Dagur - 20.06.1964, Síða 7

Dagur - 20.06.1964, Síða 7
t Blær af liæðiim - Blær af hæðum himinljómatrn hrannar yfir dal og fjörð. Eilífð fyrir opnum tjöldum er að skapa nýja jörð. Bjarmann grípum báðum höndum, bikar ljóss og sumargjöf. 'r Sigurvon til sólar þreyti svanaflug um geislahöf. .,4 Vatnaskógar vors og friðar vaka í blárri fjallasýn. Hljóma eins og hörpustrengir hjartans þrá og gleði mín. Ómar koma, ómar líða, eins og klukkur hringi rótt, hrifnar þínum helgidómi hlýja, bjarta sumarnótt. Góða jörð á grænum klæðum gefðu tákn í þjóðardraum. Fífilstjörnur frónskra byggða fölni ei við tímans straum. Láttu hóp hvers varpa verða vitaraðir attðnarsands. Yfir sögu um aldir svífi ilmur blóma og vors míns lands. ísafoldin, undrastorðin, ættarland og heilög jörð! Vorcild þín og vættir traustar vcrnda sérhvern dal og fjörð. Svellur enn við sumaryndi sonarást í brjósti manns. Er nokkuð stærra nú sem heitir náðarsending guð til hans? (Kr.) Ársþing Unglingareglu 1.0. G. I. HIÐ 39. í röðinni, var haldið í félagsheimilinu Sjálfsbjargar á Akureyri, Bjargi, föstudaginn 12. júní s.l. — Þingið sóttu 69 manns, gæzlumenn, þingfull- trúar og gestir. Þing þetta var því fjölsótt og í alla staði hið ánægjulegasta. Ólafur Þ. Kristj- ánsson heimsótti þingið og flutti stutt ávarp. Sérstakan svip setti það á þing þetta, að allmörg börn úr barnastúkum Akureyr- ar sátu flesta fundina, en þau voru klædd hinum nýja einkenn isbúningi, sem Akureyrarstúk- urnar hafa gert tilraun með í vetur. Vakti búningurinn, með hinu stóra og fagra merki regl- unnar, almenna athygli. Aðalmál þingsins að þessu sinni voru tvö: 1) Árlegur kynningar- og fjáröflunardagur Unglingaregl- unnar, og 2) Einkennisbúningur og hæfnispróf. Bæði ~þessi mál, sem snerta mjög framtíð Unglingareglunn- ar, höfðu komið til framkvæmda á síðasta ári, ýmist að nokkru leyti eða öllu urðu um þær miklar umræður, sem allar hnigu á einn veg. Var stór- gæzlumanni einróma falið að halda áfram á þeirri braut, sem mörkuð hafði verið. Stórgæzlumaður, Sigurður Gunnarsson, var endurkjörinn. Þingið gerði ýmsar ályktanir og var þessi veigamest: Unglingaregluþing 1964 harm- ar það, að til skuli vera hópur ungs fólks í landinu, sem frem- ur slík spjöll af völdum drykkju skapar og þau, sem gerðust nú nýlega á Hreðavatni, í Þjórsár- dal og víðar. Hins vegar mótmælir þingið því kröftuglega, að ungt fólk sé nokkuð spilltara að eðlisfari nú en áður, þótt ýmsir telji svo vera og hafi hátt um mikla spill- ingu æskunnar. Þingið hikar ekki við að stað- hæfa, að hinir fullorðnu eigi langoftast meginsök á ávirðing- um unga fólksins, meðal annars með vítaverðu fordæmi á ýms- um sviðum, og þá ekki sízt um neyzlu áfengis og tóbaks. Þingið átelur sérstaklega þá háttu forráðamanna þjóðarinnar að veita áfengi í veizlum og mót- tökum hins opinbera, þótt vitan- legt sé, að þar er um að ræða áhrifamikið og hættulegt for- dæmi öllu mlandslýð, ekki sízt æskunni. Mættu þeir gjarna rifja upp hið sígilda spekimál séra Hallgríms Péturssonar: „Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það.“ Þingið beinir því til ristjóra blaða og tímarita, að þeir forð- ist að birta myndir og frásagnir, sem líklegar eru til að efla drykkjutízkuna. Á þingið þá einkum við myndir af sam- kvæmisdrykkju, sem því miður gerast hér æ tíðari í blöðum, og telur, að þeim megi að ýmsu leyti jafna til áfengisauglýsinga, sem bannaðar eru með lögum. íj>*^ ’/i''t' í'lW' Qú'c'- v'Ú')' viS)' £•!