Dagur - 11.01.1964, Page 1

Dagur - 11.01.1964, Page 1
AUGLÝSIÐ í DEGI - því allir lesa Dag Símar 1166 og 1167 XLVII. árg. — Akureyri, laugardaginn 11. janúar 1964. — 3. tbl. Nýir KAUPENDUR r Dags! Askriftarsím- ar 1166 og 1167. brann til kaldra kola 8. janúar Ægilegt eldhaf og miklar sprengingar lengi nætur - Tjónið varð stórkostlegt UM KLUKKAN 9 aö kveldi hins 8. jnúar kviknaði í Tunnu- verksmiðju ríkisins á Siglufirði, sem er stór og nýleg bygging á Eyrinni. Slökkviliðið var þegar kallað á vettvang og tókst því fljótlega að ráða niðurlögum eldsins, að því er virtist. Síðan voru sex menn settir á vörð í öryggisskyni. Klukkan hálf tvö um nóttina gaus eldur- r»*-------------------------- GÓÐAR TOGARA- SÖLUR í GRIMSBY HRÍMBAKUR seldi 93 tonn í Grimsby 6. þ. m. fyrir 9838 pund. Hann er væntanlegur til heimahafnar í dag. Harðbakur seldi í Grimsby 8. þ. m. 97 tonn fyrir 10070 pund og kemur sennilega til Akur- eyrar á mox-gun. Afli beggja togaranna var töluvert blandaður ýsu og verð- ið mjög gott .eða á 13. kr. pr. kg. Sléttbakur lagði af stað í gær, í söluferð til Englands. Svalbakur og Kaldbakur eru á veiðum. Q inn upp að nýju og svo magn- aður, að við ekkert varð ráðið og tilraunir slökkviliðsins báru ekki árangur. Aukalið var kall- að út um nóttina, einkum til að varna útbreiðslu eldsins. Eldhafið var ægilegt og sprengingar miklar öðru hverju. Verksmiðjan brann til grunna og vélar munu hafa eyðilagst, Tunnuverksmiðjan á Siglufirði. svo og allmikið af tunnuefni. Hinsvegar er framleiðsla verk- smiðjunnar, síldartunnurnar, geymdar annars staðar og sak- aði ekki. Verksmiðjuhúsið var vátryggt fyrir 7 millj. króna, enda mikið hús, og smíðavélar fyrir 1.5 millj. króna. Má af þessu marka, að tjónið í eldsvoða þessum varð gífurlegt. Auk þess missa 40—50 manns atvinnu sína og tugþús- undir síldartunna, sem þama átti að framleiða í vetur, verð- ur nú að kaupa erlendis fyrir næstu norðlensku síldarvertíð. Enn loguðu eldar í rústum að kveldi hins 9. jan. en voru að fullu slökktir þá um nóttina. (Framhald á blaðsíðu 2). Nýtt hús Amlshókasafnis rís af grunni Fjórar milljónir vantar enn til byggingarinnar EIN ÞEIRRA breytingartillagna við fjárlögin, sem ekki náði sam þykki að þessu sinni, var tillaga þeirra Ingvars Gíslasonar, Karls Kristjánssonar og Gísla Guð- mundssonar um að veita á þessu ári 300 þús. kr. til byggingar Amtsbókasafnshúss á Akureyri, til viðbótar við milljónina, sem veitt var í fyrra í tilefni af ald- arafmæli kaupstaðarins. Þess er að vænta, að betur tekist til á næsta ári. Smíði safnahússins Kvenfélagið Framtíðin 70 ára Lílmar- og menningarmál efst á baugi alla tíð FYRIR 70 árum stofnuðu konur á Akureyri félag, sem hafði það markmið, samkvæmt annarri grein í lögum sínum, að hlynna að þeim, sem bágt áttu — hjálpa sjúkum og fátækum. í lögum félagsins stóð: Aðaltilgangur félagsins er: að gjöra gott fátækum bömum og styrkja bágstadda í Akureyrar- bæ“. Þetta félag, Kvenfélagið Fram tíðin, stárfar enn í Akureyrar- kaupstað og vinnur ennþá sam- kæmt hinni tilvitnuðu laga grein, er sett var við félagsstofn- unina. Það minnist sjálft um þessar mundir sjötíu ára afmæl- isins, með þeim hætti, sem því þykir henta. En störf þess hafa verið á þann veg unnin og svo þýðingar mikil fyrir bæjarfélagið, að öðr- um er skylt að minna á þau og