Dagur - 13.01.1965, Síða 1
Dagur
Símar:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
- ........— —j
XLVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 13. janúar 19G5 — 3. tbl.
Ný framhaldssaga
EIRÍKUR HAMAR
Fylgizt með frá byrjun.
FORSTJÓRASKIPTI
HJÁ Ú. A.
UM síðustu áramót urðu for-
stjóraskipti hjá útgerðarfélagi
Akureyringa h.f. Lét þá Andrés
Pétursson af störfum, og flutti
til Hafnarfjarðar, þar sem hann
lekur við forstjórastarfi við nið
ursuðuverksmiðju. Við starfi
Andrésar hefur tekið, Vilhelm
Þorsteinsson, kunnur togara-
skipstjóri á Akureyri.
Enn er ágætt fiskverð í Eng-
landi og seldi Ilarðbakur í
Grimsby 8. þ.m. 154,5 tonn fyr
ir 16,411 pund. Sléttbakur seldi
þar í gær 124.3 tonn fyrir 14.374
pund. Fengust því nær 14 krón-
ur fyrir hvert fiskkíló. Sléttbak
ur fór frá Grimsby í gærkveldi,
en Harðbakur er þar enn, vegna
ketilbilunar. Svalbakur fór á
veiðar 7. þ.m. en aflar lítið, enda
er veiðiveður slæmt á miðun-
Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri er húi giæsiiegasta byggmg, en þarf nú að auka húsakost smn.
Stækkun Fjórðungssjúkrahússins á Ák. undirbúin
Torfi Guðlaugsson framkvæmdastjóri
svarar nokkrum spurningum
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ á Akureyri stendur hátt á Suður-
brekkunni, er myndarleg bygging á fögrum stað. Það er 11 ára,
byggt af myndarskap, en er orðið of lítið.
um.
F ramsóknarmenn
Akureyri!
NÆSTI FUNDUR verður í
skrifstofu flokksins, Hafnar-
stræti 95, fimmtudaginn 14. þ.
m. ki. 8.30 e. h.
Ingvar Gíslason alþingismað-
ur flytur framsöguerindi um
stjórnmálin. Allir velkonmir
meðan liúsrúm leyfir.
Framsóknarfélögin.
Félag ungra Framsókn-
armanna á Akureyri
heldur KVÖLDVERÐARFUND
á Hótel KEA sunnudaginn 17.
janúar n.k. kl. 7 e.h.
Ingvar Gíslason ræðir stjórn
málaviðhorfin.
Félagar fjöhnennið og látið
stjórnina vita um þátttöku, ekki
síðar en á laugardag.
Aðfararnótt sl. föstudags brut-
ust tveir ungir bæjarmenn inn
í Kaupfélag Verkamanna við
Strandgötu á Akureyri. Brutu
þeir glugga á bakhlið og náðu
þaðan í slagbrand hurðarinnar.
Fólk vaknaði við hávaðann og
gerði þegar lögreglunni aðvart.
En piltar munu hafa orðið var-
ir mannaferða því þeir tóku þeg
ar til fótanna og voru horfnir
er lögreglan kom á staðinn. Ný
fallinn snjór gerði lögreglu-
mönnum auðvelda eftirförina
suður í Skipagötu og niður að
verzluninni Höfn en þaðan að
Á þessum árum hafa breyting-
ar orðið örar í sjúkrahús- og
heilbrigðismálum, og því miður
hefur sjúkrahúsið okkar, sem
talið er þó hið fullkomnasta ut
an höfuðborgarinnar, naumast
getað opnað dyr sínar að fullu
fyrir nýjungunum vegna
þrengsla, en fjöldi sjúklinga lief
ur vaxið verulega.
Blaðið hitti um daginn að
máli framkvæmdastjcra stofn-
unarinnar, Torfa Guðlaugsson,
og spurði hann um rekstur og
fyrirhugaðar framkvæmdir.
Er það rétt Torfi, að sjúkra-
liúsið sé oftast yfirfullt af sjúk-
lingum?
Aðsókn hefur verið mikil, er
sjá má af því, að á síðasta ári
voru 55,231 legudagur á sjúkra
húsinu og er það töluvert meira
en árið áður. Segja má að alltaf
bakhlið Verzl. Br. Sveinssonar.
Þar liggur stigi upp á húsþakið
og hlupu flóttamennirnir þar
upp. Lögreglan fór þangað og
handsamaði annan, sem þá var
kominn upp á þak Nýja Bíós,
en hinn hvarf, og fannst ekki
að sinni. En hann hafði stokkið
niður á götu af þaki Saumastofu
Gefjunar, um 6 metra fall. Litlu
síðar var hann handtekinn
heima hjá sér og var hann ó-
meiddur. Báðir voru piltar þess
ir undir áhrifum víns og játuðu
þeir brot sitt tregðulaust við
yfirheyrslur.
sé fullt og meira að segja yfir
fullt. Á síðasta ári komu 2182
sjúklingar til okkar, auk þeirra,
sem koma til rannsóknar.
