lægra tollaflokki en inn- flutt vara úr sama efni. Við íslendingar höfum bæði hráefni, náttúruauðæfi og liæfi- leika, sem geta orðið undirstaða að' álitlegum iðnaði, sem sam- keppnisfær væri á erlendum mörkuðum og Jxannig gæti skap- að þjóðinni mjög vaxandi gjald- eyristekjur og bætt lífskjör. Vegna fámennis getur verið æskilegt að dreifa ekki kröftunum um of og þarf því að byggja á sem ítarleg- ustum athugunum á samkeppnis- hæfni hinna ýrnsu iðngreina og gera þarf sem fullkomnastá heild- aráaétlun um iðnvæðingu á næstu árum. (Samþ. á flokksþingi 1963). Hvar er þín þjóðvamarstefna? Úr bréfi frá Alexander bónda í Hlíð ÞAÐ ER ENGIN þjóðvarnar- stefna að fylgja kommúnistum að málum. Þótt menn eins og t. d. Stefán Halldórsson á Hlöð- um álíti að svo sé. Hann var einn þriggja ræðumanna komm- únista í stjórnmálaumræðum þeim, sem útvarpað var frá Skjaldarvík í gærkvöld. Stefán virtist haldinn þeirri meinloku að enginn íslendingur geti ver- ið þjóðvarnarmaður nema þeir einir, sem fylgja því flokksbroti Þjóðvarnarflokksins að málum, sem samdi um kosningabanda- lag við kommúnista. Að vísu vildi Stefán ekki viðurkenna að neinir kommúnistar væru til á íslandi, það orð væri aðeins nas- istiskt slagorð. En Stefán? Eru þá engir kommúnistar til í Rúss landi? Og hefur þú ekki lesið Þjóðviljann, málgagn íslenzkx-a kommúnista, sem í einu og öllu fylgir dyggilega línunni frá Moskvu og ver allar aðgerðir heimskommúnismans. Og er þín þjóðvarnarstefna, Stefán, í því fólgin að vinna að því að hér á landi verði aðeins einn flokk- ur kommúnista ráðandi? Ertu fylgjandi einræði eða lýðræði? Ég gat þess hér að framan, að það væri engin þjóðvörn í því að fylgja kommúnistum að mál- um, því að á rtieðan þeir afneita ekki með öllu aðgerðum Rússa, sem kramið hafa frelsi og sjálf- stæði annarra þjóða undir járn- hæl sínum, þá er allt þeirra hjal um föðurlandáást markleysa ein. Því er ég hissa á því að jafn mætur maður og Arnór Sigur- jónsson er, skuli nú gerast tals- maður jafn óþjóðhollrar stefnu, sem stefna kommúnista vissu- lega er. Ég hef þá trú, að Þing- eyingar sýni Arnóri hnefa Ófeigs á Skörðum eins og hann var sýndur Guðmundi ríka forð- um. Stefnan til hægri og vinstri við Framsóknarflokkinn er ekki þjóðvarnarstefna og samrýmist því ekki heill íslenzku þjóðar- innar. Stefnumark þeirra til hægri er að komast sem fyrst í dansinn kringum gullkálfinn og telja jafnvel að sjálfstæði ís- lands sé hindrun á þátttöku í þeim dan&i. — Stefnumark þeirra til vinstri er aftur á móti járnhællinn i'ússneski. Að vísu sagði Björn Jónsson í umræðun- um í gærkvöldi, að Alþýðu- bandalagsmenn, eins og hann nefndi kommúnista, væru á móti erlendri íhlutun á íslandi, hvort sem sú íhlutun „kæmi frá austri eða vestri.“ En, Björn Jónsson, hversvegna fordæmið þið komm únistar á íslandi þá ekki aðfar- ir Rússa við þær þjóðir, sem þeir hafa svipt því frelsi að fá sjálfar að stjórna sínu eigin landi? Og hversvegna lýsið þið þá ekki yfir andúð ykkar á að- förum austur-þýzkra kommún- ista, þegar þeir eru að skjóta á sína eigin landa, er þeir eru að flýja undan rússneska járnhæln um til frelsisins í vestri? Á meðan þið Alþýðubanda- lagsmenn fordæmið ekki þessar aðfarir, þá er ekkert mark tak- andi á orðum ykkar þótt þið mælið fagurlega. Kjósendur í Norðurlandskjör- dæmi eystra! Fylkið ykkur um Framsóknarflokkinn 9. júní n. k., því hann er meiri þjóðvai-n- arflokkur en Þjóðvarnarflokkur- inn og ,-meiri sjálfstæðisflokkur . en Sjálfstæðisflokkurinn. Hann einn getur komið í veg fyrir það, að íslenzka þjóðin lendi undir rússneska járnhælnum eða farist í gini hins vestræna gullkálfs. Sameinumst öll um það, að koma Hirti á Tjörn á