Dagur - 20.06.1964, Blaðsíða 8

Dagur - 20.06.1964, Blaðsíða 8
r i 8 Frá þingi Stórstúku islands á Akureyri. (Ljósmynd: N. Hansen) Stórstúkuþingið á Akureyri SEXTUGASTA OG MÍIDJA þing Stórstúku íslands var háð í Oddeyrarskólanum á Akur- eyri dagana 13.—15. júní s.l. Þingið sátu rúmlega 60 full- írúar víðs vegar að af landinu og var stórtemplar, Ólafur Þ. Kristjánsson, skólastjóri í Hafn- arfirði, í forsæti. Hann hefur tekið við yfirstjórn reglunnar á íslandi við andlát Benedikts S. Bjarklind, fögfræðings, í sept- ember s.l. ár. Stórstúkuþingið var háð á Ak ureyri að þessu sinni til að minn ast þess, að hér í bæ var reglan stofnuð fyrir 80 árum, eins og getið var um í blöðum fyrr á ár- inu. Á sunnudagl4. júní söng séra Birgir Snæbjörnsson hátíðar- messu í Matthíasarkirkju, en þingfulltrúar höfðu gengið til kirkju undir fánum reglunnar. Gestir þingsins voru dr. Rich- ard Beck,. prófessor og kona hans. Flutti dr. Beck þinginu kveðjur góðtemplara í Vestur- heimi, bæði norskra og ís- lenzkra. Þau hjónin færðu regl- unni gjöf í afmælissjóð hennar. Á mánudagskvöld efndi Þing- stúka Akureyrar til hófs í Sjálf stæðishúsinu. Meðal gesta í hóf- inu voru bæjarstjórn og bæjar- stjóri, er flutti þar ávarp. Þakk- aði hann reglunni fyrir mikil- væg störf hennar í bæjarfélag- inu um 80 ára skeið, en óskaði henni áframhaldandi vaxtar og viðgangs. Ólafur Þ. Kristjáns- son flutti minni reglunnar og Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri, minni Akureyrar. Hófinu stýrði Stefán Ág. Kristjánsson, forstj. Þingið samþykkti ýmsar álykt anir, m. a. þessar: „Stórstúkuþingið fagnar því, að þeirn röddum fjölgar sífellt, sem mæla gegn áfengisneyzlu, Bændaför Eyfirðinga SAMKVÆMT nánari fregnum verða um 70 manns í förinni. —• Farið verður austur um land til Hornafjarðar og að Jökulsá á Breiðamerkursandi. Á heimleið verður viðkoma m. a. á Fá- skrúðsfirði og Vopnafirði. Lagt verður af stað í dag kl. 9 ár- degis og komið til baka að kveldi 27. júní. Q og minnir á blaðagreinar og út- varpserindi um áfengisvanda- málin, sem vakið hafa athygli og umtal að undanförnu. Legg- ur stórstúkuþingið áherzlu á, að lagðar verði með öllu niður vínveitingar hjá opinberum stofnunum og sýni forgöngu- menn þjóðaxúnnar með því ein- lægan stuðning sinn við málið.“ Þingslit fóru fram síðdegis á mánudag, 14. júní. Framkvæmdanefnd Stórstúk- unnar næsta kjörtímabil er þannig skipuð: Stórtemplar, Ól- afur Þ. Kristjánsson, skólastjóri, Hafnarfirði. Stórkanslar, Indriði Indriðason, rithöfundur, Reykja vík. Stórvaratemplar, Þórhildur Hjaltalín, Akureyri. Stórritari, Kjartan Ólafsson, fulltrúi, Kópa vogi. Stórkapilán, frú Þóra Jóns dóttir, Siglufirði. Stórgjaldkeri, Jón Hafliðason, fulltrúi, Reykja vík. Stórgæzlum. Ungmennast., Gunnar Þorláksson, Reykjavík. Stórgæzlum. Unglingast., Sig- urður Gunnarsson, kennari, Reykjavík. Stórgæzlum. lög- gjafarstarfs, Sveinn Helgason, stórkaupm., Reykjavík. Stór- fræðslustjóri, Jón Hjartar, skrif- stofustj., Borgarnesi. Stórfregn- ritari, Njáll Þórarinsson, stór- kaupm., Reykjavík. Fyrrv. Stór- (Framh. á bls. 7). Fyrirspurnir tii bankaráðs Útvegsbanka íslands HÉR í BLAÐINU var hinn 21. maí vikið að gjaldþrota- og