Dagur - 18.04.1964, Blaðsíða 1
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
Ferðamenn skiluðu bönk-
unum 56 millj. kr. 1962
A BLAÐAMANNAFUNDI í
Reykjavík skýrði Lúðvík Hjálm
týsson frá því, að árið 1962
hefðu erlendir ferðamenn skilað
hérlendum bönkum 56.3 millj.
króna gjaldeyri. — Arið 1947
kornu liingað til lands 4.395
ferðamenn, en árið 1962 voru
þeir 17.249.
RAFMAGN Á 23 BÆI
Á TJÖRNESI
Húsavík 17. apríl. Á síðasta
sumri var lögð raflína frá Húsa-
vík út á Tjörnes og fá nú 23 bæ-
ir rafmagn frá Laxárvirkjun.
Byrjað var að tengja bæina
fyrr í vikunni og fengu fyrstu
bæirnir rafmagn á þriðjudaginn
og hinir fá hið langþráða raf-
magn fyrir helgina.
Lúðrasveit Húsavíkur hélt
hljómleika í kirkjunni sl. laug-
ardag. Hljóðfæraleikarar eru 17
og stjórnandi er Reynir Jónas-
son frá Helgastöðum. Á hljóm-
leikaskrá voru 16 lög og var þar
(Framhald á blaðsíðu 7).
Það er auðséð, sagði Lúðvík,
að innan tíðar stöndum við uppi
sem glópar og verðum að úthýsa
gestum, sem ætíð hefur verið
talin smán á íslandi. Danir hafa
nær 1000 millj. danskra króna í
tekjur af ferðamönnum, eða
þrefalt meira en fyrir 10 árum.
Flestar þjóðir stuðla að aukn-
um ferðamannastraumi og marg
ar með ærnum kostnaði. En
ferðamennirnir leggja síðan
stórfé í fjárhirzlur þjóðanna,
sagði hann.
ísland hefur hin ágætustu
skilyrði til að draga til sín er-
lenda ferðamenn, vegna stór-
fenglegrar náttúru, bjartra
nátta, eldgosa, hvera, fossa og
laxa. Eins og nú er virðist
straumur ferðamanna beinast
meira til norðlægra slóða en
áður. En á íslandi vantar þau
móttökuskilyrði, sem af mönn-
um eru gerð, svo sem hótel —
miklu fleiri hótel á mörgum
stöðum, úti í náttúruni, sem
fullnægja kröfum tímans — og
kunnáttufólk til starfa á þeim.
E. t. v. geta skólar og félags-
heimili að einhverju bætt úr
hótelskortinum. □
Tryggvi Helgason flugniaður og sonur hans hjá tveim flugvelum sínum.
(Ljómynd: E. D.)
SEX FLUGVELAR NORÐURFLUGS
ÁSUMRI KOMANDA
Sjúkraflug, farþegaflug og flugskóli
TRYGGVI HELGASON flugmaður á Akureyri keypti í vetur 4
flugvélar í Bandaríkjunum, Beechcraft C-45H. Þetta eru tveggja
hreyfla vélar, sem tekið geta 8—10 farþega eftir fyrirkomulagi
á innréttingum. Tryggvi hefur þegar selt eina af þessum flugvél-
inn og hyggst selja aðra.
Stóð til að hann seldi eina
flugvélina smáflugfélagi í Rvík,
Bæjarsjóður Sauðárkróks tapaði málinu
Dæmdur af Hæstarétti til að endurgreiða kaupfélaginu nál. 340 jiús. kr.
GENGINN er Hæstaréttardóm-
ur út af útsvarsálagningu bæj
arsjóðs Sauðárkróks á Kaupfé
lag Skagfirðinga á Sauðárkróki
Þar var bæjarsjóði gert að end
urgreiða kaupfélaginu kr
339.219.00 að viðbætlum vöxt-
um.
Sveinn Guðmundsson kaup-
félagsstjóri á Sauðárkróki sagði
nýlega í viðtali, að þeir
samvinnumenn hefðu alltaf átt
von á því að vinna þetta mál,
enda hefði svo farið að málið
vannst glæsilega. Um aðfarir
niðurjöfnunarnefndar hafði
Sveinn það að segja, að þær
hefðu verið frámunalega óvenju
legar á öllum stigum málsins.
Væri því ekki að furða, þótt
bæjarstjórinn á Sauðárkróki,
hefði lýst sig langþreyttan í
starfi í Morgunblaðinu daginn
(Framhald á blaðsíðu 2.)
