Dagur - 18.04.1964, Blaðsíða 7
7
SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaSsíðu 8).
Jiarna sé bent í rétta átt og hefði
þurft að gera fyrr og gœti það
orðið til þess að ráðliúsið verði
aldrei byggt í Tjörninni, að
gamli bærinn fái að vera í friði.
En þar eru lóðir flestar í einka-
eign og lóðaverðið hefur átt
sinn þátt í að auka dýrtíðina í
landinu.
1
ÞAR ER MARGUR FROÐ-
! LEIKUR
Eins og áður getur á íbúiun
Stór-Reykjavíkur að fjölga upp
í 150 þús. á 20 árum. Samt er
gert ráð fyrir, að gólfflatarfer-
metri verzlunarhúsnæði pr.
íbúa fjölgi úr 1.07 upp í 1.2—1.5,
einkaskrifstofuhúsnæði úr 1.73
upp í 2.2—2.3, iðnaðarhúsnæði
úr 4.4 upp í 6—10, vörugeymslu-
húsnæðis úr 1.73 upp í 3—5,
liúsnæði fyrir skrifstofur úr
1.79 upp í 2.5—3 gólfflatarmetra.
Sagt er, að taka verði tillit til
þess að í Reykjavík séu „flestar
skrifstofur ríkisvaldsins" og er
víst ekki von til að skipulags-
menn Reykjavíkur hugsi sér að
gera breytingu þar á, ef aðrir
gera það ekki. Svo er gert ráð
fyrir 400 bílum á hverja 1000
íbúa, fyrir utan vörubíla og
strætisvagna.
Þannig leggja þeir á ráðin
suður við Faxaflóa. En hvað líð-
ur framtíðarskipulagi hinnar
norðlenzku borgar við Eyja-
fjörð?
SEXTÍU MENN OG SJÓN-
VARPIÐ
Sextíu þjóðkunnir menn tóku
sig nýlega saman og lýstu yfir
afstöðu sinni opinberlega í sjón-
varpsmálinu. í blöðum syðra er
öðru hverju gert hróp að þess-
um mönnum og þeir í skopi
kallaðir „menningarvitar“. í
þéssti á að felast, að þessir 00
menn hafi gert sig seka um
framhleypni og séu ekki færir
um að vísa öðrum til vegar. Það
mætti þá víst kalla þá menn
stjórnmálavita, sem stofna
stjórnmálaflokk og gefa út
stefnuskrá. En það er úrelt
kredda, að eitthvað sé óviðeig-
andi við það, að menn samein-
ist um að Iýsa yfir afstöðu sinni
til einstakra þjóðmála, án þess
að fara eftir flokkslínu. Slíkt er
einmitt æskilegt og ekki ámæl-
isvert, og hefur átt sér stað fyrr.
Það er ekki nauðsynlegt að gera
ÖIl mál að flokksmálum á hefð-
bundinn hátt.
LOFTKASTALAR FJÁR-
MÁLARÁÐHERRA
Af loftköstulum fjármálaráð-
herra frá 1960 stcndur nú
livergi steinn yfir steini. Ilann
sagðist ætla að spara og hafði
um það fjálgleg orð, en sparnað-
arloforðin eða sparnaðaráætlan-
irnar, 59 að tölu, eru löngu guf-
aðar upp og heyrast ekki leng-
ur nefndar og sjást ekki heldur
í dálkum Morgunblaðsins eða í
hjáléigunni hér nyrðra.
Fjármálaráðherra sagðist ætla
að lækka skattana, en ríkisálög-
ur á þjóðina hafa rúmlega þre-
faldazt síðan núverandi stjóm-
arflokkar tóku við völdum. Ráð-
herrann sagðist ætla að beita
sér af alefli gegn því, að van-
skilaskuldir féllu á ríkissjóð
vegna ríkisábyrgða og lét búa
til pappírsstofnun, sem heitir
ríkisábyrgðasjóður. En nýlega
varð ráðherrann að viðurkenna
opinberlega fyrir þingheimi, að
Iiann hefði á árunum 1962 og
1963 orðið að greiða af ríkisfé
nálega 120 milljónir króna til
jafnaðar á ári í vexti og afborg-
anir af ríkisábyrgðarlánum í
vanskilum. Um þetta voru
nokkrar tölur birtar nýlega hér
í blaðinu. Öll eru þessi viðfangs-
efni vandasöm. En betra hefði
verið að láta minna.
