Dagur - 06.01.1965, Síða 2
2
Husfreyjan á Ytra-Hvarfi 50 ára
r
Ákureyringar taka þáit í Isiandsmófi í handknatt-
leik innanhúss í fyrsta sinn
Æfingar fara fram í geymsluskúr á Otlcleyri
NOKKRIR leikir hafa farið
fram í annarri deild íslands-
mótsins í handknattleik. Sex
lið eru í deildinni og meðal
þeirra er eitt frá Akureyri, og
mun það vera í fyrsta sinn sem
Akureyringar taka þátt í ís-
landsmóti í handknattleik, inn-
anhúss, enda aðstæður erfiðar
til æfinga í hinum þrönga sal
íþróttahúss Akureyrar. En nú
hafa handknattleiksmennirnir
leitað annarra úrræða með æf-
ingar. Hafa þeir tekið á leigu
geymsluskúr sem Rafveita Ak-
ureyrar á og fara æfingar þar
fram 3—4 sinnum í viku undir
leiðsögn Frímanns Gunnlaugs-
sonar og Gísla Bjarnasonar. Að
vísu er skúr þessi ekki upphit-
Ármann og F. H. eru
&
efst í I. deild
ÍSLANDSMÓTIÐ í handknatt-
leik karla hófst skömmu fyrir
jól. Sex leikir hafa farið fram
í fyrstu deild, og hafa úrslit
þeirra orðið þessi:
KR—Víkingur 17:17
Ármann—Fram 24:22
FH—Haukar, 32:15
(bæði félögin frá Hafnarf.)
Fram:Víkingur 22:19
FH-.KR 25:17
Ármann—Haukar 20:15
FH og Ármann hafa því forust
una í deildinni með 4 stig hvort
TAKIÐ ÞÁTT í
SKÍÐAGÖNGUNNI
NORRÆNA skiðagangan hófst
að nýju á Akureyri í gær. —
Brautin er öll í bænum og er
gengið frá íþróttahúsinu, upp í
Mýrarveg, suður í Austurbyggð,
niður í Þórunnarstræti hjá Elli-
heimilinu og síðan norður að
íþróttahúsi. Um helgar í björtu
verður fólki gefinn kostur á að
ganga stærri hring, þ. e. upp
fyrir Lund, þaðan niður í Aust-
urbyggð og að íþróttahúsi.
Ef ekki viðrar til göngu í bæn
um verður gangan flutt að
Skíðahótelinu, en þar gefst
fólki einnig kostur á að ganga
um helgar.
Merki göngunnar fást við rás-
mark við íþróttahúsið og í
bókabúð Jónasar Jóhannssonar.
Ef félög eða félagasamtök
óska eftir að ganga á öðrum tím
um, eru viðkomandi beðnir að
hafa samband við eftirtalda að-
ila: Hermann Stefánsson, sími
1-13-44, Harald M. Sigurðsson,
sími 1-18-80, Frímann Gunn-
laugsson, sími 1-17-74 (Skíða-
hótelið, sími 02) og Hermann
Sigtryggsson, sími 1-27-22.
Fólk er hvatt til að ljúka
göngunni sem fyrst, meðan
skíðafæri er gott.
aður og með steingólfi, en
stærð hans er sú sama og á
keppnssalnum að Hálogalandi í
Reykjavík þar sem fiestir leik
irnir í íslandsmótinu fara fram.
Er mikill munUr að fá þó þessa
aðstöðu, þó ekki sé hún til fyrir
myndar. Þetta dæmi sýnir enn
hvað bygging nýs íþróttahúss á
Akureyri er aðkallandi.
Fyrstu leikir Akureyringa
verða um næstu helgi, að Há-
logalandi. Á laugardag leika
þeir við ÍR og á sunnudag við
Þrótt og Keflvíkinga, svo byrj
unin verður erfið. Allir leikirn
ir verða fyrir sunnan, þar sem
engin keppnisaðstaða er á Ak-
ureyri. Þurfa Akureyringamir
fjcrar ferðir suður, og verður
þátttakan í mótinu því mjög
kostnaðarsöm. En viðleitni
þeirra til að halda uppi heiðri
Akureyrar í þessari íþrótta-
grein er virðingarverð.
