Dagur - 29.02.1964, Blaðsíða 4
4
5
• •
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1166 og 1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Kall hins
nýja tíma
í SNJALLRI GREIN í Tímanum
15. febrúar gerir Karl Kristjánsson
alþingismaður upp reikning „við-
reisnarinnar“:
„ÞAÐ er hið mikla ásökunarefni á
hendur hinni rangnefndu stjórnar-
stefnu, „viðreisn,“ segir Karl Kristj-
ánsson alþingismaður, „að góðærin í
hennar tíð hafa að miklu leyti farið
í að mæta mistökum hennar ....
Hún hefur „týnt í tímans liaf“ dýr-
mætum hagsbóta-tækifærum og mis-
hlaðið þjóðarskútuna. Dýrtíðin
spinnur sig upp dag frá degi. Verk-
lý ðsstéttirnar hafa kjör sín óbundin
samningum eftir að kemur fram í
maí og júní. Starísmenn ríkis og
bæja hafa áskilið sér rétt til launa-
hækkunar hvenær sem almennt kaup
hækkar. Verð á afurðum bænda á
að fylgjast með. Kjör sjómanna koma
til endurskoðunar fyrir síldarvertíð-
ina í sumar. Undir fótum er flug-
háll ísinn og veikur. . . .“ Hann seg-
ir, að þjóðinni liggi á að komast af
hinum hála og veika ís. í þessu
sambandi minnir hann á tillöguna,
sem Framsóknarmenn fluttu á Al-
þingi í vetur um tilraun til að koma
á samstarfi allra flokka um lausn
efnahagsmálavandans. Allir þing-
menn stjórnrflokkanna greiddu at-
kvæði á móti henni. Þeim varð
„felmt við.“ Með því að neita sam-
starfinu „margfaldaði ríkisstjórnin
og flokkar hennar þunga ábyrgðar-
innar, sem á þeim hvílir," sagði Karl
Kristjánsson í greinarlok.
HERMANN JNASSON fyrrv. form.
Framsóknarflokksins hefur lítt rætt
opinberlega um stjórnmál undanfar-
ið. En í vikunni, sem leið, var aug-
lýst að hann yrði frummælandi á
fundi Framsóknarfélags Reykjavík-
ur. Fundur þessi var mjög f jölmenn-
ur. Ræðuefni Hermanns Jónassonar
var:
„HVAÐ TEKUR VIÐ eftir gjald-
þrot viðreisnarinnar?“ Hann ræddi
um framtíðina. Sagði, að íslenzkt
þjóðfélag væri sjúkt um þessar mund
ir, og að hér þyrfti að koma „íslenzk
endurreisn, andleg og efnahagsleg.“
„Er ekki aðkallandi að gera það að
kennslugrein Jxegar í barnaskólum,
hvílík hamingja ]>að er að vera |>egn
í heilbrigðu þjóðfélagi? Og er J>að
ekki skylda hvers Jiegns að leggja sitt
fram til Jxess að skapa J>etta J>jóð-
félag?“ spurði Hermann Jónasson.
Hann ræddi m. a. um }>að að rann-
saka þyrfti hleypidómalaust J>ær að-
ferðir, er bezt (Framhald á bls. 7)
TOFRASPROTI FRAMFARANNA
I SÍÐASTA BLAÐI var birtur, efnislega, kafli úr ræðu Stein-
gríms Hermannssonar verkfræðings, og fara hér á eftir nokkrir
meginþættir úr síðari hluta ræðunnar, nokkuð styttir.
