Dagur - 25.01.1964, Síða 8

Dagur - 25.01.1964, Síða 8
8 MEÐAL ÞEIRRA, er litu inn á skrifstofur Dags á fimmtudaginn, var halur einn hærugrár, 82 ára gamall og kenndur við fræg höf- uðból sunnanlands og norðan, Bessastaði og Laxamýri, og býr hann enn á hinu síðarnefnda. — Þetta var Jón H. Þorbergsson á Laxamýri, gamall og nýr baráttumaður fyrir velferðarmálum land- búnaðarins, enn fullur áhuga og hvergi myrkur í máli. Þar sem blaðið hafði frétt af væntanlegri ævisögu hans í bókarformi og vissi, að þar var af óvenjulega miklu að taka, beindi það til hans eftirfarandi spurningu: Þeir Elías (með gleraugu) og Bragi leggja síðustu hönd á uppsetningu gufuketilsins. (Ljósm.: St. Þ.) Plastiðjan Dúði á Sauðárkróki Stefán Þorláksson verkfr., kennari á Hólum, heimsótti verksmiðju þessa nýlega og hefur góð- fúslega orðið við þeirri ósk Dags, að skýra les- endum blaðsins frá því, sem þar gerðist SAUÐÁRKRÓKUR stendur í skugga síns umhverfis, sneydd- ur sögu Sturlunga og biskupa, gulljarma síldarkassa og hárra reykháfa og utan við alfaraleið. Þó veit þorpið vel við sólu og hefur sín sérkenni. Við hafnar- garðana lengst í norðri byltast bátarnir í böndum vetrarlangt. Gönguskarðsá rennur eftir rör- um niður bratta brekku inn í hvíta byggingu, skilar orku sinni inn í raftaugar héraðsins og lognast síðan undir aðalgötu þorpsins í sjó fram. Sunnar breikkar byggðin og breiðist út um flatt undirlend- ið. Syðst ber sjúkrahúsið við himin. Á melum, sunnan hafnarinn- ar, hefur iðnaðurinn hreiðrað um sig, getulítill og smár, en ört vaxandi og með framtíðina að merg. Hér var Plastiðjan Dúði stofn uð síðastliðið vor. Dúðinn er nú vaxinn upp úr sínu upphaflega húsnæði, og eigendurnir eru önnum kafnir við að koma vél- um og áhöldum fyrir í nýju hús næði, stóru og vistlegu. Fyrir dyrum liggja lestarhlerar, vír- kaðlar og járnarusl, en inni er hamrað, borað og bisað. Þarna eru þeir Bragi Sigurðs- son og Elías Halldórsson að verki. Þeir eru báðir upp runn- ir í Borgarfirði eystra. Bragi lærði vélsmíði hjá Björgvin Freðriksen í Reykjavík, en El- ías myndlist í Handíða- og myndlistarskólanum og við listaháskólann í Stuttgart og í Kaupmannahöfn. Hann hefur haldið þrjár sýningar á verkum sínum og fengið góða dóma. Báðir standa þeir félagar traustum fótum í þjóðlegum fræðum og bókmenntum. Bragi smíðaði sjálfur allan útbúnað til plastgerðarinnar, þ. e. gufuketil, sprengjara, press- ur og bandsög. Skulum við nú athuga hlut- verk hvers um sig: Sprengjarinn er tæplega tveggja metra hár, allvíður sí- valningur úr blikki, stendur upp á endann og opinn uppúr. Eftir sívalningnum endilöngum er öxull með þverslám, sem ná út undir veggi hans. Rafmótor snýr öxlinum allhratt, þegar verkfærið er í notkun. Gufu- leiðsla er tengd við botn sprengj arans. Fáeinum lítrum af hráefninu, polisterol, sem líkist sagogrjón- um að sjá, er hellt í sprengjar- ann hverju sinni. Síðan er gufu- leiðslan opnuð og öxulútbúnað- u rinn, sem gegnir hlutverki hrærara, settur í gang. Plast- kornin þenjast nú ört sundur. Þegar þau eru stigin í ákveðna hæð, og hafa um það bil hundr- aðfaldast að rúmmáli, er lokað fyrir gufustrauminn og plast- kúlurnar látnar renna í gryfju, þar sem þær eru súgþurrkaðar. En þær eru svo eðlisléttar, að strengja verður striga yfir, annars fykju þær út í veður og vind. Ur gryfjunni er plastkúl- unum blásið í geymslurúm í rjáfri hússins, gegn um rör. Þaðan renna þau af þunga sín- um í pressurnar, sem eru kass- ar úr stáli og aluminíum. Lok og botn eru tvöföld, sett smá- götum inn að kassanum. Þegar kassinn hefur verið fylltur af plastkúlum, er honum lokað og gufu hleypt á, með allháum þrýstingi, inn um lok og botn. Gufan skríður inn milli korn- anna og hverfur út um göt á hliðum kassans. Eftir fáar sek- undur er lokað fyrir gufurásina og köldum loftstraumi beint að pressunni. Við þetta hafa plast- kornin límzt saman og myndað kubb, nákvæmlega lagaðan eftir kassanum. Kubbunum er raðað í stæður og látnir standa einn eða tvo sólarhringa, áður en þeir eru sagaðir niður í plötur. Skulum við nú spjalla við nú spjalla við eigendurna. Hvers vegna settist þú að á Sauðárkróki, Bragi? Foi’lögin réðu því. Ég vann að uppsetningu frystivéla hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Þá kynntist ég heimasætu á Sauð- árkróki og kvæntist henni, byggði mér síðan vélaverkstæði og hef stundað alls konar