Dagur - 18.01.1964, Page 7
7
Hvenær koma vegabréfin?
LÖG og reglur mæla svo fyrir,
að unglingar innan 16 ára sé
óheimill aðgangur að dansstöð-
um, — og jafnvel að opinberum
kaffistofum, — eftir kl. 20, nema
í fylgd með fullorðnum, sem þá
bera ábyrgð á þeim. Eigendum
og umsjónarmönnum þessara
stofnana ber að sjá um, að ungl-
ingar fái þar ekki aðgang, eða
hafist þar við. Gott og blessað.
E. t. v. eru skiptar skoðanir um
þetta ákvæði, aldurstakmörk og
fl., en völdum trúnaðarmönnum
hefur virzt hér um nauðsynja-
mál að ræða, og meðan ekki er
hér um breytt, ber þessu að
hlýða. „Með lögum skal land
byggja, en ólögum eyða“.
Skiljanleg er viðleitni ungl-
inga að reyna að fara í kringum
þetta bann, gegnum hindrunina,
enda í mörgum tilfellum næsta
auðvelt. Það er heldur ekki
hægt að áfellast eigendur og um
sjónarmenn stofnanna, — ekki
alltaf, því að til hvers er að
segja: „Þetta skuluð þið sjá um“,
en láta svo vanta það, sem til
þarf, að framkvæmdin sé mögú-
leg. Hvernig eiga dyraverðir
danssala, kvikmyndahúsa, eða
sölumenn í „bar“, vínbúð eð'a í
bíl!!!, að sjá, hvort þessi, hinn
eða hin, sem að sækir, er 15, 16
eða 17 ára, og á hinu leitinu
hvort viðkomandi hefur lifað í
20, 21 eða 22 ár? Hvað tefur
vegabréfin, mörgum sinnum um
itöluðu í þessu blaði og víðar,
sem þessum lagaákvæðum
verða að fylgja í vasa allra á
nokkru árabili? Það virðist svo
fávíslegt að ætlast til viðunandi
árangurs í þessum málum án
vegabréfanna, að maður skyldi
ætla, að við, íslendingar, vær-
um ein af þessum svonefndu
„vanþróuðu“ þjóðum!
Allir vita, að unglingar innan
16 ára eru ekki sjaldséðir gest-
ir í danssölunum. Sömuleiðis
það, að fjöldi ungs fólks fær
keypt og drukkið áfengi, löngu
fyrr en lög heimila. Sumir segja,
að „ríkið“ þurfi á sínu að halda,
það „fljóti“ á vínsölunni! Þess
vegna sé ráðamönnum ekkert
áhugamál að fyrirskipa vega-
bréfaskylduna. En getur sú þjóð
menning talist á háu stigi, sem
þykist græða á því að selja ung-
um og gömlum áfengi? Þegar
verkföllin miklu í des. sl. hindr-
uðu flest viðskipti og lokuðu
almennum verzlunum, var sögð
opin búð og ágæt sala í vín-
verzlun lýðveldisins íslenzka!
Selstöðukaupmennirnir dönsku
reyndu einnig í lengstu lög að
hafa vín og tóbak til sölu, þótt
korn og timbur fengist ekki, svo
að í því efni var þá svo sem
hvorki um framför eða afturför
að ræða!
Því má fagna, að nefnd val-
inna manna taki nú til starfa,
að leita bjargráða æskulýð þjóð-
arinnar, skapa honum holl og
hæfileg þroskaskilyrði. Hún
mun sjá, að í þessum efnum,
eins og fleirum, er þörf skjótrá
aðgerða, annað hvort breyta
þessum ákvæðum, eða krefjast
vegabréfa.
En svo má og á það benda, að
Akureyringar þurfa ekki endi-
lega að koma á eftir öðrum
landsmönnum með æskilegar
umbætur í uppeldismálum og
öðrum. Gæti ekki okkar bæjar-
stjórn og hið starfsama æsku-
lýðsráð verið í þessu á undan
þeim syðra?
Hvað líður vegabréfunum?
Jónas frá Brekknakoti.
ÞAKKARÁVARP!
ÖLLUM ÞEIM, sem heimsóttu
okkur á árinu 1963 og glöddu
okkur með söng, hljóðfæraleik,
upplestri, leikstarfsemi eða sýn
ingu kvikmynda, færum við al-
úðarfyllstu þakkir.
Enn fremur þökkum við Leik
félagi Akureyrar og leikflokk-
um utan af landi hin ágætu
leikhúsboð. Þá flytjum við
Lionsklúbb Akureyrar og stúk-
unni Auði beztu þakkir fyrir
jólagjafir og veitta vinsemd.