MÉR finnst ekki ástæða til að
ætla, að okkar húsgögn geti
ekki staðist samkeppni við t. d.
dönsk húsgögn á erlendum
markaði. En erfiðleikinn er sá,
að við erum svo litlir, þ. e. höf-
um litlar einingar í framleiðsl-
unni. Til greina gæti komið að
sameina húsgagnaframleiðsluna
á einhvern hátt, með landssam-
bandi húsgagnaframleiðenda,
sem gæti beitt sér fyrir útflutn-
ingi á húsgögnum, svo sem
Danir gera. Og við þurfum að
nýta betur húsgagnaarkitekta
þá, sem við eigum. í Danmörku
sá ég í haust rúm, sem teiknað
var af ungum íslenzkum hús-
ullarinnar til iðnaðar hér inn-
anlands. Við eigum ágæta og
nokkuð sérstæða ull og tölu-
verða þekkingu til að byggja
vaxandi ullariðnað á. En bæta
þarf ullina sjálfa og nota aukna
þekkingu og tækni.
Stóriðjumálin.
Ríkisstjórnin setti upp svo-
nefnda stóriðjunefnd fyrir 4—5
árum, skipaði hana flokksmönn-
um sínum. Einn ráðherrann stóð
nýlega upp á Alþingi. og lýsti
þar miklum áætlunum um stór-
iðju hér á landi. Mér er að vísu
ekki grunlaust um, að hér sé
um nokkrar skýjaborgir að
ur, sem konurnar nota, jafnvel
sem fylliefni í meðöl. í asperini
mun meginhlutinn kísilduft. Og
það er líka notað sem eins kon-
ar sía í alls konar efnaiðnaði.
Stærstu neytendurnir þar eru
bjór- og vínframleiðendur. Þeir
hreinsa sína framleiðslu með
því að láta hana renna í gegn
um síu af þessu efni, og margt
fleira má nefna.
Leirinn í Mývatni hefur ver-
ið rannsakaður í mörg ár á
vegum raforkumálaskrifstofunn
ar og rannsóknarráðs ríkisins.
Og það kom í ljós að þarna er
gífurlega mikil náma og líklega
sú stærsta, sem til er í Evrópu.
Á vesturströnd Bandaríkjanna
eru stærri námur til. Þær eru
þurrar og afar hreinar. Ymsir
Á fundi F'.XJ.F’., þar sem Steingrímur Hermannsson ræddi um atvinnumálin. (Ljósmynd: G. P. K.)
gagnaarkitekt þar. Þegar Rokke
feller kom þangað, er sagt að
hann hafi keypt slík rúm fyrir
allt sitt hús og þessi framleiðsla
rann síðar út í Bandaríkjunum.
Húsgagnaiðnaðurinn er dæmi
um iðnað, sem er ekki um of
háður fjödaframleiðslu, eða a.
m. k. sjálfvirkninni. Þar kemur
hið listræna meira til. Sama er
að segja um bátasmíði. Við
hljótum að geta byggt báta með
ágætum og selt þá við góðu
verði.
Tækni- og iðnfræðingar.
Tækni- og iðnfræðingar hér á
landi eru hér um bil 1 fyrir
hverja 3 verkfræðinga. í Dan-
mörku er þetta alveg öfugt: 3
fyrir hvern 1 verkfræðing. Og
verkfræðingafjöldi okkar er
heldur færri en í Danmörku,
hlutfallslega. Þannig er þróun-
in í öllum löndum, að tækni-
fræðingum fjölgar mjög ört.
Við erum, á þessus viði, langt á
eftir.
Við erum, á þessu sviði, langt á
áhersluna á þær iðngreinar,
sem við höfum augljósa kosti
umfram keppinauta okkar er-
lendis. í þessu sambandi tel ég
fiskiðnaðinn og iðnað í sam-
bandi við landbúnaðinn. Af
landbúnaðarvörum, má nefna
ullariðnaðinn. Þótt ullariðnaður
sé mikill á Akureyri og víðar,
nýtum við ekki nema þriðjung
ræða, því sum stóriðja a. m. k.
mun eiga erfitt uppdráttar í því
öngþveiti, sem efnahagskerfi
okkar er í um þessar mundir.