FYRIRSPURN
Óskar Jónsson og Ingvar
Gíslason hafa á Alþingi lagt
fram svohljóðandi fyrirspurn til
ríkisstjórnarinnar:
1. Eru lögin um atvinnuleys-
istryggingar í endurskoðun? Ef
svo er, er árangurs af þeirri
- Rafmagn á 23 bæi
(Framhald af blaðsíðu 1).
sá einn ljóðuv á, að jasslykt var
að tveimur lögunum. Hljóm-
sveitin lék vel.
Fyrirhugaðir eru þrír sam-
söngvar á Húsavík. Kirkjukór-
inn syngur síðasta vetrardag,
Þrymur á næstunni og væntan-
legur er hingað karlakór frá
Dalvík. Þ. J.
- NÁMSAÐFERÐIR
(Framhald af blaðsíðu 4).
það í öllu námi, að bezt er að
lesa ekki mjög lengi í einu, tæp-
ast meira en eina klukkustund,
en þá er hentugt að taka sér al-
gera hvíld, leggjast fyrir og
sláka vél á 'öllum' vÖðvúm 'éða
ganga um stund úti ef veður er
gott.
Þá flýtir það mjög fyrir námi
ef nemandinn eyðir ekki öllu
meira en 20% námstímans til
lestrar en 80% til að hlýða sjálf-
um sér yfir það sem lesið hefur
verið, greina aðalatriði frá auka
atriðum og ganga þannig úr
skugga um, að hann hafi í raun
og veru lært en ekki aðeins far-
ið á hundavaði yfir ákveðinn
blaðsíðufjölda í námsbók.
Sjá nánar um þetta efni í Vísi
þann 30. júlí 1955.
- VANDAÐ RIT
(Framhald af blaðsíðu 5).
meðal einstaklinga og verzlun-,
arfyrirtækja, sem áhuga hafa á
íslenzkum málefnum eða við-
skiptum við landið. Auk þess er
ritinu dreift víða af íslenzkum
útflytjendum og innflytjendum,
flugfélögum, skipafélögum,
ferðaskrifstofum, bönkum o. fl.
og sendiráð og ræðismenn ís-
lands erlendis dreifa heftinu
líka til fjölmargrá aðila.
Ritstjórar ICELAND REVI-
EW eru Haraldur J. Hamar og
Heimir Hannesson, útlitið hefur
Gfsli B. Björnsson séð um, en
Setberg prentaði. □
rannsókn að vænta á þessu
þingi?
2. Hefur verið tekið tillit til
þess við endurskoðun laganna,
að verzlunarmannasamtökin
eiga nú aðild að Alþýðusam-
bandi íslands og þeim tryggð
þátttaka í atvinnuleysistrygg-
ingarsjóði á sama hátt og öðr-
um verklýðsfélögum?
LÉTTIR. — Hestamannafélagið
Léttir fer hópferð um bæinn
á sumardaginn fyrsta. Lagt
verður af stað frá Aðalstræti
HJÓNAEFNI. Ungfrú Þuríður
Kristín Sigurvinsdóttir Skeiði
Svarfaðardal og Jón Árni Þór
hallsson Ásgarði Svalbarðs-
strönd.
DÝRALÆKNAVAKT um helg-
ina og næstu viku hefur Ág-
úst Þorleifsson, sími 1563.
FUNDUR UM SKÓLAMÁL. —
Fyrir dyrum stendur fundur
fræðsluráðs sýslunnar um
skólamál, væntanlega 25.
apríl á Akureyri. Verður
fundur þessi boðaður síðar.
MINNINGARSPJÖLD Fjórð-
ungssjúkrahússins fást í Bóka
verzlun Jóhanns Valdimars-
sonar, Bókabúð Gunnlaugs
Tryggva og skrifstofu sjúkra-
hússins.