>')'• í;r»>- í ;S>- & ð Þjóðhátíðarnefnd Akurcyrarbæjar 1964 færir öllum © hlutaðeigandi innilegustu þakkir fyrir veilta aðstoð y við framkvæmd hátíðahaldanna i tilefni 20 áira lýð- ® veldis á íslandi, enn fremur duglega og vinsamlega f' þátttöku bæjarbúa, þrátt fyrir rysjótt veðurfar. % ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND. | - SMÁTT OG STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8). öðru fólki, kemur þetta í Ijós. Annað einkennir þessa gjörfi- legu og vel klæddu landa. Þeir eru oft í vandræðum með fram- komu sína, eru þvingaðir og með minnimáttarkennd. Þetta er einhver vöntun á uppeldi. Og við fyrsta glasið bresta eðlileg- ar hömlur algerlega. Ummæli mn skort á háttvísi okkar rifjuðust upp 17. júní á Ráðhústorgi, þegar hópur full- orðinna manna gleymdi að taka ofan undir þjóðsöngnum. □ - STÖRSTÚKUÞING (Framhald af blaðsíðu 8). templar, séra Kristinn Stefáns- son, áfengisvarnarráðunautur, Reykjavík. Heiðursfulltrúi, Jó- hann Ögmundur Oddsson, fyrrv. kaupm., Reykjavík. Umboðs- maður hátemplars er Stefán Ág. Kristjánsson, forstj., Akureyri. - Bæjarstjórnarfundur (Framhald af blaðsíðu 2). á rekstri skólagarða í Reykja- vík og Hafnarfirði með það fyr- ir augum að koma upp skóla- görðum hér á næsta ári. Jafn- framt að áætla fé til þessa máls á næstu fjárhagsáætlun. Upp- lýst var í bréfinu frá Æskulýðs- ráði að fjöldi unglinga er at- vinnulaus í bænum um sumar- mánuðina. Bæjarstjórn samþykkti að fella niður bæjarstjórnarfundi í júlí og ágúst, en fela bæjarráði af- greiðslu þeirra mála, sem undir hana heyrði. , □ - Firmakeppni B. A. (Framhald af blaðsíðu 4). gagnaverkstæði Olafs Ágústs- sonar h.f., Ferðaskrifstofan Saga, Herradeild J. M. J., Verk- smiðjan Glitbrá h.f., Vélsmiðjan Atli h.f., Skipaafgreiðsla Jakobs Karlssonar, Húsgagnaverzlunin Kjarni h.f., Póstbáturinn Drang ur, Málflutningsskrifstofa Ragn- ars Steinbergssonar, Rafsegull h.f., Hegri h.f., Smjörlíkisgerð KEA, Bifreiðaverkstæðið Þórs- hamar h.f., Brynjólfur Sveins- son h.f., Bílarétting s.f., Búnað- arbanki íslands, Landssími ís- lands, Heildverzlun Tómasar Steingrímssonar, Verksmiðjan Hlíf, Sápuverksmiðjan Sjöfn, Efnagerð Akureyrar h.f., Kaup- félag verkamanna, Brauðgerð Kr. Jónssonar h.f., Heildverzlun Valgarðs Stefánssonar, Raforka h.f., Iðja h.f., Verzlunin Snót, Klæðaverzlun Sigurðar Guð- mundssonar, Veiðarfæraverzl- unin Grána, Morgunblaðið, Bílasalan h.f., Bifreiðastöð Odd- eyrar, Súkkulaðiverksmiðjan Linda h.f., Amaróbúðin h.f., Hagi h.f., Byggingarvöruverzlun Akureyrar h.f., Bifreiðaverk- stæði Jóh. Kristjánssonar h.f., Happdrætti D. A. S., Prentverk Odds Björnssonar h.f., Leðurvör ur h.f., Vikublaðið íslendingur, Loftleiðir h.f., Markaðurinn, Húsgagnavinnustofan Einir h.f., Fjórðungssjúkrahúsið, Sjálfstæð ishúsið, Gufupressa Akureyrar, Saumastofa Gefjunar, Dúka- verksmiðjan h.f., Almennar Tryggingar h.f., Sportvöru- og hljóðfæraverzlun Akureyrar, Verzlunin Eyjafjörður h.f., Verzlunin Drífa h.f., Olíufélagið h-f-, □ MESSAÐ í Akureyrarkirkju n. k. sunnudag kl. 10,30 f. h. — Séra Halldór Kolbeins, fyrrv. prestur