Dagur - 21.10.1964, Side 2
’ 2
Valbjörn varð 12. í lygþraufinni
Húðir og skinn hækka
Akranes vann Fram
NÆSTSÍÐASTI leikurinn í Bik
arkeppni K. S. í. fór fram í
Reykjavík sL sunnudag milli
Akranes og Fram og lauk með
sigri þess fyrrnefnda, sem skor
aði 2 mörk gegn engu. Eftir er
þá aðeins úrslitaleikurinn, milli
KR og Akranes og fer hann
fram um næstu helgi.
Á síðasta ári varð KR Bikar-
meistari.
BÆNDAGLÍMA G. A.
HIN árlega „Bændaglíma" Golf
klúbbs Akureyrar var háð á
golfvellinum sl. laugardag. Fyr
irliðar voru bræðurnir Viðar og
Björgvin Þorsteinssynir, yngstu
félagar Golfklúbbsins. Átta
menn voru í hvoru liði og sigr-
aði sveit Björgvins með 5 vinn
ingum gegn 3. Beztum árangri
einstaklinga náði Hafliði Guð-
mundsson ,spilaði fyrri hringinn
með 35 höggum en þann síðari
með 39. — Veður var gott til
keppni.
N Á M S K EIÐ
f KNATTSPYRNU
FYRIRHUGAÐ er að koma á
leiðbeinendanámskeiði í knatt-
spyrnu hér á Akureyri ef næg
þátttaka fæst. Mun það standa
n.k. laugardag og sunnudag. Er
öllum úr bæ og nágrenni heimil
þátttaka í námskeiðinu, en þátt
töku þer að tilkynna til Hreins
Oskarssonar Akureyri sími
2110, fyrir 22. þ.m.
Leiðbeinandi á þessu fyrirhug
aða námskeiði verður Karl Guð
mundsson knattspyrnuþjálfari
úr Reykjavík. Ætlunin var að
halda þetta námskeið á síðasta
vori, en vegna- veikinda Karls
komst það ekki á.
HAPPDRÆTTI Í.S.f.
Á SÍÐASTA þingi íþróttasam
bands íslands var samþykkt að
heimila framkvæmdastjórn ÍSÍ
að koma á landshappdrætti einu
sinni á ári til styrktar hinu fé-
lagslega starfi íþrótta- og ung-
mennafélaga í landinu. Er nú
happdrætti þetta að komast í
gang og mun sala miða hefjast
innan skamms. Góðir vinningar
verða í boði, þ.e. þrjár bifreiðar.
Hver miði verður seldur á kr.
50.00, en dregið verður á gaml-
ársdag. Ákveðið er að ágóði
happdrættisins renni beint til
sambandsfélaga ÍSÍ, en eins og
kunnugt er standa þau mörg
'í mjög fjárfreku starfi, en njóta
lítils styrks frá hinu opinbera.
Er þessi tilraun ÍSÍ, til að bæta
hag aðila sinna mjög þakkar-
verð. Er þess að vænta að unn-
endur æskulýðs og íþróttamála
í landinu komi til móts við sam
tökin og styðji þau í verki með
því að koupa miða.
í GÆR lauk tugþrautarkeppn-
inni á Olympíuleikunum í
Tokýó. Meðal keppenda var Val
björn Þorláksson. Hafnaði hann
í 12. sæti, hlaut 7135 stig, en
sigurvegarinn W. Holdorf frá
Þýzkalandi fékk 7888 stig. Alls
voru keppendur 21 í tugþraut
inni. Árangur Valbjarnar er all
sæmilegur, en þess er að geta
að stigin eru reiknuð út eftir
nýrri stigatöflu.
Undanrásir í hástökki karla
fóru einnig fram í gær og þurftu
keppendur að stökkva 2.06 m
PRÓFESSOR Gerhard Puchelt
píanóleíkari kemur til Akureyr-
ar á vegum Tónlistarfélagsins
og leikur fyrir styrktarfélaga
og gesti í Borgarbíó laugardag-
inn 7. nóv. klukkan 5 s.d. Próf
essor Puchelt leikur verk eftir
Joseph Haydn, Robert Schu-
Góður afli á Grenivík
Lómatjörn 13. október. — Mjög
hefur skift til hins betra um
fiskaflann frá því sem var í sum
ar og aflast nú vel, mest ýsa.
Þeim áfanga hafnargerðarinn
ar, sem unnið hefur verið við í
sumar, er nú að ljúka. Um dag-
inn gerði hér foráttubrim. En
ekkert haggaðist af hinum nýju
mannvirkjum og bátarnir höfðu
ágætt skjól.
