Dagur - 06.01.1965, Síða 1
Dagur
Símar:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
f— ' ' ".....—..... S
|
Ný framlialdssaga
EIRÍKUR HAMAR
hefst í þessu blaði.
Fylgizt með frá byrjun.
é ...... -v
Norðurlandsborinn að Glerárgili
í FYRRADAG mætti vinnu-
flokkur sá til starfa, er vinnur
að jarðhitaleit með Norður-
landsbornum fyrir Akureyrar-
kaupstað.
í gaer voru svo framkvæmd-
ar hitaránnsóknir á Laugalandi
í hinni velheppnuðu borholu.
Skera þær rannsóknir úr um
það hvort borað verður dýpra
á þeim stað. Borhola sú er 810
metrar og þar streyma 12—13
lítrar á sekúndu af hinu heita
vatni.
En næsta borun verður gerð
á laugasvæðinu við Glerá. Þang
að er búið að leggja akveg, en
undirstöðu borsins á eftir að
steypa, og það verður gert strax
og veður leyfir, að því bæjar-
verkfræðingur tjáði blaðinu.
^ •
Fjórir Brelar fluttir í fangahúsið
Voru færðir þangað eftir slagsmál á dansleik
ÞAÐ bar við á dansleik í Sjálf
stæðishúsinu á Akureyri síðast
liðið laugardagskvöld, að sex
enskir togarasjómenn frá Grims
by af togaranum Lord Fraser
sóttu dansleikinn. Lentu þeir
brátt í illdeilum sín í milli og
hófu slagsmál.
„FÍSKUR Á
HVERJUM ÖNGLI“
ÞAÐ ER haft eftir starfs-
manni á skrifstofu „skattalög-
reglunnar“, þar sem Guð-
mundur Skaftason ræður
ríkjum og neitar blöðum
um fréttir, að þar sé fiskur
á hverjum öngli. Meira
fékkst liann ekki til að segja
um rannsókn skattsvikanna.
Áramótavínið tafðist
Ólafsfirði, 5. janúar. — Ulviðra-
tíð hefir verið hér um jól og
nýár, og á gamlársdag geysaði
iðulaus stórhríð. Allar götur
urðu ófærar bílum en nú er
verið að ryðja þær. Vegurinn
fram í sveitina er ófær með
öllu.
Bátar hafa ekkert róið síðan
fyrir jól, enda slæmar gæftir og
fiskveið ekki komið.
Friður og spekt ríkti hér
manna á milli um jól og nýár.
Drangur var væntanlegur
hingað méð áramótaglaðningin
á gamlársdag, frá Siglufirði, en
vegna óveðurs tepptist hann á
leiðinni og kom ekki fyrr en á
nýársdag. — B. S.
NYTT SKIPAFELAG
ENN eitt skipafélag, Sjóleiðir
hf. hefur verið stofnað í Reykja
vík. Aðaleigendur þess eru Al-
bert Guðmundsson stórkaup-
maður og Kol og Salt hf. Félag
þetta er að semja um kaup á
sínu fyrsta skipi, Elsu Daníelsen
sem er 1240 tonn.
Lögreglan var kvödd á stað-
inn og járnaði fjóra óróasegg-
ina og flutti í fangageymslu en
tvo um borð, þar sem húsnæði
var þrotið í „Steininum“.
Sjómenn þessir beittu mót-
þróa svo sem geta þeirra leyfði,
en lögreglan var handfljót við
sitt verk.
Allir voru sjómenn þessir ölv
aðir, en börðust þó knálega þar
til lögreglan skakkaði leikinn.
Hinir erlendu gertir brutu
boi'ð o.fl. er þeir voru að gera
upp sínar sakir. En ekki sýndu
þeir heimamönnum ókurteisi,
utan lögreglumönnum.
Togaraaflinn glæðist
VEIÐI hefir nokkuð glæðst hjá
Akureyrartogurunum að undan
förnu, og er siglt með aflann,
því enn er hátt verð á fiski a. m.
k. í Englandi. SVALBAKUR
seldi 30. desember í Grymsby,
113 tonn fyrir 11.629 pund, sem
er nokkuð á 13. krónu fyrir
hvert kíló Togarinn fór á veið
ar í gær. HARÐBAKUR fór ó-
leiðis til Englands 2. janúar og
selur þar væntanlga 8. janúar
um 140 tonn. SLÉTTBAKUR er
einnig á leið þangað með svip-
að magn og er ráðgert að hann
selji þar 11. janúar.
Allir vegir f rá Akureyri lokuðnst
vegna fannkomu og
MIKILIj illviðrakafli hefir ver-
ið að undanförnu á öllu land-
inu. Þriðjudaginn 29. desember
gerði norðan livassviðri nreð
snjókomu um nær allt land, en
víðast stytti nokkuð upp á gaml
ársdag, samt liefir nokkuð snió
að öðru hvoru síðan. Rlikill snjó
setti niður og frétíir liermdu að
flesíir bílvegir landsins hefðu
orðið ófærir.