En augljóst er, að ríkisstjórnin
ætlar að gera stóriðjuna að
pólitísku framdráttarmáli sínu.
Landið okkar er fremur fá-
tækt af verðmiklum jarðefnum.
Jarðfræðilega er það ungt og
jarðfræðingar segja okkur, að
lítil líkindi séu til þess að við
finnum hér dýr jarðefni. Þó má
minna á skeljasandinn, perlu-
steininn og kísilgúrinn.
Kísilgúrverksmiðja.
Kísilgúrinn myndast af skelj-
um örsmárra dýra, sem lifa í
vatni. Þegar dýrin deyja fellur
skelin til botns og myndar lag
á botninn. Leirinn er mismun-
andi hreinn og er hann hreins-
aður með margvíslegu móti.
Lélegasti leirinn er þurrkaður
og verður þá brúnleitur og er t.
d. notaður til þess að húða til-
búinn áburð og varnar því, að
áburðurinn dragi til sín raka.
Við notum nokkuð af slíkum
leir í Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi. Betri leir er hinsveg-
ar vandlega hreinsaður og verð
ur þá lítið eitt bleikt eða
mjallahvítt duft. Þannig kísil-
duft er notað í ótal hluti og má
kalla það eins konar þúsund
þjala smið. Það er notað sem
fylliefni í málningu, notað í púð
unni áleiðis til Húsavíkur, beint
yfir sandana, því samgöngur
þurfa að vera öruggar, helzt ár
ið um kring. Sá vegur myndi
kosta um 10—20 millj. kr. og í
Bjarnarflagi þyrfti að bora og
kostar það eflaust aðrar 10
millj. Verksmiðjan myndi fram-
leiða 11000 tonn á ári af fyrsta-
flokks kísildufti og mundi verð-
mæti þess nema um 50 milljón
um króna. Framleiðslan yrði
flutt í pappírspokum á bílum
til Húsavíkur og helst þyrfti að
vera unnt að flytja hana 9—10
mánuði ársins.
Við verksmiðjuna myndu
vinna 50—60 manns allt árið, en
nokkuð fleiri á sumrin. Þar sem
slík starfsemi er, þarf einnig
rakara, bakara o. s. frv. Gera
má ráð fyrir, að utan um verk-
smiðjuna myndaðist brátt 300
til 500 manna þorp.
Jarðhitinn.
Jarðhitinn telst til mikilvæg-
ustu náttúruauðæfa. Bezta nýt-
ing hans er þó áreiðanlega til
upphitunar húsa. Þannig nýtist
hver hitaeining langsamlega
bezt og gjaldeyrissparnaður
verður mestur á þann hátt. Ber
að leggja sérstaka áherslu á
jarðhitaleit nálægt bæjum og
þorpum. En auk þess er jarð-
hitinn mikilsverður í alls kon-
ar iðnaði, sérstaklega þar sem
þurrkun kemur til og það er
áreiðanlega kostur að reisa
framtíðariðnaðarhverfi dreifbýl-
isins á jarðhitasvæðum og þyrfti
að kanna á skipulegan hátt,
hvaða iðnaður er beztur við
slíkar aðstæður. Gróðurhúsa-
rækt er töluverð hér. Ég minn-
ist þess að hér kom í fyrra
þýzkur prófessor og hann var
frá sér numinn af hinum miklu
möguleikum og sagði, að hér
yxu nellikur svo langt um bet-
ur en annars staðar í Evrópu,
vegna hins langa sólargangs, að
möguleikar væru á miklum út-
flutningi.
Raforkan.
Við íslendingar notum mikla
rafprku. Við erum líklega 6.-7.
í heiminum og notum hana þó
ekki nema í daglegu lífi okkar
og til smærri iðnaðar. Þó nýt-
um við í dag aðeins 2—3% af
virkjanlegu vatnsafli landsins.
