Dagur - 09.12.1964, Page 8
8
■>-*
VETKAKMXND frá Akureyri.
(L.jósmynd: K. D.)
SMÁTT OG STÓRT
Ný rannsóknarstofa - Kvikmyiid - Davíðshús
ENN sýndu eyfirzkir bændur áhuga á málefnum stéttar sinnar
s. 1. mánudag og fylltu Hótel KEA svo út úr dyrum, að tvisvar
þurfti að setjast til borðs og tvisvar þurfti að sýna hina nýju
kvikmynd um íslenzkan landbúnað, sem þar var sýnd.
Margir hefðu nú hug á, að allt
yrði varðveitt á heimili skálds-
ins, eins og hann gekk þar frá.
Myndu þeir sennilega leita til
þjóðarinnar allrar um fjárfram-
lög til að takast mætti að koma
(Framhald á blaðsíðu 5).
„MANNAÞEFUR í HELLI
MÍNUM“
Ef einhverjir Alþýðubanda-
lagsmenn hafa gert sér vonir
um, að Stalinistar, Mao-menn
og harðsoðnir Moskvudýrkend-
ur, eða hvað þeir nú heita allir
saman, yrðu knésettir á þingi
Sósíalistaflokksins, hafa þeir
hinir sömu nú orðið fyrir von-
brigðum. Brynjólfur Bjarnason,
Einar Olgeirsson og slíkir, urðu
sem sé ofan á þingi þessu og
vörpuðu þeim upphlaupsmönn-
um út úr flokksstjórninni, sem
þangað komust á næsta þingi á
undan að þeirra óvilja. Gömlu
tröllin, sem trúa á austrið og
lieimsbyltinguna, vilja engan
mannaþef í helli sínum.
HVAR ER NÚ FUGLINN
FÖNIX?
í haust fóru af því miklar
sögur og komust jafnvel inn í
ríkisútvarpið, að Bjöm Jónsson
og fleiri væru að vinna að því
hér fyrir norðan, að gera Al-
þýðubandalagið að sjálfstæðum
vinstri flokki og sækja til þess
efnivið í Sósíalistaflokk Brynj-
Bændaklúbburinn eyfirzki
hafði boðað til fundar á mánu-
daginn og sýndi þar hina nýju
'landbúnaðarkvikmynd, Bú er
landstólpi, sem Búnaðarfélag
íslands og fleiri létu taka hér á
landi í fyrrasumar. Kvikmynd
þessi hefur ekki áður verið
sýnd á Norðurlandi Að þessu
sinni voru það ekki aðeins
bændur héraðsins sem fjöl-
menntu, heldur einnig hús-
freyjur og var það ánægjulegt.
Og þótt búist væri við góðri
þátttöku, varð hún svo mikil,
að aðalsalur Hótel KEA rúmaði
ekki fundargesti. Fyrir auglýst-
an fundartíma, eða kl. 9 var
hvert sæti skipað í salnum og
streymdi þá fólkið að hvaðan-
æfa úr héraðinu. Fundarsalur-
inn er vinkillaga og gátu því
ekki allir horft á kvikmyndina
er í salnum voru. Var hún því
sýnd á ný í fremri álmu salar-
RENNDI SER A BIL
ins. Og tvisvar varð að setjast
til borðs. Slíkt fjölmenni er
sjaldgæft, ' en bændaklúbbs-
fúndirnir eyfirzku hafa þó löng-
um haft'sérstöðu í þessu efni.
Skólameistari kvaddi sér hljóðs.
Eftir kvikmyndasýninguna
kvaddi Þórarinn Björnsson sér
hljóðs utan dagskrár. Oskaði
hann eyfirzkUm bændum til
hamingju með áhugann á fé-
lagsstörfum, sem þessi sam-
koma og annað bæri vott. Sjálf-
ur vséri hann af bændum kom-
ínn svo langt sem hann rekja
kynni og væri stoltur af því að
verá bóndasonur. Síðan vék
hann máli sínu að húsi Davíðs
skálds Stefáhssonar frá Fagra-
skógi,'serh hann vonaði að bær
háns', 'hérað hans og landið allt
vildu varðveita til minningar
um hanh. Nú h’éfði bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar keypt
bókasafn hans og erfingar gefið
bænum. húsnjuni skáldsins, eins
■ og haþn .gekk. þar síðast frá.