Á Akureyri er nú meiri snjór
á götunum en komið hefir í
einu, mörg undanfarin ár. Einn
dag mátti heita að allar götur
væru ófærar bílum. Á gamlárs-
dag voru margar götur ruddar,
en ennþá er víðast þung færð í
bænum og nokkrar götur alveg
ófærar.
Flugsamgöngur hafa verið
stopular og lá innanlandsflug
niðri tvo síðustu daga ársins.
Um 40 sm. snjólag var á flug-
vellinum hér og var mikið verk
að hreinsa hann. í fyrradag var
óveðurs um áramótin
Reykj avíkurfiugvöllur lokaður
vegna veðurs og í gær blðu nær
200 manns á Akureyri eftir flug
fari til Reykjavíkur.
Hcita mátti að allir vegir hér
aðsins lokuðust, en þó mun
einna minnstur snjór vera í
Hrafnagilshreppi. Mjólkurflutn
ingar til bæjarins hafa gengið
mjög illa undanfarna daga en
þó hefur aldrei verið mjólkur
skortur í bænum. Margir mjólk
urbílstjórarnir hafa brotist á-
fram nótt og dag á trukkum
með drif á öllum hjólum.
Samkvæmt því sem Guðmund
ur Benediktsson vegaverkstjóri
tjáði blaðinu, eru allir vegir frá
Akureyri ófærir eða þungfær-
ir fyrir alla bíla, nema þá sem
eru með drifi, bæði á fram- og
afturhjclum. Snjór er jafnfall-
inn, en þó víða þykkir skaflar
og alltaf skefur í slóðir. Vega-
(Framhald á blaðsíðu 7).
83 BANASLYS
Á SÍÐASTA ÁRI
Á SÍÐASTA ári urðu 83 bana-
slys hér á landi. Banaslys í um-
ferð urðu 27 en 33 drukknuðu
og 23 létust af voðaskotum,
eitri, bruna og byltum. Einn
maður beið bana í flugslysi. —
Banaslys árið 1963 urðu 105
talsins.
Á síðasta ári var 177 manns
bjargað frá drukknun og úr
eldsvoða.
Héldu jólin á sfrandstað
Fiskverðið ókomið - Sáttafundur í gær
Bátaflotinn liggur bundinn vegna sjómannaverkfallsins, er
liófst syðra 1. janúar og 5. janúar á Akureyri. Verkfallið nær
til allra veiða bátaflotans í Reykjavík,, Ilafnarfirði, Kefla-
vík, Akranesi og Grindavík. Á Akureyri nær verkfallið ekki
til síldveiðibáta, og eru nokkrir bátar þaðan farnir til síld
veiða eystra.
Ákvörðun yfirnefndar verðlagsráðs sjávarútvegsins hafði
ekki komið fram er blaðið siðast frétti í gær. En sáttafundur
var þá boðaður.
Slitnað hefur upp úr samningsviðræðum um kaup og kjör
sjómanna á Vestfjarðabátum.
Raufarhöfn, 5. janúar. — Mikill
snjór er hér og er jeppum og
stórum bílum aðeins fært um
nágrennið, en vegirnir til Húsa
víkur og Þórshafnar eru lokað-
ir.
Jól og áramct voru haldin á
friðsaman hátt.
Frá því á Þorláksdag hefur
Björgun h.f. úr Reykjavík unn
ið að björgun þýzka skipsins
Súsanna Reith af strandstaðn-
um á Kotfiúð. Eru notaðir tveir
kraftmiklir trukkbílar við björg
unina. Á jóladag tókst að færa
skipið um 2—3 metra á flúð-
inni og í gærkveldi tókst enn
að þoka því til. Virðist það nú
aðeins fast að framan og talið
líklegt að það losni alveg við
næstu tilraun. í dag er unnið við
að steypa í rifur á skipinu þar,
sem sjór flæðir inn. Þegar því
verki er lokið, á að draga skipið
af flúðinni og upp á sandgrynn-
ingar, austan til við höfnina, þar
sem bráðabirgðaviðgerð fari
fram. — Áhöfn skipsins er enn
um borð og hefur unnið að björg
unarstarfinu. H. H.
NY FRAMHALDS-
SAGA í BLAÐINU
f DAG hefst norsk fram-
haldssaga í blaðinu í þýð-
íngu Helga Valtýssonar. Á
8. blaðsíðu er höfundurinn
kynntur. En þeim, sem fylgj-
ast vilja með sögunni er ráð-
lagt að gera það frá byrjun
svo þeir njóti hennar sem
bezt.