Torfi Guðlaugsson
framkvæmdastjóri
En er það rétt að ykkur gangi
betur en öðrum sjúkrahúsum
að fá starfsfólk?
Hjúkrunarkvennaskorturinn
við sjúkrahús landsins hefur
aldrei verið meiri en nú, segir
Torfi, en satt er það að við höf
um ekki þurft að kvarta í því
efni. Og það er mikið lán fyrir
stoínunina. Skýringin á því er
eflaust að nokkru fóigin í nýja
hj úkrunarkvennabústaðnum,
sem við höfum komið upp og
hjúkrunarkonur telja sér mik-
ils virði. Hann hafði jafnvel að
dráttarafl löngu áður en hann
var tekinn í notkun. Svo höfum
við jafnan nokkurn hóp hjúkr
unarnema frá Hjúkrunarkvenna
skólanum í verklegu námi, og
margar stúlkurnar komu til
okkar aftur, sem útlærðar
hj úkrunarkonur.
Hvað er starfsfólkið margt
við Fjórðungssjúkrahúsið?
Yfir 100 manns, eða 105 að
jafnaði. Fólksskipti eru tíð hjá
okkur eins og fleirum, einkum
hvað snertir þá, sem ekki hafa
menntað sig til ákveðinna
starfa. Á sl. ári hafa unnið hjá
okkur um 300 manns. Við greið
um um 12 milljónir króna í
vinnulaun á ári. Sjúkrahúsið
annast víðtækari þjónustu en
þá, sem hinum sjúku innan
veggja stofnunarinnar er veitt.
Má þar sem dæmi nefna, að
sjúkrahúsið er einnig slysavarð
stofa með slysavakt nætur og
daga allan ársins hring. Og
rannsóknarstofan annast ýms
verkefni fyrir stórt svæði.
MIKIL ÍSING settist á símalín-
ur víða um land í fyrradag, en
þá snjóaði mjög mikið í frost-
lausu veðri. Hafa símalínur
slitnað og staurar brotnað.
Á Vatnsskarði bilaði símalín-
an í fyrrinótt og lauk þar við-
gerð litlu eftir hádegi í gær.
Gera þurfti við línuna á sex
stöðum á tveggja kílómetra
kafla.
Nóttina áður brotnuðu tveir
símastaurar á Fljótsheiði og lín
ur slitnuðu vegna ísingar. Lá
símalínan niðri á um það bil
kílómeters kafla í g'ær, að því
er símastjórinn á Akureyri,
Gunnar Schram, tjáði blaðinu.
Fenginn var í gær snjóbíll frá
Húsavík til að fara fram á
Fljótsheiði með viðgerðarmenn.
Um kl. 5 í gær var viðgerð ekki
lokið og símasambandslaust
austan við Fosshól. Hins vegar
Hveniig gengur reksturinn
fjárhagslega?
Árið 1962 og 1963 voru þau
erfiðustu en síðasta ár var
skárra. Akureyrarbær rekur
sjúkrahúsið og leggur því
ákveðna fjárhæð árlega, en rík-
ið veitir ákveðinn styrk á hvern
legudag eins og öðrum sjúkra-
húsum. Aðaltekjurnar eru auð-
vitað dággjöldin frá sjúkrasam-
lögunum.
Er það rétt, sem heyrzt hefur,
að stækkun sjúkrahússins
standi fyrir dyrum?
Já, húsnæðið er orðið alltof
lítið og stækkun því óhjákvæmi
leg. Fyrsti undirbúningur er
þegar hafinn, þótt eflaust verði
(Framhald á blaðsíðu 7).
hafði Akureyri radíosamband
við Egilsstaði.
Milli Reykjahlíðar og Breiðu-
mýrar var símalínan biluð á
fleiri stöðum.
Hátíðasýning á afmæli
þjóðskáldsins
RÁÐGERT er að sýningar á
leikritinu Munkamir á Möðru-
völlum, eftir Davíð Stefánsson,
hefjist þann 21. janúar n. k.
Af sérstökum ástæðum verð-
ur sú breyting að þessu sinni
frá því sem áður hefur verið,
að hin venjulega frumsýning
fellur niður og þar með réttur
frumsýningargesta til þeirra
sæta er þeir hafa áður haft. f
þess stað verður fyrsta sýning-
in, hátíðasýning, helguð 70 ára
afmæli Davíðs skálds Stefáns-
(Framhald á blaðsíðu 4).
Stjóm F. U. F. Ak.
Lögreglan eltir tvo innbrotsþjófa
Náði öðrum á þaki Nýja-Bíós en hinn stökk niður
Miklar símabilanir
Mikil ísing á símalínum um land allt - í gær
var símasambandslaust við Austurland