Dagur - 27.05.1964, Side 7
7
SMÁTT OG STORT
j (Framhald a£ blaðsíðu 8).
álagningu þessa gjalds, og niunu
dómstólarnir leggja úrskurð á
það mál.
^ RÖDD SEÐLABANKANS
r Daginn eftir að eldhúsumræð-
unum lauk á Alþingi var árs-
fundur seðlabankans haldinn í
höfuðborghmi. Þessi ársfundur
er í rauninni hádegisverðarboð
á vegum bankans. Þar mæta ráð
herrar, bankastjórnir og fleiri
opinberir starfsmenn á fjármála
sviðinu, en einn af bankastjór-
unum flytur ársskýrslu, um
efnahagsmál og störf seðla-
bankans. Jóhannes Nordal
bankastjóri flutti ársskýrsluna
að þessu sinni, og hefir hún ver-
ið birt í útvarpi og á prenti.
Hann ræddi þar um „hin miklu
umskipti til hins verra í efna-
hagsmálum þjóðarinnar á ár-
inu,“ eins og hann orðaði það,
og taldi horfur ískyggilegar á
þessu sviði.
h VERÐBÓLGUÓTTINN
r Bankastjórinn sagði m. a. að
á árinu 1963 liefði átt sér stað
„stóraukin notkun greiðslu-
frests erlendis samfara auknum
innflutningi." Um rekstur og
framkvæmdir fyrirtækja sagði
hann: „Mörg þeirra festu rekstr
arfé sitt að verulegu leyti í
ógætilegum fjárfestingum af
ótta við áframhaldandi verð-
liækkanir og jafnframt hækkaði
rekstrarkostnaður svo að það
rekstrarfé, sem eftir var, hrökk
skenunra en áður. Samtímis
þrengdi að í viðskiptabönkun-
um, en staða þeirra gagnvart
seðlabankanum versnaði mjög í
júnímánuði og hélzt síðan
óbreytt út árið.“ Þá taldi liann
„verðbólguóttann" hafa „náð
tökum á huga alls almennings.“
> SEX HUNDRUÐ
Tr ~ MILLJÓNIR
1 Síðar sagði bankastjórinn:
„. . . .Hefir viðskiptajöfnuður á
vörum og þjónustu verið óhag-
stæður á árinu um nálægt 250
millj. kr. og er það miklu lak-
ari afkoma en á árinu 19G2....
I heild sýnir samanburður þess-
ara tveggja ára um 600 millj. kr.
versnandi afkornu út á við. Er
þá lokið því stutta tímabili hag-
stæðs greiðslujafnaðar, sem fs-
lendingar áttu við að búa á ár-
unum 1961—62 .... Opinberar
lántökur voru óvenju miklar á
árinu, en jafnframt jukust lán-
tökur einkaaðila einnig stór-
lega. .. . “
UPPLAUSNARASTAND
Önnur ummæli bankastjórans
(orðrétt samkv. Mbl. 15 maí):
„. . . . Liggur nærri, að upplausn
arástand skapist í efnahagsmál-
um.“ „....Fer því vafalaust
fjarri, að íslenzkir atvinnuvegir
hafi þá samkeppnisaðstöðu, sem
æskileg væri fyrir heilbrigða
þróun þjóðarbúskaparins.“„....
Hver hrifsar til sín það, sem
hann getur og reynir að forða
verðmætum sínum úr eldi verð-
bólgunnar. I stað skipulagðra
áætlana kemur því fljótræði og
fum, spákaupmennska í stað
umhugsunar um eðlilega arð-
semi. ... “
„GRAFSKRIFT VIÐ-
REISN ARINN AR“
Hér er ekki rúm til að rekja
nánar efni þessarar athyglis-
verðu ræðu eða ræða það, enda
skýra þau ummæli sig sjálf,
sem nú hafa verið tilfærð. Út-
varpshlustandi hér nyrðra kall-
aði þessa ræðu „grafskrift við-
reisnarinnar." Jóhannes Nordal
hefur ekki verið talinn stjórnar-
andstæðingur. Að sjálfsögðu Iít-
ur liann á ástandið frá sjónar-
hóli seðlabankans og hefir að-
stöðu til að gera sér grein fyrir
því, hvernig nú er komið.
