Dagur - 16.11.1963, Síða 2
2
PÁLMI heitir hann Ólafsson, hefur tekið sér aðsetur á Ráð-
hústorgi með smáhýsi á hjólum og selur fólki það prentað
sem mest er lesið, en það eru blöðin og tímarit. Öll er
varan innan seilingar úr sætinu. Salan gengur vel því Pálmi
fljótur að afgreiða. í söluvagninum er ofn og útvarp. Sölu-
sjálfur auglýst vörur sínar án nútímatækni;
éf örfa þarf viðskiptin, með fimbulraust sihni. (Ljósm. E.D.)
Sauðárkróki 12. nóv Á þessu
hausti var slátrað 44.500 fjár á
Sauðárkróki. Um 36.500 hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga og um
8000 hjá Verzlunarfélagi Skag-
firðinga. Meðalvigt hjá K. S.
reyndist vera 13,18 kg. og er það
0,48 kg. minna en sl. ár.
Þyngsti dilkurinn vó 26 kg.
og var eigandi hans Leifur Þór-
arinsson Keldudal.
Föstudaginn 1. nóv. kviknaði
í íbúðarhúsinu að Reykjum á
Reykjaströnd. Eldurinn kom
upp í rishæð hússins og strax
og hans varð vart, var hringt í
slökkviliðið á Sauðárkróki, sem
brá við skjótt. Tókst því að
slökkva eldinn áður en mikið
tjón varð að. Þó varð að rjúfa
þekjuna til þess að komast að
eldinum. Talið ér að kviknað
hafi út frá rafmagni.
Kona forstjóri upplýs-
ingaskrifstofu S.,K ,
• '>■>:, ;,t’
'í FYRSTA SINN í sögu Sam-
einuðu þjóðanna hefur kona
verið skipuð í embætti forstjóra
upplýsingaskrifstofu samtak-
anna. Það er frú Ma Than E
Fend frá Burma, sem gerð hef-
ur verið að forstjóra upplýsinga
skrifstofunnar í Alsír, sem ný-
lega var sett á stofn. Þá hafa
Sameinuðu þjóðirnar alls 45
upplýsingaskrifstofur um heim
allan. Fimm þeirra hafa nor-
ræna forstjóra. Svíarnir Sixten
Heppling, Jan Gunnar Lind-
ström og Sture Linnér eru for-
stjórar upplýsingaskrifstofanna
í Kabul, Lundúnum og Aþenu.
íslendingurinn ívar Guðmunds-
son stjórnar upplýsingaskrif-
stofunni í Karachi og Norðmað-
urinn Dik Lehmkuhl skrifstof-
unni í Bagdad. Upplýsingaski-if-
stofa Sameinuðu þjóðanna fyrir
Norðurlönd er í Kaupmanna-
höfn, og forstjóri hennar er
Hugh Williams frá Nýja Sjá-
íándi. □
Dánarfregnir.
Þann 18. okt. sl. lézt hér á
Héraðssjúkrahúsinu Haraldur
Sigurðsson, Sauðárkróki, 81 árs
að aldri, eftir langa vanheilsu
og dvöl á sjúkrahúsinu. Harald-
ur SigUrðsson sinti lengstum
verzlUnar- og afgreiðslustörfum
auk margs annars og var um
langt árabil hjá Kaupfélagi
Skágfirðinga. ílann var ætið
glaður og reifur, kvikur og vak-
andi fyrir sínu verki, samvizku-
samur með afbrigðum og hinn
traustasti stárfsmaður í hví-
vetna.
Stefán Vagnsson frá Hjalta-
stöðum, hinn þjóðkunni hagyrð
ingur og orðsnillingur, lézt hér
á sjúkrahúsinu 1. nóvember eft-
ir langa legu 74 ára að aldri.
Stefán Vagnsson var kennari á
ýmsum stöðum í Skagafirði um
áratuga skeið og gengdi fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum um
dagana. Hann var búsettur á
Sauðárkróki síðustu tuttugu ár-
in og vann á skrifstofu Mjólkur
;§amlags Slca/fifðinga. Stefán
var þekktur um allt land af
mörgum ástæðum og stökur
hans og ljóð hafa flogið vítt,
þótt hann væri alla tíð heldur
dulur á skáldskap sinn. Kennir
þar margra, grasa • og góðra.
Merkiskonan Þórey Hansen,
Sauðarkróki, dó á Héraðssjúkra
húsinu þann 3. nóvember 77 ára
að aldri. Þórey var gift Kristjáni
Hansen, sem lengi var verk-
stjóri í Skagafirði, en nú er lát-
inn fyrir mörgum árum. Þórey
Hansen var glæsileg kona á all-
an hátt og gáfuð í bezta lagi og
margfróð. Svo var hún minnug
á ljóð og sögur og kunni svo
mikið af þeim, að-til afreka má
telja. Hún varð heldur ekki
kveðin í kútinn af neinum með-
alskussa um dagana.