þing. Ritað 30. maí 1963. Alexander Jóhannsson. Stjórn og framkvæmdastjóri á aðalfundi KEA. (Ljósmynd: G. P. K.) Lðunagreiðslur KEA rúmar 50 milljónir Endurgreiddar í reikninga eða stofnsjóð 4.1 milljónir króna AÐALFUNDI Kaupfélags Eyfirð- inga lauk hinn 6. Jx. ni. og var í síðasta blaði lítillega sagt frá fyrri fundardegi. KEA telur 5344 félaga í 24 deildum á félagssvæð'inu. Full- trúasæti á að'alfundi áttu 190 og mættu flestir. Fastráðið starfsfólk KEA er 409. Launagreið'slur á síðasta ári li'já KEA á Akureyri og útibúum þess, lastra starfsmanna þess, verkamanna og annars lausafólks, og óbeinar launagreiðslur (sjúkra- sjóðsgjöld, slysatryggingagjöld o. fl.), námu 50.7 millj. kr. Miðað við núgildandi kaup- taxta svara beinar launagreiðslur KEA til árslauna 786 verkamanna. Stofnsjóðsinnstæða félagsmanna YFIRLÝSING LANDSFUNDAR SJÁLFSTÆÐIS- MANNA UM E.B.E. Einkennilegur þorragestur í GÆR náði Dagur sem snöggv- ast tali af Hirti á Tjörn, J>egar hann leit hér inn á skrifstofur blaðsins. Viðtalið fer hér á eftir: Guðmundur á Kvíslarhóli á Tjörnesi hefur sent þér pistil i Verkamanninum. Hefurðu ekki hugsað þér að svara honum? Ég held varla. Ég er Jxví óvan- ur, þó mér verði Jxað á að bjóða ferðalang til stofu og tali frjáls- mannlega við' hann um þau mál, sem efst eru á baugi, að Jxurfa eftir á að standa í blaðádeilum við gestinn um Jxað, sem hann minnir að hafi verið sagt ylir kaffibollanum. Ég er hræddur um, að hin heimsfræga íslenzka gest- risni mundi ekki græða mikið á þeirri nýbreytni. Þegar Jxessi ný- stárlegi gestur ræcldi við mig á Þorranum var margt óljóst, sem nú hefur skýrzt, og ég skil ekki, hvað við jxað getur unnist, að fara að rifja upp orðræður okkar. A. m. k. ætla ég ekki að fara að lepja Jxað í blöðin, sem Guð- mundur bóndi sagði mér um „plön“ sín og sinna félaga gagn- vart Alþýðubandalaginu. En við Jxá, sem kynnu að eiga eftir að komast í svipaða aðstöðu og ég, vil ég segja Jxetta: Varið ykkur á stórum vörpulegum Tjör- nesing, sem talar mikið og hátt, og er ekki smeykur við að kveða upp sleggjudóma um menn og málefni. Hann heitir Guðmund- ur Halldórsson og er bóndi á Kvíslarhóli. Úr reeðu á kjósendafundi. LANDSFUN D UR Sjálfstæðis- flokksins samjxykkti í því máli yf- irlýsingu, sem nauðsynlegt er að menn athugi gaumgæfilega. Flér er um að ræða afstöðu til máls, sem á næsta kjörtímábili getur orðið sjálfstæði Jxjóðarinnar ör- lagaríkast allra mála, sem nú eru ofarlega á baugi. Ingvar Gíslason gerði í gærkvöld í ræðu sinni skil- merkilega grein fyrir því af hálfu okkar flokks. Forkólfar Sjálfstæðisflokksins vita, að almenningur vill ekki að ísland gangi í Efnahagsbandalag- ið og fyrirfari með því sínu unga og dýrmæta fullveldi, lieldur geri, ef nauðsyn krefur, við bandalag- ið tolla- og viðskiptasamninga, sem óháð ríki. Þeir vita ennfrem- ur, að upp hefur komizt um þá, að Jxeir hafa annað í huga en al- menningur vill. Yfir það vilja þcir breiða sem bezt }>eir geta við þess- ar kosningar. Enginn vafi er þess vegna á J>ví, að' þeir hafa vandað sig mjög við þessa yfirlýsingu, en hún er á þessa leið: Landsfundurinn vill: „Aðild Islands að efnahagssam- starfi eftir því, sem hagsmunir þjóðarinnar krefjast og án þess að undirgangast nokkur samnings- ákvæði, sem hér geta með' engu móti átt við.