Hernaðarmannvirki í Hvatfirði
Ríkisstjórnin hefur nú opinberlega játað það
í FRÉTTATILKYNNINGU frá
utanríkisráðuneytinu segir svo:
„Eins og áður hefur verið
skýrt frá opinberlega féllst rík-
isstjórnin á sínpm tíma á að
fram færi athugun á byggingu
olíugeyma í Hvalfirði ásamt
kryggju vegna afnota geym-
anna og aðstöðu fyrir legufæri
skipa samkvæmt framkvæmda-
áætlun Atlantshafsbandalagsins
I framhaldi af þessari athugun
hefur ríkisstjórnin nú leyft of-
angreindar framkvæmdir.
Verða byggðir í Hvalfirði fimm
nýir geymar, fjórir fyrjr odíu ,
og einn fyrir vatn, ank af-
greiðslubryggju og legufæra. -
Hinir nýju geymar eru nauð-
synleg endurnýjun á gömlum
geymum, sem fyrir eru í Hval-
firði og verður öll notkun
þeirra og mannvirkjanna háð
samkomulagi við ríkisstjórn ís-
lands. Skipaferðir um Hval-
fjörð breytast ekkert frá því,
sem verið hefur í sambandi við
hin nýju mannvirki og tilgang
ur stöðvarinnar þar verður sá
einn að geyma varabirgðir og
légufæri, sem nota má ef til
ófriðar kemur eða dregur. Um
mannvirkin og framkvæmdirnar
í Hvalfirði gilda ákvæði varnar
samningsins frá 8. maí 1951.“
Svo mörg eru þau orð, og
ataðfestu það, sem áður var
' "■ \
vitað um landsölur til hernað-
árþurfa í Hvalfirði.
Fyrst varð þetta opinbert í
ágúst í fyrra. Þá mótmæltu
Framsóknarmenn því kröftug-
lega við utanríkisráðherran. En
í þeim viðræðum viðurkenndi
ráðherrann eftirfarandi:
ólfs og Einars. Látið var í veðri
vaka, að á flokksþinginu myndi
draga til mikilla tíðinda. Þar
skyldu þeir eldar tendraðir, er
eytt gæti vé Moskvumanna og
steypt skurðgoðum af stalli.
Upp úr öskunni átti svo Alþýðu
bandalagið að rísa, endurborið
eins og fuglinn Fönix. En hljótt
er nú um fugl þann.
ÞANGAÐ FÝSIR FÁA NÚ
Draumamenn Alþýðubanda-
lagsins liafa rétt fyrir sér að
því leyti, að flokkur — eða
bandalag — sem lýtur forystu
Moskvumanna, eða annarri for-
ystu, hefur enga vaxtarmögu-
leika hér á landi á komandi tím
um. Sovétríkin eru ekki nein
ófreskja í augum íslendinga, en
íslenzkur flokkur „fjarstýrður“
þaðan, er í augum almennings
eitthvað í ætt við gömlu Grýlu
með finnntán hala og hundrað
belgi á liverjum hala. Það er
sýnilega dálítið erfitt að kom-
ast upp úr grýlubelg þeim, sem
verið var að steypa yfir höfuð
sumra manna í sumar og haust
og töldu sig vera að ganga í
sjálfstæðan vinstri flokk, lausan
við austræn áhrif. Þangað fýsir
fáa nú.
GRÝLA TEKUR ÓÞEKK OG
HEIMSK BÖRN
En menn eru ekki alltaf við-
búnir að sjá við brellum þeirra,
sem eru að safna í belginn sinn.
Hér fyrir norðan var því haldið
fast að mönnum, að með því að
styðja ný Alþýðuhandalagsfé-
lög með beinni þátttöku væri
algjör „hreinsun“ á næsta leiti.
Eftir það yrði hinn nýi flokkur,
þ. e. Alþýðubahdalagið umskap
að, ekki lengur orðaður við
Grílu að austan. Þéssu trúðu
margir og urðú harla glaðir. En
vonbrigði þessara manna nú,
þegar öll hjörðin kaus sér að
foringjum hin gömlu goð, urðu
mikil. En þeir yerða samt að
viðurkenna, að gömlu Moskvu-
kommúnistamir. eru sniðugir
að veiða í belg sinn, ekki síður
en Grýla gamla. □
UM kl. 6 s. 1. sunnudag varð
umferðarslys utarlega á Byggða
vegi hér í bæ. Fimm ára dreng-
ur var að renna sér á pappa- ,,
spjaldi í bröttum stíg, sem ligg-
ur milli Ásvegar og Byggða-
vegar. Var þar flughálka, og í
eitt skiptið þegar drengurinn
fór á fleygiferð niður stíginn
lenti hann aftan til á bifreið,
sem fór niður götuna. Hlaut
drengunrinn meiðsli og mun '
hafa fengið snert af heilahrist-
ing. Hann var fluttur í sjúkra-
hús og var þar enn í gær.