Hvert þeirra þriggja, sem hér
hafa verið nefnd og létust með
stuttu millibili, hafði sín sér-
kenni og verða öllum er þeim
kynntust minnisstæð, hvert á
sína vísu. ‘ '
ÞORSKÁHROGNA
KAVIAR
'TÐNSÝNING samvinnumanna
var nýlega haldin í glæsilegu
húsnæði Véladeildar S. í. S. og
Samvinnutrygginga, við Ár-
múla í Reykjavík. Slíkar sýn-
ingar vóru teknar upp fýrir
nokkrum árum, áð frumkvæði
Harry Frederiksen, þávérandi
framkvæmdastjóra Iðnaðar-
deildar S. í. S. og núverandi
framkværridastjóra skrifstofu
Sambandsins í Hamborg. Hafa
síðan nokkrar sýningar verið
haldnar á Akureyri, én þessi
sýning er-sú fyrsta sem haldin
er í Reykjavík. í þetta skipti
tók Sjávarafurðadeild þátt í
sýningunni í fyrsta skipti. Sýnd
ar voru framleiðsluvörur Til-
raunaverksmiðju deildarinnar í
Hafnarfirði og er ánægjulegt
frá því að skýra, að vörurnar
fengu mjög góðar undirtektir
sýningargesta. Eftirspurn eftir
vörum vérksmiðjunnar hefur
aukizt mjög eftir sýninguna.
Nýjasta vörutegundin sem verk
smiðjan hefur hafið framjeiðslu
á er þorskhrognakaviar, í mjög
smekklegum túbum. Kaviarinn
fæst bæði reyktur og óreyktur
(natural) og er hið mesta lost-
æti.
- ÓLAFUR THORS
SEGIR AF SÉR
(Framh. af bls. 1)
Undanhald ríkisstjórnarinnar
hefur mörgum stuðningsmönn-
um hennar orðið sárt, en eins og
á stóð átti stjómin engan annan
kost. Hún varð að beygja sig
til þess sjálf að „halda Iífinu“ og
til þess að forða algjörri upp-
lausn í landinu. En almenningur
fagnaði því heilshugar að tak-
ast skyldi að sveigja stjórnar-
völdin af valdboðs- og upp-
lausnarbrautinni á leið hinna
frjálsu samninga. En yfirgrips-
miklir Iaunasamningar eru nú
að hefjast í Reykjavík.
Síðustu stórtíðindin úr heimi
hinna íslenzku stjómmála er
,svo lausnarbeiðni forsætisráð-
herrahs, Ölafs Thors, hins 72
ára stjómmálaforingja Sjálfstæð
isflokksins. Bjami Benediktsson
hefur nú tekið áð sér stjómar-
forustuna, sem forsætisráðherra,
en Jóhann Ilafstein hefur tekið
sæti í ríkisstjóminni og er dóms
málaráðherra. n
BIFREIÐIN A-1967,
sem er Volkswagen,
árgerð • 19ð8, er til sölu
Semja ber við undir-
ritaðan
Gunnar Berg,
símar 1024 og 1070.
VOLVO 1961!
„PV 544 Spo! t“
til sölu strax.
Hagstætt verð.
Viðar Garðarsson,
Fögruhlíð 44.
NYLONSIíYRTlIR,
hvítar, mislitar
Verð kr. 325.00.
A N G LI
NYLONSKYRTLR.
fleiri gerðir.
NYLONSKYRTUR,
drengja, röndóttar.
Stæfðir 27-36.
KULDAHÚFUR,
karlmanna og drengja.
HERRA DEILD
LEIEFANGABÍLAR
(MA'TCI-I BOX)
50—60 tegundir.
Verð aðeins kr. 21.00.
Enn fremur stærri gerðir.
MUNIÐ OKKAR
FJÖLBREYTTA
leikfangaúrval.
Verð við allra liæfi.
Tómstundabúðin
Strandgötu 17 . Sími 2925
TIL SÖLU:
Ný kárlmannsföt á meðal-
mann. Til sýnis í
Eiðsvallagötu 4.
i .....r.- - ,-vrr-
TIL SÖLU:
Ný kjólíöt á frekar háan
*• mann.
Uppl. é síma *1927
eitir kl. 8 e. K.
LANÐSPRÓFSNEMAR
ATHUGIÐ!
Getið lengið aukatíma í
islenzku og ensku.
Uppl. í síma 2484
milli kl. 5 og 6.
ÖKUKEN N S L A
Þóroddur Jóhannsson,
Byggðaveg 140, Akureyri,
sími 2522.
TAPAÐ
SNJÓKEÐJA tapaðist
á Ytri-brékkunni
síðastliðinn fimmtndag.
Skilist í Byggðaveg 140A
gegn ftmdárlaunum.
Hvaða kjöt hefir ekki
hækkað?
Hækkað — hefir ekki allt
kjöt stórliækkað?
NEI, EKKI
SVÍNAKTÖT
Það eru því beztu
KJÖTKAUPIN
• í sunnudagsmatinn.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
DANSKIR
SVEPPIR
í glösum.
Meistaraflokksvara.
KJÖTBÚR K.E.A.
Húsmóðirin setur stráum
‘ á. pönnúna.
Vér bjóðum yðiir:
LAMBASNITZEL
KÖTÉLETTUR
KÁLFASN TTZÉL
KÁ L FA KARBONA I)F.
KINDA-
HAKKAÐ-BUFF
NAUTA-
HAKKAÐ-BUFF
Allt tilbúið á pönnúna.
"Svo jafnvel klaufskúr hús-
bóndinn getur kokkað.
KJÖTBÚD K.E.A.
NÝKOMIÐ:
Maya Cornflakes
kr. 12.00 pr. pk.
CRÍSKO FEETI
^IJ.O-Y A L :
Súkkuíaðiduft
HNETUSMjÖR
<^þ>
Þýzka sultan og
marmelaðið
komið aftur.
EPLAEDIK
r
Utlendar gr. baunir
margar tegundir.
NOTIÐ