Leitað að neyzluvatni
(Framhald af blaðsíðu 1).
51160 mörk. Ennþá eru fjögur
skip héðan á síldveiðum fyrir
austan: Björgvin, Loftur Bald-
vinsson, Hannes Hafstein og
Bjarmi 2. Heima róa nokkrir
þilfarsbátar og trillur. Gæftir
hafa verið góðar en afli heldur
tregur.
Sauðfjárslátrun lauk 16. þ.m.
Lógað var 8083 kindum, þar af
komu til innleggs 7761 skrokkur
Meðalvikt dilka (án nýrnamörs)
varð 12,93 kg. Þyngsta dilkinn
átti Einar Jóhannsson Ytra-
Iválfskinni og vóg hann 25 kg.
Stórgripaslátrun stendur yfir en
lýkur á morgun og er um 100
stórgripum lógað. S.H.
Allt upp í 100 lömb á
bæ sett á í vetur
Gunnarsstöðum 20. október —
Lokið er slátrun. Meðalvigt
dilka var 14,66 kg á móti 14,87 í
fyrra. Lógað var 12327 kinaum
og síðan 24 nautgripum.
Margir bændur láta mörg
lömb lifa að þessu sinni, allt upp
í 80—100 í bæ og vitnar það um
aukna bjartsýni og mikinn hey-
feng eftir sumarið. Ó. H.
til að komast í aðalkeppnina.
Jón Þ. Ólafsson hefir ekki ver-
ið í sínu bezta formi, því hann
stökk aðeins 2 metra og féll þar
með úr keppninni.
íslenzku keppendurnir hafa
þá lokið sér af á þessum Olym-
píuleikum, og hafa ekki orðið
sigursælir, frekar en almer.nt
var búist við fyrirfram. En ekki
þýðir að gráta það. Keppendur
okkar hafa eflaust gert sitt bezta
og orðið landi sínu til sóma með
góðri framkomu.
mann, Boris Blacher og Franz
Schubert.
Prófessorinn er vestur-Þýzk
ur, þekktur píanóleikari og áð
ur en hann kemur hingað mun
hann leika með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Héðan fer hann til
New York þar sem hann mun
hefja koncertför um Bandaríkin
og leika í helstu borgum þar.
Tónlistarfélagið getur bætt
við styrktarfélögum og þeir sem
hafa hug á því ættu að snúa sér
sem fyrst til Haraldar Sigur-
geirssonar, Haralds Sigurðsson
ar í Utvegsbankanum eða Stef
áns Ág. Kristjánssonar.
F oring janámskeið
FORINGJANÁMSKEIÐ Æsku-
lýðssambands kirkjunnar í Hóla
stifti verður 22.—25. þ.m. í Sum
arbúðunum við Vestmannsvatn.
Námskeiðið sækja nýkjörnir for
ingjar félaganna, tveir frá
hverju á þessu svæði, þar af
6 frá Akureyri. Námskeiðinu
stjórnar séra Sigurður Guð-
mundur prófastur á Grenjaðar
stað. En hinn nýkjörni æsku'ýðs
fulltrúi þjóðkirkjunnar, séra
Hjalti Guðmundsson,, mun
koma norður og flytja erindi á
námskeiðinu og heimsækja fé-
lögin eftir því sem tími vinnst
til. Námskeiðinu líkur með guðs
þjónustu í Grenjaðarstaða-
kirkju.
Verð á sumum tegundum húða
og skinna hefir hækkað allmik-
ið að undanförnu. Kaupfélag Ey
firðinga hefir því hækkað út-
borgunarverð á þessum afurð-
um frá 1. nóv. næstk., og er
hækkunin mest á tryppahúðum,
úr kr. 6.30 pr. kg. í kr. 21.60.
Smáhúðir hækka úr kr. 14.00
pr. kg. í kr. 21.60 og kálfsskinn
I. fl. úr kr. 60.00 pr. stk. í kr.
70.00, II. fl. úr kr. 35.00 í kr.
55.00 og III. fl. úr kr. 20.00 í kr.
35.00. Aðrar tegundir hækka
einnig, þótt það sé yfirleitt
minna. Útborgunarverð KEA
NÆST komandi laugardag, 1.
vetrardag, munu börn berja að
dyrum ykkar og bjóða ykkur
merki og bókina Sólhvörf. Þau
koma á vegum Barnaverndarfé-
lags Akureyrar og leita eftir
stuðningi ykkar við starfsemi
þá, sem félagið hefir með hönd-
um. Þetta hafa þau að sönnu
gert oft fyrr, og vegna þess hve
vel þið tókuð þeim var hægt að
ráðast í byggingu leikskólans
Iðavallar, og með stuðningi ykk
ar hefir hann verið starfræktur
um árabil. Um gildi hans geta
þeir glöggt borið vitni, sem trú
að hafa honum fyrir börnum
sínum hluta úr degi, ár eftir ár.