Yms iðnaður, sem notar mikla
raforku kemur vel til greina hér
á landi, t. d. framleiðsla á magn
esíum, klóri, fosfóri og alumin-
ium, og allur þessi iðnaður
krefst ódýrrar raforku. Þar
stendur líka hnífurinn fastur í
kúnni hjá okkur, því ódýr raf-
orka í okkar vatnsföllum krefst
þess að virkjað sé stórt.
tæknilegir örðugleikar komu í
ljós við hreinsun kísilleirsins í
Mývatni, og þá var leitað til
iðnaðardeildar rannsóknarráðs-
ins í Hollandi. Einnig tókst sam
band við fyrirtæki í sama landi
um markaðsathugun.
Baldur Líndal verkfræðingur
starfaði mest að þessum málum
og hefur hann unnið hið ágæt-
asta starf. Um tíma leit heldur
illa út, og fyrir hálfu ári, strand
aði á vissum eiginleika leirsins.
En þá tókst Baldri að benda á
nýjungar í framleiðslunni, sem
hafa verið reyndar með sérstök-
um ágætum. Nýlega er komin
skýrsla um ýmsa þætti rann-
sóknanna frá Hoílandi, sem er
mjög jákvæð. Það á að vera
ágætur markaður fyrir fram-
leiðsluna. Kísilgúrverksmiðjan
yrði vitanlega staðsett við Mý-
vatn. Leirinn yrði unninn í
Helgavogi, færður í land með
færibandi eða í prömmum. Síð-
an geymdur í ár eða svo í laut-
um í hrauninu, þannig að vatn
sígi úr honum. Verksmiðjan
yrði í Bjarnarflagi og þar hefur
verið borað eftir gufu með
ágætum árangri. Þar yi'ði leir-
inn hreinsaður og þurrkaður.
Verksmiðjan, ásamt moksturs-
tækjum, skrifstofubyggingum
og öllu öðru tilheyrandi fram-
leiðslunni, myndi kosta um 130
millj. kr. Auk þess þyrfti að
leggja nýjan veg frá verksmiðj-
Aluminiuni.
Framleiðsla á aluminium er
líklega sá iðnaður sem er líkleg
astur til þess að ryðja sér til
rúms hér á landi. Þetta hefur
verið reynsla í flestum löndum,
sem byrjað hafa rafefna og raf-
málmiðnað, að það hefur verið
aluminiumframleiðsla og áburð-
arframleiðsla, sem byrjað er á.
Aluminium er framleitt úr
sérstökum leir, sem finnst yfir-
leitt í suðrænum löndum. Það
finnst aðeins slíkur leir hér á
landi, en hann er ekki af þess-
ari eftirsóttu gerð. Leirinn er
hreinsaður með því að sjóða
hann í vítissóda, sem venjulega
er gert við námurnar. Síðan er
hann í öllum tilfellum fluttur
með stórum skipum, þangað
sem raforkan er ódýr. Ur 4 kg.
af-leir fást 2 kg. af duftinu og
siðan úr duftinu 1 kg. af hrein-
um málmi. Notkun málmsins
hefur vaxið mjög á undanförn-
um árum. Árið 1963 var notkun
in 5,5 millj. tonn í heiminum. í
Bandaríkjunum eru notuð um
11 kg. af aluminium pr. íbúa. í
Evrópu er þetta ekki enn nema
3—4 kg. og í Asíu og Afríku er
notkunin innan við % kg. á
hvern íbúa. Málmurinn á því
enn mikinn óunninn markað,
þrátt fyrir plastið, sem í sum-
um greinum leysir aluminium
af hólmi. Um það bil 15% af
kostnaði við vinnslu aluminium
er rafmagnskostnaður og er það
álíka mikið og kostnaðarverð
aluminiumduftsins, að meðtöld-
um flutningskostnaði á vinnslu-
stað. Þessi iðnaður er því stöð-
ugt að leita að ódýrri raforku.
