Dagur - 26.02.1964, Qupperneq 8
8
EKKI er það bílslys sem í þetta skipti dregur fólkið að, heldur nýr Daf-sýningarbill, girkassa-
laus og reimadrifinn, fjögurra manna og kostar 120 þúsund krónur. 70 slíkir Daf-bílar eru nú
til hér á landi. Þeir eyða G—7¥z 1 á 100 km og eru fremur forvitnilegir. Söluumboð á Akureyri
hefur Sigvaldi Sigurðsson rakari. (Ljósmynd: E. D.)
Krabbameinskvikmyndin „Einn af 20.000“ verður sýnd í Borgarbíói
ÞORRABLÓTSGESTIR VEIKTUST
SAMKVÆMT upplýsingum hér
aðslæknisins, Jóhanns Þorkels-
sonar, veiktust margir Þorra-
blótsgestir Sjálfstæðishússins í
maga á laugardaginn og sumir
mikið í bráðina.
Héraðslæknir telur líklegt, að
orsakar.na sé að leita í sviðum
og hval, sem á borðum var. En
hann sendi í gær sýnishorn af
matvælum þeim, sem á borðum
voru umrætt kvöld, til Rann-
sóknarstofu Háskólans, og vænt
ir þess að eftir tvo daga eða
svo komi úrskurðurinn. Enn-
fremur hefur hann skoðað allt
starfsfólk Sjálfstæðishússins.
Matareitrun er örðugt að úti-
loka að fullu, en áríðandi er,
að þegar í stað sé orsaka leitáð,
svo sem hér er gert, Að sjálf-
sögðu er „grunaður“ matur ekki
á borðum Sjálfstæðishússins nú
og vonandi hressast Sjálfstæðis-
menn og gestir þeirra, sem
þarna blótuðu Þorra, bæði fljótt
og vel. □
Frá Búnaðarþingi
Einir h.f. bætir húsakosf sinn og framleiðsluvélar
Reykjavík, 22. febrúar.
EINS og kunnugt er, var Bún-
aðarþing sett föstudaginn þ. 14.
þ. m. í búnaðai'þingssalnum í
Bændahöllinni. Er það í fyrsta
sinn, sem fundir þess verða
haldnir á þeim stað. Formaður
Búnaðarfélags íslands Þorsteinn
Sigurðsson setti þingið með
ræðu, sem birt hefur verið í
blöðum og útvarpi, svo engin
nauðsyn er að rekja efni hennar
hér. Landbúnaðarráðherra, Ing-
ólfur Jónsson, flutti og ræðu
við setningu þingsins og hefur
hún einnig verið birt.
Ýms merk mál hafa verið
lögð fram á þessu þingi, sem
það að sjálfsögðu mun taka til
umræðna ag ályktana eins og
venja er.
Sá háttur hefur verið hafður
á störfum þingsins hingað til,
að þingfundir hafa verið mjög
fáir, en því meira starfað. í
nefndum. Er því margt mála
komið nokkuð áleiðis og verða
ályktanir lagðar fyrir Búnaðar-
þingsfundi næstu daga.
Af málum, sem fram hafa
komið, má nefna: Um heymjöls
verksmiðju í S.-Þing. Frumvarp
til laga um búfjárrækt. Reglu-
gerð um búnað ökutækja. Um
verzlun á tilbúnum áburði. Um
rannsóknarstofu á Akureyri og
hefur því máli verið vísað til
2. umræðu. Frumvarp til girð-
ingarlaga og ýms fleiri, sem hér
verða ekki talin.
í gær flutti formaður Bf, Þor-
steinn Sigurðsson, skýrslu
stjórnarinnar. Rakti hann þar
störf hennar fr@ því síðasta
Búnaðarþing var háð. Þær
(Framhald á blaðsíðu 7).
Frá vinstri: Þórgunnur, Bryndís og Sigrún.
Þær hlutu verðiaun fyrir riígerðir
ÁFENGISvarnarnefnd Akureyr
arkaupstaðar, en form. hennar
er Ármann Dalmannsson, stakk
upp á því í vetur við settan
skólastjóra Gagnfræðaskólans,
Sverri Pálsson, að nemendur
skrifuðu stíla um áfengismál
og kepptu með því um bóka-
verðlaun. Hugmyndinni var vel
tekið, sem vænta mátti. Verð-
andi gagnfræðingar, þ. e. nem-
endur fjórða bekkjar skólans,
fengu efni þetta til viðfangs.