VERÐTRYGGING
Að lokum ræddi bankastjór-
inn nokkuð um úrræði til að
komast út úr öngþveitinu. Hann
lýsti sig, að því er virðist, hlynnt
an tvennskonar verðtryggingu:
Verðtryggingu kaupgjalds og
„verðtryggingu í peningasamn-
ingum“ en í þessu á sjálfsagt að
felast verðtrygging sparifjár. Til
skamms tíma vildu núverandi
stjórnarvöld ekki ljá því eyra,
að slíkar ráðstafanir kæmu til
greina, en Framsóknarmenn
hafa oftar en einu sinni hreyft
því máli á undanförnum árurn.
□
*-»>-©-»-^©->-i!W-©'>-*->-©-^r^©.MS>-©-^íiM-©-H!:-»*-©'HpV®'í-SW-©-**-'!-©**'*©
Beztu þakkir scndi ég öllum þeim mörgu vinum f.
miniim, sem glöddu mig á margvíslegan hátt á áttatiu $
ára afmœlisdegi minum og gerðu mér hann ógleym- T
anlegan. t $
JÓHANNA SIGURGEIRSDÓTTIR, J
T
Móbergi, Hrisey. §
F
Hjartkær faðir minn, sonur og bróðir okkar
JON JÓNASSON
andaðist að heimili sínu Lögbergsgötu 1 þann 23. maí.
Tarðarförin fer fram frá Sjónarhæð lausardaeinn 30.
itnaí kl. 1.30 e. lr.
Helga Jónsdóttir, Helga Kristjánsdóttir,
Vigdís Jónasdóttir, Guðrún Jónasdóttir.
TIL SOLU:
Mjög vandað hjónarúm
ásamt náttborðum.
Tækifærisverð.
Uppl. í síma 1789.
TIL SÖLU
vegna brottflutnings
í Vanabyggð 4 E:
Þottapottur, eldavél,
2 armstólar, sófaborð,
saumavél, bamarúm,
ryksuga.
TIL SÖLU:
Vel með farinn
BARNAVAGN
Verð kr. 2.000.00.
Uppl. í Oddeyrargötu 32,
efstu hæð.
PEDEGREE
BARNAVAGN
til sölu.
Uppl. í síma 1311.
GOÐ SKELLINAÐRA
TIL SÖLU.
Sími 1668.
NYBORIN KYR
TIL SÖLU.
Jónas Aðalsteinsson,
Grjótgarði.
TIL SOLU:
Trommusett, barnavagn
og eldavél. Selst ódýrt.
Uppl. í Strandgötu 49
(uppi, yfir Odda).
TRILLA TIL SÖLU
frambyggð, 2!/2 tonn,
með 20 hestafla Uni-
versal-vél.
Uppl. í síma 1754,
(* Aktíreyri,;
kl. 8—9 e. ír. og
Engililíð, pr. Hofsós.
H L J Ó Ð F Æ R I
TIL SÖLU:
Tenor-saxofónn og
víbrafónn til sölu nú ]>eg
ar (ódýrt).
Haraldur Jóhannesson,
Hjarðarhól 4, sími 97,
Húsavík.
I.O.O.F. Rb. 2 — 1145278% -
I.O.O.F. 1465298%
MESSA fellur niður í Akureyr-
arkirkju n. k. sunnudag vegna
fermingarbarnamótsins á Dal-
vík. — Sóknarprestar.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudagur 31. maí. Sam-
koma kl. 8,30 e. h. — Tekið á
móti gjöfum til kristniboðsins.
Allir velkomnir.
♦LIONSKLÚBBUR AK-
UREYRAR. — Kvöld-
fundur í Sjálfstæðishús-
inu fimmtudaginn 28. þ. m.
Húsið opnað kl. 19,30. Fundur
hefst stundvíslega kl. 20,15. —
Stjórnin.
BRÉFASKIPTI. 18 ára japansk-
ur menntaskólanemi óskar eft
ir bréfaskiptum við íslenzka
pilta og stúlkur á svipuðu
reki. Heimilisfang hans og
nafn er: Akio Matsushima,
2457 Kaminowari, Chuji-cho
Minami-ku, Nagoya, JAPAN.
— Tungumál: Enska.
BARNAHEIMILI I.O.G.T., að
Böggvisstöðum, tekur til
starfa 20. júní n. k. Dvalartím-
inn er tveir mánuðir. Heimil-
ið tekur við um 40 börnum og
er enn hægt að veita nokkr-
um börnum viðtöku. Forstöðu
maður verður Arnar Jónsson
og matráðskona Valrós Árna-
dóttir. Allar upplýsingar veitt
ar í síma 2131. (Frá barna-
heimilisnefnd).
