Dagur - 18.01.1964, Qupperneq 2
2
11/2 til 7 tonna
DIESEL EDA BENZÍNVÉL
I»eir, sem vilja fá TRADER fyrir sumarið, tali við
okkur sem allra fyrst.
TRADER er ódýr bíil.
TRADER er sterkur bíll.
TRADER er íéttur bíli og
nýtist því sérlega vel til hleðslu,
þar sem takmarkaður þungi
er leyfður á vegum.
BÍLASALAN H F. - Geislagötu 5
SÍMI 1649
SMÁTT og stórt
(Framh. af bls. 1).
atvélar úm boTÖ í skipnm sín-
um.
Japanir, Bandaríkjamenn og
Þjóðverjar liöfðu líka frá ýmsu
að segja. Jakob Jalcobsson fiski-
frœðingur lagði þarna fram rit-
gerð, er hann hafði samið, um
þróun síidárveiðitækni íslend-
inga síðastliðinn áratug.
RAÐHÚS HÖFUÐBORGAR-
INNAR.
Hinn 29. des. 1955 gerðust
þau tíðindi í höfuðborginni
syðra, að bæjárfulltrúar, 15 að
tölu úr öllum flokkum, greiddu
atkvæði með einni og sömu til-
lögu og var þar þó um all stórt
mál að ræðá. Tillagan var um
að byggja ráðhús í Reykjavík
við norðurendá Tjarnarinnar.
Ekki virtist þetta staðarval inæl
ast sérlega vel fyrir hjá bæjar-
búum. Reynt var að koma á
samkeppni um teikningar en
tókst ekki vegna skorts á sam-
kcmulagi við arkitektafélagið.
Þá var 8 arkiíektum boðið að
teikna, og íóku 6 þeirra boðinu,
en tveir eru dánir.
RÁDHÚSIÐ ER STÓRT.
Hið fyrirhugaða ráðhús
Reykjavíkur er rúmlega 35 þús.
rúmmetrar að stærð, 8 hæðir,
auk kjallara og kostnaðaráætl-
un hljóðar upp á 120 milljónir.
En þar með er ekki sagan sögð.
Til þess að ráðhúsið njóti sín,
og sú starfsemi, sem þar á að
fara fraih, þarf að rífa 15 hús,
mörg allstór, úr steinsteypu, og
er brunabótaverð þeirra húsa
36—37 millj. kr. Auk þess er
gert ráð fyrir að rífa brú þá
liina miklu, sem nú er á Tjöm-
'mni ög tilheyrandi götu, en
byggja nýja eyju í Tjörninni og
göngubrýr þaðan til lands háðu
megin. Ekki var heldur húsbún-
aður með talinn í kostnaðar-
áætluninni. Þá þykir sýnt, að
ekki komist allar borgarskrif-
stofur fýrir í hinni fyrirhuguðu
byggingu, þótt stór sé, en þar
á móti éiga að verá salir góðir,
skrýddir listaverkúm, ætlaðir
til ýmiskonar fundahálda og
gestamóttöku, ennfremur til
matseldar starfsfólks.
SKRÚFAN SNÝST.
Dýrtíðarskrúfan heldur áfram
að snúast. Milli jóla og nýárs
liækkaði bæjarstjórn Reykja-
víkur fargjöld með strætisvögn-
um úr 3 krónum í 4 krónur og
ýmsa aðra þjónustu. Hér hækka
strætisvagnafargjöldin upp í 5
krónur.
Samtök opinberra starfs-
manna hafa farið fram á 15%
launahækkun vegna liinna al-
mennu kjarasamniiiga í desem-
bermánuði og þeirra launahækk
ana, sem þeir kváðu á um. □
FRÁ REYKJAVÍKUR-
SKÁKMÓTINU
SKÁKMÓT Reykjavíkur stend-
ur yfir og er þrem umferðum
lokið. Efstur er Tal með 3 vinn-
inga síðan Friðrik Ólafsson með
2V2 vinning og Ingvar Ásmunds-
son með 2 vinninga. Ótefldar
eru biðskákir úr 1., 2. og 3. um-
ferð. í mótinu taka þátt 14
skákmenn, þar af 3 stórmeistar-
• ar og 3 alþjóðlegir meistarar. □
Húðúnin er talin vera
bezta fryggingin gegn
rvðskemmdum.
BÍLAEIGÉNDUR!
ATið höftim fullkomiri
tæki til að sprauta
TECTYL ryðvarnar-
efninu um allan bíliian,
þar með taldir holir listar
(sílsar).
TECTYL húðið líka
gamla bílinn, því
TECTYL stöðvar ryð-
myndun eða tefur til
mikilla muna.
Tectyl
er bezta ryðvarnarefnið,
sem við þekkjum.
Pantið tíma hjá verkstjór-
unum á BSA verksíæði
sími 1809.
RÍLASALAN H.F.
Tveir brosíegir karlar
BÆNDUR!
I»ið, sem viljið fá DEXTU eða MAJOR diesel-dráttar-
vélar fyrir sumarið, ættuð að tala við okkur sem fyrst.
Við gettim tekið pantanir til afgreiðslu í apríl.
