Dagur


Dagur - 30.09.1964, Qupperneq 1

Dagur - 30.09.1964, Qupperneq 1
Dagur Remur út tvisvar í viku og kostar 20 krónux á mánuði. —.■ Nú er laxi NÚ FER laxinn að hrygna í ánum og vonandi fær hann alls staðar frið til þess að endurnýja stofninn. En tæknin mun í fram tíðinni hjálpa til að fylla árnar af silungi og laxi. Fiskiræktar- stöðin í Kollafirði og reynzla sú, sem áður hefur fengizt af laxa- klaki og fiskeldi, mun gjör- breyta viðhorfum manna til þessara mála á næstu árum. Margar laxár landsins eru mjög gjöfular landeigendum, sem oft ast leigja veiðiréttinn félags- bundnum liópum stangveiði- manna eða efnuðum einstak- lingum. Einnig er reynzla íyrir því, að ár, sem áður voru lax- lausar og ekki taldar til nytja, eru orðnar að góðum veiðiám. Ók án réttinda LÖGREGLAN á Akureyri tjáði blaðinu í gær að ölvun liefði ver ið með minna móti í bænum um síðustu helgi. Kvennmaður án ökuréttinda, var um helgina tekin við akst- ur bifreiðar. Umráðamaður öku tækisins var meðal farþega og ölvaður. Á sunnudaginn festist hestur í röraliliðinu við Lónsbrú. Lög- reglunni var tilkynnt um það og fór á staðinn og losaði hestinn sem reyndist lítt meiddur. Gróandijörð LANDIÐ, með gróðurmold og öðrum gögnum og gæðum er aðalhöfuðstóll þjóðarinnar og veitir henni möguleikana til bú- setu í landinu. Væri hér engin gróðurmold í landi, þá væri hér heldur engin þjóð. Þess vegna er landbúnaðurinn, hefur verið og mun verða, höfuð at- vinnuvegur þjóðarinnar. Fram- leiðslumagn landbúnaðarins nálgast að vera 2 þúsund miilj. króna virði, í innlendum pening um. Megnið af þessu er notað í landinu til fæðis og fata. Aðal matur á borðum hjá öllum heim ilum í landinu, er innlend sveita fæða. Það er algeriega útilokað að hægt sé að flytja svona verð- mæti inn, frá útlandinu, bæði frá hagfræðilegu- og heilsufars ALÞÍNGI SETT 1 FORSETI íslands hefur, að \ 1 tillögu forsætisr.licrra kvatl = I Aiþingi til fundar Iaugardag- \ \ inn 10. október 19G4. Fer í j þingsetning fram að Iokinni \ \ guðsþjónustu, er hefst í Dóm § I kirkjunni kl. 13,30. = Til breytinganna hefur e. t. v. ekki þurft annað en taka hindr- un úr vegi eða jafnvel ekki ann að en sleppa seyðum í ána, sem síðan hefur sjálf „ræktáð sig upp“. Um þessar mundir eru á nokkrum stöðum geymdir lax- ar, bæði hrygnur og hængir, og þess beðið að egg og svil verði fullþroska til fjölgunar. En á Norðurlandi er ennþá engin klak- eða fiskeldisstöð og virð- ist tími til þess kominn að bæta úr því. Norðlenzkar laxár bíða þess að mannshöndin leggi til nauðsynlega hjálp, einnig ám, sem aldrei hafa verið við lax kenndar. Vatnasvæði Skjálf- andafljóts býr yfir nær ótak- morkuðum möguleikum, svo dæmi sé nefnt. Eflaust má auka laxveiði í Laxá um helming með skynsamlegum aðgerðum á því svæði, sem lax gengur nú. Auk þess eru freistandi mögu- leikar ofan við virkjun, allt til Mývatns. Að þessu sinni er laxveiðitím anum lokið. Veiðin var víða góð og í nokkrum ám veiddist ó- hemjumikið af laxi. Ár og vötn búa yfir nær ó- tæmandi möguleikum, sem ef- laust verða síðar notaðir til hagsbóta. En athugunum þarf að hraða, til þess að stytta bið- tímann. [J Siglfirðingar urðu Norðurlandsmeisíarar. Sjá 2. siðu. (Ljósmynd: H. S.) Lamb hrapaði og ein ær var skotin í björgunum Ófeigsstöðum, 29. september — Sumarönnum er að Ijúka og haustannir standa yfir. Tíðin var stirfin og nokkuð tafsamt að heyja. Enn munu hey úti á nokkrum stöðum, enda óþurrk- ar langvarandi eftir að veður versnuðu í ágúst. Við höfum nú er hin fraosta undirstai legu sjónarmiði fyrir þjóðina. Þess vegna á hún grunnstöðu sína í landbúnaðinum. Suraar þjóðir vantar mold til að geta fært út kvíarnar í land búnaði, það veldur vandræða- ástandi og því að fólk verður að flytja burt úr heimalandinu. En hér bíða milljónir ha lands þess að moldin sé hreyfð og auðnir græddar upp. Á þann hátt má auka einingar uppskeru landbúnaðarins