Dagur - 06.06.1964, Qupperneq 8
8
Gagnfræiaskóla ákureyrar slifið nýlega
Nemendur voru 640 í 24 bekkjardeildum
Jón Sigurðsson í Yztafelli með eitt af barnabörnum sínum.
Jón bóndi í Yztafelli 75 ára
HINN 4. JÚNÍ átti Jón Sigurðs-
son, bóndi og rithöfundur í
Ystafelli, 75 ára*”afmæli. Hann
ei' borinn og barnfæddur Þing-
eyingur, sonur Sigurðar Jóns-
sonar bónda og ráðherra og
Kristbjargar Marteinsdóttur,
fæddur á Ystafelli í Köldukinn
og upp alinn og síðar bóndi þar
frá 1917 til þessa dags, að frá-
dregnum þrem árum er hann
var skólastjóri á Reykjum í
Hrútafirði.
Meðal ritværka Jóns, utan
ótölulegs fjölda greina, sem
birzt hafa í blöðum og tímarit-
um, eru: Bændaförin, Land og
lýður, Ferðahugleiðingar, Sam-
vinnufélög í Norðurálfu, Um
daginn og veginn, Helga Sörens-
dóttir, Bóndinn á Stóruvöllum,
Héraðslýsing S.-Þingeyj arsýslu,
og út er að koma um þessar
mundir Æfisaga Sigurðar Jóns-
sonar ráðherra, föður hans.
Fyrri hluti þeirrar bókar er
byggður á dagbókum Sigurðar
og er merkileg þjóðháttalýsing.
í síðari hlutanum segir margt
frá félagsmálum Þingeyin'ga fyr
ir aldamóti og í því sambandi
notaðar ýmsar frumheimildir,
svo sem gjörðabækur félaga og
dagbækur Snorra Jónssonar á
Þverá.
Jón Sigurðsson í stafelli er
maður skörulegur í sjón, kunn-
ur ræðumaður og ágætlega rit-
fær. Hann hefur mjög starfað
að félagsmálum og hefur þrek
hans, áhugi og miklir vitsmun-
ir gert hann færan um að inna
með sóma andleg störf af hönd-
um í bróðurlegri samvinnu við
framkvæmdabúskap á ættaróð-
ali sínu. Dagur sendir afmælis-
barninu beztu hamingjuóskir.Q
GAGNFRÆÐASKÓLANUM á
Akureyri var slitið s.l. laugar-
dag. Settur skólastjóri, Sverrir
Pálsson, flutti skólaslitaræðu og
gaf yrirlit yfir skólastarfið á
liðnum vetri.
24 fastakennarar og 13 stunda
kennarar störfuðu við skólann,
og nemendur voru alls 639 í 18
bóknámsdeildum og 6 verk-
námsdeildum. — Brautskráðir
gagnfræðingar voru 75. Hæstu
einkunn á gagnfræðaprófi hlaut
Erna María Eyland, 8,51. 2.
Helga Gísladóttir, 7,75 og 3.
Þóra Baldursdóttir, 7,69.
Unglingaprófi luku 208, og
hæstu einkunn þar hlaut Þór-
halla Gísladóttir, 9,00. Hæstu
einkunn í skóla hlaut Sigrún
Valdemarsdóttir, 1. bekk, 9,11.
Skólahúsið rúmar ekki lengur
nándar nærri alla nemendurna,
svo að taka varð á leigu 6
kennslustofur utan þess, þannig
að almenn kennsla fór fram á
4 stöðum í bænum. Nú er hins
vegar að rísa vegleg viðbótar-
bygging, sem væntanlega verð-
ur tekin í notkun í haust. Þar
fást 8 almennar kennslustofur
auk nýrrar kennarastofu og
smíðastofu.
10 ára gagnfræðingar færðu
skólanum að gjöf fagran verð-
launabikar, sem vera á farand-
gripur og veitist árlega þeim,
sem hlýtur hæsta einkunn í ís-
lenzku á gagnfræðaprófi ár
hvert. Nú hreppti bikarinn Erna
María Eyland.
