Dagur - 14.10.1964, Side 2

Dagur - 14.10.1964, Side 2
! (Framhald af blaðsíðu 8). stoð við sjávarútveginn — telur kjördæmisþingið, að þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra eigi að beita sér fyrir því á næsta Alþyngi, að fyrrnefndar sérbætur verði teknar upp á ný og muni þá hagkvæmast að miða við sumarveiddan fisk fyrst og fremst. Jafnframt telur kjördæmisþingið nauðsynlegt áð gera þeim fiskiðjuverum sem hafa úr litlu að spila, á ein- hvern hátt kleift að tileinka sér þær tækninýjungar og vinnu- hagræðingu, sem nú tíðkast í hinum stærri fiskiðjuverum syðra. Þar sem aflabrestur fyrir Norðurlandi- undanfarin ár, hef ir mjög lamað atvinnulíf í þorp um og kaupstöðum svo til al- gerrar uppgjafar horfir víða um þessi mál, skorar þingið á þing menn kjördæmisins að taka þessi mál til skjótrar úrlausnar og fylgja þeim fast eftir, enda hafi þeir samráð við forráða- menn viðkomandi staða og leiti leiða, sem að gagni mega koma nú þegar. Kjördæmisþingið telur nauð- synlegt að lögin um Aflatrygg- ingarsjóð sjávarútvegsins verði endurskoðuð svo fljótt sem verða má. 5. Kjördæmisþingið telur tímabært og leggur áherzlu á, að komið verði upp með lögum án tafar, sjálfstæðri og öflugri ríkisstofnun til að vinna að ráð stöfunum, sem stuðia að jafn- vægi í byggð landsins og gerir það að tillögu sinni, að jafnvæg is- eða landsbyggðarstofnun þessari verði fenginn til umráða ár hvert fastákveðinn hundraðs hluti af tekjum rikisins, og sé hundraðshluti þessi ákveðinn í lögunum. Kjördæmisþingið tel- ur það hlutverk slíkrar jafnvæg isstofnunar að fylgjast með þró un landsbyggðar og þróunar- horfum á hverjum tíma og gera sér í samráði við hlutaðeigandi byggðarlög grein fyrir, hvað því veldur á hverjum stað eða. landssvæði, að byggð dregst saman eða eflist ekki sem skyldi og að fólksfækkun, bein eða hlutfallsleg á sér stað, enda styðji hún með fjárframlögum eða á annan hátt þær fram- kvæmdir, sem líklegar eru til úrbóta. Kjördæmisþingið tekur það fram, að það ætlast til þess að fjárframlög frá jafnvægis- stofnuninni, lán eða óendur- kræft fe, komi til viðbótar þeim fjárframlögum, sem almennt er fáanleg til framkvæmda, sam- kvæmt núgildandi lögum og venjum. Það telur, að á vegum jafnvægisstofnunarinnar komi einkum til greina fjárframlög til eflingar atvinnuh'fi í hlutaðeig andi byggðarlögum eða lands- hlutum, svo og til að tryggja það, að ekki skorti fé til að koma upp íbúðum á þessum svæðum. Þá telur þingið það koma ti! greina, að stuðningur við einstaka landshluta eða byggðarlög verði í bví fólginn, að jafnvægis- eða landsbyggða- stofnunin leggi fram fé tíl sjálf- incsms stæðra jafnvægis- eða uppbygg ingasjóða, sem þar kunna að verða stofnaðir með fjárfram- lögum heima fyrir, enda starfi þeir í samráði við jafnvægis- stofnunina og í samræmi við til gang hennar og áætlanir. Sér- staklega leggur þingið áherzlu á, að jafnvægisstofnunin sé jafn an reiðubúin til að gera, ef með þarf, skyndiráðstafanir til bráða birgða til að koma í veg fyrir eyðingu byggðarlaga, ef í ljós kemur, að eyðingarhætta sé yf- irvofandi. Kjördæmisþingið á- telur tómlæti núverandi ríkis- stjórnar og þingmeirihluta í sam bandi við tillögur Framsóknar- manna í þessu máli. Það telur ríkisvaldinu skylt að gera sér grein fyrir þe'irri hættu sem yf ir þjcðinni vofir og sjálfstæði hennar, ef henni lánast ekki á komandi tímum að byggja land sitt eins og með þarf til þess að eignar- og umráðaréttur hennar á því verði áfram óvéfengjan- legúr. 