Það skiptir minna máli hvort
hráefnið er flutt stutt eða langt.
Allir aluminiumframleiðendur
flytja aluminiumduftið langar
leiðir. Það hefur lengi verið
rætt um aluminiumverksmiðju
hér á landi. En stóriðjunefnd
ríkisstjórnarinnar hefur unnið
töluvert að málinu, að því er
okkur skilst, og okkur er nú
sagt, að það sé komið mjög ná-
lægt byggingu 30 þús. tonna al-
uminiumverksmiðju hér á landi
í samvinnu við svissneskt alum-
iniumfyrirtæki. Ég hef engan
aðgang að störfum stóriðju-
nefndar. í fyrsta lagi er stærð
verksmiðjunnar, 30 þús. tonn,
mjög athyglisverð. Ég hef átt
viðræður um þetta mál við
marga aluminiumframleiðendur
í ýmsum löndum, og þeir full-
yrtu allir, að minnsta hagkvæm
stærð væri 75—100 þús. tonna
framleiðsla á ári. En þessi litla
verksmiðja er kostur fyrir okk-
ur. Átakið er nógu stórt samt.
Verksmiðja, sem framleiðir 30
þús. tonn myndi kosta um 1100
millj. kr. Gert er ráð fyrir því
að virkja 105 þús. kw. við Búr-
Ef til vill finnst henni hún hafa yngst upp, meðan áhrif andlits-
snyrtingarinnar vara í andliti hennar. En að því loknu — já, þá fer
hún sennilega á „nýjan túr.“
Hamingjan góða, hve margs konar örlög manna dyljast í strand-
bænum þeim arna! Hugur Iðunnar nemur staðar. Skyldu hennar
eigin örlög einnig eiga að dyljast hér? Nei, það heldur hún ekki.
Bærinn er aðeins áfangi á lífsleið hennar. Einn kafli ævi hennar.
Hennar lífsbraut heldur áfram, lengra fram. Hún á ekki að enda
hjá Rossí í fegrunarstofnuninni hans, og heldur ekki í neinni ann-
arri stofnun. Það er þó einmitt þetta, sem veldur spenningi dag-
anna. Er það ekki raunverulega þetta, sem heldur lxfinu vakandi
og gerir það þess vert, að því sé lifað: — Að geta spurt sjálfan
sig, hvað morgundagurinn muni bera í skauti sér handa mér? Og
samt vitum við alls ekki, hvort við eigum yfirleitt nokkurn morg-
undag í vændum!
VIII.
Nú er bréfið frá Jörundi komið! Iðunn þekkir strax skriftina.
Blátt aflangt umslag blasir við henni eins og opinberun á litla
japanska borðinu. Hún hleypur ekki til að opna bréfið. Hún stillir
sig. Fyrst fer hún úr kápunni og síðan að líta eftir þeim Sigríði
og Björgu. Þær eru báðar úti í kvöld.
Loks opnar Iðunn bréfið. Tvær arkir með skrift Jörundar: „Kæra
Iðunn.“ Hún lætur augun hvíla á ávarpinu. Skyldi nokkur sérstök
dýpri meining dyljast í þessu „kæra“? Eða er það aðeins nauðsyn-
legt kurteisislegt ávarp framan við nafnið hennar? Hún heldur
áfram að lesa. Bréfið er fljótlesið, alltof fljótlesið. Og hvað fær
hún svo út úr bréfsefninu? Er það ekki aðeins eins og laglegur stíll
um nýjustu fréttirnar í höfuðstaðnum? Nei, hún verður að lesa
það upp aftur. Og þá er eins og orðin verði þýðari og innilegri.
Hún fær meira út úr þeim heldur en í fyrstu umferð! Það er sem
orðin hafi aðra merkingu gagnvart henni. Hún lætur bréfið í um-
slagið.