Megi nýja árið verða ykkur
bjart og gæfuríkt.
Sjúklingar, Kristneshæli.
w
Fréftðbréi úr Reykjadal
Niðurlag.
Af félagsmálum ber fyrst og
fremst að geta um framtak Umf.
„Eflingar“, er stóð fyrir sýning-
um á leikritinu „Græna lyftan“,
undir leikstjórn frú Ingu Þórð-
ardóttur, leikkonu úr Reykja-
vík. Sýningar voru í apríl- og
maímánuði alls 9, sex heima fyr
ir og þrjár utansveitar. Ágóði af
sýningum þessum gengur til
stækkunar á samkomuhúsi
hreppsins og er það veruleg fjár
hæð.
Kvenfélag sveitarinnar starf-
aði með líkum hætti og áður.
Nýlunda var, að á vegum þess
tóku konur úr hreppnum þátt í
orlofsferðum húsmæðra til Aust
urlands og orlofsnefnd Kven-
Hér með er óskað eftir að kynnast reglitsömum og
góðum manni til landbúnaðarstarfa eða barnlausum
hjónum, sem gætu tekið að sér störf og umsjón á
heimili nálægt Akureyri snemma á næsta vori. Ef um
er að ræða tilboð væri gott að fá þau bréflega sem
fyrst gegnnánari upplýsingum, sent til
STEFÁNS JÓNSSONAR, Skjaldarvík við Ak.
Gluggatj aldaefni
þunn og þykk
Fjölbreytt íirval nýkomið.
VÖNDUÐ EFNI
félagasambands Suður-Þingeyj-
arsýslu sá um.
Karlakór starfaði nokkuð und
ir vorið og tók þátt í söngmóti
„Heklu“ 7. og 8. júní sl.
Vafalaust hefur það eitthvað
dregið úr félagslífi, að óvenju
kvillasamt var í sveitinni þetta
ár. Þrjár farsóttir gengu: inflú-
ensa, hlaupabóla og rauðir hund
ar. Auk þess gengu mislingar í
Laugaskóla, en breiddust ekki
út fyrir skólann.
Þrír íbúar hreppsins létust á
árinu: Kristín Pétursdóttir, fyrr
um húsfreyja í Stafni, var hún
elzt hreppsbúa, níræð að aldri,
Bergþóra Magnúsdóttir, hús-
freyja Halldórsstöðum, Laxár-
dal og Magnús Magnússon,
bóndi Kvígyndisdal.
Nokkuð var um brottflutn-
ing fólks úr hreppnum. Er þó
■ raunar í mörgum tilfellum um
að ræða fólk, sem skráð var hér
til heimilis, þótt ekki hafi það
dvalið hér árum saman, en einn-
ig fluttu héðan tvær fjölskyldur,
er aðsetur höfðu hér um skeið.
Innflutningur fólks var ekki,
og þótt barnsfæðingar væru all-
margar, hafa þær sennilega ekki
vegið á móti fólksfækkuninni.
Mun því vera um einhverja
fækkun íbúa að ræða á árinu,
en endanlegur íbúafjöldi sam-
kvæmt þjóðskrá 1. desember
1962 var 410 og var hreppurinn
þá fjölmennastur í Suður-Þing-
eyjarsýslu. G. G.
KRISTNIBOÐSHUSIÐ ZION.
Sunnudaginn 19. jan. Sunnu-
dagaskóli kl. 11 f. h. — Sam-
koma kl. 8.30 e. h. — Allir
velkomnir.
FRÁ K. F. U. K.
Fundur í aðaldeild
(17 ára og eldri) mið-
vikudaginn 22, jan.
kl. 8.30 e. h. — Allir velkomn-
ir. — Bryndís BÖðvarsdóttir.
SKÓGRÆKTARFÉLAG Tjarn-
argerðis og bílstjórafélaganna
í bænum heldur spilavist
sunnudaginn 19. janúar í
Alþýðuhúsinu kl. 8.30 e. h.
UNGLINGAR ATHUGIÐ! Enn-
þá er hægt að komast að á
föndurnámskeiði æskulýðs-
ráðs, sem hefst n. k. miðviku-
dag kl. 8 e. h. Kennari Jens
Sumarliðason. Upplýsingar í
síma 2722 milli kl. 2 og 4 dag-
lega. Æskulýðsráð Ak.
SKÍÐAFÓLK, ATHUGIÐ! Enn-
þá er ósótt allmikið af skíðum,
sem tekin voru úr Skíðahótel-
inu í haust. Hlutaðeigendur
eru beðnir að taka þau Sem
allra fyrst í íþróttavallarhús-
inu. Opið kl. 2—4 alla virka
daga nema laugardaga kl.