Það er algeng sjón að sjá
börn fara ógætilega á sleðum .
og öðru slíku yfir fjölfarnar
götur, og má áreiðanlega oft á
tíðum teljast hrein tilviljun að
tekizt hefir að forða sorglegum
slysum. Ættu foreldrar að
hvetja börn sín til meiri var-
færni í umferðinni, en þaú sýna
yfirleitt. □
KARLAKÓR AKUREYRAR
hefur æft ötullega síðan um
inlðjan'‘októbér og hefur nú
undirbúið samsöng. Verður
•sungið í Samkomuhúsi bæjar-
ins, á: fimmtudag 10 og föstudag
.flúþ. ' m. ;k,l. 8,30 hvort kvöld.
Þar er styrktarfélögum og gest-
um æt!að að vera en þó eitt-
hva'ð selt úf aagöngumioum við
innganginnö Síðán verður sung-
ið í Akureyrarkirkju fyrir al-
jnanhing á. súnnudag kl. 5 e. h.
en þá'TítiÍIega breytt söngskrá.
Lueiu-hátíðin, síðasti hluti sam-
söngsins er hér áður þekkt og
vinsæl, en dagur heilagrar
Luciu (hér nefnd Glódís hin
góða er einmitt 13. desember
(sunnudag).
Söngstjóri Karlakórs Akur-
eyrar er Áskell Jónsson. Undir-
leikari er Guðmundur Jóhanns-
son.
í gervi heilagrar Luciu ,er frú
Halla Árnadcttir, er jafnframt
syr.gur einsöng, Maríuvers eft-
ir Áskel Jónsson. Aðrir ein-
söngvarar með kórnum eru
Eiríkur Stefánsson, Jóhann Dan
íelsson og Jóhann Konráðsson.
Kórmenn eru nálægt 40 talsins
og með Luciu eru átta fylgdar-
meyjar. — Söngskráin er bæði
fjö:breytt og mikil.
Þá syngur þarna nýr kvartett
líka, þó aðeins 2—3 lög að þessu
sinni. Hér eru kórmenn á ferð-
inni, sem á þessu hausti byrj-
uðu að æfa saman við undirleik
og leiðsögn Guðmundar Jó-
hannssonar.
Karlakór Akureyrar er 35
ára á þessum vetri. □
1. Stóra olíubirgðastöð og hef
ur verið ráðgert að byggðir
verði hið fyrsta 25—28 geimar.
2. Hafskipabryggju eða
bryggjur, þar sem stór skip
geti bæði landað olíu og tekið
olíu.
3. Legufæri, sem verði steypt
í- botn fjarðarins, en Nato mun
ekki fá að nota nema með sér-
1 (Framhald á blaðsíðu 4).
ísienzkir báfar
BÁTARNIR Jörundur II. og
Jörundur III. eru farnir áleiðis
til Noregs. Þar verða þeir gerð-
ir út á síld og aflinn lagður upp
í Kristiansand og Egersund,.en
veiðarnar eiga að fara fram í
Skagerak. Bátarnir nota sömu
nætur og hér heima. Það er
væn millisíld, sem veiðist og út-
HÁTT FISKVERÐ
ENN helzt ágætt verð á fiski í
Bretlandi. Tveir togarar ÚA
seldu í Grimsby í vikunni. —
Slétíbakur soldi á mánudag 127
tonn fyrir 12.499 pund og Harð-
bakur í gær 124 tonn fyrir
11.949 pund. Er þetta hátt á 12.
krónu fyrir hvert kíló.
Svalbakur er nýkominn úr
siglingu og fer á veiðar í dag. □
eiða við Noreg
gerðin fær 40—50% meira fyrir
hverja tunnu síldar, en hér á
landi er greitt. Hlutaskipti eru
hin sömu.. Eigandi bátanna,
Guðmundur Jörundsson, mun á
förum til Noregs til þess að ann-
ast ýmis konar viðskipti vegna
útgerðarinnar, sem vissulega er
athyglisverð. Q