Dagur - 16.11.1963, Side 8
8
Sárindin leiða Braga
á villiffötur
Laxdal 25 ára
í GÆK, 15. nóv., átti Verzlun
Bernharðs Laxdal,
stræti 94 á Akureyri, 25
mæli.
Þetta fyrirtæki hefur
vinsælda frá upphafi, var fyrst
einkum saumastofa, er fram-
leiddi kvenfatnað og er nú kven
fataverzlun. Bernharð Laxdal
var stofnandi, og er ennþá eig-
andi, en er fluttur suður og rek-
iur aðra verzlun í Kjörgarði á
Laugavegi í Reykjavík.
Verzlunarstjóri hans á Akur-
eyri er frk. Jóhanna Jóhannes-
dóttir.
Dagur árnar fyrirtækinu
allra heilla og þakkar mikil og
ágæt viðskipti í aldarfjórðung.
Elliheimilið Skjaldarvík, ásamt öðrum byggingum staðarins. Myndin tekin á fögrurn sumardegi.
STOFNAÐ HÓLAFÉLAG
til að vinna að kirkjulegri endurreisn Hóla
Héraðsfundur Skagafjarðar-
prófastsdæmis var haldinn á
Sauðárkróki sunnudaginn 3.
nóv. s.l. og hófst með messu í
Sauðárkrókskirkju kl. 2 e. h.
Sr. Oddur Thorarensen Hofsósi
prédikaði, en sóknarpresturinn,
sr. Þórir Stephensen, þjónaði
fyrir altari. Prófastur, sr. Björn
Björnsson á Hólum, setti fund-
inn, lagði fram kirkjureikninga
og flutti yfirlitsskýrslu um
helztu kirkjulega atbui’ði á
liðnu héraðsfundarári, en síðan
flutti sr. Helgi Tryggvason á
Miklabæ framsöguerindi um að-
almál fundarins: Hvað er fram-
undan í kirkjunni? Ræddi hann
málið einkum með tilliti til þess
hlutverks, sem Hólastaður hlýt-
ur að gegna í framtíðinni fyrir
allt kirkjulíf í Hólastifti, því
ekki munu Norðlendingar una
öðru en hlutverk Hóla og Skál-
holts verði sem líkust í uppbygg
ingu kirkjulegs lífs með þjóð-
inni. Umræður urðu miklar og
almennar og voru tvær tillögur
samþykktar á fundinum. Onnur
þeirra var svohljóðandi: Hér-
aðsfundurinn ítrekar allar fyrri
yfirlýsingar sínar um nauðsyn
endurreisnar biskupsstóls á Hól
um í Hjaltadal. Jafnframt telur
fundurinn réttast, að biskupar
verði 3, á Hólum, í Skálholti og
í Reykjavík. Á hinum fornu stól
um telur fundurinn að rísa þurfi
kirkjulegar menningarstöðvar,
sem veiti sem hollustum straum
Verzluu Bernharðs
um út í líf kirkju og þjóðar.
í framlialdi af þessari tillögu
var svo einnig saniþykkt eftir-
farandi tillaga: Héraðsfundur-
inn leggur til að stofnað verði
félag til að vinna að kirkjulegri
endurreisn Hóla í Hjaltadal,
HÓLAFÉLAG. Kýs fundurinn
7 manna undirbúningsnefnd til
að vinna að stofnun þessa félags,
3 presta, 3 leikmenn og prófast
í forsæti nefndarinnar og treyst
ir henni til að hefja störf liið
fyrsta. í nefndina voru kosn'r
sr. Björn Björnsson Hólum, sr.
Þórir Síephensen Sauðárkróki,
sr. Helgi Tryggvason Miklabæ,
sr. Oddur Thorarensen Hofsósi,
Gísli Magnússon Eyhildarholti,
Guðmundur L. Friðfinnsson Eg-
ilsá, Haukur Jörundsson Hól-
um. Varamenn: sr. Bjartmar
Kristjánsson Mælifelli og Jón
Jónsson Hofi.
Fundinn sátu flestir prestar
og sáfnaðarfulltrúar prófasts-
dæmisins. Að messu lokinni
sátu þeir kaffiboð prestshjón-
anna á Sauðárkróki, en um
kvöldið bauð sóknarnefnd Sauð-
árkrókskirkju þeim til kvöld-
verðar á Hótel Villa Nova. □
f SfÐASTA tölublaði Alþýðu-
mannsins á Akureyri segir:
„Það vakti athygli bæjarhúa, að
Kaupfélag Eyfirðinga lokaði
búðurn sínum og skrifstofum,
meðan fundurinn stóð (þ. e.
fundurinn í Alþýðuhúsinu 4.
nóvember sl.), svo að starfsfólk
þess gæti sótt fundinn“.
Hið rétta er: Hvorki stjórn
KEA eða framkvæmdastjóri
þess hafði nokkur afskipti af
fundarsókn starfsfólks síns.