Iðunn finnur hvorki til gleði né vonbrigða. Hún veit aðeins, að
nú er spani eftirvæntingarinnar lokið að þessu sinni. Hún hefir
beðið eftir þessu bréfi á hverjum degi upp á síðkastið. Hún hefir
vænst þess og fundið til vonbrigðanna á hverjum degi eftir lok-
unartíma, er hún varð þess vör, að bréfið var ekki komið. En nú
liggur það hér fyrir framan hana. Hún veit hvað í því stendur.
Hefði hann aðeins drepið á það í einni línu, að hann saknaði hennar
dáltið! Það mundi óðar hafa glatt hana fullkomlega. En nei. Bréfið
er þannig orðað að efni og innræti, að það hefði allt eins getað
verið ætlað annarri hvorri móðursystur hans að því leyti.
Það liggur við að Iöunn verði gröm, en það stendur ekki lengi.
Nei, hún getur ekki verið gröm við Jörund, hvernig og hvað sem
hann skrifar. Hún getur ekki kennt honum um neitt. Milli þeirra
hafa ekki verið nein heit né önnur bönd. En hún veit með sér,
AUÐHILDUR FRÁ VOGI:
GULLNA BORGIN
17
að þegar hún skrifar honum aftur, — já, þá muni hún skrifa allt
öðruvísi. En hún ætlar ekki að skrifa honum strax. Hann skal fá
að bíða eftir bréfi, ef hann kærir sig þá nokkuð um það. Æ, svei,
nú er hún óréttlát! Auðvitað býst Jörundur við bréfi frá henni.
Það var einmitt hann, sem stakk upp á því, að þau skyldu skrifast
á. — En hún vildi nú hugsa rækilega um bréf sitt, áður en hún
skrifaði það. Hún ætlar að hugsa það út, þegar hún er háttuð. Þá
ætlar hún að vaka stundarkorn og skálda eitthvað verulega fall-
egt, svo að honum verði hugsað til hennar í draumum sínum. -----------
Jæja: Situr hún þá ekki hérna og er blátt áfram að óska þess,
að Jörundi skuli þykja vænt um hana? En hvers vegna fór hún þá
úr höfuðstaðnum? Þar hafði hún þó tækifæri til að hitta hann,
hvenær sem hún vildi. Þá hefðu þau getað skemmt sér saman
eins og áður. Já, og ef til vill hefðu þau trúlofast um vorið, hefði
hún ekki farið hingað. Því að Jörundur hefur sýnt henni á einn og
annan hátt, að honum þyki vænt um hana, — að hún heldur, —
þótt hann hafi ekki sagt það berum orðum.
En þykir henni þá vænt um hann? Hún er ekki alveg viss um það.
Hann á þó sérstöðu í huga liennar. Nærri daglega leitar hugur henn-
ar til hans. Og þegar henni verður hugsað heim, austur yfir fjöllin,
er Jörundur jafnan með á ferðinni. Þegar hún sér aðra unga pilta,
verður henni þegar að bera þá saman við Jörund. Og þá komast þeir
ekki í jafnkvisti við hann. Hún hefur enn ekki hitt hans líka. Allir
aðrir piltar verða lítils virði í hennar augum. — Það hefði verið dá-
samlegt að fá að spjalla við hann örstutta stund núna! En Jörundur
er langt í burtu héðan. Og bréfið hans liggur hérna fyrir framan
hana. Það er ofurlítil tóbakslykt að því. Örlítil hitabylgja fer um
Iðunni. Hún er samt glöð af því, að bréfið frá Jörundi er komið.
Iðunn fær „austurþrá“ sem snöggvast. En samt iðrast hún þess
ekki að hafa farið hingað. Hún finnur á sér, að ferðin hingað er
ekki aðeins „hugdetta". Einhver tilgangur hlýtur að liggja að baki.
Og þannig hlýtur að vera um öll önnur atriði lífs hennar. Einnig um
Jörund! Væri annars um nokkuð að velja? Þá er hringt dyrabjöll-
unni. Hún hrekkur við. Þetta kom svo óvænt. Hún opnar hurðina.