AfrekasUrá fslendinga í frjálsum íþróttum 1964
FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND
íslands hefur tekið saman
beztu afrek íslendinga í frjáls-
um íþrótlum 1964. Verður skrá
in birt bér í þættinum, eftir því
sem rúm leyfir. Ef einhverjir
hafa eitthvað við skrána að at-
huga, ættu þeir að koma athuga
semdum á framfæri sem fyrst.
109 m hlaup. sek.
Valbjörn Þorláksson ÍR 10,7
Ólafur Guðmundsson KR 10,8
Reynir Hjartarson Þór 10,9
Einar Gíslason KR 11,0
Skafti Þorgrímsson ÍR 11,0
Haukur Ingibergson HSÞ 11,2
Þóroddur Jóhannss. UMSE 11,2
Ómar Ragnarsson ÍR 11,2
Úlfar Teitsson KR 11,2
Einar Frímannsson KR 11,3
Árni Johnsen ÍBV 11,3
Kjartan Guðjónsson ÍR 11,3
Sigurður Friðriksson HSÞ 11,4
Jón Benónýsson HSÞ 11,4
Friðrik Friðbj.s. UMSE 11,4
Guðmundur Jónsson HSK 11,4
Hrólfur Jóhannesson HSH 11,4
Sigurður Geirdal UBK 11,4
Sig. V. Sigmundss. UMSE 11,5
Þórður Þórðarson KR 11,5
Guðbjartur Gunnarss. HSH 11,5
Þorvaldur Benediktss. KR 11,5
Jón Þ. Ólafsson ÍR
11,5
200 m hlaup. sek.
Valbjörn Þorláksson KR 22,3
Ólafur Guðmundsson KR 22,4
Skafti Þorgrímsson ÍR 22,9
Reynir Hjartarson Þór 23,1
Einar Gíslason KR 23,3
Þórarinn Ragnarsson KR 23,3
Kristján Mikaelsson ÍR 23,4
Ómar Ragnarsson ÍR 23,5
Kjartan Guðjónsson ÍR 23,5
Árni Johnsen ÍBV 23,6
Sigurður Geirdal UBK 24,2
Haukur Ingibergsson HSÞ 24,3
Þórarinn Arnórsson ÍR 24,3
Halldór Guðbjörnsson KR 24,4
Friðrik Friðbj.s. UMSE 24,5
Sig. V. Sigmundss. UMSE 24,6
Jón Ingi Ingvarsson USAH 24,9
Lárus Guðmundss. USAH 25,0
Guðmundur Jónsson HSK 25,0
Kristján Stefánsson ÍR 25,0
400 m hlaup. sek.
Valbjörn Þorláksson KR 50,0
Ólafur Guðmundsson KR 50,2
Kristján Mikaelsson ÍR 50,9
Þórarinn Ragnarsson KR 51,0
Skafti Þorgrímsson ÍR 51,1
Einar Gíslason KR 52,1
Ómar Ragnarsson ÍR 52,7
Helgi Hólm ÍR 52,8
Þorsteinn Þorsteinsson KR 52,8
Þórarinn Arnórsson ÍR 53,0
Halldór Guðbjörnsson KR 53,1
Kjartan Guðjónsson ÍR 54,5
Guðbjartur Gunnars. HSH 54,6
Haukur Ingibergss. HSÞ 54,7
Sigurður Geirdal UBK 54,8
Marteinn Jónsson UMSE 55,0
Agnar Levy KR 55,0
Hrólfur Jóhannesson HSH 55,7
Þorvaldur Benediktss. KR 56,2
Árni Johnsen ÍBV 56,7
800 m hlaup. mín.