10—12 f. h.
FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN Ath!
Æfingar á miðvikudögum kl.
6 e. h. Kennari Hermann Sig-
tryggsson. Stjómin.
ÞORRABLÓT. Verkalýðsfélagið
Eining hefur árshátíð og
þorrablót í Alþýðuhúsinu
laugardaginn 25. þ. m. — Sjá
auglýsingu í blaðinu.
ÁHEIT og gjafir til Hríseyjar-
kirkju 1983: Baldrún Árna-
dóttir kr. 100, I. Ó. kr. 100,
E. J. kr. 250, Sigríður Jóns-
dóttir kr. 2.000, A. H. kr. 100,
Jóhanna Kristinsdóttir kr.
100, Unnur Björnsdóttir kr.
200, Esther Júlíusdóttir kr. 50,
N. N. kr. 500, L. J. kr. 200,
Sólveig Hallgrímsdóttir kr.
200, Elín Árnadóttir kr. 1.000,
Hrefna Víkingsdóttir kr. 250,
N. N. kr. 200, Stefán Trausta-
son kr. 500, Steinunn og Sig-
urður kr. 300, Eldri hjón kr.
400, Ó. H. kr. 200, Jóhanna
Sigurgeirsdóttir kr. 100, N. N.
kr. 375. — Samtals kr. 7.125.
Með þökkum móttekið. —
»:* \ \ r, \ ■*
*/ Sóknarnfefhdín. * '
HJÚSKAPUR. Hinn 28. des. sl.
voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Anný Lilleskog Noregi
og Jónas Eiríkur Halldórsson
bóndi í Sveinbjarnargerði á
Svalbarðsströnd. Hjónavígsl-
an fór fram í Noregi. Heimili
Ungu hjónanna verður í Svein
bjarnargerði.
S K í Ð A KLÚBBSFUNDUR í
Skíðahótelinu Hlíðarfjalli í
kvöld, laugardag, 18. janúar
kl. 9 e. h. Allir áhugamenn
kvattir til að mæta. Ferð frá
Hótel KEA kl. 8 e. h. með
Hópferðum s.f.
Skíðaklúbburinn.
J^mtsímlmsafmð er opið
alla virka daga kl. 2—7 e. h.
NÁMSKEIÐ til undirbúnings
meira prófs bifreiðastjóra
verður haldið á Akureyri, ef
næg þátttaka fæst, og hefst
þá fyrrí hluta febrúar. Um-
sóknir sendist Bifreiðaeftir-
litinu á Akureyri fyrir 25.
janúar.
ÁHEIT á Akureyrarkirkju kr.
100.00 frá Ugga Uggasyni, á
Sumarbúðirnar við Vest-
mannsvath frá N. N. kr. 100,
og á Strandarkirkju kr. 200
frá A. G. — Beztu þakkir.
Birgir Snæbjömsson.
ATHUGIÐ!
Geri við MYNDAVÉL-
AR, SJÓNAUKA o. fl.
Afgreiðsla lijá
gullsmiðum
SIGTRYGGI og PÉTRI
Brekkugötu 5, Akureyri
Ásmundur Kjartansson.
- RUBLAN TALAR
(Framhald af blaðsíðu 4).
sökum? Ekki erum „vér“ Is-
lendingar að byggja þessa
margfrægu ,,vináttulínu“.
Orðbragðið er óskiljanlegt,
nema að greinin um „vin-
áttulínuna“ sé samin í rússn-
eska utanríkisráðuneytinu og
að gleymst hafi að breyta
orðalagi á tilhlýðilegan hátt,
áður en hún birtist í Þjóð-
viljanum. □
SPILAKLÚBBUR
Skógræktarfél. Tjarnar-
gerðis og bílstjórafélag-
anna í bænum:
Hin vinsælu SPÍLA-
KVÖLD okkar hefjast á
ný með félagsvist í Al-
* þýðuhú$inU sunnudaginn
19. jaúúar kl. 8.30 e. h.
Góð kvöldverðlaun og
heildarverðlaun fyrir
4 kvöld.
Húsið opnað kl. 8.
Fjölmennið og mætið
stundvíslega.
Stjómin.
VEFNAÐARVÖRUDEILD
HÖFUM FENGIÐ
ENSKT TEKEX
kr 20.50 pakkinn.
KJÖRBÚÐIR K.E.A.
Kápuútsðla
hefst mánudaginn 20. jan.
KÁPUR
frá kr. 400.00
KÁPUR
fyrir hálfvirði og minna.
MARKAÐURINN
Sími 1261