bankamálum á Akureyri, svo sem lesendum er kunnugt. Þar var m. a. sagt, að bankastjóri Utvegsbankans á Akureyri hefði fengið fyrirmæli frá „æðri stöðum“ um enn aukin útlán við Brynjólf Brynjólfsson veitingamann, eftir að hann (bankastjórinn) hafði stöðvað þau. Bankaráð Útvegsbankans, sem hvergi var að vikið í nefndri grein, hvorki beint né óbeint, taldi sig „æðri staði“, og svaraði þegar með yfirlýsingu hér í blaðinu 27. sama mánaðar. Það vill svo til, með fullri virðingu fyrir bankaráði Útvegsbank- ans, að ýmsir „æðri staðir“ eru til, a. m. k. pólitískir, og var eins konar stikkprufa tekin á þeim vettvangi. En úr því bankaráðið er svo ólatt til penna að svara því, sem það er ekki um spurt, vill blaðið vænta þess, að það víki sér ekki undan að svara spurningum, sem hér á eftir eru fyrir það lagðar og getur það þá að sjálfsögðu stuðst við sín „skrif- legu gögn,“ sem það minnist á í yfirlýsingu sinni frá 27. maí: 1) Er það rétt, að 1,5 millj. kr. skuld Brynjólfs Brynjólfs- sonar veitingamanns á Akureyri við Útvegsbankann (útibú- ið á Akureyri) liafi árið 1961 verið tryggð með sparifjár- innstæðu? 2) Er það rétt, að árið eftir, 1962, hafi fjórir ríkir menn verið í ábyrgð fyrir ca. 3,5 millj. kr. skuld Br. Br. við banka- útibúið á Akureyri? Ef svo er, hvar eru þá þessir ábyrgð- annenn nú, við uppgjör. þrotabús Br. Br.? 3) Er það rétt, að árið 1963, þegar skuld Br. Br. við marg- nefnt útibú var ca. 7 millj. kr„ hafi nefnd sparifjártrygging ekki verið nefnd á nafn í bankaráði, né heldur þessir fjórir ábyrgðarmenn?. 4) Hversu má það vera, að slíkar ábyrgðir, ef verið hafa til, gufi upp og hverfi, án athugasemda bankastjórnar? Og að síðustu: Ilver eða hverjir, innan bankans eða utan, knúðu bankastjóra Útvegsbankastjórans á Akureyri til að i opna bankann fyrir Br. Br„ eftir að bankaráð og bankastjóri höfðu neitað frekari útlánum til nefnds veitingamanns? □ SMÁTT OG STÓRT BREITT FYRIR GLUGGA I HEILT ÁR Fyrir rúniu ári lirundi nýtt og hátimbrað verzlunarfyrirtæki, sem stofnað yar af Sjálfstæðis- mönnum á Akureyri til höfuðs Kaupfélagi Eyfirðinga. Það var til húsa í milljónahöll Sjálfstæð- isflokksins á Akureyri, varð fljótt gjaldþrota og lenti undir uppboðsliamrinum. Til skamms tíma hefur verið breitt þar fyrir ajla glugga, þar sem þessi verzl- ur reis og féll. Miðlungi skyn- samir andstæðingar samvinnu- félaga, sem óskhyggjan hljóp í gönur með við stofnun Kjörvers í Sjálfstæðishúsinu nýja, létu í ljós það álit sitt, að hér væri loksins fram kominn sá keppi- nautur á sviði verzlunar, sem hið gamalgróna KEA á Akur- eyri þyldi ekki, og myndi fljót- lega fara að braka í máttarstólp- um þess. Allur almenningur skilur hinsvegar mjög vel, að það er æskilegt að kaupfélög og ein- staklingar keppi á hverjum stað í verzluninni. Á þann liátt ein- an býr fólk við hið æskilega val milli viðskiptaforma, og á þann hátt koma kostir og gallar sam- vinnu- og einstaklingsframtaks bezt í Ijós. Hrun Kjörvers var þess vegna ekkert gleðiefni, lieldur miklu fremur lærdóms- ríkt dæmi um fljótfærni, ósk- hyggju og oftrú á aðstoð vel- viljaðra peningastofnana. Nú hafa stærri mál skyggt á Kjörver. ÝMSUM YFIRSÉST Hinir árlegu aðalfundir KEA eru