Dagur - 12.03.1964, Síða 7
7
Frostastöðum 2. marz. Fyrir
skömmu átti Lilja Sigurðar-
dóttir í Ásgarði, löngum kennd
við Víðivelli, áttræðisafmæli.
Kvenfélag Akrahrepps stóð fyr
ir hófi til heiðurs afmælisbarn-
inu og var það haldiö að Héð-
insminni s.l. miðvikudag. Var
þar samankomið töluvert á ann
að hundrað manns.
Frú Helga Kristjánsdóttir á
Silfrastöðum, formaður kven-
félagsins, setti samkvæmið og
stjórnaði því. Aðalræðuna fyrir
minni heiðursgestsins flutti frji
Gunnhildur Björnsdóttir í
Grænumýri og las hún einnig
upp afmælisorðsendingu til
Lilju frá Jensínu Björnsdóttur
frá Miklabæ, sem nú er búsett í
Siglufirði. Þá tóku og til máls
Haukur skólastjóri á Hólum og
frú hans, Magnús Kr. Gíslason
á Vöglum, fröken Ingibjörg Jó-
hannsdóttir á Löngumýri, Björn
Sigurðsson á SLóru-Ökrum,
Ingibjörg . Stefánsdóttir á Vögl-
um og loks aímælisbarnið sjálft,
er flutti mál sitt að mestu í ljóð
um. Karlakórinn Feykir söng
nokkur lög og sýndar voru
tvær stuttar kvikmyndir. Var
önnur þeirra íslenzk litkvik-
mynd, að nókkru frá Víðivöll-
um, tekin af Viggó Natanels-
syni. Allt fór þetta fram með
miklum ágætum og er ekki að
. efa, að hið aldna afmælisbarn
hefur haft af því mikla og verð
skuldaða énægju.
Lilja í Ásgarði er kona gagn-
merk fyrir margra hluta sakir
og á ýmsan hátt óvenjulegur
persónuleiki. Gófur hennar eru
fjölbreyttar og fx-jóar. Áhugi
hennar, dugnaður og fram-
kvæmdaþrek með fádæmum.
Skrúðgarðurinn á Víðivöllum
var á sínum tíma víðfrægur fyr
ir fegurð og fjölbi-eytieik og
þótti eitt hið mesta gei-semi sinn
ar tegundar, sem fyrirfannst á
- Fréttabréf frá Oslo
sem um er að ræða, hver ein-
stakur bóndi sé virkur
þátttakandi í sjálfri skipulagn-
ingunni. Og að lokum til sveita
fólksins, sem þarna sat þúsund-
um saman. Hverfið ekki frá
jörð og búi, þótt útreikningar
og áætlanir sýni að búið geti
ekki gefið 30% tekjuauka um
árið, eins og gert er ráð fyrir í
iðnðinum. Munið að í því spegl
ast ekki allt innihald lífsins og
tilverunnar.
Af þessum litla útd-rætti geta
lesendur Dags séð að umræðu-
efnin ei-u svipuð hér og á Fróni.
£ Hjörtur E. Þórarinsson.
landi hér. Hann var verk Lilju
og það vei'k lofaði sannarlega
meistarann. En listfengi Lilju
hefur birzt á fleiri sviðum og
raunar hvai-vetna þar, sem hún
hefur lagt hönd að vei'ki. Hún
réði gerð hátíðamerkis Skagfirð
inga á alþingishátíðinni 1930 en
það þótti hvort tveggja í senn
bæði fagurt og sérkennilegt.
Barnavinur er Lilja einstakui'.
Um fjölda ára hélt hún á vetr-
um jólatrésskemmtanir fyrir öll
böi'n í Akrahreppi og bauð
þeim auk þess til veizlu á sumr
in og nefndi Ásgai'ðstöðugjöld.
Lilja var um árabil kennari við
húsmæðraskólann á Löngumýri
og stóð auk þess fyrir námskeiði
í vefnaði, saumum o. fl. Á efri
árum réðist Lilja í það þrek-
virki, ásamt fóstursyni sínum,
Fi-iðjóni Hjöi-leifssyni, að reisa
nýbýlið Ásgai'ð og þar hefur
hún komið upp miklum húsa-
kosti og hafið i'æktun. Og þegar
Lilja leggur nú á níunda tuginn,
gæti enginn, sem tekur hana
tali, ímyndað sér að þar mæli
átti-æð manneskja, svo gneistar
ennþá af henni áhuginn, eld-
móðurinn og lífsfjörið. Hún á
áreiðanlega fáa sína líka. mhg
GJAFIR TIL ODD-
EYRARSKÓLA
NÝLEGA hefur Oddeyrarskól-
anum verið gefnir vei'ðlauna-
gripir til að keppa um í íþrótt-
um. Gefandinn, Vilhelm Þoi'-
steinsson, skipstjóri, afhenti
þá í skólanum þann 17. þ. m. og
ávai’paði böi'nin um leið. Er
hugmynd gefandans með þess-
um gjöfum að glæða áhuga
bai'nanna á hollum íþi’óttum og
útiveru.