Enn hyggst Barnaverndarfé-
lag Akureyrar starfrækja skól-
ann, hefir fengið til hans ágætt
starfslið, áformar allverulegar
umbætur á húsakynnum og leik
tækjum og hefir byrjað á þeirri
nýjung að hafa föndurnámskeið
fyrir börn, sem ekki eru skóla-
skyld, — allt í trausti þess að
það njóti hins sanna skilnings og
velvildar hjá ykkur.
Mörg verkefni blasa við
Barnaverndarfélögunum. í
Reykjavík er unnið að bygg-
ingu heimilis fyrir taugaveikluð
börn og hafa borizt í byggingar
sjóð mjög stórar peningaupp-
hæðir, og veglegar gjafir aðrar,
eins og málverkagjöf frú Sól-
veigar Eggerz. Hér á Akureyri
hefir verið talað um upptöku-
heimili fyrir börn, sem næsta
verkefni Barnaverndarfélags Ak
ureyrar, en á slíkri stofnun er
brýn þörf.
Til þess að gera vonir að
veruleika hafa Barnaverndarfé
lögin valið 1. vetradag til fjár-
Ók ölvaður og próflaus
AÐFARANÓTT sl. laugardags
veitti lögreglan á Akureyri því
eftirtekt að bifreiðastjóri sem
sviptur hafði verið ökuréttind-
um, ók bifreið í bænum. Stöðv-
aði lögreglan ökumanninn og
kom þá í Ijcs að hann var undir
áhrifum áfengis og er því brot
hans mjög alvarlegt.
Að undanförnu hefir verið
mikið um ölvun í bænum og
ýmis vandræði skapast af þeim
sökum.
Nokkrir bifreiðaárekstrar
hafa orðið, en flestir smávægi-
legir.
verður frá 1. nóv. næstk. sem
hér segir: Kálfskinn I. fl. kr.
70.00 pr. stk., II. fl. kr. 55.00,
III. fl. kr. 35.00 Smáhúðir I fl.
kr. 21.60 pr. kg., II. fl kr. 17.20
og III. fl. kr. 10.80. Kýrhúðir L
fl. kr. 13.60 pr. kg., II. fl. kr.
10.80 og III. fl. kr 6.80. Tryppa-
húðir I. fl. kr. 21.60 pr. kg., II.
fl. kr. 17.20 og III. fl. kr. 10.80.
Hrosshúðir I. fl. kr. 10.40 pr. kg.,
II. fl. kr. 8.30 og III. fl. kr. 5.20.
Uppbætur verða svo að sjálf-
sögðu greiddar, þegar séð verð-
ur, hvað endanlega fæst fyrir
þessar afurðir. Q
öflunar. í 14. sinn mun barna-
bókin Sólhvörf seld og sem fyrr
hafa allir þeir, sem safnað hafa
og lagt til efni í hana gert þa5
endurgjaldslaust. Það er von
útgefanda að börn víðsvegar um
land finni í bókinni skemmtilegt
og gott lestrarefni.
Barnaverndarfélag Akureyr-
ar vill hvetja alla foreldra til
þess að kaupa bókina Sólhvörf
og treystir því, að bæjarbúar
taki vel litlu gestunum á laug-
ardaginn kemur. Allan stuðning
við félagið fyrr og síðar þakkar
það af alhug.
Stjóm Barnavemarfélags
Akureyrar.
TAPAÐ
IvVEN ARMB ANDSÚR
hefur tapazt.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 2148.
VARADEKK
af jeppa tapaðist sl. föstu-
dag á Akureyri eða ná-
grenni. Finnandi láti vita
í Brúarland, sími 02.
TIL SÖLU:
Volkswagen sendiferða-
bifreið, árgei'ð 1954.
Upplýsingar gefur
Jón Hólmgeirsson,
Strandgötu 35,
eftir kl. 7 á kvöldin.
TIL SÖLU:
Willy’s jeppi, árg. 1946.
Uppl. í síma 2649
rnilli kl. 5 og 7 e. h.
Úrvalsfallegur og vel með
farinn OPEL RECORD,
árg. 1964, er til sölu.
Skipti möguleg.
Uppl. í síma 1725
og 1786.
Góður VOLKSWAGEN,
árg. 1961 eða 1962
óskast til kaups.
Staðgreiðsla.
Uppl. í síma 2498
og 1196.
Frá Tónlistarfélsgi Akureyrar
Góðir Akureyringar!