Þórarinn Ragnarsson KR 1.56,8
Kristleifur Guðbj.s. KR 1.56,8
Halldór Guðbj.s KR 1.57,1
Agnar Levy KR 1.58,0
Þórarinn Arnórsson ÍR 1.59,2
Halldór Jóhannesson ÍR 1:59,8
Þorsteinn Þorsteinsson ÍR 2.01,7
. Helgi Hólm ÍR 2.03,6
Baldvin Þóroddsson KA 2.06,5
Sigurður Geirdal UBK 2.07,8
Vilhj. Björnsson UMSE 2.08.1
Marteinn Jónsson UMSE 2.09,0
Marino Eggertsson UNÞ '2.10,2
Jón Magnússon KR 2.10,2
Jón H. Sigurðsson HSK 2.11,9
Guðbj. Gunnarss. HSH 2.15,0
Ómar Ragnarsson ÍR 2.15,4
Bjarni Reynirsson KR 2.15,4
Þórður Ólafsson USVH 2.18,6
Guðm. Guðjónsson ÍR 2.21,3
HINN 2. janúar, 1915 fæddist á
Þorleifsstöðum í Svarfaðardal
stúlkubarn, sem í skírninni
hlaut nöfnin Friðrika Vigdís, og
á því hálfrar aldar afmæli um
þessi áramót. Foreldrar hennar
voru búandi hjón þar, þau Anna
Jóhannesdóttir og Haraldur
Stefánsson. Var Anna dóttir
þeirra merku Hæringsstaða-
hjóna Jónu Jónsdóttur frá
Göngustöðum og Jóhannesar
Sigurðssonar frá Auðnum, en
feður þeirra Hæringsstaða-
hjóna voru bræður, synir hinna
mannkostaríku Hreiðarstaða-
kots-hjóna, Steinunnar og Sig-
urðar, sem þar bjuggu alllengi
á fyrri hluta 19. aldar. Eru af
komendur þeirra orðnir marg-
ir og hafa í hvívetna reynzt hin
ir nýtustu þjóðfélagsþegnar. Har
aldur var sonarsonur síra Bald-
vins á Upsum, en móðir Harald
ar og amma Rikku á Ytra-
Hvarfi var Kristín Jónsdóttir
frá Hrísum.
Má með sanni segja, að það
hafi verið kjarnakvistir bæði í
föður og móðurætt Haraldar,
svo langt sem rakið verður. Sex
ára gömul fluttist Rikka með
foreldrum og systkinum að
Ytra-Hvarfi. Hér gæti það ekki
síður átt við allan systkinahóp-
inn, sem sagt var við Jóhannes
bróðir hennar á sínum tíma að:
Ungur þú fluttist ofan í sveit
unaðar fannst þar nýjan reit
í Garðshorn ckst góðum vagni.
Og þegar þú aldur áttir til
öllu þá vildir gera skil,
er miðaði að góðu gagni“.
Allir, sem til þekktu — og
þeir voru margir — vissu að svo
samvalin voru systkinin að efla
glaðværð á heimilinu og gera
það aðlaðandi, að næstum ó-
venjulegt má kalla. í þessu un-
aðslega andrúmslofti ólst Rikka
upp, og þegar hún, ásamt syst-
kinum sínum, hafði aldur og
þroska til, var U. M. F. „Þor-
steinn Svörfuður“, aðal vettvang
urinn utan heimilis. Og þannig
liðu árin, og má með sanni segja
eins og kom fram í afmælis-
kveðju, þegar ungmennafélagið
var 25 ára að:
„Oft var ljúft um liðna æfidaga
í leik og starfi, það mun réttust
saga.“
Að vinna að ýmsum félags-
Spanskflugan sýnd á Svalbarðsströnd og víðar
SÁ vinsæli gamanleikur hefur
að undanförnu verið leikinn af
ungmennafélaginu Æskan á
Svalbarðsströnd, bæði hér
heima og í næsta nágrenni.