Af gjöfum þessum ber fyrst
og fremst að nefna veglegan
skíðabikar, sem er farandgrip-
ur, og vei’ður keppt um hann af
eldri deildum skólans. Þá hlýt-
ur sá skíðamaður, sem beztum
árangri nær í keppninni lítinn
bikar til eignar.
Þá gaf Vilhelm einnig lítiii
fótboltabikar til að keppa um í
3. og 4. bekk, og er hann fai'-
andbikar. Gert er ráð fyrir að
keppa um þesa verðlaunagi'ipi í
vetur og vor.
Um leið og ég flyt Vilhelm
Þorsteinssyni beztu þakkir skól
ans fyrir þessar smekklegu
gjafir og þann hlýhug til skól-
ans, sem hann hefur sýnt, vil
ég óska þess, að þessir verð-
launagripir vei'ði til að glæða
áhuga barnanna á íþróttum og
útilífi.
Eiríkur Sigurðsson.
'Þökkúm mnilega aoðsýnda vinsemd og samóð við ,
andlát og jarðarför
MAGNÚSAR JÓNASSONAR,
lögregluþjóns.
Goðmondor Jónasson og fjölskylda.
- Fréttir úr Bárðardal
(Fi'amhald af blaðsíðu 8).
Jónsson hx-eppstjóri og Sigríður
Jónsdóttir frá Baldursheimi.
Þau fluttu að Stóruvöllum ætt-
aróðali Páls og var Jón þá á
unga aldri, og þar ólst hann
upp. Jón naut þeirrar menntun-
ar sem þá var helst aðgengileg
ungum mönnum á þessum slóð-
um, en það var ungmennaskóli
á Ljósavatni. Þangað fór hann
og var síðan tvo vetur á búnað-
arskólanum á Hólum. Með þetta
veganesti gei'ðist Jón bóndi og
í-ækti það starf af lífi og sál.
Alla sína búskapai'tíð var hann
á Stóruvöllum, eða hluta af
jörðinni. Kvæntur var Jón Guð
björgu Sigurðardóttur Jónsson-
ar á Ystafelli. Nú síðustu árin
hafa þau hjón verið í skjóli son-
ar síns Páls H. Jónssonar og
konu hans Huldu Guðmunds-
dóttur á Lækjai'völlum, sem er
nýbýli, er þau hafa byggt upp.
Jón var áhugasamur um félags-
mál, eindreginn samvinnumaður
og di’englyndur í öllum skipt-
um. Hann var góður og hjarta-
hlýr heimilisfaðir. Þ. J.
- Trésmiðjan Borg á
Sauðárkróki. . .
(Framhald af blaðsíðu 8).
Félagið heitir Trésmiðjan Borg
h.f. og eru í stjói'n þess þrír
smiðir, Stefán Guðmundsson,
Vilhjálmur Hallgn'msson og
Hi-einn Jónsson, sem allir vinna
á verkstæðinu og er Stefán
Guðmundsson fx-amkvæmdastj.
Þeir félagar byrjuðu á því að
stækka húsnæði, sem keypt var,
og afla nauðsynlegra véla.
Keyptu þeir sérstaka þýzka
gufuhitaða spónlagningai’pi'essu
og aðrar nauðsynlegar vélar og
hafa nú góð og fullkomin tæki
til framleiðslunnar, sem hófst í
byrjun desember s.l.
Nú vinna á verkstæðinu sex
menn og vii'ðist þörf á því að
fjölga stai'fsmönnum þar sem
pantaíiir hafa boi'izt svo, að þeir
hafa vart undan.
Auk þess að sinna vei'kefnum
fyrir bæjarbúa og héraðsmenn,
mun Tx’ésmiðjan Boi’g h.f. taka
að sér verk fyrir aðra eftir því
sem ástæður leyfa og beiðnir
berast. Slippstöðin á Akureyri
mun t. d. hafa sýnishoi'n fram-
leiðslunnar og geta því Akui'-
eyringar og aðrir, sem þar eiga
leið um, kynnt sér hana og lagt
inn pantanir.
Fyrirhugað er að fi’amleiða á
lagei’, þó að enn hafi ekki unn-
ist til þess tími. Hins vegar mun
það að jafnaði vei’a hagfelldara
fyrir kaupendur að fá afgreidd-
ar sérpantanir með tilliti til
þess að fá samstæðan spón og
líka áfei'ð á hurðum í íbúðir.
Trésmiðjan Boi-g framleiðir
hui'ðir spónlagðar með ýmsum
viðartegundum, skrásettar og
hengslaðar með harðviðarkarmi
og gerektum.
Fagna ber þessu þjónustu-
framtaki og óska því góðs geng-
is og hagfelldra viðskipta. G. I.
AUCLÝSH) f DECI
FKAMSÓKNARFÓLK. Kom-
ið á fundinn í skrifstofu
flokksins n. k. föstudagskvöld.
