Dagur - 13.11.1963, Page 1
------""""•......!--------------
Málgacn Framsóknarmanna
Ritstjóri: Erlingur Davíðsson
Skrifstofa í P1 afnarstræti 90
Símar: Ritstjóri 1166. Aucl.
OC AFCR. 1167. Prentverk Odds
Bjöunssonar h.f., Akureyri
■------i.............i__—____SÍSi
-------------r \
■' ■ Áucr.ÝSINGASTjÓRr (Ón SÁM-
ÚKL-SSON . Argancurinn kostar
-jír. F5.0-00. GjalddÁGí tu lr jút.í
BLÁfiin KEMUR ÚT Á MIÐVIKUDÖC-
; . tól OC Á LAUCARIÍÖCJÚM, .'
ÞECAR ÁSTA.ÐÁ 1*VK|R TÍL ,
iðinlallinn snjór nyrSra
UNDANFARIN dægur hefur
snjóað í logni á Norðurlandi, og
er víða komið þæfingsfæri á
vegum. Flestar leiðir eru færar
stórum bifreiðum, allt austur í
Mývatnssveit og Tjörnes. Öxna-
dalsheiði er mjög greiðfær, en
þungt færi í nágrenni Blöndu-
óss. Snjórinn er víðast jafnfall-
inn og mjög laus ennþá.
Dalvíkurleiðin er vel fær
jeppum og vörubílum, en á
þeirri leið, sem og öðrum leið-
um, getur færi spillzt á lítilli
stundu. Óvíða er meiri snjór en
á Akureyri. □
É -
ÚR NÁGRENNINU
Reynililíð, 12. nóv. Leitarmenn
fundu 4 kindur í Herðubreiðar-
lindum í síðustu viku, er ekki
höfðu heimtar verið fyrr í
haust.
Einhvern næsta dag munu
gufuborholurnar í Bjarnarflagi
verða opnaðar.
Byrjað er að leggja net undir
ísinn á Mývatni. Hver bóndi má
aðeins hafa 60 m. net á þessum
árstíma. Hér er kominn töluvert
mikill lognsnjór.
Ófeigsstöðum, 12. nóv. Fjár-
heimtur voru ekki í ákjósan-
SKAUTASVELL
NÚ ER skautasvell á íþrótta-
vellinum og verður reynt að
halda því við, eftir því sem
framast er kostur.
Svellið er opið almenningi
síðari hluta dags og á kvöldin.
Aðgangur er 2 krónur fyrir
börn og 5 krónur fyrir fullorðna.
Samkvæmt reynslunni verður
svellið mjög mikið notað og er
gott eitt um það að segja. □
Daguk
kemur næst út laugard. 16. nóv.
legu lagi. Mun fé enn í Nátt-
faravíkum. Bifreiðum . er fært
um allt hérað. Stefnubreyting
launastyrjaldarinnar mælist vel
fyrir. Undansláttur stjórnarinn-
ar varð ekki umflúinn, úr því
sem komið var. En fyrirkomu-
lag, sem nú ríkir í launamálum
almennt, leiðir til glötunar.
Undirbúin er kirkjuvaka í
prófastsdæminu að forgöngu
séra Sigurðar Guðmundsonar.
Þar munu leikmenn flytja er-
indi á breiðum, kristilegum
grundvelli. Kirkjukórar munu
sameinast á kirkjuvökum þess-
um.
Dalvík 12. nóv. Vegurinn til Ak
ureyrar er að verða þungfær
stórum bílum. Slátrað var í
haust 8045 kindum. Meðalvigt
var 13,394 kg eða nær hálfu kg
minni en í fyrra. Þyngstan dilks
skrokk átti Jóhannes Sigurðs-
son, Hellu, 24,5 kg. Þyngsta með
alvigt höfðu dilkar Kristrúnar
Friðbjörnsdóttur í Efstakoti við
Dalvík, 16,3 kg. Síðar var 144
stórgripum lógað.