oftast friðsamir og átaka- litlir. Þykir ýmsum það miður, er gaman hafa af kappræðum og hávaða á fundum. En það er þó öllum samvinnumönnum fagnaðarefni, að þessir fundir hafa jafnan sýnt áþreyfanlega hið þróttmikla og fjölbreytta starf félagsins, sem rekið er í heild, á mjög traustum grunni. Að sjálfsögðu er gagnrýni bæði nauðsynleg og sjálfsögð, og e. t. v. er henni ábótavant. Ilinu má heldur ekki gleyma að vopna- gleði einstakra manna . getur veikt hina mikilvægu samstöðu. Fólk er orðið svo vant frétt- um af sæmilega góðri afkomu og ýmsum framförum ár eftir ár, frá aðalfundum KEA, að mörgum sést yfir mikilvægi starfseminnar fyrir lífsafkomu þúsundanna á félagssvæðinu. MERKILEGAR SAM- ÞYKKTIR Á aðalfundi KEA var samþykkt að verðjafna flutningskostnað mjólkur af samlagssvæðinu tU mjólkurstöðvarinnar á Akur- eyri, sem verið hefur mjög mis- munandi vegna staðhátta. Þótt slík samþykkt væri ekki gerð einum rómi, voru þeir menn nógu margir, sem vildu fórna ofurlitlum fjármunum til hags- bóta fyrir þá mörgu, sem í þessu efni hafa erfiðasta aðstöðu til að koma mjólk á vinnslu- og mark- aðsstað. Er þetta eftirtektarvert. Þá var samþykkt að verja nokkru fé til rannsóknarstofu landbúnaðarins, sem ætlað er að rísi á hér Akureyri innan skamms. í samþykkt þessari felst víðsýni, sem þakkarverð er. Einkum er það eftirtektar- vert, að enginn bæjarmaður hreyfði mótmælum við þá ráð- stöfun fjármuna af óskiptum lilut. Þessar tvær samþykktir síðasta aðalfundar KEA, eru e. t. v. þær merkustu, sem þar voru gerðar, án þess að lítið sé úr öðrum samþykktum gert. GLEYMA AÐ TAKA OFAN Almennri háttvísi og siðmann legum umgengnisvenjum okkar íslendinga er í mörgu áfátt. Ungt fólk, sem ekki vill vamm sitt vita, kemst oft í vanda, af því er viðteknar venjur skortir. Það veit ekki hvað við á í hin- um ýmsu tilvikum og geldur þess því miður oft. Starfsmaður í sendiráði fs- lands erlendis hefur sagt, efnis- lega: fslenzka námsfólkið hér í borg er myndarlegt, vel gefið og vel klætt — miðað við aðra. Er það kemur hingað, ásamt (Framhald á blaðsíðu 7). Skólaslif a Húsmæðrðskól- anum á Laugalandi HUSMÆÐRASKÓLANUM á Sy.ðra- Laugalandi var slitið þann 13. þ. m. Hófst athöfnin með guðsþjónustu er sóknar- presturinn, séra Benjamín Ei- ríksson flutti, en því næst ávarp- áði forstöðukonan, frk. Lena Hallgrímsdóttir, brautskráðar námsmeyjar og afhenti próf- skírteini. Alls stunduðu 40 stúlkur nám í skólanum á liðnum vetri, víðs vegar að af landinu, en af þeim luku 33 burtfararprófi. Hæstar einkunnir á burtfararprdfi hlutu Auður Kinberg úr Reykjavík, 9,10 í aðaleinkunn, og Þorgerð ur Septína Guðmundsdóttir frá Akureyri, sem fékk 9,07. Dvalarkostnaður varð krónur 36,00 á dag. 'Sýning á handavinnu náms- meyja var sunnudaginn 7. júní, fjölsótt að vanda. Við skólaslitin var mættur hópur eldri nemenda, einkum 20 og 10 ára námsmeyjar. — Færðu 20 ára hópurinn skólan- um að gjöf borðbúnað úr stáli, en 10 ára námsmeyjar gáfu skuggamyndavél. Forstöðukon - an þakkaði þessar veglegu gjaf- ir og hinn mikla hlýhug eldri nemenda í garð skólans. Eldri nemendur dvöldu í skólanum til miðnættis við góðan fagn- að. q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.