“ Takið' eftir: Kjarni yfirlýsingar- innar er: Sjálfstæðisflokkurinn vill að ís- lánd ge'rist aðili að þjóðasamsteyþ- unni, Uema það kosti samninga sem með engu móti geta átt við. Komið hefur fram hjá ríkis- stjórninni, „að sjálfstieð þjód“ í venjulegri merkingu sé úrelt hug- tak. Enginn vafi er á J>ví, að þeir menn, sem Jxannig líta á sjálfstæði Jxjóðar, verða ekki í vandræðum með að sanna, að innganga ís- lands í Efnahagsbandalagið sam- rímist með því móti hagsmunum íslands. Yfirlýsingin er, þó J>að sé und- ir felhellu, þannig orðað, að for- kólfarnir geti eftir á sagt, þegar þeir hafa látið ísland gerast að- ila: Við svikumst ekki aftan að þjóð- inni. Þetta er í samræmi við yfir- lýsingu landsfundarins í apríl 1963. Og það reyndist þá vitan- lega satt. Þeir, sem gera sér grein fyrir Jxessu, og eru móti aðildinni, láta sér ekki detta í hug að kjósa Sjálf- stæðisílokkinn. nemur 22.8 millj. kr. og Mjólkur- samlagsstofnsjóður er rúmlgga. 10 millj. kr. Á árinu 1962 var úthlutað arði og uppbótum að' upphæð' nær 27 millj. kr. Sala innlendra afufða nam 120 millj. kr. : í fréttatilkynningu ifá aðal- fundi KEA um síðari fundardag- inn segir svo: Síðari fundardaginn var énn framliald á umræðum um starf- semi félagsins. Þá ilutti Páll H. Jónsson, fraeðslufulltrúi SÍS, fé- lagsmönnum livatningarorð og lieillaóskir. Fundurinn samþvkkti að leggjá kr. 100.000.00 af árságóðanum í Menningarsjóð KEA. Að lokum fóru fram kosningar: Brynjólfur Sveinsson, mennta- skólakennari, og Björn Jóhanns- son, bóndi, voru endurkosnh í stjórn félagsins til þiiggja ára. Hjörtur Þórarinsson, bóndi, og Halldór Guðlaugsson, oddviti, voru endurkosnir varamenn í fé- lagsstjórn til Jniggja ára. Sigurð- ur Oli Brynjólfsson, kennari, var kosinn endurskoðandi til tveggja qra í -stað Guðmundar Skaltason- ar, hdl„ sem eindregið baðst und- an endurkosningu. Varaendur- skoðendur voiu kosnir Steingrím- ur Bernharð'sson, bankastjóri, til tveggja ára, og Ármann Dal- mannsson til eins árs. Þórarinn Björnsson, skólameistari, var end- urkosinn í stjórn Menningarsjóðs KEA til þriggja ára, og Jóhannes Óli Sæmundsson, námsstjóri, og Hjörtur Þórarinsson, bóndi, hlutu endurkosningu sem varamenn í stjórn sama sjóðs til tveggja ára. Þá voru og kosnir 14 iulltrúar á aðalfund Sambands islenzkra samvinnufélaga. ÚR BÁRÐARDAL Stórutungu 1. júní. Nú hefur skipt um veðurfar og grær jörð, en þó hægt. Sauðburði er að ljúka og hefur gengið vel. Með færra móti er tvílembt af ám og má sennilega rekja það til þess að ær voru rýrar í haust, hey „létt“ og beit meiri vegna snjóleysis í vetur. Þó eru und- antekningar þar sem mikið er tvílembt. Vegir eru að verða þurrir en voru í vor ægilegar vegleysur, svo að ekki varð kom izt um þá á öðrum tækjúm en jeppum og dráttarvélum. Vik- una 11.—18. maí lögðust alveg niður þungafl. með stærri bílum. Sexhjóla „trukkur“ komst ekki, og var mjólk og annar flutning- ur flutur á jeppum og dráttar- vélum að Fosshóli, en þaðan gekk mjólkurbíllinn. Alvarlegar horfur eru í vega- málum hér og mjög aðkallandi þörf á endurbótum og uppbygg- ingu veganna, þar sem vaxandi þörf er á vegasamgöngum vegna aukningar í mjólkurframleiðslu sem krefst greiðra samgangna allt árið í venjulegu árferði. — Fjárveiting til þjóðvega hér er mjög „skorin við nögl.“ Þ. J. Í5555555S5555555555555555555555S55555555555555555555555555555S55555S7 Á verkalólk á Akureyri enn a$ brjóla ísinn? í ÞRIÐJA SINN virðist verkalýðsforustan hér á Akureyri hafa fallizt á, að láta verkafólkið á Norðurlandi brjóta ísinn í kjaramálum fyrir Reykvíkinga. Svo er að sjá, að Dagsbrún sé hætt að hafa forystuna í kjarabaráttunni og vilji beita öðrum fyrir, en þó segja þeim íyrir verkum. Bjöm Jónsson og hans menn virðast enn fúsir til að taka á herðar verkafólks hér nyrðra þá áhættu og það tjón, sem af þessu getur leitt fyrir það. Er þetta ekki of mikil þægð við höfuðborgarvaldið í verkalýðshreyfingunni ? □ Í5Í5S5555S5S5SSS5SS55SS55S5S5S5ÍSS5SS55SSÍ55SSS55555ÍS555SSS55SS55Í55SÍ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.