Gamanleikur þessi er í þrem
þáttum, en er eins og margir
vita eftir Arnold & Back. Ung
mennafélagið réði sér leikstjóra
frá Akureyri Júlíus Oddsson,
sem margir hafa eflaust séð á
leiksviði. Ekki veit sá, er þetta
skrifar hvort Júlíus er vanur
leikstjóri, en ef svo er ekki,
virðist hann ekki byrja illa, því
siíka alúð hefur hann lagt í
vinnu sína með þessu áhuga-
fólki að mjög er rómað. Tilgang
ur minn með þessum fáu línum
var ekki sá að skrifa hér neinn
leikdóm, því slíkt er ávalt nokk
uð erfitt verk, en staðhæft get
ég að engum mun leiðast er sýn
inguna sér. Eg held að ekki
verði komist hjá að benda á, að
einstaka leikarar gera sínum
hlutverkum verulega góð skil
og vil ég alveg sérstaklega
nefna frú Guðbjörgu Kortsdótt
ir, Kristján Benediktsson og
Guðmund Haraldsson. Heyrst
hefur að óskað hafi verið eftir
að leikritið yrði sýnt mjög víða
í nærliggjandi sveitum. Ljúka
vil ég þessum fáu línum með
þakklæti til leikstjóra og leik-
aranna allra fyrir ánægjulega
stund. Skúli Jónasson.
málum með þeim Ytra-Garðs-
hornssystkinum, var sérstaklega
ánægjulegt og gleymist ekki.
Það yrði of langt mál að rekja
þá sögu nánar hér, og læt ég
því staðar numið, um þau efni.
Það mun hafa verið 1950, sem
Rikka flytur að Ytra-Hvarfi og
giftist Ólafi Tryggvasyni fjöl-
hæfum dugnaðarbónda og ágæt
is dreng. Um alllangt skeið hef-
ur Ólafur annast kirkjusöng í
tveimur og oft þremur kirkjum
í prestakallinu, með sínum bú-
störfum. Hefur konan staðið við
hlið hans í því starfi, þegar heim
ilisástæður hafa leift, enda eru
þau hjón bæði unnendur söngs
og tóna, einkum kirkjusöngs.
Nú er mér tjáð, að Jóhann son
ur þeirra sé mjög efnilegur tón
listai'nemandi í barnaskólanum
og má því segja, að eplið falli
sjaldan langt frá eikinni. Tel ég
víst, að hin börnin séu líka
gædd góðum tónlistarhæfileik-
um, að meira eða minna leyti.
En nú er bezt að slá sem fyrst
botn í þetta, sem aðeins átti að
vera stutt afmæliskveðja. Eg vil
svo að lokum senda húsfreyj-
uni á Ytra-Hverfi og fjölskyldu
hennar mínar beztu árnaðarósk
ir með afmælið og farsælan
framtíðarhag.
Magnús Gunnlaugsson.
- Ný bók Elinborgar
(Framhald af blaðsíðu 7).
um tilfellum eflt hina skáldlegu
innsýn, svo að persónusköpun-
in sé við hæfi.
Það er að vísu nokkuð örð-
ugt viðfangsefni að gera slíkar
ættarsögur, sem ná yfir langt
tímabil og hafa reyndar engan
endi. Sagan rís á breiðum
grunni, fjöldamargt fólk kemur
við sögu eins og hjá höfundum
íslendingasagna, og af sögusvið-
inu liggja vegir í allar áttir. En
þetta er eins og lífið er sjálft.
Vandinn liggur í því að gæða
persónurnar lífi og hafa tilfinn-
ingu fyrir aldarfarinu, en það
krefst skyggni og þekkingar
um örlög horfinna kynslóða.
Frú Elinborg þekkir sitt fólk
og sér það Ijóslifandi fyrir sér.
Þess vegna verður saga hennar
litrík og kraftmikil, jafnframt
sem hún hefur þann tilgang að
gera grein fyrir þeim eðliskost-
um, sem gerðu þjóðinni það
unnt, að lifa af eitt erfiðasta
tímabil þjóðarsögunnar, þegar
einokun og hallæri krepptu fast
ast að.
Saga hennar verður því mik-
ill minnisvarði yfir íslenzka
bændamenningu. Söguhetjur
hennar gleymast ekki. Frú Elin
borg hefur skrifað bókmennta-
verk, sem lengi verður lesið.
Benjamín Kristjánsor'..
Frjálsíjjróttaæfingar
ÆFINGAR innanhúss hjá
F rj álsíþró ttar áði Akureyrar
hefjast í íþróttahúsinu í kvöld
kl. 18 og verða þar fyrst um
sinn á miðvikudögum.
Aðalkennari verður Kjartan
Guðjónsson.