Dagur - 16.05.1964, Blaðsíða 1

Dagur - 16.05.1964, Blaðsíða 1
fiiiíiiiiTiiiminiiiiíiiiiiiMiiifuiinHiiNírii'Hifi* ...... ............ Dagur kemur út tvisvar í viku og kostar 20 krónur á mánuði. «;....... ............... Dagur Símar: 1166 (ritstjóri) 1167 (afgreiðsla) Þörl félagsstoinun hér í bæ til að vimia gegn hjartasjúkdómum Skákmeisfarar heimsóitu Húsavík Húsavík 12. maí. Um síðustu mánaðamót komu hingað til Húsavíkur á vegum Skákfélags Húsavíkur, skákmeistararnir Helgi Olafsson og Freysteinn Þorbergsson. Þeir dvöldu hér í fjóra daga, tóku þátt í ýmis konar skákmót um og veittu tilsögn í listinni. Miðvikudaginn 29. apríl var háð hraðskákmót og varð efst- ur Freysteinn Þorbergsson með 11 vinninga. Annar varð Helgi Olafsson með 10 vinninga og þriðji Jón A. Jónsson með 9 vinninga. Næsta dag tefldi Helgi Ólafs- son, sem er núverandi skák- meistari íslends, klukkuskák á sex borðum. Hann vann iVz skák. Tapaði fyrir Hjálmari Hheodórssyni og gerði jafntefli við Kristján E. Jónsson. Föstudag og laugardag tefldu Helgi og Hjálmar tveggja skáka einvígi og vann Helgi báðar skákirnar. — Á föstudagskvöld (Framhald á blaðsíðu 2.) VÍÐTÆKAR VINNUDEILUR FLEST verkalýðsfélög á Norð- ur- og Austurlandi hafa gefið sameiginlegri samninganefnd heimild til verkfallsboðunar frá 20. maí að telja. En í gær var liðinn tími auglýsts kauptaxta þessara félaga. Tveir viðræðufundir á Akur- eyri og einn í Reykjavík hafa farið fram. Sáttasemjari ríkisins hefur fengið málið til meðferð- ar og var fyrsti samningafund- ur hjá honum boðaður í gær. Yfir standa viðræður Al- þýðusambandsins og ríkisstjórn- arinnar um kaupgjaldsmálin. □ NOKKRAR | SPURNINGARI KRANSÆÐASTÍFLA og hjarta sjúkdómar eru mannskæðastir sjúkdomar hér á landi um þess- ar mundir. í Reykjavík var ný- lega stofnað nýtt félag til að vinna gegn þessum sjúkdómum. Annað á Akureyri 12. þ. m. Stofnfundurinn var í Sjálf- stæðishúsinu og gengu 160 manns í félagið þegar í stað, en yfir 200 manns sátu á fundi. Ólafur Sigurðsson yfirlæknir setti fundinn, en fundarstjóri var Jón Sólnes og fundarritari Jakob Frímannsson. Prófessor Sigurður Samúelsson flutti ræðu. I stjórn hins nýja félags eru: Ólafur Sigurðsson, yfirlæknir, form., Eyþór H. Tómasson gjald keri, Jóhann Þorkelsson, ritari og meðstjórnendur Þórarinn Björnsson og Arnþór Þorsteins- son. Verkefni félagsins er að vinna að auknum rannsóknum á hjartasjúkdómum og skyldum sjúkdómum, og einnig vörnum og lækningu, svo sem slík félög gera í öðrum löndum. □ Oddur Carl Thoraren- sen jarðsungimi í dag ÚTFÖR Odds Carls Thoraren- sen lyfsala á Akureyri, hins eldri, verður gerð frá Akureyr- arkirkju í dag. Hann var tæp- lega sjötugur er hann lézt, var síðustu árin heilsuveill mjög, en gekk þó hvern dag að störfum. Hann rak verzlun, lyfsölu og kvikmyndahús um fjölda ára og var mikill fésýslumaður. Mörg ár var hann einn af viðskipta- vinum Dags og stóðu orð hans jafnan, sem stafur á bók. Ekkja Odds er Gunnlaug Júlíusdóttir frá Hvassafelli. — Börn þeirra eru þrjú og öll upp- komin. □ VÖRUBÍLL lagði af stað með steypta steina, kom á i ákvörðunarstað með muln- = ing. Einangrunarplast í bíl- i : húsi var horfið eftir tvö ár. 1 i Þessar sögur og aðrar áþekk- \ \ ar gefa tilefni til að hugleiða i : vöruvöndun hinna íslenzku = i byggingarefna. Og eftirfar- i I andi spumingum vilja marg- = : ir fá svarað: \ Hvert er eftirlit bæjarfé- I j laga og ríkis í framleiðslu i i steyptra steina í húsbygging- \ \ ar? Og hverjar eru lámarks- i j kröfur um styrkleika, og ein- 1 ! angrunarhæfni, ef um er að i j ræða steina úr vikri eða i Í gjalli? Hvaða tryggingu, t. d. \ j vottorð frá Rannsóknarstofu i Í Háskólans, fær kaupandi i j þessa byggingarefnis í hend- i j ur? Og hvert ber að leita, ef i Í kaupanda sýnist varan ekki i ígóð? . i j Byggingamenn hafa veitt i j því atliygli, að einangrunar- i j plast það, sem flestir hús- i j byggjendur nota nú orðið, er i j mjög misjafnt frá hinuin i Í ýmsu framleiðslustöðum, t. d. i Í þyngd á m3 — Sé það i j rétt, bendir það til þess að l j sparað sé hrácfnið, jafnvel i Í stórkostlega, ef blaðinu er i j rétt frá skýrt. i j Þess væri óskandi, að i j hvorki sé á markaði mjög lé- i Í legir steinar eða einangrun, i j sem ekki er nothæf og allir j Í húsbyggjendur nota. En hér, | j sem í hinu fyrra atriði, þurfa i j menn að fá svör við ýmsum i j spurningum. Hvaða fram- i j leiðslureglur gilda um ein- j j angrunarplast? Ef einhverj- i Í ar eru, auk erlendra fyrir- i j sagna, sem liráefninu fylgja, i j liverjar eru þær þá og liver | j sér um að þeim sé fullnægt? j j Þessum spurningum er i j beint til Bygginganefndar j j Akureyrarkaupstaðar og góð i Í fúslega óskað eftir svari □ i Galdra-Loftur slær öll leikhúsmet á Akureyri Slík aðsókn hefur aldrei jiekkzt fyrr - Uppselt á allar sýningar GALDRA-LOFTUR virðist enn eiga vinsældum að fagna hjá almenningi. Sjöunda sýn- ing Leikfélags Akureyrar á þessum sjónleik var í gær. — Sýningum lýkur annan hvíta- sunnudag og munu öll sæti pöntuð allt til lokasýningar, og er fyrirsjáanlegt að fjöldi fólks sem leikinn vill sjá, á þess engan kost nema sýningar verði hafnar á ný. — Margir sýningargestir eru langt að komnir, t. d. komu yfir 40 manns frá Blönduósi í gær- kveldi og von var á bíl frá Austfjörðum með leikhúsgesti. Guðlaugur Rosinkranz þjóð- leikhússtjóri heiðraði frumsýn inguna með nærveru sinni. Jónas frá Hriflu tók sér ferð á hendur hingað norður til að sjá leikinn. Báðir þessir kunnu menn áttu langar viðræður við leikfólkið, sem auka munu gagnkvæman skilning. — Og í þetta sinn hafa leikhúsgestir metið að verðleikum íslenzkt, gamalt og gott leikrit og veitt LA fyrstu áþreifanlegu viður- kenninguna á 20 ára tímabili, með hinni gígurlegu aðsókn og frábæru undirtektum. Q O. C. THORARENSEN. Frá vinstri: Helgi. Ólafsson, Freysteinn Þorbergsson, Hjálmar Theodórsson, séra Björn Helgi Jóns- son, Páll Kristjánsson og Árni Stefánsson. Tveir hinir síðast nefndu eru öldungar skákíþróttarinnar á Húsavík og heiðursfélagar Skákfélags Ilúsavíkur. (Ljósmyndastofa Péturs Húsavík) f lok frumsýningar. — Þjóðleikhússtjóri lengst til hægri. (Ljósmynd: Eðv. Sig.) DÓ” í LESTINNI í FYRRADAG var lögreglan beðin að fjarlægja dauða- drukkinn landverkamann úr flutningaskipi á Akureyrai'- höfn. Skipið var með sem- entsfarm og bar sjúklingur- inn, og einnig lögregluþjón- arnir, merki þess, á leiðinni í fangahúsið. Þá tók lögreglan mann einn fastan fyrir of hraðan akstur og annan á miðviku- daginn fyrir meinta ölvun við akstur. Sama dag var all harður árekstur olíuflutn- ingabíls og jeppa hjá Hvammi í Arnarneshreppi. Ekki urðu teljandi meiðsli á mönnum. S.l. sunnudagsnótt valt bíll á öskuhaugum bæjarins. Þar voru drukknir menn á ferð, nema bílstjórinn. Á miðviku- daginn valt bifreið í Krækl- ingahlíð. Einn af þrem mönn- um, sem í henni voru, var fluttur í sjúkrahús og gert að sárum hans. Það var villigæs, sem skot- in var á Skipalóni, og áður er frá sagt, en ekki aligæs, og leiðréttist það hér með.Q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.