Dagur - 14.10.1964, Blaðsíða 1
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 afgreiðsla)
Dagur
XLVII árg. — Akureyri, miðvikudaginn 14. október 1964 — 76. tbl.
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði
I gær var enn leitað að Sæfelli frá Flatevri
o •>
Á LAUGARDAGINN fórst vél-
báturinn Mummi ÍS 366. Hann
var þá í fiskiróðri og um 9 sjó
FLAGIÐ OG ÓFÆRU-
GJÁ ERU EFTIR
FYRIR nokkru lauk vinnu við
Múlaveg á þessu sumri, og hefur
miðað allvel. Enn er þó eftir 7—
800 metra kafli og fremur erf-
iður, því þar er Flagið, sem þó
er byrjað á, og Ofærugjá.
í Múlaveginum unnu í sumar
20 manns þegar flest var, þar
með taldar tvær ráðskonur.
Unnið var þá með 4 jarðýtum
allan sólarhringinn. En auk
jarðýtuvinnu og ræsagerðar
þurfti að vinna mjög að spreng
ingum. Eftir era að brúa Brim-
nesá, sem er Ólafsfjarðarmegin
og Torfdalsgil. Bækistöð vega-
vinnumanna í sumar var við
Sauðá, sem í sumar var brúuð.
Vonir standa til, að Múlaveg-
ur verði fær bifreiðum á næsta
sumri, ef fjárframlög verða næg
til að ljúka verkinu. □
mílur út af Barða er straum-
hnútur lenti á honum með þeim
afleiðingum að bátnum hvolfdi
og að þrem mínútum liðnum var
hann sokkinn. Slysið varð kl.
2.30 e.h.
Litlu eftir að báturinn sökk,
skaut kistu með gúmbjörgunar
bátnum upp. Tveir menn voru
þá enn ofansjávar og björguðust
þeir Hannes Oddsson og Olav
Oyhals, báðir frá Flateyri.
Mennirnir sem fórust voru
þessir: Marteinn Tausen, fær-
eyskur að ætt, Pálmi Guðmunds
son, Þórir Jónsson, allir búsett
ir á Flateyri og Hreinn Sigur-
vinsson, Sæbóli á Ingjaldssandi.
Mummi var 54 tonna eikar-
bátur.
SÆFELLS SAKNAÐ.
Sæfell SH 210 fór frá Akur-
eyri aðfaranótt sl. sunnudags og
hefur hans verið saknað síðan,
þrátt fyrir mikla leit á sjó og í
lofti. Á bátnum, sem er fimm
ára gamall eikarbátur, 74 tonn
að stærð eru þrír Flateyringar.
Hin nýja og glæsilega Járn- óg glervörudeild K.E.A.
(Ljósmynd: G. P. K.)
Ný Járn- og glervörudeild KEA
opnuð á Akureyri
llin breyttu húsakynni skapa betri þjónustu
Þetta er eins og guiiævinifri
Neskaupstað, 13. október. — Nú
munu síldarþrærnar hér á Aust
fjörðum langt til fullar, nema
á Vopnafirði, en væntanlega
fara skipin þangað með síld eft
ir morgundaginn, ef veiði verð
ur svipuð.
Hingað komu á 8. þúsund mál
í fyrradag, 6 þús. í gær og 7.
þúsund í dag. Aflinn hefur ver
ið nokkuð jafn undanfarna daga
Þokur eru tíðar á miðunum og
Rússnesku veiðiskipin torvelda
einnig veiðar.
Síldin er smá og ekki söltun
arhæf, einnig heldur fituminni
en áður.
Sldarbátarnir hafa fengið stór
þorsk og einnig ufsa með síld-
inni. Einn bátur kom t.d. með
10 tonn að þorski til viðbótar
góðum síldarafla. Sæfaxi er að
fara til Þýzkalands með þennan
þorsk.
Hinar miklu afskipanir og þar
afleiðandi mannekla gerðu það
að verkum, að minna var saltað
af síld, en efni stóðu til að öðru
leyti En við þurfum ekki að
kvarta því hér hefur verið eins
konar gullævintýri hinna miklu
síldveiða. Því miður snýst senni
lega of margt um blessaða síld
Siglufjarðarskarð
er nú fært aftur
BÚIÐ er að opna Siglufjarðar-
skarð og hefur umferðin þar
verið mjög mikil.
ina, því annað hefur nú reynst
varanlegra í landi voru en síld.