BRYNJÓLFUR GJALDÞROTA
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS hef
ur krafist gjaldþrotameðferðar
á hótel- og búrekstri Brynjólfs
Brynjólfssonar veitingamanns
hér á Akureyri, og afhent það
Flugvél lenti í Surtsey
Flugmaður var Eyfirðingurinn Stefán Þór Jóns-
son frá Borgarlióli í Öngulsstaðalireppi
STEFAN Þór Jónsson flugmað-
ur frá Borgarhóli í Eyjafirði
varð fyrstur til þess að lenda
flugvél í Surtsey sl. miðviku-
dag. Með honum í „Sessnunni“
voru þeir Þorvaldur Jónsson og
Kristján Flygering. Lending og
flugtak tókst ágætlega á slétt-
um og hörðum fjörusandinum,
sem á þessum stað er 1000 m
langur, lítið eitt bogadreginn
„flugvöllur“ og allt að 300 m
breiður á stórstraumsfjöru. Frá
Vestmannaeyjum til Surtseyjar
er aðeins 5 mínútna flug á lítilli
vél. — Þessi flugvél, sem Bjöm
Pálsson á og fyrst varð til að
setjast í Surtsey, stóð við í
stundarfjórðung. Og á meðan
var Surtur rólegur. □
mál fógeta til skiptameðferðar.
Skiptafundur fer fram 5. maí,
en þangað til er hótel og bú
rekið undir umsjá yfirvaldanna.
Mjög eru mál þessi, og fleiri,
sem eru í samhengi við það, á
dagskrá manna á meðal. Ber að
harma, að duglegur og hrein-
skiptinn veitingamaður skyldi
ekki hafa erindi sem erfiði af
hótelrekstri á Akureyri og ali-
fugla- og svínabúi í nágrenni
bæjarins. □
GIMBILL
LEIKFÉLAG Öngulsstaða-
hrepps hefur nú sýnt Gimbil
sex sinnum í Freyvangi við
góða að sókn. Form. L. Ö. er
Kristján Sigfússon. Leikstjóri
Guðmundur Gunnarsson. í dag,
laugardag, ætlar félagið að hafa
sýningu í Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit.
en tókst ekki og verður hún því
seld erlendis.
Verið er að endurnýja og lag-
færa ýmsa hluti í vélunum
tveim, sem Tryggvi ætlar að
flytja til íslands í vor. M a.
verða settir í þær nýir hreyflar.
En flugstarfsemi. hans á Akur-
eyri heitir Norðurflug. Er þar
bæði um sjúkraflug að ræða
og flutning á fólki og farangri
ásamt flugskóla.
Hvernig verður flugstarfsem-
in hjá þér í sumar?
Með líku sniði og undanfarið.
En meira leiguflugi verður
hægt að anna og flytja stærri
hópa af fólki, en ég hef áðui'
getað. Með auknum flugvéla-
kosti skapast aðstaða til að
hefja áætlunarflug á sérstaka
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Skattalækkunl
STJORNARBLOÐIN hafa
enn einu sinni tekið fram
stærsta letrið vegna breytinga
á skattstiganum og auka per-
sónufrádrættinum til hagræð-
is fyrir landsfólkið.
í lögum um persónufrádrátt
inn frá 1960 var persónufrá-
dráttur einstaklings 50 þús.
kr. og 70 þús. kr. fyrir hjón og
síðan 10 þús. kr. fyrir hvert
barn. Þá var framfærsluvísital
an 105 stig. Nú er hún 161 stig.
Vantar því mikið á, að hin
nýja skattalækkun — þ. e.
aukinn persónufrádráttur —
vegi upp á móti dýrtíðinni. —
Stjórnarblöðin segja, að á 5
manna f jölskyldu með 130 þús.
kr. árstekjur nemi lækkunin
2.500 krónum. En söluskattur-
inn nýi — þ. e. hækkunin, sem
samþykkt var í vetur, nemur
um 8.000 krónum á 5 manna
fjölskyldu. Þetta er þróunin í
skattamálunum samkvæmt
þessum síðustu ráðstöfunum.
Má hver sem vill kalla það
lækkun skatta. □
Dýrustu veiðistaðirn-
ir eru nú í Blöndu
UNDANFARIN ÁR hafa veiðst
um 500 laxar til jafnaðar í
hinni gruggugu Blöndu, og að-
eins á tveim stöðum, rétt við
Blönduós. Verið er að leigja
ána tveim stangveiðifélögum, á
Blönduósi og Sauðárkróki —
sennilega fyrir 320 þús. kr. árs-
leigu. Þar sem veiðistaðirnir
eru aðeins tveir, munu þetta
einhverjir dýrustu stangveiði-
staðir, sem hér þekkjast. Og þar
má aðeins hafa 2Vi stöng.
Verið er að smíða laxastiga
ofan við Blönduós, til að auð-
velda laxagöngu allt upp í
Svartá, sem er eftirsótt veiðiá.
Margir bændur voru byrjaðir
túnavinnslu áður en kólnaði.
Sumir bændur slepptu fé sínu
í febrúar og hafa ekki gefið því
neitt síðan. Og nú eru margir
búnir að sleppa. Allur útigöngu-
peningur hefur átt góðan vet-
ur. Ó. Sv.