þakka að verðugu. Þeirra hafa bæjarbúar vissulega notið og njóta enn, sem heild, en auk þess hinir ótöldu einstaklingar fyrr og síðar, sem sérstaklega hefur verið hjálpað af konum Framtíðarinnar. Framtíðarkon- ur, sem sátu við sjúkrabeð fá- tækra manna og kvenna, eða saumuðu föt á klæðlítil börn, (Framhald á blaðsíðu 2). var hafin á sl. ári, og væri æski- legt, að hægt væri að hraða þeirri framkvæmd. Áætlaður byggingakostnaður mun vera um 7 milljónir króna, miðað við núverandi verðlag og eru ekki nema 3 milljónir fyrir hendi. Sú upphæð nægir að lík- indum til að koma safnhúsinu undir þak. En með tilliti til þess að hér er um gagnmerka menn- ingarstofnun að ræða, sem koma mun mörgum öðrum en Akureyringum að gagni, m. a. skólum, sem sóttir eru víða að, væri eðlilgt, að ríkissjóður legði fram nokkurn hluta af þeim 4 milljónum, sem afla þarf til við- bótar. Alllangt er síðan safnhúsinu var valinn staður ofanvert við Brekkugötu, eða á horni, er þar verður, milli hennar og Odd- eyrargötu. Er hér um tveggja eða að nokkru leyti þriggja hæða hús að ræða. Arkitektarn- ir Bárður ísleifsson og Gunn- laugur Halldórsson hafa gert uppdrætti að húsinu, og má ætla, að vel sé til þess vandað. Amtsbókasafnið hefur verið eign Akureyrarkaupstaðar síð- an á árinu 1906 og á því bráðum 60 ára afmæli, "sem bæjarbóka- safn. En eins og nafnið bendir til — sem haldist hefur — var það í öndverðu á annarra veg- um. Það var stofnað sem amts- bókasafn af Stefáni Þórarins- syni, þeim mæta manni og um- bótafrömuði, er amtmaður var í Norður- og Austuramtinu í 40 ár, 1783—1823. Um stofnár þess er ekki vitað með vissu, en ætla má, að það sé nú orðið nálega 150 óra, eða ekki fjarri þeim aldri. Framanaf var safnið til húsa á amtsmannssetrinu, Möðruvöllum, en síðar var það flutt til Akureyrar, og að lík- indum varðveitt í húsum þeirra manna, er umsjón höfðu með því, og nafngreindir eru í Akur- eyrarsögu Klemensar Jónsson- ar, bls. 100. Árið 1866 tók Friðbjörn Steins son bóksali við vörzlu þess, og er talið, að í því hafi þá verið (Framh. á bls. 7) Ný sokkaverksmiðja Á AKRANESI er risin ný sokkaverksmiðja, sem getur framleitt 1800 pör af sokkum á sólarhring. Hún heitir Eva og framleiðir svonefnda netsokka og þá kvensokka aðra, sem eiga að vera lykkjufallalausir crepe- sokkar. Sagt er að Evusokkarnir séu góðir og kosti um 45 kr. parið út úr búð. Q SðEníök kirkju cg ýmsra félaga Margrét Kröyer, Ingibjörg Ilalldórsdóttir og Áslaug Einarsdóttir. (Ljósm.: E. D.) FYRIR nokkru varpaði ungur maður í Fnjóskadal, Ragnar Jónsson í Fjósatungú, fram þeirri hugmynd, að kirkjan og hin ýmsu félög í Suður-Þingeyj- arsýslu hæfu samvinnu til sókn- ar í félags- og menningarmál- um og kysu sér sérstakan leið- toga til starfa á breiðum grund- velli félagsmálanna. Um þetta mál verður fundur haldinn sið- ar í mánuðinum, með fulltrúum hinna ýmsu félaga og‘ kirkju. Kirkjuviku • þeirri í prófasts- dæmi S.-Þing, sem hófst í Húsa- vík í haust, var svo framhaldið með samkomu í Hálskirkju sl. þriðjudag. Þar flutti séra Örn Friðriksson aðalræðuna, og aðr- ir ræðumenn Arnór Sigmunds- son Heiðarbót og séra Björn á Húsavík. Nýstofnaður kvartett frá Húsavík söng. Síðar verða kirkj ukvöld víðar í prófasts- dæminu og er búist við mikilli þátttöku. □

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.