Starfsfólk það, er fundinn sótti
tók sér leyfi til þess sjálft. Af
þeim sökum var nokkrum búð-
um félagsins sjálflokað á meðan
fundurinn stóð.
Þess lilutu að sjást merki á
mörgum vinnustöðum á Akur-
eyri hinn 4. nóvember sl. að
6—700 manns liurfu samtímis
úr vinnu úr flestum eða öllum
atvinnugreinum — enda varð sú
raunin á.
EKKI RÉTT
AÐ GEFNU tilefni í 37. tbl. Al-
þýðumannsins frá 12. nóv. 1963
vill stjórn Fulltrúaráðs verklýðs
félaganna á Akureyri taka fram
eftirfarandi:
Til launþegafundarins, sem
haldinn var í Alþýðuhúsinu
mánudaginn 4. þ. m. var boðað
af Fulltrúaráði verklýðsfélag-
anna og var ákvörðun um að
halda fundinn svo og að skora
á launþega að leggja niður
vinnu eftir hádegi þann dag í
mótmælaskyni við frumvarp
ríkisstjórnarinnar um launa-
mál og fl. tekin einróma á fundi
fulltrúaráðsins laugai'daginn 2.
þessa mánaðar.
Það er því ekki rétt, sem seg-
ir í áður greindu blaði að til
fundarins hafi verið boðað af
tveimur tilteknum verkalýðs-
félögum hér í bæ, né heldur að
það þriðja hafi ekki átt aðild að
fundinum.
(Fx-amh. á bls. 7)
Verkafólk, iðnverkafólk, verzl
unar- og skrifstofufólk sýndi
óvenjulega stéttvísi í þetta sinn
og hlýddi áskorunum og hvatn-
ingu forystumanna sinna um að
fjölmenna á áðumefndan laun-
þegafund í Alþýðuhúsinu. Ekki
á þetta fólk sök á því þótt finn-
ast kunni þeir nxenn, sem kenna
sig við baráttumál alþýðunnar,
en hafa villst frá henni um
stund, tekið sér stöðu í annarri
liðssveit, eins og Bragi Sigur-
jónsson hefur gert. Sú villa hans
og sársauki yfir hrakförum
þeirra, er hann þjónar nú, gefur
honum engan rétt til að skýra
rangt frá staðreyndum í sam-
bandi við nxargnefndan fund í
Alþýðuhúsinu.
Að sjálfsögðu litu atvinnu-
rekendur og verkstjórar liinna
ýmsu starfsgreina á Akureyri
fundarsókn starfsfólks síns mis-
hýru auga og höguðu sér sam-
kvæmt því.
En ekkert fyrirtæki, sem
hafði sama hátt á og KEA og lét
starfsfólk sitt sjálfrátt um fund-
arsókn hinn 4. nóv., lilýtur af
því ámæli. □
HAAR ELDSULUR
SÍÐUSTU fregnir of gosstöðv
unum við Vestmannaeyjar
hemidu, að gosið hefði enn
færst í aukana.
I
Þá sáust miklar eldsúlur og
ægifagrar hátt í loft upp. Sást
þetta mjög glöggt úr byggð-
um Suðurlands. □
Ellilieimilið Skjaldarvík 20 ára
HINN 31. október sl. voru 20
ár liðin, síðan klæðskerameist-
ari Stefán Jónsson stofnaði Elli-
heimilið Skjaldarvík, og' það tók
til stax-fa með vígslu sunnudag-
inn 31. október 1943.
Stefán Jónsson stundaði klæð
skeraiðn hér á Akureyri í 21 ár,
frá 1923—1944 í húsi sínu 77 við
Hafnai'stræti. Hann var stai-fs-
maður mikill og duglegur klæð-
skeri, og töldu kunnugir jafnvel,
að hann ynni alloft mikið, og að
alltaf væri ljós á vinnustofu
Stefáns klæðskera, er gengið
væri fram hjá á nótt eða degi.
En þannig mun þessu hafa
verið háttað, að Stefán hafði tal-
ið það köllun sína að hlynna að
gamalmennum bæjarins og ut-
an, sem til þessa hafði lítið ver-
ið sinnt.
Stefán Jónsson er trúmaður,
og taldi hann þetta guðlega köll-
un sína, og árið 1932 hóf hann
undirbúning þess starfs, sem nú
er Elliheimilið Skjaldarvík. Lét
hann fyrst byggja íbúðai-hús,
hlöðu og gripahús, og hefir síð-
an fleirum sinnum bætt við
frumbyggingarnar, og síðast um
1960.
Skjaldarvík er nú til fyrir-
myndar og vottur þess, hvað
framkvæma megi, sé maður
köllun sinni trúr, og það hefir
Stefán Jónsson verið. Ber því
að þakka honum dugnað hans
og ósíngii’ni og trú hans og
traust á Guðs blessun í starfi
því, sem hann taldi köllun sína.
(Fi-amh. á bls. 7)
Stefán Jónsson, Skjaldarvík.