Björgvin seldi 30. okt. í
Grimsby 65 tonn fyrir 6578
pund eða um kr. 12.50 pr. kg.
Björgúlfur seldi í Þýzkalandi í
gær, 60 tonn fyrir 48155 mörk.
Hús og önnur mannvirki á Dagverðareyri eru auð og yfirgefin. Hvenær vaknar staður þessi af
þyrnirósarsvefninum? (Ljósm. E. D.)
iiMiimmiimimmmiimii
Vantar skóla í sveitum landsins
Framsóknarmenn flytja tillögu á Alþingi
NOKKRIR þingmenn Fram-
sóknarflokksins, þeir Ingvar
Gíslason, Páll Þorsteinsson,
Björn Fr. Björnsson, Halldór E.
Sigurðsson og Ólafur Jóhannes-
son flytja svohljóðandi tillögu í
sameinuðu þingi:
„Alþingi ályktar að kjósa 5
manna milliþinganefnd, er
kanni aðstæður unglinga í sveit
um og þorpum til gagnfræða-
og miðskólanáms og einkum
hver þörf einstakra sýslna eða
landshluta er fyrir nýja eða
stærri héraðsskóla eða aðra
gagnfræðaskóla.
Jafnframt skal nefndin at-
huga þörf dreifbýlisins fyrir
heimavistarbarnaskcla eða
heimangönguskóla eftir stað-
háttum og einnig með hverju
móti megi tryggja á viðunandi
hátt, að börn og unglingar í
dreifbýli fái stundað skólanám
til 15 ára aldurs.“
í greinargerð segir m. a. svo:
„--------Svo sem alkunna er,
hafa starfandi héraðsskólar í
landinu, 8 að tölu, verið meira
en fullsetnir mörg undanfarin
ár og hvergi nærri getað full-
nægt umsóknum um skólavist.
Liggja upplýsingar fyrir um
það, að hundruðum unglinga
hefur verið vísað frá héraðsskól
unum á ári hverju. Að vísu
mun nokkur hluti umsækjenda
um vist í héraðsskólum vera úr
kaupstöðum, þar sem gagn-
fræða- og miðskólar eru starf-
andi, en flestir eru þó úr sveit-
um eða þorpum, þar sem litlir
eða alls engir möguleikar eru
til framhaldsnáms. Nú ber að
sjálfsögðu fyrst og fremst að
miða fjölgun héraðsskóla við
þarfir unglinga í sveitum og
þorpum, en eigi ætti það að
draga úr nauðsyn héraðsskóla-
fjölgunar, ef svo er sem virðist,
að margir kaupstaðaunglirgar
(Framh. á bls. 2).
SKÍÐAHÓTELIÐ OPNAÐ Á HÝ
UM SÍÐUSTU helgi var hiö
glæsilega Skíðahótel í Hlíðar-
fjalli opnað á ný, eftir nokkurra
vikna hlé.
Ríkisstjómin lét unclan síga
Frestaði afgreiðslu hinna umdeildu stöðvunar-
laga um launamál o« fleira
VART MUN ofmælt, að þing-
fréttir vektu meiri athygli og'
almennari en aðrar fréttir síð-
astliðnar vikur. Margt bar til.
Það fyrst, að útrunnin var kaup
gjaldssamningur verkalýðsfélag
anna og verzlunar- og skrifstofu
fólks og samningar skammt á
veg komnir. Annað, að frétzt
hafði Um, að róttækar aðgerðir
stjórnarvaldanna væru í vænd-
um.
Þegar tilkynningar um vinnu-
stöðvanir fjölmennra stéttar-
félaga voru fram komnar, -svar-
aði ríkisstjórnin þeim fyrir sitt
leyti með frumvarpi til laga á
Alþingi, þar sem vinnustöðvan-
ir voru bannaðar og samningar
um kaup og kjör einnig bann-
aðir, frá og með 1. nóvember.