Gagnfræðingar frá 1953 færðu
skólanum málverk af látnum
bekkjarbróður, Sveini Eiríks-
syni, flugmanni, málað af ein-
um bekkjarbræðranna, Kristni
Jóhannssyni, listmálara.
Gagnfræðingar 1962 gáfu
minningarskildi um tvo bekkjar
bræður sína, Gylfa Stefánsson
og Guðmund Ingva Arason,,er
báðir létust á síðasta ári.
Lionsklúbburinn Huginn veitti
tvenn bókaverðlaun fyrir bezta
árangur í stærðfræði, bókfærslu
og vélritun á gagnfræðaprófi, og
hrepptu þau Margrét Guð-
mundsdóttir og Haki G. Jóhann-
esson.
Verðlaun frá skólanum sjálf-
um hlutu Valdemar Gunnars-
son, umsjónarmaður skóla, Guð
mundur Kristmundsson og
Gunnar Aðalsteinsson, allir í 4.
bekk, fyrir vel unnin störf og
trausta framkomu og Halldór
Halldórsson, 3. bekk landsprófs-
deildar, fyrir yfirburði í námi
(10 í lesinni íslenzku og 10 í
stærðfræði).
í lok athafnarinnar ávarpaði
settur skólastjóri nemendur
nokkrum orðum, kvaddi gagn-
fræðingana, þakkaði þeim góð
kynni og bað þeim góðs farnað-
Jakob Tryggvason
söng við athöfnina.
stýrði
Áætlunarferðir um Sprengisand
milli Reykjaíkur og Akureyrar - Hver ferð
mun taka j)rjá daga - Skemmtilegt nýmæli
í SUMAR á að halda uppi föst-
um ferðum milli Reykjavíkur
og Akureyrar um Sprengisand.
1 þesum ferðum verða notaðir
þrír fjallabílar, og ætti að vera
hægt að flytja um 50 manns í
einu. Ferðin tekur 3 daga.
Ferðunum verður þannig hátt
að, að fólk kaupir farmiða, sem
gildit' frá Reykjavík til Akur-
eyrár og aftur til Reykjavíkur,
eða fi'á Akureyri til Reykjavík-
ur og norður aftur.
Leiðin liggur yfir Tungnaá á
Samb. norðlenzkra kvenna 50 ára
Á ÞESSU VORI eru liðin 50 ár
siðan SNK var stofnað hér á
Akureyri. Fundurinn stóð í 5
daga og sátu hann oftast 60—70
konur. — Aðkomukonur voru
40—50 og var þeim fengin gist-
ing og verustaður ókeypis hjá
bæjarbúum þessa daga.
Við konur minnumst þessa
viðburðar neð nokkrum hátíða-
höldum hér á Akurgyri um
þessar mundir. Höldum 51. fund
okkar uppi í Skíðahóteli dagana
9. og 10. júní. — Þangað eru
konur velkomnar, eins og jafn-
an hefur tíðkazt um fundi SNK.
En mánudaginn 8. júní höldum
við hátíðlegan hér í bænum:
Göngum fyrst í kirkju kl. 10 að
morgninum. Þá í Lystigarð
bæjarins. Síðan þiggjum við
hádegisboð Kaupfélagsins. Þat'-
næst verður ekið út að Bjargi
og skoðuð sýning og opnuð. En
þar hefur verið komið fyrir
handavinnusýningu frá kvenna-
skólunum á sambandssvæðinu.
Þar sem ekki var kvennaskólum
til að dreifa: Strandasýsla og
Norður-Þingeyjarsýsla, verða
sýndir gamlir handunnir munir.
Sýningin verður opin almenn-
ingi þennan dag og þá tvo
næstu. (Inngángseyrir krónur
10,00). Eftir að sýningin hefur
verið skoðuð, verður heimsótt
Prjónastofan Hekla, þar sem
mikið er framleitt af prjónlesi
úl' íslenzkri ull. Svo verður far-
ið upp í Skíðahótelið kl. 8,30 á
mánudagskvöldið.
