Dagur - 09.12.1964, Blaðsíða 1
Síldveiðiflotinn er nú að veiðum þar eystra
ENN er mikil síld austan við
land á svipuðum slóðum og í
vetur, 65 til 80 mílur út, á
nokkru svæði. — Þar eru
rússnesku skipin enn að veið-
um í hundraða tali og þar hafa
íslenzkir síldarbátar fengið
ágæta veiði þegar viðrar til
veiða. Og þangað hafa allmarg-
ir bátar farið, sem að undan-
förnum árum hafa lítið aflað af
síldinni fyrir vestan land og
sunnan.
Gjaldeyris- og bók-
haldssvik upp á
32 millj. kr.?
SAKSÓKNARI ríkisins hef-
ur höfðað mál á hendur
tveim mönnum syðra fyrir
margháttuð viðskiptasvik,
bæði gjaldeyris- og bókhalds
svik, er nema um 32 millj. ís-
lenzkra króna. Þeir, sem til
saka eru sóttir eru Harald
Faaberg skipamiðlari og Ósk
ar Aðalsteinn Gíslason skrif-
stofustjóri. Hér er um stór-
kostleg fjársvikamál að
ræða, framin á árunum 1955
til 1960.
Verður naumast annað
sagt, en að sunnanmenn séu
að verða allstórir í sniðum í
hinum vafasamari viðskipt-
um. □
FLUGHALKA A
FJARÐARHEIÐI
Seyðisfirði 7. desember. Mikil
síld virðist nú vera hér úti fyr-
ir, og í athugun er, að síldar-
verksmiðjan taki til starfa á ný.
Skálaborg er á leið til Þýzka-
lands, í söluferð, með um 30
tonn af fiski.
Veður hefur . verið fremur
óstöðugt að undanförnu. Snjó-
létt er en flughálka á akvegum.
Fjarðarheiði er erfið yfirferðar.
Rjúpnaveiði er ágæt þegar
veður hamlar ekki.
í verzlunum bæjarins má sjá
að jólin eru skammt undan. Þ.J.
AÐVORUN
EINS og kunnugt er, eru heima
tilbúnar sprengjur stórhættu-
legar og hafa oft valdið slysum.
Lögreglan á Akureyri vill
því að gefnu tilefni minna for-
eldra, og aðra er hlut eiga að
máli, alvarlega á, að gæta þess
vel að börn og unglingar kom-
ist ekki yfir nein þau efni, sem
nptuð eru til sprengjufram-
leiðslu. □
Síld sú, sem veiðist fyrir
austan land er hrognfyllt vor-
gotssíld, svipuð að stærð og sú
síld, sem veiðst. hefur á
flóasvæðinu.
ENN ER SÍLD FYRIR
AUSTAN
Neskaupstað 7. desember. Hing-
að hafa borizt um 18 þúsund
mál síldar, það sem af er mán-
uðinum. Nokkuð er fryst af
síldinni en megnið fer
bræðslu. Síldarbátarnir eru úti
en veiðiveður ekki gott.
Vattarnes, 160 tonna bátur
frá Eskifirði, hefir nýlega verið
keyptur hingað og heitir
Björg.
Leikflokkur frá Höfn í Horria
firði sýndi hér sjónleikinn Þrír
skálkár um síðustu helgi og Fá-
skrúðsfirðingar sýndu Logann
helga. Sýningarnar þóttu tak-
ast'vel. H. Ó.
nu Fyrstu viðskiptavinirnir nota hverfxstigann í KKA.
Umfangsmiklum
I
ENN ER SALTAÐ Á
REYÐARFIRÐI
Reyðarfirði 7. desember. Hér er
bezta veður í dag og sól skín á
fjallatoppa, en úr kauptúninu
sér ekki til sólar frá 3. nóv. til
10. febrúar.
Allir vegir eru færir en vara
samir vegna hálku. Oddsskarð
var opnað í morgun.
Snæfugl kom hingað í fyrra-
dag með 350 tunnur síldar í
salt og aftur í gær með 1600
tunnur, þar af voru saltaðar um
700 tunnur. Það er yfirbyggð
söltunarstöð, Katrín, sem tekur
á móti síldinni og saltar fyrir
Rúmeníumarkað. M. S.