Rossx stendur fyrir framan.
— Það er bara ég, ungfrú Falk, segir hann og brosir ofurlítið.
— Gerið þér svo vel! Iðunn býður honum innfyrir.
— Eg er bara dálítið forvitinn í að frétta, hvernig yður gekk hjá
frú Gilde.
fell í Þjórsá, og sú virkjun yrði
smám sarnan aukin upp í 210
þús. kw. Fyrstu 105 þús.
kw. myndu kosta aðrar 1100
millj. kr. Verksmiðjan sjálf
myndi nota helminginn af ork-
unni eða aðeins 55 þús. kw., en
afgangurinn yrði til okkar eigin
nota. Raforkukostnaðurinn við
við verksmiðjuvegg í Reykja-
vík eða í nágrenni er áætlaður
13 aura kílóvattstundin til að
byrja með en myndi lækka nið-
ur í 10—11 aura og er þetta mik
ið lægra en rafmagnsverðið er
í dag. En hver áhrif myndi nú
slík verksmiðja hafa á efnahag
landsins? Því miður þekki ég
ekki til þeirra samninga, sem
sennilega stendur til að gera
við erlenda aðila, ef málið er
komið svo langt, sem okkur er
sagt. En það er staðreynd, að
hagnaður okkar af slíkri verk-
smiðju, byggist að öllu leyti á
þeirn samningum, sem gerðir
verða. Vei'ksmiðjan myndi
verða eign útlendinga. Þetta er
leið, sem farin hefur vei'ið hjá
fjölda mörgum þjóðum með
góðum árangfi, t. d. hjá frænd-
um okkar Norðmönnum. Norð-
menn hófu samvinnu við erlent
fjármagn 1909 og þeir hafa gert
sína samninga mjög skynsam-
lega og yfirleitt tekið þá stefnu
að tileinka sér þekkingu fyrst
og fremst. Og smám saman hafa
þeir getað staðið á eigin fótum
með sína framleiðslu. Fimm er-
lend aluminiumfyrirtæki eru
starfandi í Noregi og þau störf-
uðu þar ein í um það bil 20—30
ár. En langsamlega stærsta al-
jjminiumfyi'irtækið í Noregi nú,
er íxlgerlega norskt. Sama má
segja um fleiri fyrirtæki þar,
sem byrjuðu í samvinnu við er-
lent fjármagn svo sem Norsk
Hydro, sem í fyrstu var stofnað
að tveim þriðju með erlendu
fjármagni og í dag er nú eitt
sterkasta fyrirtæki í allri tækni
í rafeindaiðnaði í heiminum.
Norðmenn eiga nú þetta stór-
fyrirtæki sjálfir að tveim þi'iðju
hlutum, og er stærsta iðnfyrh-
tæki þeirra. í Noregi eru núna
14600 mann starfandi hjá fyrix'-
tækjum, sem eru að meii-a en
50% í eigu útlendinga. Miðað
við mannfjölda svaraði þetta til
þess að hér störfuðu 700 manns.
En þetta hlutfall var miklu
stærra í Noregi á árunum fyrir
síðustu styrjöld.
Ég kom einu sinni á skrif-
stofu Tryggva Lie í Noregi.
Hann vann þá að því að laða
að erlent fjármagn. Norðmenn
leituðu eftir erlendu fjái'magni,
ekki fyi-st og fremst vegna fjár-
skorts, heldur vegna tækniþekk
ingarinnar sem þeir fengu sam-
tímis. Og þeir samningar, sem
þeir gerðu byggðust fyrst og
fremst á því að reyna að afla
sér hennar um leið. Ég er þehr-
ar skoðunar, að ef íslendingar
ætla sér að verða efnahagslega
sjálfstæð þjóð í tækniveröld
(Framhald á blaðsíðu 7).