Samband Norðlenzkra kvenna
hefur beitt sér fyrir mörgum
framfaramálum á sambands-
svæði sínu þessi 50 ár. Átt þátt
í mörgum þeirra, bæði beint og
óbeint t. d. heilbrigðismálum og
(Framhald á blaðsíðu 7).
Tangavaði, yfir Sprengisand og
niður í Eyjafjörð við Hólafjall,
þegar norður er farið, og er sú
leið greiðfærari heldur en niður
í Bárðardal, en þar er einnig
hægt að komast niður.
STORAR EN STRJÁL-
AR TORFUR
LAUSLEGAR fregnir liermdu
kl. 7 í gærkvöldi, að eitt og eitt
skip hefði fengið nolikra veiði.
Síldaríorfurnar eru stórar en
strjálar og síldin er stygg. Hér
mun vera um norska síld að
ræða. Hún er slór og allt að
20% feit og í henni er mikil
rauðáta.
Norðmennirnir eru ekki komn
ir á miðin ennþá. Síldarleitar-
skipin munu nú vera um það
hil að koma á síldarmið þau,
sem nú veiðist á, nema Ægir,
sem kannar Húnaflóasvæðið í
nótt og á morgun.
Hvarvetna er verið að undir-
búa síldarskip, síldarsöltunar-
stöðvar og síldarbræðslur, enda
gelur oltið á miklu, að missa
ekki af fyrstu aflahrotunni. —
Um leyfi til síldarsöltunar cr
enn allt í óvissu, en síldin, sem
nú veiðist er góð til söltunar. □
Bílaleigan Bíllin ætlar að
halda uppi þessum ferðum.
Væntanlega hefjast ferðirnar
nú seinni partinn í júní, þegar
leiðin er orðin nægilega þurr, en
fararstjóri verður Halldór Eyj-
ólfsson á Rauðalæk, þaulvanur
fjallamaður. Q
HATIÐAHOLDIN A
SJÓMANNADAGINN
SJÓMANNADAGSRÁÐ Akur-
eyrar gengst fyrir fjölbreyttum
hátíðahöldum um helgina. Til-
högun verður þessi:
Laugardaginn 6. júní:
Kl. 8 e. h. Kappróður við
höfnina. 1. Sveitir drengja frá
ÆFAK. 2. Sveitir landmanna.
3. Sveitir sjómanna frá Greni-
vík, Árskógsströnd, Dalvík og
Akureyri. —- Veðbanki verður
starfræktur.
Kl. 10 e. h. verður dansleikur
í Sjálfstæðishúsinu og gömlu
dansarnir í Alþýðuhúsinu.
Sunnudaginn 7. júní:
Kl. 8 f. h. Fánar dregnir að
hún.
Kl. 9. f. h. Sala merkja og
Sjómannablaðsins hefst.
Kl. 10,30 f. h. Messa í Akur-
eyrarkirkju. Sr. Pétur Sigur-
geirsson.
Kl. 1,30 e. h. Útisamkoma við
sundlaugina. Lúðrasveit Akur-
eyrar leikur. Sr. Pétur Sigur-
geirsson flytur ávarp. Björgun-
arsund. Smárakvartettinn syng-
ur. Stakkasund. Boðsund. Sjó-
menn heiðraðir og verðlaunaaf-
hending.
Björgun með þyrlu verður
sýnd við höfnina.
Dansleikir verða um kvöldið
að Hótel KEA og í Sjálfstæðis-
húsinu.
Allur ágóði rennur til Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna.
Jörundur III., nýtt fiskiskip Guðmundar Jörundssonar, koni í
fyrradag ineð fyrsta afla sinn af Norðurlandsmiðum til Eyjafjarð-
arhafna — 2200 tunntir síldar — og er það jafnframt fyrsta síld
sumarsins, sem til Eyjafjarðar berst á þessu sumri. Hér er Jörund-
ur III. að leggjast að löndunarbryggjunni í Krossanesi. (Ljm.: E.D.)