I.O.G.T. Stúkan fsafold-Fjall-
konan nr. 1. Fundur að Bjargi
fimmtudaginn 28. maí kl. 8,30
e. h. Fundarefni: Vígsla ný-
liða, önnur mál, hagnefndar-
atriði. — Eftir fund: Kaffi og
félagsvist. — Æ. t.
FRA U.M.S.E. Frjáls-
íþróttafólk. Munið vor-
mótið á Laugalandi 28.
þ. m. kl. 8,30 e. h.
Félagaph Gróðursatningardag-
úi- sambandsins er sunnudág-
urinn 31. þ. m. og hefst vinn-
an kl. 2 e. h. Skorað er á fé-
laga að fjölmenna.
HJÁLPRÆÐISHERINN! —
Fimmtudaginn 28. maí stjórn-
ar major Driverklepp sam-
komu í sal Hjálpræðishersins
kl. 8,30. Einnig er hér frú
Jensen, áður leutnant Thom-
sen, frá Danmörku, sem starf-
aði hér fyrir rúmum 30 árum,
og mun nú ásamt major Ingi-
björgu Jónsdóttur taka þátt í
þessari samkomu. Verið vel-
komin.
SKYGGNILÝSINGAR þefur
frú Lára Ágústsdóttir í Al-
þýðuhúsinu á Akureyri n. k.
fimmtudag kl. 8,30 e. h. Hús-
ið opnað kl. 8.
ORÐSENDING til fermingar-
barna í Akureyrarprestakalli
vorið 1964. — Fermingar-
barnamót verður haldið á
Dalvík sunnudaginn 31. maí.
Farið verður frá Akureyrar-
kirkju kl. 8 um morguninn og
komið heim kl. 11 að kvöldi
sama dags. Æskilegt er að
fermingarbörnin séu þannig
klædd, — að þau geti
tekið þátt í útileikjum og
íþróttum. Þátttakendur hafi
með sér Nýja-Testamentið.
Einnig nesti til dagsins, en
mjólk fá þeir á mótsstað. —
Þátttökugjald verður kr. 30,
en fargjald kr. 50. Geti ein-
hver fermingarbörn, sem
skrifuðu sig á þátttökulistana
eigi farið, eru þau beðin að
tilkynna það prestunum. Eins
láti þau, sem eigi höfðu skráð
sig, en ætla að fara, sömu að-
ila vita. — Sóknarprestar.
RAKARASTOFAN Hafnarstr.
105 verður lokuð frá hádegi
föstudaginn 29. maí til hádeg-
is mánudaginn 1. júní.
MATTHÍASARSAFN opið alla
daga, nema laugardaga, kl.
2—4 e. h. frá og með 31. maí
n. k.
FOTBOLTAR
No. 5 og iio. 4.
Járn- og glervörudeild
hollenzku
komnir aftur.
STRIGAEFNI,
rauð, svört, mosagræn.
MARKAÐURINN
Verkefni í liafnamáluin
(Framhald af blaðsíðu 4).
er búið að vera í athugun
hjá ríkisstjórninni síðan
haustið 1961. Þar mun hafa
verið gert ráð fyrir svipaðri
hækkun ríkisframlags og í
tillögu Framsóknarmanna á
Alþingi nú.
A það má benda í þessu
sambandi, að landshafnir
svonefndar, í Reykjavík og á
Rifi á Snæfellsnesi, eru
byggðar fyrir ríkisfé ein-
göngu og að ríkið stendur
þar straum af lánum að því
leyti sem árlegar tekjur
hafnanna lirökkva ekki til
slíkra greiðslna.
Lán hafnasjóðanna eru yf-
irleitt tekin með ríkisábyrgð
samkvæmt lögum. Ríkissjóð-
ur hefir á liðnum tímum
greitt allmikið fé í vexti og
afborganir af slíkum lánum.
Fyrir skömmu var sá hátt-
ur upp tekinn að semja um
greiðslu vanskilaskulda, er
þannig liöfðu safnast. Voru
sveitafélög látin borga með
undirskrift nýrra skulda-
bréfa. Af þeirri ráðstöfun er
varla mikils að vænta. Eðli-
legra sýnist að hækka ríkis-
framlagið og standa skil á
því jafnóðum. Aukast þá
möguleikar hafnasjóða til að
standa straum af því, sem í
þeirra hlut kemur. □
GÓÐ AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