6. Kjördæmisþingið ítrekar það álit síðasta kjördæmisþings, að leggja beri kapp á að ljúka rafvæðingu allra byggða lands ins fyrir lok ársins 1968, og öll um landsmönnum eigi að gefa kost á rafmagni með sama verði af ríkisins hálfu. 7. Kjördæmisþingað telur nauðsyn á því að gera stórátak í skólamálum dreifbýlisins með það fyrir augum, að unnt sé að fullnægja með eðlilegum hætti lögboðinni fræðsluskyldu og gera unglingum í sveitum og þorpum kleift að njóta fram- haldsmenntunar heima í héruð- um til jafns við það, sem bezt gerist í kaupstöðum. Sérstak- lega bendir þingið á, að nauð- synlegt er að fjölga héraðsskól um í Norðurlandskjördæmi eystra, þannig að komið verði á fót á næstu árum héraðsskól um í Eyjafjarðarsýslu og Norð ur-Þingeyjarsýslu. Einnig telur þingið nauðsyn bera til þess, að fræðslukerfið verði endurskoð að frá rótum og að sem fyrst verði gerð áætlun um framtíð arstaðsetningu hinna ýmsu sér skóla og annarra menningar- stofnana, sem ætla má, að þjóð- in þarfnist í framtíðinni. Tek- ur kjördæmisþingið undir þá stefnu, sem fram kemur í þings ályktunartillögu þingmanna Framsóknarflokksins í þessu kjördæmi, að Akureyri verði efld sem skólabær, og stefnt verði að því, að háskóli taki þar til starfa í framtíðinni. 8. Kjördæmisþingið telur það eitt meginhlutverk Fram- sóknarfélagsins í ísl, stjórnmál um að beita sér fyrir markvissri og skipulegri dreifingu byggðar innar um landið. Þingið tekur kröftuglega undir þá skoðun, sem fram hefur komið í seinni tíð, að líklegasta leiðin til að skapa í náinni framtíð raun- verulegt mótvægi Norðurlands gegn aðdráttarafli höfuðstaðar- ins sé atvinnuleg og menningar leg efling Akureyrar. Jafnframt lýsir þingið þeirri ákveðnu skoð un sinni, að margskonar iðíiað- ur hljóti í æ ríkari mæli að vera undirstaða vaxandi fólksfjölda og aukinnar atvinnu í bæjum og þorpum kjördæmisins. Skal sérstaklega bent á þá gífurlegu möguleika sem fólgnir eru t.d. í vinnslu sjávarafurða og sauð fjárafurða, skipasmíðum fyrir fiski- og kaupskipaflota, þar á meðal smíði stálskipa o.m.fl.“ Fyrsta verkefni L. A. (Framhald af blaðsíðu 1) nýkjörnir stjórnendur félagsins valdir norðan heiðar. Þessir skipa stjórnina: Jóh. Ogmunds- son, formaður Sigurður Hall- marsson, Húsavík, Kristján Sig- fússon, Ytra-Hóli, Steingrímur Þorsteinsson Dalvík og Þor- steinn Jónsson, Ólafsfirði. Gefjim sigraði í Firmakeppni Golfklúbbsins LAUGARDAGINN 9. þ.m. lauk Firmakeppni Golfklúbbs Akur- eyrar með sigri Ullarverksm. Gefjun, en fyrir hana keppti Hafliði Guðmimdss. — Til úr- slita kepptu Gefjun og Valprent hf., en fyrir hið síðameínda lék Svavar Ilaraldsson. — f undan úrslitum voru þessi fyrirtæki Rakarastofa Ingva, Halla og Valda, Valprent hf., Sjálfstæð- ishusið, Þvottaliúsið Mjöll, Bóka verzlunin Edda, Búnaðarbank- inn, Prentsm. Björns Jónssonar hf. og Gefjun. — Þessi fyrirtæki tóku þátt í Firmakeppninni að þessu sinni auk þeirra, sem áður er getið: Pétur & Valdimar, Samvinnu- Ekki í imdaiiíirslit CUÐMUNDUR Gíslason hefir nú lokið keppni á Olympíuleik- unum í Tokíó í 100 m skrið- sundi og 400 m fjórsundi. í hvor ugri greininni komst hann í undanúrslit. í 100 m skriðsundi synti hann á 59,0 sek og varð 57. af 65 kepp endum. Sigurvegarinn, sem er Bandaríkjamaður, synti á 53.4 sek. í 400 m fjórsundi synti Gúð mundur á 5.15.5 mín og er það bezti tími sem íslendingur hef ir náð í 50 m laug. ,Hann varð 22. í röðinni af 31 keppanda. Hrafnhildur Guðmundsdóttir hefir iokið keppni í 100 m skrið sundi, synti á 1.06.4 mín og hafn aði í 34. sæti 44 keppenda. tryggingar, Iðja hf., Kaldbaks- veg, Verkamaðurinn, Hljóðfæra