Ný herradeild opnuð og hverfistiginn notaður
f DAG, þriðjudaginn 8. desem-
ber, má telja að lokið sé um-
fangsmiklum breytingum á
verzlunum Kaupfélags Eyfirð-
inga í Hafnarstræti 91 og 93, þá
opnaði Herradeildin á fyrstu
hæð í Hafnarstræti 93 og Vefn-
aðarvörudeildin tók alla aðra
hæð hússins fyrir sínar vörur.
Auk þess er teppasala í kjallara
hússins, svo að verzlað er nú á
þrem hæðum þess í björtum og
rúmgóðum húsakynnum. Verzl-
unarplássið í kjallara er um
80 fermetrar á fyrstu hæð um
250 og á annari hæð um 270
fermetrar. Flest öllum varningi
er komið fyrir á lausum borð-
um og „eyjum,“ þannig að við-
skiptavinirnir eiga mjög auð-
velt með að skoða hann.
Teikningar af breytingunum
annaðist Teiknistofa SÍS, en
verkstjórn Stefán Halldórsson
byggingameistari. Sameinuðu-
verkstæðin Marz og Vélsmiðjan
Oddi h.f. sáu um hitalagnir, en
Raflagnadeild KEA um raf-
lagnir. Jón A. Jónsson málara-
meistari og menn hans önnuð-
ust málningu, en Húsgagna-
vinnustofa Ólafs Ágústssonar
sá um smíði og uppsetningu
verzlunarinnréttingar.
Til algerar nýjungar í útbún
aði verzlunar hér í bæ er hinn
svonefndi hverfistigi, sem er
hinn fyrsti, sem settur er upp
hér á landi, utan Reykjavíkur.
Stiginn er smíðaður hjá OTIS
Elevacor Company í Þýzkalandi
sem er eitt elzta og reyndasta
fyrirtæki heims í smíði hverfi-
stiga og lyftna. Stiginn er af
sömu gerð og er í mörgum
stærstu verzlunarhúsum megin-
landsins. Hann er með full-
komnum öryggisbúnaði svo að
(Ljósmynd: G. P. K.)
í verzlun-
er nú lokið
engin slysahætta er talin stafa
af honum. Uppsetningu stigans
annaðist Mr. W. J. Davis frá
OTIS-fyrirtækinu í Englandi,
en hann hefir farið víða um
heim í slíkum erindum.
Hverfistiginn flytur viðskipta
vinina úr Herradeildinni upp í
Vefnaðarvörudeildina og er
(Framhald á blaðsíðu 4).
Hraðírystihúsi á Skaga-
strönd lokað
í fyrradag lokaði verkalýðsfé-
lagið á Skagaströnd Hraðfrysti
húsinu Hólanesi hf. þar á staðn
um vegna vanrækslu á kaup-
greiðslu síðustu vikur.
PÁLL Z0PH0NIASS0N
verður jarðsunginn í dag
í DAG fer fram útför Páls
Zophoníassonar fyrrum búnað-
armálastjóra og alþingismanns.
Hans verður síðar getið hér í
blaðinu. □
NORRÆNA SKÍÐAGANGAN hófst í Hlíðarfjalli á sunnudaginn
og sjást hér fyrstu þátttakendumir leggja af stað. (Ljósm.: F. G.)
Á NÝLEGA afstöðnum fundi
Landssambands íslenzkra út-
vegsmanna upplýsti sjávarút-
vegsmálaráðherra að gera ætti
tilraun með gömlu togarana til
síldveiða.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt
að ríkissjóður greiði tilrauna-
kostnaðinn. En talið er, að það
sé einkum stýrisútbúnaður tog-
aranna, sem breyta þurfi á þá
leið að skipin nái krappari
hring og geti kastað nótinni frá
Togarar þeir, sem hér um
ræðir, eru einkum nýsköpunar-
togararnir, sem nú eru vand-
ræðaskip í útgerðinni og sumir
raunar þegar seldir úr landi
fyrir rúmlega brotajárnsverð.
En talið er, að 25 togarar gætu
á þennan hátt skipt um hlut-
verk og munar um minna í síld-
arflotanum — ef tilraunin
heppnast Q