Sjáið nánar auglýsingu í blað
inu í dag.
LEIÐRÉTTING. Fyrsta lína í
kvæði Sigui'ðar Sveinbjörns-
sonar í síðasta tölublaði á að
hljóða svo: Nú drúpa fjöll og
dalir og leiði'éttist það hér
með.
GOLFKLÚBBUR AKUREYR-
AR hefur golfmót á laugai'-
dag kl. 1,15. Keppendur mæti
ekki síðar en kl. 1 e. h.
JVmtsIióIutsafmð er opið
alla virka daga kl. 2—7 e. h.
MINJASAFNIÐ á Akureyri er
opið á sunnudögum kl. 2—5
e. h.
VINNULAIJNIN
25 MILLJÓNIR KR.
f RÆÐU Steingríms Hermanns
sonar, 17. tbl. bls 2, misprentað-
aðist málsgrein. Rétt er hún
svona: Við 30 þús. tonna alum-
ittmverksniiðju myndu vinna
unt 250 rnanns. Við getum því
áætlað vinnulaunin um 25 millj.
króna á ári. Ef gert er ráð fyrir
að raforkan verði seld á 13 aura
kwst, myndum við fá þar urn
það bil 60 killj. króna á ári.
Söluverðmæti framleiðslunnar
á erlendum markaði myndi
verða um 6—700 millj. króna.
Ekki virðist óeðlilegt að ætla
að a. ni. k. 10% af þessu sé
hagnaður, og gætu þá skattar
og önnur innlend gjöld orðið 30
millj. kr. Samkvæmt þessu yrðu
tekjur okkar samtals um 115
millj. kr. á ári. □
FÖGUR MINNING-
ARGJÖF
LÖGMANNSHLfÐAPuECIRKJU
hefir borizt fögur minningar-
gjöf. — Hefir Jónas M. Hálfdán-
arson gefið kirkjunni tíu þús.
ki'ónur til minningar um móð-
ur sína Kristínu Rannveigu Sig-
ui'ðai'dóttui'. —
Kristín Rannveig var fædd 2.
júlí 1874 að Hraunshöfða í
Öxnadal, — en ólst upp í Kræk-
lingahlíð og bjó á Grænhól. —
Hún andaðist 27. maí 1955 og
var jarðsungin í Lögmannshlíð-
arkirkju 4. júní. Rannveig var
myndaikona, glaðlynd, um-
byggjusöm, óséi'hlífin, — og
kæi'leiksrík. — Blessuð sé minn-
ing hennar. — Og hjartans
þakklæti fæi'um við gefandan-
um fyrir fórnarhug hans og vin-
semd í garð kirkjunnar. —
Sóknarprestar.
HÆNU-UNGAR!
Þeir, sem hafa liugsað sér
að panta hænuunga, frá
Bessastöðum, í vor, tali
við mig sem fyrst.
Jón Samúelsson,
sími 2058.
HÓPFERÐ á Sæluviku Skag-
fii'ðinga, sem vei’ður 5.—12.
apríl í undirbúningi. Lönd &
Leiðii'. Nánar auglýst síðai'.
STÚKAN ísafold Fjallkonan nr.
1, heldur fræðslu og skemmti
kvöld að Bjargi laugardaginn
14. mai'z kl. 8,30 síðdegis fyrir
félagsmenn og gesti. Samfelld
dagski-á. — Félagsvist, dans,
hljómsveit leikur. — Aðgangs
eyrir kr. 25,00 við innganginn.
Nefndin.
HÆGINDASTÓLL
og 4 borðstofustólar,
mjög ivel með fa'rnir,
til sölu.
Höskuldur Markússon,
sími 1549.
TIL SÖLU:
Tvö bamarúm með lausri
grind.
VertS kr. 600.00 stk.
Mýrarvegur 118.
TIL SÖLU:
Svefnsófi og tveir stopp-
aðir stólar.
Til sýnis í Glerárbakka.
HÚSIÐ
NORÐURGATA6B
er til sölu. Húsið er til
Býnis næstu kvöld á milli
8—9. Tilboðum sé skilað
fyrir 20. marz til Sveins
Sigurbjömssonar, sem gef-
ur nánari upplýsingar í
síma 2578 milli 6—7 e. h.
TIL SÖLU:
Suðurendi hússins
Lundargata 3, Akureyri,
er til sölu og laus til íbúð-
ar 14. maí næstk. Nánari
upplýsingar gefur
frú Ingibjörg Halldórs-
dóttir, Strandgötu 17,
kl. 4—6 síðdegis.
UNGUR,
REGLUSAMUR
MAÐUR
óskar eftir einu eða tveim-
ur herbergjum. Há leiga.
Uppl. í síma 1800.
LAUGARBORG
Dansleikur laugardaginn
14. marz kl. 9.30 e. h.
Hljómsveit Birgis Marin-
óssonar og Saga.
Sætaferðir.
Kvenfélagið íðunn
U.M.F. Framtíð