Nú hefur dómnefnd fjallað um
stílana. Fyrstu verðlaun hlaut
Bryndís Tryggvadóttir, önnur
verðlaun Sigrún Vignisdóttir og
þriðju verðlaun hlaut Þórgunn-
ur Lárusdóttir. Stílsefnið hét
„Áfengi og skemmtanir.“ Þeir,
sem stílana dæmdú, voru, Ár-
mann Dalmannsson, Eiríkur
Sigurðsson og Þórarinn Guð-
mundsson. Verðlaunin afhenti
Ármann að fjórða bekk, skóla-
stjóra o. fl. viðstöddum. □
Á skaufum á Ólafsfjarðarvafni
LÍTIÐ hefur verið um skauta-
svellin á Akureyri og í nágrenni
í vetur og minna um skautaæf-
ingar hjá Skautafélaginu og
öðrum, en oftast áður.
Um síðustu helgi brugðu 14
Skautafélagsmenn sér til Olafs-
fjarðar til að fara á skauta á Ól-
afsfjarðar vatni, sem er ágætum
ísi lagt.
Þar fór fram skautahlaup og
ennfremur ísknattleikur. Akur-
eyringar fengu góðar viðtökui'
í Ólafsfirði, yar m. a. boðið til
kaffidrykkju í Tjarnarborg.
Þess má einnig vænta að gest-
koman hafi örfað áhuga heima-
manna fyrir hinni fögru og
hollu íþrótt. Ólafsfirðingar hafa
verið mikið á skautum í vetur.
Á LAUGARDAGINN áttu
fréttamenn þess kost að sjá end
urbætur og stækkun Húsgagna-
verzlunar Einis h.f. í Hafnar-
str'æti 81 B á Akureyri. Þar er
nú rýmra en áður var, bjartara
og vistlegra og ennfremur
meira úrval í verzluninni.
Þar eru nýtízkuleg húsgögn
og fjölbreytt, og þó eitt sófasett
kosti álíka margar krónur og
tvær til þrjár sæmilegar bújarð
ir kostuðu fyrir þrem áratugum
eða svo, er verðið talið hóflegt,
í samanburði við það er nú
tíðkast. Og nú unir fólk því
ekki lengur að hafa hýbýli sín
án slíkra húsgagna.
Einir h.f. var. stofnaður fyrir
10 árum og verzlunin verið
þarna síðan. En þetta hlutafé-
lag er einnig framleiðslufyrir-
tæki — framleiðir megin hluta
húsgagnanna, sem það selur og
er verkstæðið í Kaupvangs-
stræti 19. Þar hefur nýlega ver-
ið seft upp stærsta og fullkomn-
asta límpressuvél, sem til er hér
í bæ.
Tíu manns vinna við fyrir-
tækið Einir h.f. Eigendur eru
þeir Jón H. Oddsson, sem jafn-
framt er forstjóri fyrirtækisins,
og Guðbrandur Sigurgeirsson,
sem er verkstjóri. Húsgagna-
verzlunin annast umboö fyrir
Axminsterteppi og Faber-
gluggavörur, en sendir nokkuð
af framleiðslu sinni á markað
höfuðborgarinnar, eins og fleiri
húsgagnaframleiðendur á Ak-
ureyri.
Þar sem húsgagnaframleiðsla
er fremur smá á hvei-jum stað
og raunverulega engin fjölda-
framleiðsla til, byggist tilvera
þeirra að verulegu leyti á hug-
kvæmni í framleiðslunni, bæði
í skipulagningu vinnuafls og
vélanotkunar og því, að fylgjast
með hinum öru og næstum alls
ráðandi tízkusveiflum í þessari
grein. Þetta 10 ára gamla fyrir-
tæki hefur staðist byrjunarörð-
ugleika, hefur nýlega verið end-
urskipulagt og er í örum
vexti. Q
Guðbrandur Sigurgeirsson (t. v.) og Jón H. Oddsson, eigendur
Einis li.f., í húsgagnaverzluninni.
AÐ undanförnu hefur þessi
mynd -verið sýnd fyrir fram-
haldsskólana í bænum. GA, MA
og Tæknideild Iðnskólans, og
hafa á annað þúsund ungmenni
séð myndina. Einnig var hún
sýnd í Kvennaskólanum á
Laugalandi, á Sauðárkróki og í
Olafsfii’ði, en þar var hún, auk
skólasýningar, sýnd almenningi,
og sóttu þá sýninguna um 200
manns. Margir bæjarbúar hafa
látið í ljós áhuga á að sjá þessa
umtöluðu mynd og verður hún
sýnd í Borgarbíói n. k. fimmtu-
dagskvöld kl. 8,30. Þar sem sýn-
ingartími þessarar myndar er
aðeins um 25 mín. verða fleiri
myndir sýndar. T. d. ágæt um-
ferðarmynd sem heitir „Hvern-
ig ekur þú?“ Sýnir hún m. a.
góðakstur, en líka akstur glann-
ans. Einnig hvernig nota skal
stýri og hemla í hálku o. s. frv.
Athyglisverð og skemmtileg
mynd. Bæjarbúar og nærsveita-
fólk ætti að nota þetta tækifæri
og eru allir eldri en 12 ára vel-
komnir. Sýningin er ókeypis. □