í milljóna tali. Lofar það þjóðinni miklum vexti og viðgangi í framtíðinni. Hin miklu verðmæti, sem landið gefur í vatnsorku og jarð hita færir það, óbeinlínis sunnar á hnöttinn. Öll þjóðin verður að komast til skilnings á því hvað hún í landinu, á dýrmætan höf uðstól og að hún getur ekki lifað eða vegnað vel, nema hún hagnýti hann og því meira, því betra. Bújarðir sveitanna standa kyrrar í töframætti íslenzkrar gróðurmoldar. Þar sem upp- skera linnir ekki meðan jörðin er við lýði. En bújarðirnar á sjónum, skipin sökkva og hverfa í hafsins og tímans djúp. Mun það ekki síður lofa góðu, fyrir framtíðina, að hagnýta gróður- moldina, en að urga þverrandi fiskimið með erlendum, rándýr um framleiðslutækjum. Aðal framleiðslutæki landbúnaðarins eru blessaðar skepnurnar. íslenzkir töfrar eru í sveitum landsins, með landsýn, gróður- angan grasadýrð, dýralífi og sól sem ekkert skyggir á. Skilyrði til uppeldis ungdóm inum eru, fyrst og fremst, í sveitum landsins. Blessuð börn (Framhald á blaðsíðu 5). lokið þriðju göngum. Nokkur þoka torveldaði fjárleitir. Nokkrar kindur eru í ógöng- um norður í Kinnarfjöllum og er óvíst um afdrif þeirra. Ekki er mönnum gengt þangað. Kind ur þessar hafa ekki rótað sér, enda snjór. En nú er þama snjó laust orðið og er þá ekki von- laust að féð fari sjálft úr þess- um stað. í gær hrapaði lamb á öðrum stað þarna norðurfrá, og eina á varð að skjóta í klettunum, þar sem útilokað var talið, að hún kæmist þaðan hjálparlaust og ekki tök á að komast þar til hjálpar. í Kinn er að þessu sinni lógað um 4000 dilkum. Um vænleik- ann er ekki vitað ennþá, en frá Húsavík berast fréttir af mjög vænu fé, t.d. úr Mývatnssveit og Bárðardal, allt upp í 20 kg. meðalvigt. Menn eru ánægðir yfir því, Verð á mjólk og mjólkurafurðum Mjólk og smjör niðurgreitt, aðrar mjólkur- vörur liækkuðu töluvert mikið í verði HINN 24. september auglýsti Framleiðsluráð landbúnaðarins nýtt verð á mjólk og mjólkur- vörum. Samkvæmt samkomu- lagi sexmannanefndarinnar hækka vörur þessar í verði, en ríkisstjórnin hefur aftur á móti ákveðið auknar niðurgreiðslur á mjóik og smjöri til neytenda. Mjólkin kostar kr. 5,75 lítrinn í lausu máli, eins og í fyrra- haust. Smjörið kostar 90 krón- ur kílóið en kostaði í fyrrahaust 103 krónur. Niðurgreiðslurnar á mjólkur- lítra eru kr. 4,72 og á smjör- kílóið nær 85 krónur. Ostur skyr og rjómi eru ekki niðurgreiddar vörur og hækka mjög í verði. Rjómi kostar nú kr. 74.90 lítr- inn í flöskum, skyrkíióið kostar nú kr. 18,75. Ostur (45%) 113 kr. kílóið. að samkomulag náðist í sex- mannanefndinni, og una nú bet ur verðlagsgrundvellinum en áð ur, ekki síst vegna hliðarráð- stafana þeirra, sem ríkisstjórnin lofar nú statt og stöðugt að gera til úrbóta. í Mývatnssveit var merkur fundur hernámsandstæðinga haldinn fyrir nokkru. Þar var rætt um Keflavíkurgönguna síð ustu, sem oft og víða.hefur bor ið á góma, svo og næstu Kefla víkurgöngu, sem hinir snjöllu og dugmiklu málafylgjumenn héð- an úr sýslunni börðust fyrir á fundinum að gengin yrði norð anlands. Var um það rætt að hefja gönguna í Keflavík við Gjögur fara á handvaði yfir lítt færar skriður, ganga svo Látra strönd, Kljáströnd og Svalbarðs strönd og síðan Vaðla til höfuð- staðar Norðurlands. B.B. KARTÖFLUVERÐIÐ VERÐ á kartöflum hefur þegar verið ákveðið. Heildsöluverð til kaupmanna á 1. flokks kartöflum í 50 kg. sekkjum er kr. 7,84 pr. kg. Smá söluverð í 5 kg. pokum er kr. 10,65 pr. kg. en í 2Vá kg. pokum kr. 10,80. Heildsöluverð á 2. fl. kartöfl- um í 50 kg. pokum er kr. 6.54 pr. kg. en smásöluverð kr. 9.16 í 5 kg pokum og kr. 9,30 í 2V2 kg. pokum. Halli á vöruskiptuimm í LOK síðasta mánaðar var vöruskiftajöfnuðurinn við út- lönd óhagstæður frá áramótum um nær 700 milljónir króna. Á sama tíma í fyrra var vöruskifta jöfnuðurinn óhagstæður um nær 600 milljónir króna.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.