í Vestmannaeyjum, predikar. — Sálmar nr. 23, 354, 359, 5, og 684. — P. S. MINJASAFNIÐ. Opið frá 1,30 til 4 e. h. alla daga nema mánudaga. Á öðrum tímum fyrir ferðafólk eftir sam- komulagi við safnvörð. Sím- ar 1162 og 1272. MATTHÍASARSAFNEÐ opið kl. 2—4 e. h. alla daga, nema laugardaga. NONNAHÚSIÐ opið kl. 2—4 síðdegis, daglega. J^nttsímlutsafmíS er opið alla virka daga, nema laugar- daga, kl. 4—7 e. h. DÝRALÆKNAVAKT næstu helgi, kvöld og næturvakt næstu viku hefur Ágúst Þor- leifsson, sími 1863. ÖRN SMÁRI ARNALDSSON læknir, gegnir störfum mín- um til 15. júlí n. k. Heimilis- fang hans er Þingvallastræti 22. Sími 1542. — Jóhann Þor- kelsson. HEILSUVERNDARSTÖÐ AK- UREYRAR: Eftirlit með þung- uðum konum fimmtudaga kl. 4—5 e. h. — Ungbamaeftirlit miðvikudaga og annan hvern mánudag kl. 1—2 e. h. Þarf að pantast í síma 1977 og 1773. — Hvorttveggja þetta fer fram í Hafnarstræti 81, neðsta hæð. — Berklavamir: Þriðjudaga og föstudaga kl. 2—3,30 e. h. og bólusetningar fyrsta mánudag hvers mánað- ar kl. 1—2 e. h. — Hvort- tveggja í húsnæði Berklavarn arstöðvarinnar við Spítala- stíg. F.U.F.-FÉLAGAR, AKUREYRI. Gerið skil á seldur happ- drættismiðum sem fyrst. LEIÐRÉTTING f EFTIRMÆLI um Eið Sig- tryggsson, birt í 49. tbl. „Dags“ 17. júní 1964, hefir orðið sú prentvilla, að í fimmtu ljóðlínu fyrsta erindis stendur:: — En þegar brestur band, sem [tengdi á vitanlega að vera: — En þegar brestur taug, sem [tengdi til þess að það rími við næstu línu — þessa: tregasár er kveðja mín. Óskast þetta hér með leiðrétt. Vinsamlegast. Jórunn Ólafsdóttir. - Hátíðahöldin 17. júní (Framhald af blaðsíðu 1) manna bæ fyrir 70 þús. kr. Ætli danshljómsveitirnar einar hafi ekki hirt þriðjunginn af þessari upphæð? Með þetta í huga ber að þakka vel unnin störf og há- tíðargestirnir komu, sem heild, mjög vel fram og fjölmenntu, þrátt fyrir það, að veðrið var ekki eins og bezt verður á kos- ið. □ HJÚSKAPUR. 17. júní voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju brúðhjónin Unnur Guðrún Jóhannsdótt- ir og Sigurjón Eðvarð Sigur- geirsson ketil- og plötusmíða- nemi. Heimili þeirra er að Laxagötu 3 Akureyri. BARNAHEIMILI I.O.G.T. að Böggvisstöðum hefur starf- semi sína í dag, laugardag. — Börnin mæti við ferðaskrif- stofuna Sögu, Akureyri, kl. 4 e. h. — Barnaheimilisnefndin. FRÁ FERÐAFÉLAGI AKUR- EYRAR. — Ferð um miðlands- öræfin 11.21. júlí. — Verð kr. 2.000,00. Miðað er við að næg þátttaka fáist. Innifalið kaffi, mjólk, grautur og súpur. — Ráðgert að aka suður Kjalveg og þaðan austur í Skaftár- tungur, um Þjórsárdal, Þórs- mörk og Fjallabaksleið nyrðri með viðkomu í Eldgjá og Landmannalaugum. Síðan austur yfir Tungná að Veiði- vötnum og Þórisvatni í Jök- uldal. Þaðan heim um Hóla- fjall. Þátttaka tilkynnist skrif- stofu félagsins fyrir 3; júlí, sími 2720. Óska eftir að kaupa notaða HEYKLÓ. Baldur Halldórsson, Hlíðarenda. BARNAKERRA, vel með farin, óskast til kaups. Uppl. i sínia 12G7. RIFFILSKOT Vestur-þýzk frá DYNAMIT NOBEL verksmið j unum. Cal. 22: Short, long og long rifle. VERZLUNIN EYJAFJÖRÐUR H.F. HANDVERKFÆRI Tökum upp alls konar VERKFÆRI eftir næstu helgi. VERZLUNIN EYJAFJÖRÐUR H.F. Einlit, doppótt og rósótt, samstæð, fimm litir. MARKAÐURINN Sími1261

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.