En hv^ð sem því líður hlítur
maður að grípa gæsina á með
an hún gefst. — H. Ó.
NÝLEGA er lokið all umfar.gs
miklum breytingum í Hafnar-
stræti 91, þar sem voru Vefnað
arvörudeild, Herradeild og Járn
og Glervörudeild KEA. Hús-
næði þetta hefir nú verið sam
einað og þar opnað í dag, þriðju
daginn 13. okt. Járn og Gler-
vörudeild KEA. Búsáhaldadeild
KEA, sem áður var í tengslum
við Véladeildina en skildi við
hana sl. áramót, hefir nú sam
einast Járn og Glervörudeild og
nýtur því sama húsnæðis. Hin
nýja sölubúð hefir því á boð-
stólum fjölbreytt úrval af margs
konar heimilistækjum, búsáhöld
um, Ijósaútbúnaði, glervöru, út-
varpstækjum, verkfærum, raf-
magnsáhöldum ýmiskonar, auk
þess varnings, sem fyrir var á
deildinni, svo sem barnaleik-
föng, sportvörur ýmiskonar,
málningarvörur, ljósmyndavör-
ur, skotfæri, pappírsvörur,
margskonar gjafavörur o.m.fl.
Mestum hluta söluvarningsins
er fyrirkomið í vörueyjum svo
að viðskiptavinirnir eiga mjög
hægt með að skoða flestar vör-
ur án beinnar aðsoðar afgreiðslu
fólks.
Teikningar af breytingunum
gerði Teiknistofa SÍS, en verk-
stjórn annaðist Stefán Halldórs
son, múrarameistari. Innrétting
ar voru smíðaðar á Húsgagna-
vinnustofu Ólafs Ágústssonar,
málningu annaðist Jón A. Jóns
son, málarameistari og raflagn
ir Raflagnadeild KEA.
Deildarstjórar Járn- og Gler
vörudeildar eru þeir Frímann
Guðmundsson og Jóhann Snorra
son.
(Fr éttatilky nning ).
Tangarsókn fengdamömmu
Fyrsta verkefni Leikfélags Akureyrar
f gær rak skepnu þessa á fjörur Oddeyrar, norðan við
Niðursuðuverksmiðju Kr. Jónssonar. Sjómenn nefna hana
risakolkrabha en kváðust raunar eklci hafa séð svo risavax-
inn kolkrabba öðru sinni. Krabbinn er um 5 metrar að lcngd,
að örmum mcðtöldum, en búkurinn er rúmlega 1 metri. —
(Ljósmynd: EL D.)
ÆFINGAR munu nú um það
bil hafnar hjá Leikfélagi Akur
eyrar á gamanleiknum Tangar
sókn tengdarmömmu, í þýðingu
Ragnars Jóhannessonar og und
ir leikstjórn Guðmundar Guð-
mundssonar.
Þetta er fyrsta verkefni LA
á leikári því, sem nú fer í hönd.
Leikendur eru níu talsins en
með aðalhlutverkið fer frú Sig
urveig Jónsdóttir.
Á nýafstöðnum aðalfundi LA
kom það m.a. fram, að fjárhagur
félagsins er góður. Munu bæjar
búar og aðrir leikhúsgestir ef-
laust njóta þess í vetur.
Stjórn Leikfélags Akureyrar
skipa: Jóhsmn Ogmundsson, for
maður, Björn Þórðarson, vara-
formaður, en meðstjórnendur
Jón Kristinsson og Kristján
Kristjánsson.
Fyrr í haust var haldinn aðal
fundur Bandalags ísl. leikfélaga
og varð þar stjómarbylting og
(Framhald á blaðsíðu 2).
LARUS RIST LATINN
LÁRUS RIST, hinn kunni
íþróttafrömuður og sundkappi,
er látinn.
Jarðaför hans verður gerð frá
Akureyrarkirkju á föstudaginn.
Blaðið mun síðar minnast
hins látna.