vél- smíði og vélaviðgerðir síðan, einkum frystivéla. (Framhald af blaðsíðu 8). Ertu að skrifa ævisöguna þína, Jón? Já, ég er að mestu leyti búinn að því og vona að hún geti kom- ið út síðar á þessu ári. Hún á að heita Ævidagar og fjallar auðvitað um mína eigin ævi, en einnig eru þarna margir þættir af mönnum, sem ég hefi kynnst á lífsleiðinni. Það eru ýmsir að reka á eftir mér og spyrja eftir bókinni. Þú munt hafa ferðast meira um landið og komið heim á fleiri bæi en flestir aðrir? Þú getur ímyndað þér það, því í fimm vetur ferðaðist ég um landið, það var á árunum 1909—1914. Ég var þá að leið- beina bændum um ýmislegt varðandi búskapinn. Ég fór oft bæ frá bæ, sveitirnar á enda. Sauðfjárræktin var mitt mesta áhugamál, enda hafði ég dval- ið fimm ár erlendis, bæði í Skotlandi, Noregi, Danmörku og Hjaltlandi og kynnt mér sauðfjárræktina alveg sérstak- lega. Kaup fékk ég ekkert en hafði styrk frá Búnaðarfélag- inu. Þetta var auðvitað enginn gróðavegur, en það var gaman. í hverju voru leiðbeiningar þínar helzt fólgnar? Fráfærurnar voru að leggjast niður og þurfti þá að 'leggja höfuðáherzlu á framleiðslu dilkakjötsins fyrir erlenda markaði og auka gæði ullarinn- ar. Byggingarlagi sauðfjárins þurfti að gerbreyta, bæði til að fá hina eftirsóttu lögun á kropp- ana og einnig að rækta upp kjötsöfnunai'hæfileikann. Og til þessa hafa hrútasýning- arnar verið áhrifaríkastar? Auðvitað, og þær fyrstu, sem haldnar voru hér á landi, voru hérna í Eyjafirðinum. Þetta var alveg nýtt, en bændurnir skildu þýðingu þeirra strax og höfðu af þeim mikil not. Sýningar þessar færðu bændur saman og þeir lærðu mikið hver af öðr- um, og auðvitað lærði ég ekki minnst sjálfui'. Einangrun bænd (Framhald á blaðsíðu 2). BÖRN hafa að undanförnu gert sér það að leik að skera niður þvottasnúrur. Húsmæð- ur kunna þessu illa. Lögreglan hefur náð nokkrum sökudólg- anna og gefið þeim verðuga áminningu. Q Villimiiikur og HÉR Á LANDI fá menn gæsahúð og ljótustu orð verða mörgum á munni, þegar minkur er nefndur. Svo illa hefur þetta grimma villidýr reynzt hér á landi þá fáu áratugi sem það hefur haft hér bólfestu, fyrst sem eldisdýr í búrum og síðan sem villidýr og skað- valdur í varplöndum, fiskivötnum og á alifuglabúum. Bjartsýnir menn reiknuðu milljónagróða af innfluttum minkastofni, en í stað þess er nú milljónum varið til að koma honum fyrir kattamef. Saga minksins hér á landi minnir á uppvakinn draug, sem ekki hefur tekizt að kveða niður og er talið vonlaust verk héðan af. En með mörgum og kostnaðarsömum aðferðum, mun svo komið, að stofninum er haldið nokkurn veginn í skefjum, en hinsvegar nemur þessi vágestur árlega land á nýjum stöðum og verður innan tíðai' kominn um landið allt. I þessari hörðu baráttu og miklu þráskák við hið innflutta kvikindi, hefur draumurinn um milljónagróða af loðskinnum þess gleymst svo gjörsam- lega, að fáir bera sér hann nú lengur í munn, og þá með hálf- um huga, En draumurinn gamli, um loðskinnaframleiðslu, sem við mink er kennd, á eftir að ræt- ast. Fyrir því liggja öll hin sömu rök nú og fyrir 30 árum, að minkarækt geti verið mjög hagkvæm hér á landi. íslend- ingar selja út minkafóður og geta framleitt það með litlum takmörkunum, á meðan fiskur veiðist hér við land og fiskiðn- aður er stundaður. En það þarf aðra stofna en þá, sem hingað voru í öndverðu fluttir inn, og kunnáttu í minkaeldi og sölu skinnanna. Enn hljómar orðið minkapels eins og eins konar lykilorð að eftirsóttum dyrum samkvæmislífsins. (Framhald á blaðsíðu 4). Ráufarhöfn. 24. janúar. Nýlega fór það síðasta af sumarsíldinni héðan. Hvassafell tók hana og er á leið með hana til Finnlands. Hvassafellið kemur víst ekki aftur hingað, a. m. k. ekki sem SÍS-skip, því að búið er að selja það úr landi. Síldarlýsið er allt farið og heita má að allt mjölið sé einnig farið héðan. Það er alveg óvenjulegt, að losna svona fljótt við alla síld og síldarafurðir. Hér er verið að byggja nýja síldarsöltunarstöð, Síldin h.f. Aðaleigandi er Jón Einarsson á Raufarhöfn. Hús fyrir fólkið, sem einnig á að vera lagerhús, er komið undir þak. Skólahúsið nýja er nokkuð á veg komið og miðar sæmilega. Það er komið undir þak og ver- ið er að leggja í það miðstöð og setja í það einangrun. H. H. Ævisaga Jóns á Laxamýri kemur úf síðar á bessu ári Viðtal við höfundinn um bókina o. fl.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.