— O, það gekk prýðilega. Iðunn setur fram einn japanska stólinn
og býður Rossí sæti.
Þakka yður fyrir. Rossí sléttir buxurnar vel að aftan, áður en hann
setzt létt á stólinn. Þér skiljið eflaust, ungfrú Falk, að eftir að þér
voruð farin, datt mér nokkuð í hug: Það var kannski skrýtið af
mér að biðja yður að fara til frú Gilde, þegar hún var í svona
ástandi. Þér hefðuð getað tekið því illa.
Iðunn setzt einnig niður. — Nei, alls ekki. Frú Gilde var eigin-
lega ágæt. Ég hélt að hún hefði verið enn verr farin. Hún talaði
alveg skynsamlega nærri allan tímann. Og hún svaf fast, meðan ég
framkvæmdi alla snyrtinguna.
— Það var það allia bezta! — Má ég reykja hérna inni hjá
yður?
Rossí tekur upp vindlinga og býður Iðunni. Hún tekur einn, og
hann kveikir fyrir hana. — Já, þér gerðuð mér mikinn greiða með
þessu, segir hann og krossleggur fæturna ljómandi laglega.
— Já, ég kenni eiginlega helzt í brjósti um frú Gilde, segir Iðunn
allt í einu.
— Það geri ég líka, segir Rossí. Þó er kannski ekki nein sér-
stök ástæða til þess. Að undanskilinni þessari áfengis-ástríðu henn-
ar verður eigi annað sagt, en að henni líði í rauninni ágætlega.
— Já, ég veit ekki hvað um það skal segja. Iðunn vippar vind-
lingnum milli fingranna. — Þannig liggur víst í þessu, að frú Gilde
drekkur til að dreifa hugsunum sínum um vonbrigði þau, sem hún
hefur orðið fyrir á listrænum vettvangi. Og auk þess á hún við
aðra mæðu að stríða, — og það er aldurinn. Hann læðist að henni
og sviptir hana sinni og sönsum, að því er hún sjálf segir. En þessi
kvíði eða ótti fylgir kannski öllum konum.
— Ekki öllum. Rossí fylgir reykjarbaugunum með augunum.
— Það eru nú fyrst og fremst borgarkonurnar, sem bera þennan
kvíða fyrir brjósti, þessa hræðslu um að glata þeirri fegurð, sem
þær telja sig eiga, segir hann. — Þessi ótti er svo að segja sam-
eiginlegur bæjarrykinu. En lítið þér á sveitakonuna! Hún þjáist
aldrei að ráði af þessum ótta. Henni dettur ekki í hug þessi hræðsla
um að missa andlitsfegurð sína. Það er fyrst og fremst þegar konur
komast í kynni við borgarlífið, að slíkar hugsanir taka að festa
rætur í huga þeirra. — Ég sé fyrir mér miðaldra konu á litlum
erfiðum sveitabæ. Hrukkur hafa náð festu í sterkbyggðu andliti
hennar. Hvítt hár og mikið hvelfist yfir háu enni hennar eins og
heiðurs-kóróna. Augun mild og blá ljóma við manni og umlykja
allt með ástúðlegri blíðu. — Þessi kona er ekkert smeyk við hrukk-
urnar. Henni bregður ekkert við, þótt hárið gráni. Hún veitir þvx
enga athygli. Og verði henni einstaka sinnum litið í spegil, þá er
henni ljóst, að þessar hrukkur stafa af hugsunum sínum öll árin
í blíðu og stríðu. En andlitsdrættir hennar eru hreinir og skýrir
og bera ekki nein merki af ómerkilegum utangátta ástríðum og
viðfangsefnum. Allar hrukkur, andlitsdrættirnir og hvíta hárið eru
henni eins konar heiðursmerki, sem gera svipmót hennar gáfulegt
og andlitið tilkomumikið.
Framhald.