Alþýðubandalagið bar þegar í
stað fram vantraust á ríkis-
stjórnina, og harðar deilur hóf-
ust í sölum Alþingis. Stjórnar-
andstæðingar deildu án undan-
tekningar fast á stjórnina vegna
„kúgunarfrumvarpsins“.
En það var fleira markverðra
tíðinda, sem nú fóru í hönd.
Verkalýðshreyfingin reis upp og
mótmælti, og verkfallsboðanir
bárust hvaðanæva. Útvarpsum-
ræður um vantraustið fóru fram
og munu fleiri hafa lilustað en
títt er um stjórnmálaumræður.
Þótt stjórnarflokkarnir færu
þar hinar mestu hrakfarir, var
engan bilbug á þeim að finna þá.
Framundan var lögfesting
þess frumvarps á Alþingi, sem
um land allt var mótmælt, jafnt
meðal stjórnarsinna sem stjórn-
arandstæðinga. Og framundan
voru ólöglegar vinnustöðvanir
og algert öngþveiti og upplausn.
Þegar hér var komið sögu og
síðasti laugardagur rann upp
með síðustu umræðu og loka-
afgreiðslu margnefnds frum-
varps á dagskrá Alþingis, var
enn mikilla tíðinda að vænta.
Þann dag bað ríkisstjórnin um
frest — og annan frest — við
lokaumræðu. Síðan tilkynnti
forsætisráðherra, að stjórn sín
hefði, í samráði við forystu-
menn Alþýðusambandsins og fl.,
ákveðið að fresta afgreiðslu
frumvarpsins um launamál og
fl. til 10. desember, enda yrði
tíminn notaður til samninga-
gerða um kaup og kjör þeirra
stétta, er ekki voru búnar að
semja.
Eftir að ríkisstjórnin hafði
loks, og á elleftu stund, dregið
hið illræmda launafrumvarp til
baka afturkölluðu verkalýðs-
félögin vinnustöðvanir.
Segja má að hér hafi vel skip-
ast málum, sem í fullkomin
óefni voru komin. Ríkisstjórnin
hélt að vísu lífinu, en stéttar-
félögin voru leyst frá því að
hefja ólögleg verkföll, og farin
er nú samningaleiðin svo sem
Framsóknarmenn og fl. kröfð-
ust að gert yrði.
Þrennt er það einkum, sem
varð þess valdandi, að stjórnin
lét undan síga: Mótmæli stjórn-
arandstöðunnar á Alþingi, mót-
spyrna verkalýðshreyfingarinn-
ar og í þriðja lagi hin almenna
og mikla andúð almennings í
landinu. ["j
Við stjórn hótelsins hafa tek-
ið hjónin Friðrik Jóhannsson
og Jórunn Þórðardóttir. Fyrstu
dvalargestirnir eru þegar komn-
ir. Skíðaráð er nú að láta smíða
skíðalyftu frá Strompi og upp í
skíðabrekkurnar. Skiðamenn
hafa unnið mikla sjálfboða-
vinnu þar efra, að ýmsum und-
irbúningi. Sími er nú kominn í
hótelið. Hótelreksturinn gekk
vel í sumar. Þessi staður mun í
framtíðinni hafa mikið aðdrátt-
arafl. □
r~
DAGLEGLR
ÁREKSTRAR
Á HVERJUM einasta degi
yerða bifreiðaárekstrar á göt-
um Akureyrar, einn eða fleiri.
Fólk hefur sloppið ómeitt en
miklar skemmdir orðið á öku-
tækjum.
Margar bifreiðir hafa að und-
anfömu reynzt hafa ólöglegan
Ijósabúnað. Hefur lögreglan
tekið marga slíka til athugunar
og gefið ökumönnum frest til
lagfæringar, en kært þá, sem
ekki hafa notað þann tíina til
tilskilinna endurbóta. □