AKUREYRARDEILD MÍR. —
Munið fundinn í Rotary-sal
Hótel KEA mánudaginn 20.
apríl kl. 8,30 e. h. Morozov
sendiráðsritari við sendiráð
Sovétríkjanna í Reykjavík
flytur erindi um skóla- og
fræðslukerfi Sovétríkjanna.
Félögum heimilt að taka með
sér gesti. — Stjórnin.
LEIÐRÉTTIN G. Hús Shake-
speare var ekki flutt til Lond-
on, eins og misprentaðist í
grein Jónasar Jónssonar í síð-
asta tölublaði, heldur var það
skáldið, sem þangað flutti
þegar efnin fóru að skána o.
s. frv.
- Skíðahótelið fær gjöf
(Framhald af blaðsíðu 8.)
þá ósk, að það mætti auka
ánægju skólaæskunnar, íþrótta-
fólks og annarra, sem í Skíða-
hótelið kæmu.
Bæjarstjóri þakkaði fyrir
hönd bæjaryfirvalda þessa
rausnarlegu gjöf, og fór nokkr-
um orðum um störf Lions-
hreyfingarinnar í þágu menning
ar- og líknarmála. Þá var lesinn
útdráttur fundargerða um vinnu
Huginsfélaga við innréttingu
setustofu Skíðahótelsins og nam
það vinnuverðmæti kr. 76 þús.
Fjár til þessa píanókaupa öfl-
uðu Huginsfélagar með sölu
jólahúsa og kúluspila, sem Lions
félagar smíðuðu að mestu sjálf-
ir. Loks var setið að kaffi-
drykkju, söng og píanóleik
23 kl. 2 e. h.
Það nýjasta frá IÐUNNI:
KVENGÖTUSKÓR, 2 tegundir
TELPNA- og DRENGJASKÓR - ÚRVAL
KARLMANNASANDALAR, 5 tegundir
o. m. fl.
Höfum gott úrval af GÚMMÍSKÓFATNAÐI
T. d. KVENBOMSUR, KARLMANNASKÓHLÍFAR
GÚMMÍSTÍGVÉL og GÚMMÍSKÓ, allar stærðir.
SKÓBÚÐ K.E.A.
FREYVANGUR:
Gamanleikurinn „GIMBILL“
verður sýndur á sunnudagskvöld kl. 9 síðdegis. Allra
síðasta sinn. Sætaferðir frá Ferðaskrifstofunni, Tún-
götu 1.
LEIKFÉLAG ÖNGULSSTAÐAHREPPS.
SPARISJÓÐUR AKUREYRAR
Afgreiðslutími sjóðsins verður framvegis kl. 14—16 fkl.
2 e. h. til kl. 4 e. h.) alla virka daga, nema laugardaga
kl. 11-12.
Sparisjóðurinn er sjálfseignarstofnun og veitir beztu
fáanleg innlánskjör og ávaxtar fé viðskiptamanna
sinna og varasjóð eingöngu í útlánum til bæjar-
rnanna.
TIL SÖLU:
5 HERBERGJA ÍBÚÐARHÆÐ VIÐ SKÓLASTÍG.
Upplýsingar gefur
RAGNAR STEINBERGSSON, HDL.
Símar 1782 og 1459.
Jarðarför föður okkar,
STEINÞÓRS JÓHANNSSONAR,
kennara,
fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 20. apríl
kl. 1.30 e. li.
Bryndís Steinþórsdóttir.
Örn Steinþórsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
ÓLAFS TRYGGVA ÁRNASONAR
frá Skálpagerði.
Einnig færam við læknum og öðru starfsliði Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri beztu þakkir fyrir góða
umönnun í hans löngu sjúkdómslegu þar.
Aðstandendur.
fram eftir kvöldi. Umboðsmað-
ur Östlind & Almquist píanó-
verksmiðjanna hér á Akureyri
er Haraldur Sigurgeirsson gjald
keri, og lék hann nokkur lög á
hið nýja hljóðfæri.
Stjórn Hugins skipa nú, Hall
dór Helgason formaður, Guð-
mundur Tómasson gjaldkeri og
Árni Ingimundarson ritari.
hnepptar og heilar,
ný gérð, ódýrar.
PÚÐARNIR
komnir aftur.
MARKAÐURINN
Sími 1261