verzlun Akureyrar, Hótel KEA, Rakarastofa Hafsteins, Hagi hf. Pvlsugerð KEA, Jakob Bjarna- son & Co., Ferðaskrifstofa Jóns Egils, Herradeild J.M.J, Heildv. Tómasar Steingrímss, Efnagerð Akureyrar, Útgerðarfélag KEA, Bifreiðast. Stefnir, Einir hf., Saumastofa Gefjunar, Ferða- skrifst. Saga„ Skinnaverksm. Iðunn, Brunabótafél. ísl., Út- gerðarfél. Akureyringa hf., Leð- urvörur hf., Bifreiðaverkst. Jóh. Kristj.s., Stjörnu apótek, Kaup fél. verkamanna, Olíusöludeild KEA, Verksm. Glitbrá, Flugfél. ísl., Norðurleiðir, Kaffibrennsla Ak., Gullsm. Sigtr. & Pétur, Bílasala Höskuldar, Brauðg. Kr. Jónss., Landsbanki ísl., Kristj- án Jónss. & Co., Ofnasmiðja Steindórs, Alþýðumaðurinn, Raflagnadeild KEA, Súkkulaði verksm Linda, Strætisv. Ak., Póstbáturinn Drangur, Morgun blaðið, Baugur hf. Þórshamar hf. Efnag. Flóra, Fatagerðin Burkni, íslendingur, Almennar tryggingar, Dagur, Kjötbúð KEA, Raforka hf., Fataverksm. ITekla, Smjörlíkisgerð KEA, Val björk hf., Blómabúð KEA, Tím inn, ÁTVR, Malar & steypst., Prentverk Odds Björnssonar hf. Borgarbíó, Prentsm. Björns Jónssonai' hf. og Rakarast. Sig- tryggs Júlíussonar. Golfklúbbur Ak. þakkar þess um fyrirtækjum stuðning þeirra við golfíþróttina, um leið og hann óskar Ullarverksm. Gefj OVENJULEGUK FALLÞUNGI Gunnarsstöðum, 13. okt. — Síð asta föstudag var lógað 8 vetra á, ásamt tveim lömbum sínum, eign bræðranna Árna og Þór- arins Kristjánsson í Holti. Þótti fallþungi fjárins óvenju mikill. Kjötið af ánni vóg 43.6 kg, gæra 7 kg, og mörinn 12 kg. Annar dilkurinn hafði 28,3 kg kjötþunga, 5 kg gæru og 2,1 kg mör, en hinn 24,8 kg kjöt, 5 kg gæru og 2,7 kg mör. Ærin sem hét Dúlla, gekk ásamt lömbum sínum á ræktuðu landi í sumar og auk þess fengu þau skammt af káli. Hér hefir gengið umgangs- veiki, hvotsótt, og hefur margt fólk veikst en ekki alvarlega. Ó.H. un til hamingju með sigurinn, og þá um leið Hafliða Guð- mundssyni, en svo skemmtilega vill til að þessu sinni, að Haf- liði er einmitt starfsmaður Gefj unar, og verður vart annað sagt en að hann vinni sínu fyr- irtæki vel. Skin cg skúrir ENGIN gengur óslitna sigur- göngu. Það á við um Keflvík- inga, íslandsmeistarana í knatt spyrnu. Þeir hafa leikið tvo leiki eftir „krýningu“ og tapað þeim báðum. Fyrst við B-lið KR og við Akurnesinga í „Litlu Bikarkeppninni" sl. sunnudag. BIKARKEPPNI K.S.I. TVEIR leikir fóru fram í Bikar keppninni um síðustu helgi, báð ir í Reykjavík. Fram vann Val 2:0 og KR-a vann KR-b 2:1. Þá eru aðeins tveir leikir eftir í keppninni, leikur milli Fram og Akraness og sá aðilinn sem sigr ar kemst í úrslitaleik við KR-a um Bikarmeistaratignina. BILASALA HÖSKULDAR OPEL CARAVAN 1954 í góðu lagi. Ódýr. BÍLASALA HÖSKULDAR Túngötu 2, sími 1909 VAUXHALL 5 manna vel með farinn og í góðu lagi er til sölu nú þegar. Semja ber við Rjarna Kristinsson, B.S.A.-verkstæði. TIL SÖLU. Chevrolet fólksbifreið, árg. 1946. Ógangfær. Uppl. í síma 1815. TIL SÖLU: Rifreiðin A—31 Renault Dauphine, árg. 1962, fimm manna. Ekin 12 þús. mílur. Kristján Stefánsson, Hríseyjargötu 10. Sími 1884. TIL SOLU: Chevrolet fólksbifreið, árgerð 1947. Mjög ódýr. Uppl. í síma 2624'. ’ TIL SÖLU: Opel Station-bifreið, árgerð 1963. Uppl. í síma 1478. TIL SÖLU: Willy’s jeppi, árg. 1946, með ágætu stálhúsi. Uppl. í síma 2743. TILKYNNING FRÁ SAMVINNUTRYGGINGUM Iðgjöld af brunatryggingum á innbúi og öðru lausa- fé, féllu í gjalddaga 1. október sl. Góðfiislega greiðið iðgjöldin á skrifstofu vorri hið allra fyrsta. VÁTRYGGINGADEILD K. E. A.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.