Dagur - 11.01.1964, Blaðsíða 8
8
I Að oían Mælifell, og að neðan frá v.: Jakob Jb'rnnannsson, Borghildur Jónsd. og Hj. Hjartar.
Þegar Mælifell var sjósett
I minntist Simnmörsposten þess í fréttagrein
SVO SEM getið var um hér í
blaðinu 4. des. sl., var hleypt af
stokkunum nýju Sambandsskipi
í Noregi daginn áður. Mörg blöð
þar í landi hafa skrifað um
þennan atburð og nýlega barst
blaðinu grein úr „Sunnmörs-
posten“ í Álasundi, sem fer hér
á eftir í lauslegri þýðingu:
Þriðjudaginn 3. des. sl. setti
skipasmíðastöðin í Aukra
(„Aukra Bruk“) nýtt met með
því að sjósetja „Mælifell“, sem
er stærsta skipið, sem byggt
hefur verið hér í fylkinu, 2750
lestir. Skipið hlaut íslenzka
skírn, sem framkvæmd var af
guðmóður þess, frú Borghildi
Jónsdóttur, konu Jakobs Frí-
mannssonar, formanns SÍS, en
SÍS er eigandi skipsins.
Stærra skip en Mælifell er
vart hægt að byggja í skipa-
smíðastöðinni í Aukra með
þeim útbúnaði, sem þar er í
dag. Skipið er 8S.89 m. langt,
13.20 m. breitt og ristir 5.90 m.
og er án millidekka. Það er
byggt í samræmi við ísl. lög og
eftir alþjóðareglum Lloyds um
öryggi sjófarenda. Það er sér-
staklega styrkt til siglinga í ís
og mun fá 2150 hestafla vél,
sem tengd er beint við skipti-
skrúfu, og auk þess 4 hjálpar-
vélar. Ganghraði skipsins er á-
ætlaður 13 sjómílur. Skipið er
afturbyggt, vélar og íbúðir 25
manna áhafnar aftast í skipinu.
í samtali við Sunnmörsposten
sagði Hjörtur Hjartar, fram-
kvæmdastjóri Skipadeildar SÍS,
(Framhald á blaðsíðu 7).
BRENNISTEINSFYLA
Ólafsfirði 10 janúar. í morgun
fannst töluverð brennisteins-
fýla í Olafsfirði og fannst hún
um 2 kl.st., jafnvel inn í hús, ef
opnaðir voru gluggar. Vindur er
suðlægur.
Atvinna er fremur lítil því afl
inn er mjög tregur, mest rúm
3 tonn í róðri á stærri bátana.
B. St.
•rv
arar minnlus! 80 ár
með f jöimennu og myndarlegu hófi að Bjargi
í FYRRAKVÖLD var þess
minnst á Akureyri, að elzta
stúka landsins, Stúkan ísafold
nr. 1 var 80 ára. Stofnuð á Akur
eyri 10. janúar 1884.
ísafold og Brynja stóðu að
mannfagnaði að Bjargi, sem var
hinn ágætasti. Þar mælti Hann-
es J. Magnússon fyrir minni ísa-
foldar nr. 1 og Eirikur Sigurðs-
son mælti fyrir minni Góðtempl
arareglunar. Magnús J. Kristins
son stjórnaði hófinu. 12 nýir fél-
agar bættust í hópinn, eða jafn
margir og stofnuðu elztu stúku
landsins.
Hér fai’a á eftir nokkur atriði
ur fréttatilkynningu um starf-
semi Góðtemplara á Akureyri,
sem ekki var rúm fyrir í síðasta
blaði:
Haustið 1953 hóf Æskulýðs-
heimili templara starfsemi sína
og hefur á hverju ári gengist
fyrir ýmiskonar námskeiðum og
tómstundaklúbbum. Hefur fjöldi
unglinga eytt þar tómstundum
sínum á undanförnum árum.
Tvo síðustu vetur hefur kvik-
myndaklúbbur skólafólks verið
starfandi í Borgarbíói á vegum
Æskulýðsheimilisins. Á sama
tíma hefur barnabókasafn heim-
ilisins verið til útlána einu sinni
í viku. Mikil aðsókn hefur ver-
ið að bókasafninu.