Alls konar tæki til notkunar með DEXTU og
MAJOR, svo sem:
Horndraulic moksturstæki, heykvíslar, héyvögur,
plógar, herfi, jarðtætarai', áburðardreifarar o. fl.
DEXTA til heyvinnuverka, snúninga og alls konar
smávika.
MAJOR til heyvinntiverka, jarðvinnslu, moksturs og
hvers konar meiri átaka.
BÍLASALAN H F. - Geislagötu 5
SÍMI 1649
Kjarnorkustöðvar geta hreinsað seltu úr sjó
Kari Tryggvason frá Víðikeri
e'r þekktur fyrir barnabækur
sínar. Nú sendir hann frá sér
litla bók, sem nefnist Palli og
Pési. Þetta er bók um tvo
skemmtilega piparsveina, sem
taka að sér tvö munaðarlaus
börn.
Bók þessi er rituð í léttum
tón og leiðist engum við lestur
hennar, en undir niðri er þó
nokkur alvara. Piparkarlarnir
reynast börnunum vel í alla
staði og eiga með þeim skemmti
légar stúndir. Hér verður efni
sögunnar ekki i-akið en allt end-
ar vel að lokum fyrir hinum
tveim umkomulausu börnum.
Og þeir Palli og Pési eru í alla
staði skemmtilegir náungar.
Bókin er myndskreytt af
Ragnhildi Ólafsdóttur.
E. S.
- Koma siglfirzldr
tunnusmiðir?
(Framhald af bls. 1.)
sem um yrði að ræða 8 eða allt
upp í 10 klst. vaktir.
Tunnuefni er hér nóg, því svo
lánlega vildi til að mikið magn
af því, er fara átti til Siglu-
fjarðar fyrir skömmu, var tekið
í fand hér, og mun sú ráðstöfun
eiga sinn þátt í því, hve giftu-
samlega tókst að verja naerliggj-
andi hús, er tunnuverksmiðjan
á Siglufirði brann til ösku.
Bæjarstjórn Siglufjarðar hef-
ur lagt til, að ný tunnuverk-
smiðja þar, verði helmingi
stærri en sú, sem áður var. En
í þeirri verksmiðju voru meðal-
afköst um 500 tunnur á 8 klst.
KJARNORKAN getur ekki
einungis orðið verðmætt tillag
til orkuframleiðslu þróunarlánd
anna, heldur munu kjarnorku-
stöðvar jafnframt geta afsaltað
sjóvatn með sérstökum eiming-
araðferðum, og er ekki að efa
að það mun verða mörgum lönd
um mikilsvert. Þessar upplýs-
ingar komu fram á fundi sér-
fræðinga sem nýlega var hald-
inn í Vínarborg að tilhlutan Al-
þjóða kjarnorkustofnunarinnar,
IAEA.
Sérfræðingunum kemur á-
samt um, að bezta aðferðin til
að aísalta sjóvatn með kjarn-
orku sé eiming. Það eina sem
nauðsynlegt er til eimingar er
gufa með mjög lágum þrýstingi,
og hana getur kjarnorkuofn auð
veldlega framleitt. Hægt er að
reisa mannvirki sem gegni ann-
aðhvort öðru hlutverkinu eða
báðum. Hagkvæmara væri að
gera mannvirki sem gegni báð-
um hlutverkum, sé kjarnorkan
nýtt.
Eins og stendur er tæknilega
fært að reisa eimingarstöð úr
einni eða fleiri einingum sem
eimt geta á degi hverjum 45
milljón vatnslítra á hverja ein-
ingu. Stærri einingar eru fjár-
hagslega hagkvæmari.
Á það er lögð áherzla, aS
enda þótt kjarnorkuofnar séu
nothæfir til eimingar á sjóvatni
í þágu iðnaðár eða matreiðslu,
þá geri þær aðferðir sem nú eru
tíðkaðar eða áætlaðar í náinni
framtíð ekki fært að framleiða
vatn til áveitu á verði sem hægt
sé að bjóða upp á, jafnvel þótt
um mikla framleiðslu væri að
ræða.
Á þurrsvæðum þróunarland-
anna munu vatnsknúnar stöðv-
ar væntanlega geta framleitt.
raforku á lægra verði en diesel-
stöðvar geta nú boðið upp
Stjórnarvöldin í þessum lönd-
um gætu varið því fé, sem þann.
ig sparast til að greiða niður
vatnið som hagnýtt er, og eftir
því sem verð vatnsins lækkar
verður hægt að framleiða meira
vatn fyrir þetta fé.
Sérfræðingaftindurinn lagði
m. a. til við IAEA, að stuðlað
yrði að því að koina fremur á
fót mannvirkjum fyrir heil
svæði, sem væru að öllu eða
einhverju leyti eyðimerkur, en
að reisa einstakar stöðvar fyrir
lítil afmörkuð svæði. Þar sem
umrædd landsvæði liggja á
landamærum, her að hvetja
hlutaðeigandi ríki til samstarfs.
Maðurinn minn
ÓLAFUR GUNNARSSON frá Kljáströnd
andaðist 15. janúar síðastl. — Jarðarförin fer fram
þriðjudaginn 21. þ. m. frá Grenivíkurkirkju kl. 1 e. h.
Anna Vigfúsdóttir.