Þá hefur Æskulýðsheimilið
A V,l-.?5c..'ÍC,. 7\
Ábending Einars Olgeirssonar
„LANDINU ve-rður ekki stjórnað gegn verkalýðnum,
nema með hjaðningarvígum," „Og landmu verður að
vísu heldur ekki stjórnað gegn auðmannastéttinni í
heild með þeim pólitísku valdahlutföllum, sem nú
eru,“ sagði Einar Olgeirsson í áramótaboðskap sínum.
Við lestur þessara ummæla verður að hafa í huga, að
þegar E. O. talar um verkalýðshieyfinguna á hann
að jafnaði við Sósíalistaflokkinn. Því laeUir áreiðan-
lega nærri, að ummælin beri að skilja sem pólitískt
samstarfstilboð til forystumanna Sjálfstæðisflokksins,
og }>á ekki sízt með tilliti til þeirrar vinsemdar, sem
gætir svo mjög í áramótagreininni í garð sumra for-
ystumanna íhaldsins. Hitt er svo annað mái, hvemig
það tilboð kann að mælast fyrir lijá Sjálfstæðismönn-
um, svo og ýmsum þeim oddvitum Alþýðubandalags-
ins, sem ekki eru nefndir í áramótagrein E. O. Eins
og nú standa sakir er ríkisstjómin svo veik, að vin-
samlegar bendingar um stuðning frá gömlum (og nýj-
um) samherja, verður eflaust athuguð á , ,æðri stöðum“.
Nú eru menn reynslunni ríkari
ÞEGAR Hermann Jónasson
myndaði vinstri stjórnina sum-
arið 1956, lýsti hann yfir því
fyrir hönd ríkisstjórnarinnar,
að hún mundi taka ákvarðanir
í efnahagsmálum í samráði við
stéttarsamtökin í landinu. Á
þessu grundvallaratriði og við-
urkenndri nauðsyn þess byggði
vinstri stjórnin efnahagsmála-
stefnu sína á árunum 1956—
1958.
Að hálfu stjórnarandstöðunn-
ar á þeim tíma (þ. e. Sjálfstæð-
ismanna) var þessum boðskap
vinstri stjórnarinnar um sam-
ráð við stéttarsamtökin, mjög
illa tekið. Forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins töldu slík sam-
ráð fjarstæðu og niðurlægjandi
fyrir Alþingi og ríkisvaldið.
En forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins gerðu fleira. Þeir
beittu blaðakosti sínum og ítök-
um í verkalýðshreyfingunni til
þess að reyna að koma í veg
fyrir að þetta samráð milli
stjórnarinnar og stéttarsamtaka
ætti sér stað, eða héldist til
Ekkert þvottaplan til
BIFREIÐAEIGENDUR á Akur
eyri kvarta mjög undan því, að
í bænum er ekkert „þvottaplan1.
Sjást menn víða vera að þvo
bíla sína á götum bæjarins og
eru að því leiðindi og óþrif. Q
frambúðar. Hið fyrra mistókst
þeim. Vinstri stjórnin fram-
kvæmdi ýmsar efnahagsráðstaf-
anir í samráði við stéttarsam-
tökin. En hið síðara tókst. Sam-
ráðið hélzt ekki til frambúðar í
þetta sinn. Sumarið 1958 tókst
Sjálfstæðismönnum, utan og
innan verkalýðsfélaganna að ná
(Framhald á blaðsíðu 4).
Barnastúkan Sakleysið nr. 3 stofnuð 10. júlí 1886. — Jólafundur 1963.
(Ljósm.: N. II.)
SJ()TÍl! OG FIM'M ÁRA:
Bernharð Stefánsson
BERNHARÐ STEFÁNSSON
fyrrverandi alþingismaður varð
75 ára sl. miðvikudag, 8. janúar.
Hann sat óslitið á Alþingi meira
en hálfan fjórða tug ára, sem
fulltrúi Eyfirðinga, var fyrst
kosinn 1923.
Bernharð er þjóðkunnur mað-
ur, gáfaður og rökvís, hafði frá-
bært minni, og hefur enn, er af
ýmsum talinn fróðastur allra
manna um íslenzka stjórnmála-
sögu, ritfær og skörungur í
ræðustól.
Margir heimsóttu Bernharð
og konu hans, frú Hrefnu Guð-
mundsdóttur á þessum tímamó.t
um, færðu honum vinargjafir
og árnuðu honum heilla, en þau
hjónin veittu af rausn.
Blaðið sendir hinum aldna for
ustumanni innilegar hamingju-
óskir um leið og það þakkar
margvíslegan stuðning í ára-
tugi. Q